Morgunblaðið - 01.09.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. S^PTEMBER 1977
Höfum ekki náð þeim
árangri í Atlantshafs-
fluginu semviðætluðum
„Víð erum nú búnir að vera í Atlantshafsfluginu síðan
1952. eða í 25 ár. og okkur hefur tekizt undanfarin tíu ár að
halda nokkurn veginn okkar hlut. Og þó ég viðurkenni að
samkeppnin fari harðnandi og að við búum ef til vill við
eitthvað lakari stöðu nú en áður, þá vona ég að okkur takist
með árvekni og útsjónarsemi að halda einhverjum þeim hlut i
þessu flugi, sem nægir til að halda rekstrinum gangandi." Það
er Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða hf., sem þannig
svarar spurningu minni um það, hvort hann til langrar
framtiðar sjái Flugleiðum stað í áætlunarflugi yfir Atlantshaf-
ið.
Reyndar kom þessi spurning ekki til
fyrr en eftir að við höfðum fjallað um
flugrekstur Flugleiða vítt og breitt, en
fyrsta spurningin, sem ég beindi til
Sigurðar, var þessi:
— í ársskýrslu Flugleiða fyrir
1976 segir Öm Ól. Johnson, aðal-
forstjóri. m.a.: „Það er því Ijóst, að hin
jákvæða fjárhagsafkoma, sem náðist á
árinu, hefur fengizt með ýtrustu nýt-
ingu tækja og framleiðslu, sem aftur
var möguleg vegna sameiningar flug-
félaganna Ljóst er einnig, að ekki
verður komizt miklu lengra á þeirri
braut Jákvæð fjárhagsafkoma á yfir-
standandi ári (þ e 1977 — innskot
Mbl) og þeim næstu, mun því krefjast
mikillar varfærni og hagsýni á öllum
sviðum. sérstaklega þegar þess er gætt
að allur reksturskostnaður fer ört
hækkandi samfara ört vaxandi sam-
keppm í flugrekstri. sérstaklega á
Atlantshafmu
Eigi okkur að takast að halda hlut
okkar í alþjóðlegu flugi, er okkur jafn-
framt nauðsynlegt að ná auknum flutn-
ingum. en það mun reynast erfiðara nú
i hinni hörðu samkeppni við stór flug-
félög sem oft eru rekin með miklum
rikisstyrkjum, og mun krefjast elju og
órofa samstöðu innan félags okkar ef
vel á að fara
Hvernig hefur svo til tekizt á þessu
árí?
„Þetta ár," segir Sigurður Helga-
son." hefur verið lakara en síðastliðið
ár. þar sem við höfum ekki náð þeim
árangri í Atlantshafsfluginu, sem við
gerðum ráð fyrir, en ástæða þess er
fyrst og fremst mjög aukin samkeppni
Nýtingin í ár hefur verið aðeins lak-
an en á siðasta ári, en við höfum verið
með meiri flugvélakost; einni DC 8
meira yfir sumarið en við vorum með
1976 Aukningin í fluginu hefur ekki
verið í samræmi við þessa viðbótar-
flugvél
Á þessu ári hefur samkeppnin í
Atlantshafsfluginu harðnað samfara of
lágum fargjöldum, þannig að gera má
ráð fyrir að velflest félög í Norður-
atlantshafsfluginu séu með taprekstur
á þeirri leið "
Fyrstu viðbrögðin
heldur jákvæð
— Og nú á að lækka fargjöldin
enn?
„Já Framundan eru þáttaskil. hvað
það varðar að í lok september ganga í
gildi lægri fargjöld Vegna þessa ríkir
mikil óvissa "
— Þið Flugleiðamenn höfðuð bú-
ið ykkur undir samkeppnina frá
Laker?
„Að vissu leyti má segja, að við
höfum búið okkur undirflug Lakers, en
svar okkar var ekki síður hugsað við
aukinni samkeppni frá leiguflugfélög-
um, sem hafa náð til sín stækkandi
hluta af Norðuratlantshafsmarkaðnum.
Okkar viðbrögð felast í tveimur nýj-
um fargjaldaflokkum, sem voru til þess
ætlaðir að reyna að vega upp á móti
þessari samkeppni og til að hækka
eitthvað okkar nýtingu.
Með hækkandi tilkostnaði er erfitt að
lækka fargjöldin nema þá með því að
ná ennþá betri nýtingu. Árangur þess-
ara viðbragða okkar er aðeins að byrja
að sýna sig og hann er heldur jákvæð-
ur."
— Heldur þú, að þetta haldi, þeg-
ar skriðan kemur i lok september?
