Morgunblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
3
Frystihúsi BUH lok-
ad á meðan endur-
skipulagning f er fram
130 manns sagt upp störfum af
þeim sökum í 6 til 8 vikur
Frystihús Bæjarútgerðar Hafnarf jarðar
ÚTGERÐARRÁÐ Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar ákvað á fundi sín-
um ( fyrrakvöld, að framkvæma
mjög róttækar breytingar á starf-
semi frystihúss bæjarútgerðar-
innar og rekstri þess ( heild.
Ástæðurnar eru, að vandamál
frystihússins eru meiri en hinn
almenni vandi, sem nú steðjar að
frystiiðnaðinum í landinu og á
Suðvesturlandi. Af þessum sök-
um var öllu starfsfólki frystihúss-
ins, um 130 manns, sagt upp störf-
um ( gær, en nokkrir starfsmenn
eru hálfsdagsfólk og lætur þvi
nærri, að uppsagnirnar hafi náð
til um 110 starfa sé miðað við
heilsdagsstörf.
Guðmundur Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar, skýrði Morgun-
blaðinu frá þessu í gær. Hann
kvað mjög mikinn hallarekstur
hafa verið á rekstri frystihússins
það sem af væri þessu ári. „Við
höfum dregizt aftur úr tæknilega,
“ sagði Guðmundur „og rekstrar-
lega einnig miðað við hús fyrir
vestan og norðan. Getum við
ómögulega setið lengur undir þvi,
að í hvert skipti, sem eitthvað
bjátar á í þessum iðnaði á þessu
svæði, komi í fjölmiðlum með
réttu, að stór hluti vandamálsins
sé, að húsin hafi ekki verið í takt
við tímann, hvorki tæknilega né
rekstrarlega. Þvi er löngu fylli-
lega ástæða til að taka þetta til
gagngerrar endurskoðunar og
endurbóta."
Guðmundur kvað þetta þýða
það, að ætlunin væri að breyta
ýmsu í húsinu, koma upp kæli-
geymslum, bæta og auka pökkun-
ar og snyrtiaðstöðu — „í fáum
orðum sagt, að gera okkur hæfari
til að dreifa vinnslunni á hráefn-
inu á lengri tima án þess að gæði
þess rýrni og framleióa það i sem
verðmætastar pakningar eins og
markaður segir til um á hverjum
tíma.“
Það er von forráðamanna fyrir-
tækisins, sagði Guðmundur
Ingvason, að endurskipulagning
fyrirtækisins taki eins skamman
tíma og frekast er kostur. Hann
kvað ekki unnt að segja til um
það, hversu langan tima endur-
bæturnar taki. Væntanlega þyrfti
að flytja til vélar og tæki og þar
sem allt slikt væri orðið það gam-
alt, vissi enginn, hvað upp kæmi,
þegar það yrði flutt, þótt viðhald
hafi i raun verið gott allan tím-
ann. „Við vonum þó að stöðvunin
vari ekki lengri tima en 6 til 8
vikur.“
í frystihúsinu starfa um 130 til
140 manns. Er það ekki allt heils
dags fólk. Fjöldi starfanna við
frystihúsið sé miðað við heildags-
störf er 110. Annars staðar í fyrir-
tækinu vinna að auki um 200
manns, i saltfiskdeild og skipum
Bjarútgeróarinnar. Guðmundur
sagði að ætlunin væri að keyra
saltfiskvinnsluna eins og frekast
væri kostur á meðan á þessu stæði
og því yrði unnt að útvega ein-
hverju af starfsfólki frystihússins
vinnu þar. Togararnir munu
áfram leggja upp hjá fyrirtækinu
og Guðmundur sagðist vona að
það tækist að vinna hann í salt-
verkun fyrirtækisins og losna við
hann á innanlandsmarkaði.
Flest starfsfólk frystihússins er
á eins mánaðar uppsagnarfresti
og hættir því ekki fyrr en um
næstu mánaðarmót. Guðmundur
sagðist hins vegar vonast til að
unnt yrði að hefjast handa við
breytingarnar mjög fljótlega, m.a.
til þess að starfsfólk fyrirtækisins
verði sem allra stytztan tíma at-
vinnu- og launalaust. „Við ætlum
okkur að fara gaumgæfilega í
gegnum allan reksturinn og
tæknihliðar málsins til þess m.a.
að fyrirtækið geti staðið við skyld-
ur sínar við starfsfólkið, eigendur
fyrirtækisins og þjóðfélagið í
heild. Þar með getum við skilað
því bezta, sem búast má við af
okkur á hverjum tima.“
„Tap á rekstri fyrirtækisins á
þessu ári hefur verið geysilega
mikið“ — sagði Guðmundur
Ingvason, framkvæmdastjóri —
„og reksturinn mjög erfiður. Er
það þó varla eingöngu út af þessu.
