Morgunblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
13
„Á vont med
að f ara annað
entilíslands”
Um þessar mundir stendur yfir
í Norræna húsinu myndlistar-
sýning tveggja danskra lista-
manna, ungra kvenna, sem
heita Lone Plaetner og Mable
Rose. Mable sýnir 21 verk en
Lone 33. Viöfangsefnið í flest-
um myndum Lone er sótt til
íslands og Færeyja, en einnig
til heimalands hennar, Dan-
merkur. Flest viðfangsefni
Mable eru sótt i heimsborgalíf-
ið.
Við röbbuðum stuttlega við
Eín af myndum Mable úr borgarlffinu.
Lone við nokkrar smámynda
sinna frá Færeyjum. Ljósmynd
Mbl. RAX.
Lone i Norræná húsinu, en hún
kvaðst hafa verið fjórum sinn-
um á Islandi í alls 9 mánuði.
„Ég fór oft til Færeyja áður,“
sagði hún, „en eftir að ég hafði
vogað mér til Islands i fyrsta
sinn, á ég vont með að fara
annað. Eg hef verið viða á land-
inu, en mest á Austurlandi,
nokkuð í Þórsmörk. Eg á marga
vini hér á landi og þeir bjóða
mér að búa hjá sér og veita mér
aðstöðu til þess að vinna að
málverkinu. Það er gott að geta
unnið i ró og næði.
íslendingar eru trúfast fólk,
vinskapur við þá er nokkuð sem
heldur út lífið og gestrisnin er
einstök. Danir eru ekki svona
gestrisnir á þennan hátt,
Annars hef ég það bara gott
hér og mér liður vel. Það kostar
ekki neitt inn á þessa sýningu
sem verður opin til 7. sept, og
ég vona að margir komi.“
Tvær danskar
listakonur
sýna í Norræna
húsinu
Mable við nokkur verka sinna.
* *ki- ■~
* M"' : m. % V-**->*' , /
Ein af teikningum Lone frá Eiðum.
1
MKmim
Sérverslun
með listræna
húsmuni
Borgartúni 29
Sími 20640
Einstakir hlutir eða margir saman, en hver
hlutur teiknaður og hugsaður þannig að sjónar-
mið útlits og notagildis fari saman. Sígildir munir
þekktustu höfunda nútíma húsgagnagerðar.
Verslunin CASA er sýningarsalur sígildrar
hönnunar í stóru og smáu, er snýr að húsgögnum
og nytjahlutum.
Njótið þess að skoða fagra hluti og kynnið ykkur
verð og gæði.
f
I
t