„Við vonum, að okkur takist með
þessum viðbrögðum okkar að halda
okkar hlut
Nú ríkir talsverð óvissa um það,
hvað verður með þessi nýju fargjöld,
sem eiga að taka gildi Dómsmálaráðu-
neytið bandaríska hefur mótmælt þeim
með þeim rökum, að með þeim sé
verið að vega að tilveru leiguflugfélag-
anna Og flugmálayfirvöld hafa ekki
afgreitt málið "
— En Laker er kominn í gegn.
„Eftir því sem ég hef frétt, þá hefur
Laker farið fram á verulegar breytingar
á þeim skilyrðum, sem honum voru
sett, aðallega til rýmkunar
Ég hef lika séð frá honum verulegar
áhyggjur hans vegna þeirrar sam-
keppni, sem hann sér fram á með
nýjum fargjöldum flugfélaganna "
— Hvernig metur þú þá stöðuna f
þessum efnum?
„Ég er nú persónulega trúaður á að
þetta fari allt í gegn "
— Nú heyrist hvergi af slfku far-
gjaldastrfði annars stáðar en á
Norður Atlantshafinu.
„Nei Það er rétt Enda eiga sér ekki
önnur stríð stað Atlantshafsflugið er
stærsti flugmarkaðurinn og þar keppa
yfir 20 áætlunarflugfélög, um hituna
og svipaður fjöldi leiguflugfélaga Á
þessum markaði er því um verulegt
—segir Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða hf.
Sigurður Helgason
umframboð að ræða og það leiðir svo
til þess stríðsástands "
— Nú eru þessi nýju fargjöld háð
einhverjum takmörkunum, eða
hvað?
„Þau eru háð takmörkunum um
sætamagn, en hvort það heldur í raun
er erfitt að segja til um. Líklegast má
þó telja, að ramminn geti brostið að
einhverju leyti "
— Með tilboðum ykkar farið þið
ekki eins lágt og önnur áætlunar-
flugfélög?
„Nei, af þeim ástæðum, að okkar
fargjöld er hægt að bóka takmarkalitið,
en tilboð hinna eru sumpart ekki
bókanleg og háð takmörkunum um
sætaframboð
Við bjóðum upp á daglegar ferðir og
okkar farþegar geta verið öruggir um
að komast.leiðar sinnar þann dag, sem
þeir helzt vilja "
— Þýðir þetta þá, að þið gætuð
rekið flugleiðina með þessum nýju
fargjöldum eingöngu?
„Ja, við vonum það, ef við náum
þeim mörkum, sem við höfum sett
okkur um betri nýtingu "
— Sem eru?
„Ja, ef við gefum okkur 63% nýt-
ingu yfir vetrartímann, þá stefnum við
að því að komast upp í 80% "
— Sem er geysihátt hlutfall, eða
hvað?
„Já' Þáð er það, >en við teljum samt,
að þetta sé raunhæft takmark
Laker byggir sín fargjöld á 100%
nýtingu og því, að hann sé einn um
hituna Eins og ég sagði áðan hefur
hann sjálfur lýst yfir áhyggjum vegna
þeirrar samkeppni, sem hann fær frá
öðrum félögum."
— En þó þið næðuð þessu tak-
marki að vetrinum til, þá er lika
sumarið.
„Það er rétt, að nýtingin er betri að
sumrinu til, þannig að við höfum ekki
sama svigrúm þar til að bæta við
okkur
En við vonum að þetta ástand vari
ekki alltof lengi "
— Má skilja þig svo, að þú reiknir
með að þessi nýju fargjöld tilheyri
orðið sögunni fyrir næsta sumar?
„Mér finnst eðlilegast að líta svo á,
að þarna sé um undirboðsfargjöld að
ræða og eðlilegur rekstur á þessum
gjöldum er óhugsandi. Þess vegna
hljóta fargjöldin að færast upp á við
aftur fyrr en siðar."
— Nú hafa mörg þessara flug-
félaga, sem keppa á Atlantshafinu,
aðrar arðbærar flugleiðir, sem gera
þeim kleift að reka Atlantshafsflugið
með tapi um tíma. Óttast þú ekki að
Flugleiðir hafi ekki bolmagn til að
standa af sér þennan storm?