Þar eru ákveðnar ástæður, sem
liggja að baki, sem að mörgu leyti
voru óviðráðanlegar. M.a. má þar
nefna, er leggja varð gamla Maí í
ársbyrjun og Júní bilaði á sama
tima. Þá höfðum við mjög litið
hráefni í janúar og febrúar og
urðu þeir mánuðir okkur þvi
mjög erfiðir í rekstri, þar sem við
m.a. völdum þann kost þá að segja
starfsfólki ekki upp.“
„Hinu verður ekki neitað,“
sagði framkvæmdastjóri BÚH,
,,að vandamálin eru mjög mikil og
í raun fyrir löngu orðið timabært
að takast á við þau. Endurskoðun-
in var samþykkt samhljóða af öll-
um útgerðarráðsmönnum og sem
betur fer er mjög góð samstaða
um það að menn gera sér grein
fyrir að þarna sé um rekstrariegt
vandamál að ræða, sem verður að
leysa. í því eru Hafnfirðingar
mjög málefnalegir og lita einung-
is á þetta sem rekstrarlegt vanda-
mál og blanda ekki saman við það
óskyldum hlutum.“
Um útgerðarráðsfundinn sagði
Guðmundur Ingvason að á honum
hafi hann lagt fram tillögur um
það, hvernig snúast ætti gegn
þessum vanda, hvað gera ætti.
Þær tillögur voru að sjálfsögðu
bókaðar og á þær var fallizt. Eru
þessar bókanir alllangt mál, rök-
studdar greinargerðir og tillögur.
„Málin hafa nú i langan tima ver-
ið skoðuð niður í kjölinn og þetta
er okkar sameiginlega niður-
staða.“
Að lokum spurði Morgúnblaðið,
hvort Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
fengi einhverja aðstoð frá rikis-
valdinu við þessa endurskipu-
lagningu fyrirtækisins. Guð-
mundur Ingvason, framkvæmda-
stjóri svaraði: „Við vitum ekkert
um það. Við aðeins vónumst til, að
menn geri sér grein fyrir þvi, að
þegar slik vandamál koma upp og
einnig þegar menn vita að þetta
svæði allt saman er orðið á eftir
tímanum, tæknilega og rekstrar-
lega og þegar menn vilja takast á
við vandann og leysa hann, þá séu
allir ábyrgðir aðilar í þjóðfélag-
inu með þann skilning á málinu,
að unnt sé að leysa vandann. Það
eitt get ég sagt, að ég ber engan
kvíðboga fyrir því að það takist
ekki.„ Að sjálfsögðu fer það ekk-
ert milli mála að í okkar tækni-
legu og rekstrarlegu breytingar
er það rauður þráður, að við
stefnum að því að hefja rekstur
hér eins fljótt og kostur er með
ákvæðisvinnufyrirkomulagi og
teljum að þá verði búið að endur-
bæta húsið það mikið að grund-
völlur sé fyrir sliku fyrirkomu-
Framhald á bls. 26
Samningamál opinberra starfsmanna:
Sveitastjórnir vilja
bíða eftir ríkinu
Starfsmannafélögin vilja samflot
með ríkisstarfsmönnum
BÆJARSTARFSMENN vfðs
vegar að af landinu voru í gær á
sáttafundi með fulltrúum sveitar-
félaga í Lögbergi, húsi lagadeild-
ar Háskóla Islands. Á fundinum
buðu fulltrúar sveitarfélaganna
að beðið yrði með samningsgerð
við bæjarstarfsmenn á meðan
BSRB gengi frá samningum við
rikið. Vitnuðu þeir til þess sem
áður hafði tíðkazt, að bæjarfélög-
in hafi venjulega undirritað
kjarasamninga við viðsemjendur
sfna eftir að samið hefur verið við
ríkisstarfsmenn.
í gærkveldi var gefið kvöld-
verðarhlé og samningamenn
boðaðir aftur til fundar siðar um
kvöldið. í gær var haldinn sam-
eiginlegur fundur samninga-
nefnda allra bæjarstarfsmannafé-
laga og sátu hann 50 fulltrúar.
Fundurinn samþykkti einróma
eftirfarandi ályktun:
„Sameiginlegur fundur samn-
inganefnda bæjarstarfsmanna,
haldinn í Reykjavík 31. ágúst
1977, samþykkir að skora á ríkis-
stjórn og sveitastjórnir að ganga
þegar til samninga um kjaramálin
á þeim grundvelli, að launakjör
opinberra starfsmanna verði sam-
bærileg við það, sem nú er hjá
öðrum launþegum í þjóðfélaginu.
Fagnar fundurinn góðri sam-
stöðu bæjarstarfsmanna og ríkis-
starfsmanna í yfirstandandi bar-
áttu og heitir á alla opinbera
starfsmenn að standa fast á rétti
sínum í þeirri örlagaríku kjara-
deilu, sem samtökin eru nú í.“
Að sögn Kristjáns Thorlacius,
formanns Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, hefur enn ekkert
nýtt tilboð komið frá samninga-
nefnd ríkisins. Hann kvað stjórn
og samninganefnd BSRB myndu
Framhald á bls. 26
Þormóður
Runólfsson
látinn
ÞORMÓÐúR Runólfsson, gjald-
keri, Siglufirði, lézt á þriðjudag
tæplega 46 ára, er hann var að
laxveiðum (Fljótaá.
Þormóður Runólfsson átti sæti i
bæjarstjórn Siglufjarðar fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og einnig var
hann í bæjarráði.
Hann var ritstjóri Siglfirðings,
blaðs sjálfstæðismanna i Siglu-
firði, og einnig ritaði hann fjöl-
margar greinar í Mbl.
Eftirlifandi eiginkona Þormóðs
er Gerða Pálsdóttir og áttu þau 4
börn.
LITSJÓNVARPSTÆKI
Úrvalstæki, búin öllum tækninýjungum, svo sem línulampa og
viðgerðareiningum. Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Hagstæðir afborgunarskilmálar.
Verð:
20" tæki kr. 255.265 22" tæki kr. 300.625
26" tæki kr. 339.515
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Sendum
bæklinga,
ef óskað er.
H