Morgunblaðið - 01.09.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
5
Einn sótti
um ísafjörð
en enginn
um Reykholt
UMSÓKNARFRESTUR um
prestsembættín á ísafirði og í
Reykholti rann út 20. ágúst s.l.
Um ísafjörð barst ein umsókn frá
sr. Jakobi Ágúst Hjálmarssyni,
sóknarpresti á Seyðisfirði. Um
Reykholt sótti enginn. Kosið verð-
ur á Ísafirði seinnipartinn í
september. Sr. Sigurður
Kristjánsson, prófastur á ísafirði,
lætur nú af störfum fyrir aldurs
sakir en fráfarandi prestur i
Reykholti er sr. Jóhannes
Pálmason.
Munu beita
sér gegn rádn-
ingu réttinda-
lausra kennara
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá stjórn og fulltrúaráði
Stéttarfélags barnakennara í
Reykjavík.
Þriðjudagskvöldið 30. ágúst sl.
var birt viðtal í sjónvarpinu við
fræðslustjórann í Reykjavik,
Kristján J. Gunnarsson, þar sem
rætt var um kennaraskort i
grunnskólum borgarinnar.
Fræðslustjóri ræddi um nokkrar
leiðir til að leysa þann vanda og
benti m.a. á, að ein þeirra væri sú,
að ráða réttindalaust fólk til
kennslustarfa.
Af þeim sökum vill stjórn og
fulltrúaráð SBR (Stéttarfélags
barnakennara í Reykjavik) taka
eftirfarandi fram:
Undanfarin ár hefur fjöldi þess
fólks farið vaxandi víða um land,
sem stundar kennslustörf við
grunnskóla án tilskilinna
kennararéttinda. Fræðsluyfirvöld
hafa ráðið fólkið, og aðstandend-
ur barnanna látið það átölulaust,
en samtök kennara mótmælt aft-
ur og aftur árangurslaust. Á
þennan hátt hefur kennaraskort-
urinn verið leystur að mati yfir-
valda.
Fram til þessa hefur aðsókn
kennaramenntaðs fólks að yngri
deildum grunnsköla Reykjavíkur
(1.—6. bekk) verið það mikil að
unnt hefur verið að ráða kennara
í allar stöður. Nú steðjar það
vandamál að fræðsluyfirvöldum
Reykjavikurborgar að ekki sækir
nægilega margt kennaramenntað
fólk um þær stöður, sem lausar
eru í 1.—6. bekk.
Stjórn og fulltrúaráð SBR mót-
mælir eindregið þeirri hugmynd
að leysa kennaraskortinn í borg-
inni á sama hátt og gert hefur
verið á ýmsum stöðum til þessa.
Samtök kennara hafa margoft
bent á veigamestu ástæðurnar
fyrir kennaraskortinum í landinu
og vill stjórn og fulltrúaráð SBR
enn á ný taka undir þær.
Stjórn og fulltrúaráð SBR trúir
því ekki, að fræðsluyfirvöld borg-
arinnar hafi í hyggju að ráða
réttindalaust fólk til kennslu i
yngri deildum grunnskóla (1.—6.
bekk) í vetur. En verói svo gert
munu félagar SBR einhuga snú-
ast gegn þvi af fullri alvöru og þá
með ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um. ________ .
Leiðrétting:
Samdráttur í
smjörinu 22,2%
MEINLEGAR villur slæddust inn
í frétt um samdrátt í sölu mjólkur
á baksíðu blaðsins i gær. Sagt var
að sala á smjöri hefði dregizt sam-
an um 7,7% fyrstu sex mánuði
ársins en þetta er rangt því sam-
drátturinn varð 22,2% miðað við
sama tíma í fyrra. Þá rugluðust
tölur um sölu á ostum en það rétta
er að 13,3% samdráttur hefur orð-
ið í sölu á 45% osti en 8,1%
aukning í sölu á 30% osti. í heild
hefur sala á öllum ostategundum
minnkað um 2,8% fyrstu sex mán-
uði ársins.
sem allir hafa beðið eftir hefst
í fjórum verzlunum
samtímis
Karnabæ,
Laugaveg 66,
Laugaveg 20,
Austurstræti
Bonaparte
og Garbo
ídag
Aöeins
nokkrir
dagar
Verið
velkomin.
Ötrúlegt úrval af nýjum
og nýlegum fatnaði og
skóm t. d. framleiðum við
beint á útsöluna tereline
buxur og föt.
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22
LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155