„Vissulega höfum við talsverða sér-
stöðu, hvað það snertir að Norður-
Atlantshafið er okkar umfangsmesta
flugleið og því stöndum við verr að vigi
en flestir aðrir, sem hafa einnig aðra
stóra markaði, þar sem svona svipting-
ar eiga sér ekki stað Ég get nefnt sem
dæmi að Pan American rekur einnig
umfangsmikið og ábatasamt Kyrra-
hafsflug Og KLM rekur umsvifamikið
flug í Evrópu og ábatasamt og reyndar
um allar jarðir. Hugsanlega gætu þessi
félög leyft sér það að tapa einhverju á
Atlantshafsfluginu, þar sem þau geta
bætt sér það upp annars staðar En
burtséð frá því, þá gerum við okkur
vonir um að við stöndum þetta af
okkur með þeim hætti, sem við höfum
farið út i. Og eins og ég sagði áðan, þá
reiknum við ekki með að þetta ástand
vari alltof lengi "
Leiguflugið vaxandi
en kemur aldrei
til með að verða
aðalreksturinn
— En- er hugsanlegt að þau tima-
mót séu að renna upp í sögu Flug-
leiða, að þeim sé heppilegast að
hætta áætlunarfluginu og fara yfir i
það að vera leíguflugfélag?
„Nei. Það tel ég ekki Almennt séð
hefur reglubundið flug ýmsa kosti fram
yfir leiguflugið, hvað þægindi. ferða-
tíðni og öryggi snertir. Við teljum að
við getum náð betri fargjöldum sem
áætlunarfélag og reyndar gerum við
það nú Ég held að þarna geri það
útslagið, að fólk vill ekki vera bundið
við ákveðinn brottfarar- eða komudag,
sem ákveða verður með löngum fyrir-
vara í leigufluginu "
— En nú stundið þið umtalsvert
leiguflug?
„Alveg rétt Við höfum stundað
leiguflug á ákveðnum mörkuðum og
það í vaxandi mæli.
Það eru talsverðir möguleikar í leigu-
flugi og við teljum að þar sé hægt að
færa út kvíarnar. Ég nefni í þessu
sambandi pílagrímaflugið frá Afríku til
Jedda í Saudiarabíu Við flugum í fyrra
frá Nígeríu og munum gera það aftur í
ár og hugsanlega líka frá Alsír. Svo er
sólarlandaflugið. Þá höfum við einnig í
vaxandi mæli farið út í það að sækja
hópa inn á meginland Evrópu og hefur
okkur tekizt með því að lengja ferða-
mannatímann á hótelum hér verulega
Þessa hópa höfum við sótt til Zúrich,
Vínar, Brussel og Múnchen svo dæmi
séu nefnd og er um vikuferðir hingað
til lands að ræða, þannig að okkur
hefur tekizt að láta flug með þessa
hópa haldast nokkuð vel í hendur.
Þannig reynum við að hafa augun
opin fyrir þeim möguleikum, sem bjóð-
ast í leigufluginu, og við erum stað-
ráðnir í að auka leiguflug sem frekast
er hægt. Hins vegar er rétt í þessu
sambandi að benda á, að á síðasta ári
var leiguflug aðeins 7.2% af heildar-
tekjum Flugleiða og þó aukning verði í
ár á leiguflugið langt i land með að
skipa þann sess að til greina komi að
byggja rekstur félagsins alfarið á þvi
Reyndar tel ég, eins og fram kom í
svari mínu áðan, að slík umskipti geti
aldrei orðið, en leiguflugið er góð
hliðargrein fyrir reksturinn og sjálfsagt
að leggja á hana mikla áherzlu "
— Og svo hafið þið verið í leigu-
flugi fyrir Air India.
„Já. Við höfum flogið nokkrar ferðir
fyrir Air India og viðræður standa nú
yfir um framhald á þessu flugi
Þetta flug er eingöngu til komið
vegna geysimikils uppgangs í Mið-
Austurlöndum, sem veldur því, að sum
félög anna hreinlega ekki þeim flutn-
ingum, sem þarna bjóðast."
— Hafið þið gefið upp von um að
ná fótfestu þarna með flugi til
Bahrein?
— Nei Eins og ég sagði þér fyrir
skömmu og frétt birtist um í Mbl , þá
höfum við góðar vonir um að stjórn-
völd taki á næstunni til ihugunar að
Þotur i innanlandsflugi eru ekki I sjónmili, segir SigurSur Helgason i þessu
viðtali. Sú flugvél, sem kemur til með að leysa þasr, sem nú eru i notkun, af
hólmi er stærri og fullkomnari gerð af F 27.
Mikil aukning hefir orðið I fragriluginu i þessu iri; 75% magnaukning á
Atlandshafinu og einnig hefur veruleg aukning orðið i Evrópufluginu. j
innanlandsflugi hefur hins vegar engin aukning orðið á vöruf lutningum
DC 8 og Boeing 727. Þessar flugvé!
hagkvæmustu gerðirnar i sfnum stærða
þeirra næstu tvö irin eða svo.