Morgunblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
15
lar segir Sigurður a8 séu örugglega
irflokkum, og hann sör fram ö rokstur
iguflug FlugleiBa hefur fariB vaxandi ö þessu öri og SigurSur Helgason
ur a8 i þvl svi8i megi enn færa út kvtamar.
Slagurinn um farþegana yfir AtlandshafiS er harSur og ö eftir a8 harSna enn.
SigurSur telur hins vegar a8 raunhæft sö aS ætla a8 FlugleiSir standi af sér
slaginn.
DC 10 — en af or8um SigurBar I viBtalinu mö rö8a a8 hún sö raunhæfari kostur fyrir FlugleiSir en Boeing 747.
endurnýja leyfi Flugleiða til Bahreins-
flugs.
Þú spurðir mig líka þá um áhuga
okkar á leyfi til að fljúga til Beirut og ég
sagði. að við hefðum ekkert á móti því
að hafa slíkt leyfi í bakhöndinni, ef það
fengist. Þannig reynum við að hafa
augun opin og útiloka enga möguleika,
sem bjóðast, þó á hendinni séu ekki
aðstæður til að nýta þá strax
En vegna þess að við vorum að tala
um vaxandi leíguflug Flugleiða á þessu
ári, þá er rétt að geta þess, að sama
þróun hefur orðið hjá Air Bahama, sem
nú stendur í vaxandi leiguflugi milli
borga í Evrópu og Nassau."
Landvinningar
í Evrópu
— En nú er það ekki bara i leigu
flugi, sem þið eruð að sækja á inn i
Evrópu
„Nei Við tókum upp áætlunarflug til
Parisar á þessu ári og til Dusseldorf i
fyrra
Þetta er þáttur i viðleitni okkar til að
sækja farþegana alla leiðina inn á meg-
inlandið Þetta skapar okkur auðvitað
betri tekjur og sömuleiðis hefur ýtt á
þetta, að við verðum stöðugt betur
varir við að fólk vill helzt losna við að
þurfa að fara um tvo flugvelli á leið
sinni og skiptingu á flugi.
Þetta er auðvitað skynsamlegt og
eðlilegt, þegar það er haft i huga, að
talsverður hluti þessa fólks hefði orðið
að öðrum kosti að fara i gegnum
London og allir vita, hvernig það hefur
verið í sumar að þurfa að eiga leið ugi
flugvöllinn þar."
— Eruð þið með frekari landvinn-
inga I Evrópu i huga?
„Nei. Það er ekki hægt að segja að
við séum með ákveðna áætlun um
frekari viðkorriustaði í Evrópu. En að
sjálfsögðu höfum við það í sjónmáli
Ég get þó sagt að við munum senni-
lega ekki fjölga þeim á næsta ári,
heldur munum við leggja áherzlu á að
auka flugið til þeirra staða, sem þegar
eru komnir i áætlun hjá okkur."
Gífurleg aukning
í fragtfluginu
— Árið 1976 skilaði farþegaflug-
ið 77.1% af heildartekjum Flugleiða
og leiguflugið 7.2%, eins og þú hef-
ur sagt. En vöru- og póstflutningar
skiluðu 7.8% heildarteknanna. Hver
hefur þróunin verið i fragtfluginu á
þessu ári?
„Við höfum verið með mjög ítarlegar
fyrirætlanir um aukningu á okkar fragt-
flugi Þetta mál er búið að vera lengi í
undirbúningi og við sjáum fram á veru-
lega aukna möguleika á fragtflutning-
um til og frá íslandi Það er í gegnum
reynslu okkar í þessum efnum bæði á
okkar eigin leiðum og með þátttöku
okkar í rekstri Cargolux að við teljum
að það sé grundvöllur til að auka
fragtflutningana verulega.
Til dæmis um þetta get ég nefnt
það, sem við höfum verið að gera í
nokkrum mæli, sem eru auknir flutn-
ingar á ferskum fiski Það eru örugg-
lega góðir markaðir fyrir þessa vöru
bæði austan hafs og vestan, sem gefa
gott verð Það má segja að við höfum
flutt verulegt magn af ferskum fiski,
sérstaklega vestur um haf."
