Morgunblaðið - 01.09.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
■ 4 mm
Á silfurbakka?
Vafalaust er mikill
meirihluti íslendinga
þeirrar skoðunar að sið-
asta landhelgisdeila okkar
við Breta hafi jafnframt
verið hin erfiðasta. Bretar
gripu mun fyrr til hernað-
arofbeldis en þeir gerðu i
50 mílna stríðinu og at-
gangur þeirra á fiskimið-
unum y/ar hatrammari.
Um þetta þarf ekki að
hafa mörg orð, svo ferskir
eru þessir atburðir i minni
okkar allra — eða svo
mætti ætla. í komm-
únistablaðinu í gær er
hins vegar grein eftir
kennara úr Hafnarfirði,
sem kemst að þessari
dæmalausu niðurstöðu:
„Fyrir 12 milunum þurft-
um við að berjast, fyrir 50
milunum þurftum við að
berjast. 200 milurnar
voru svo að lokum færðar
okkur á silfurbakka. Þeim
náðum við i skjóli alþjóð-
legrar þróunar, þróunar.
sem fyrri barátta okkar
átti hins vegar drjúgan
þátt i að hrinda af stað."
Hvað skyldu nú starfs-
menn Landhelgisgæzlu
okkar, sem stóðu i eldlín-
unni á miðunum, segja
um þá sögukennigu
kommúnista að við höfum
fengið 200 milurnar á
silfurbakka?
Kjarni málsins er sá, að
þeir Alþýðubandalags-
menn geta með engu móti
sætt sig við þá staðreynd,
að það var rikisstjórn
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, sem
hafði forystu um útfærslu
fiskveiðilögsögunnar i
200 sjómilur. Þeir geta
heldur ekki sætt sig við
þá staðreynd, að i stjórn-
artíð þessarar rikisstjórn-
ar náðist fram mesti sigur
i allri landhelgisbaráttu
okkar íslendinga, þegar
brezku togaramir hurfu
endanlega af íslandsmið-
um.
Alþýðubandalagsmenn
eru svo miður sin yfir
þessu, að þegar Lúðvik
Jósepsson talar um land-
helgismálið um þessar
mundir, eins og t.d. i við-
tali við Þjóðviljann fyrr i
sumar, gat hann ekki einu
sinni nefnt 200 milna bar-
áttuna á nafn. Hann ein-
skorðaði sig við 50 míl-
urnar eins og þær skiptu
einhverju megin máli i
þessu sambandi.
íslenzka þjóðin fékk
200 mílna fiskveiðilög-
söguna ekki á siifurbakka.
Hún háði harða baráttu
fyrir lifshagsmunum sín-
l um og vann verðskuldað-
an sigur — sigur, sem
Alþýðubandalagsmenn
bersýnilega geta ekki
kyngt af einhverjum ann-
arlegum ástæðum, ef
marka má skrif hins hafn-
firzka kennara i Þjóðvilj-
anum i gær.
Hagsmunir
sparifjár-
eigenda
Visir fjallar í forystu-
grein i gær um hagsmuni
sparifjáreigenda og segir
ma:
í frétt i Visi i dag kemur
fram, að búast megi við
a.m.k. 36% verðbólgu á
næsta ári. Samkvæmt þvi
gætu innlánsvextir á al-
mennum sparisjóðsbókum
hækkað í 19%. Þrátt fyrir
nýgerðar ráðstafanir i
vaxtamálum er eigi að síð
ur fyrirsjáanlegt, að spari-
fjáreigendur koma til með
að tapa áttundu hverri
krónu, er þeir leggja inn i
banka. Þó að leyfileg
hækkun vaxta komi til
framkvæmda munu krón-
ur, sem lagðar eru inn á
bankabók, rýma um 12%.
í þessi felst augljóst
þjóðfélagslegt ranglæti.
En jafnframt leiðir þessi
öfuga raunvaxtastefna til
óeðlilegra viðskiptahátta.
Skynsamleg vaxtastefna,
er tæki mið af markaðsað-
stæðum gæti á hinn bóg-
inn verið snar þáttur í við-
tækum ráðstöfunum gegn
verðbólgu.
Eins og sakir standa
getur rikissjóður einn boð-
ið sparifjáreigendum |
sómasamlega vexti. Með
útgáfu verðtryggðra spari-
skirteina hefur rikissjóður
tryggt sér óeðlilega for-
réttindaaðstöðu i sam-
keppninni um sparifé. Á
þessu þarf að verða breyt
ing, ef menn á annað borð
vilja stuðla að heilbrigði i
fjá rmálalifi.
í sjálfu sér er ekki óeðli-
legt, að rikissjóður taki
innlend lán til fram-
kvæmda. Lántökur i formi
spariskirteinaútgáfu geta
i mörgum tilvikum verið
eðlilegri en erlend skulda-
söfnun eða aukin skatt-
heimta. Kjarni málsins er
hins vegar sá, að óþolandi
er með öllu. að rikissjóður
megi einn bjóða sparifjár-
eigendum eðlilega vexti.
Þessi mismununar-
stefna í vaxtamálum hefur
leitt til þess, að spariskir-
teinaskuldir rikissjóðs eru
orðnar þvi. sem næst jafn
miklar og sparisjóðsinni-
stæður Landsbankans. Af
þessum samanburði má
glöggt sjá, að forréttinda-
aðstaða rikissjóðs i sam-
keppninni um spariféð er i
meira lagi óeðlileg.
Þess er vart að vænta,
að fólk vilji leggja peninga
i banka upp á þau býti að
tapa áttundu hverri
krónu. Að lána ríkissjóði
er á hinn bóginn jafngildi
þess að breyta venjulegrr
krónu í steypukrónu verð-
bólgunnar. Augljóst er
þvi, að miklu róttækari
aðgerðir í vaxtamálum eru
óhjákvæmilegar, ef draga
á úr verðbólgu og styrkja
eðlilega viðskiptahætti.
Grænmetis-
kynning
Blómkál
Hvítkál
Tómatar
Agúrkur
Salad
Paprika
Steinselja
Gulrætur
Gulrófur
Rabbabari
Grænkál
Sveppir
Graslaukur
Púrrur
Sellerí
Já, nú kynnum við
GRÆNMETI
meðferð þess og hollustu
í Blómaval.
Þórunn Jónatansdóttir
húsmæðrakennari kynnir:
Geymslu grænmetis, græn-
metisrétti, grænmetissalat,
uppskriftir og það sem máli
skiptir um meðferð og neyslu
grænmetis kl. 20.00 —
22.00 í kvöld.
/'ATHUGIÐ
Við erum aðeins i 300 metra
fiarlæqð frá sýninqunni
HEIHILW77
í Laugardal
Verið velkomin í
Blómaval í dag.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjodleikhusinu
BILSKURSHURÐIR
Þær renna hljóðlaust upp undir loft, engin
hætta á að vindhviður skelli hurðinni á bílinn
eða snjór hindri þær. Þær eru svo léttar, að
barn getur stjórnað þeim.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
LÆrIÐ vélritun
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 8. september.
Engin heimavinna. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar.
Innritun og upplýsingar i sima 41311 eftir kl. 13
dað9a Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20.
Gluggastengur
í miklu úrvali úr tré og
máfmi. Þrýstistengur, rör
og kappastangir
n n
|j
Pðstsendum
Laugavegl 29.
slmar 24320 og 24321