— Hvaða augum líta frystihúsa-
samtökin á þessa flutninga?
- „Þau hljóta að líta jákvætt á þetta Þá
fæst almennt hærra verð fyrir ferskan
fisk en frystan og þvi ættu þetta að
vera þjóðhagslega hagkvæmir flutn-
ingar.
Enn sem komið er eru það þó mest
ýmsir smáir aðilar, sem standa í þess-
um útflutningi, en ég er ekki i nokkrum
vafa um það, að þessir flutningar eiga
framtiðina fyrir sér.
Annað, sem við höfum áhuga á í
sambandi við fragtflutninga, eru stór-
auknir og skipulagðir flutningar á
fersku grænmeti hingað til lands. En
það eru ekki bara nýjungar, sem eru i
fragtfluginu, heldur hefur það farið
vaxandi hér eins og annars staðar, að
almenn verðmætari vara er flutt flug-
leiðis Það er augljós hagkvæmni i
sliku á tímum verðbólgu og hárra
vaxta."
— Helzt fragtflugið i hendur við
ykkar farþegaflug, eða er þetta kom-
ið út i sérflug?
„Hvort tveggja Nú er það svo með
báðar flugvélategundirnar, sem við
rekum í utanlandsfluginu; DC 8 og
Boeing 727, að þær má reka til far-
þegaflugs eingöngu, til farþegaflugs
að hluta og fragtflugs að hluta og þeim
er hægt að breyta til fragtflugs ein-
göngu Þannig eru þetta mjög heppi-
legar flugvélategundir til að ná árangri
á þessu sviði
Fragt þarf nefnilega ekki siður en
farþegar að hafa forgang hvað tiðni
ferða snertir, því aðalkosturinn við
flugfragtina er hraðinn Þannig getum
við látið þetta haldast mjög heppilega í
hendur hjá okkur.
Eitt er það sem mig langar til að
nefna í sambandi við fragtflugið og
það er áhugi okkar á því að gera
kaupsýslumönnum hér kleift að ná
hagstæðum innkaupum í fjarlægum
Austurlöndum með tengingu við
Cargolux "
— Hefur hlutur fragtarinnar þá
vaxið á þessu ári?
Á Atlantshafinu er aukningin um
75% á magni miðað við sama tima i
fyrra og einnig hefur orðið veruleg
aukning í Evrópufluginu, þó hún sé
aðeins minni en sú fyrrnefnda
— Þannig má ef til vill segja, að
aukning i leiguflugi og fragtflugi
bæti ykkur farþegaflugið upp?
„Við reynum að hasla okkur völl, þar
sem við sjáum tækifæri til þess Það að
farþegaflugið hefur aðeins dalað, höf-
um við reynt að bæta upp með því að
ná okkur betur á strik með fragtina og
leiguflugið
Endurnýjun
Atlantshafsflotans
eftir tvö ár
— Þú minntist áðan á að þið vær-
uð með heppilegar flugvélategundir.
Hvað um endurnýjun flotans?
krefst mikils magns og mikillar tíðni og
þegar hægt er að ná meiri hagkvæmni
með stærri tækjum, þá eru flugvéla-
skipti réttlætanleg ráðstöfun''
— Er ekki Cargolux komið í rekst-
ur I S-Ameríku eða Mið-Ameriku til
að skapa Rolls Royce flugvélunum
áframhaldandi verkefni?
„Cargolux er aðili að nýju fragtflug-
félagi í Uruguay, sem byrjar smátt með
eina Rolls Royce CL 44, sem Loftleiðir
áttu einu sinni Þannig er þessi flugvél
nú að byrja á þriðju uppbyggingunni".
— Er þetta algengt, að flugfélög
fylgi svona sínum vélum eftir með
því að stofna fyrirtæki um áfram-
haldandi rekstur þeirra eftir að þær
hafa lokið sinu hlutverki á einu svið-
inu?
„Það er al!s ekki reglan og reyndar
má tala um undantekningu i þessu
sambandi
Það sem við vorum að gera, þegar
við fórum út í Cargolux og það sem
Cargolux er nú að gera, er að skapa
áframhaldandi notkun fyrir flugvélar,
sem ekki duga lengur til þess sem þarf
hjá viðkomandi félögum Gangurinn í
þessu öllu er sá, að frá Rolls Royce er
DC 8 eðlilegt skref og síðan breiðþotur
eðlilegt framhald af DC 8“
— En eru engin takmörk fyrir þvi,
hversu stórar flugvélarnar verða?
„Ég tel mjög liklegt að farþegaflug-
vélarnar eigi eftir að stækka enn
Boeing er komið með hugmyndir að
stækkun upp í 700 sæta flugvél og
eins og ég gat um áðan má stækka DC
10 I um 500 farþega vél Þannig held
ég að þróunin haldi áfram''
— Nú var þvi spáð að þróunin á
jörðu niðri myndi hefta þróunina í
loftinu.
„Það voru vissir flugvellir i heimin-
um, sem voru komnir i þá stöðu að
geta ekki tekið við fleiri flugvélum
Þetta vandamál hefur ekki aukizt, held-
ur hefur þetta þvert á móti liðkazt allt
saman og þá fyrst og fremst vegna
þess að hreyfingar um flugvellina urðu
færri þegar flugvélarnar stækkuðu
Þróunin hefur að vísu leitt til þess, að
flugstöðvarbyggingar hafa orðið að
Framhald á bls. 26
„Við teljum þessar flugvélategundir,
sem við erum með, örugglega hag-
kvæmustu gerðirnar i þessum stærðar-
flokkum og við sjáum fram á áfram-
haldandi rekstur á þeim næstu tvö árin
eða svo
Hins vegar erum við auðvitað farnir
að líta i kringum okkur, þvi við sjáum
fram á það að vélarnar okkar úreldast
og þá verðum við i tæka tið að vera
reiðubúnir til að afla okkur nýrra og
hagkvæmari tækja."
— Er ykkar raunverulegi valkost-
ur þá fyrirliggjandi?
„Það má segja, að það séu þrjár
tegundir, sem við höfum einkum beint
sjónum okkar að; Boeing 747,
Douglas DC 1 0 og Lockhead 1 01 1. Af
þeim standa tvær fyrstnefndu tegund-
irnar sterkastar að vígi og má segja að
þar standi valið milli 500 sæta flugvél-
ar og 350 sæta vélar Það er Ijóst að
það yrði erfiðara að fylla stærri vélina i
sama hlutfalli og minni vél og því er
350 sæta flugvél miklu viðráðanlegri
stærð fyrir okkur en 500 sæta flugvél
DC 10 vélinni fylgir lika sá kostur að
hana má lengja, eins og DC 8 vélarnar,
sem við erum nú með, og þá myndi
hún fara í um 500 farþega flugvél, ef
henta þvkir''
— Þegar þið endurnýjuðuð flot-
ann frá Rolls Royce vélunum yfir i
DC 8, stofnuðuð þið til fragtflugfél-
agsins Cargolux. Eru einhverjar slík
ar áætlanir uppi i sambandi við
endurnýjunina eftir tvö ár?
„Þessar vélar, sem við erum með,
hafa það umfram flestar aðrar flugvélar
að þær hafa haldið sinu verði alveg
ótrúlega vel Það er litill munur á þvi
verði, sem fæst fyrir vélina nú, og því
verði, sem hún var keypt á frá verk
smiðjum Það er ef til vill allt að 20%
frávik og þessar vélar hafa alls ekki
tapað sínum yfirburðum í hagkvæmni í
sinum stærðarflokkum
Ég hugsa, að þegar til endurnýjunar-
innar kemur, þá munum við selja þess-
ar vélar á frjálsum markaði Cargolux
horfir fram á endurnýjun á sinum flug-
vélakosti . . ."
— Með kaupum á Boeing 747?
„Já. Félagið er komið inn á rútu sem