Morgunblaðið - 01.09.1977, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
17
Opið bréf til
vegamálastjóra
þröngir að ætla mætti, sem haft
er eftir hyggnum bónda, að það
Eiríkur Sveinsson, Akureyri:
Tilfinninga-
mál f ulltrúans
A undanförnum árum höfum
við Grundfirðingar nokkuð látið í
okkur heyra um „vegina“ hér í
Eyrarsveit og beðizt lagfæringa.
Vægt til orða tekið hefur erindið
fengið litlar undirtektir hverju
sinni, engar sjáanlegar breyting-
ar orðið, nema hvað þið hjá vega-
gerðinni hafið tjaslað í tvær brýr,
sem hrundu fyrir elli sakir. Skal
það framtak þakkað hér. Nú i
sumar hafa staðið yfir gatna-
gerðarframkvæmdir í kauptún-
inu og þeim fylgt mikil þunga-
umferð á „vegunum" beggja
vegna. Satt bezt að segja hafa
þessir svo nefndu vegir ekki hald-
ið uppi bílunum, svo þeir hafa
einatt verið á kafi í leðju og for ef
nokkuð rigndi, þrátt fyrir það að
við höfum tekið að okkur það litla
viðhald á þeim, sem átt hefur sér
stað. Er þetta gert meira af vilja
en mætti, því að það hefur verið
ill nauðsyn.
Afskipti höfuðstöðvanna í kjör-
dæminu hafa verið þau ein, að
amast við frágangi á þvi efni, sem
við höfum þurft að sturta við
„vegina“, sem hefur orðið að ráð-
ast af þvi m.a. hvar unnt var að
komast eftir þeim frá degi til
dags.
Ég verð að lýsa aðdáun minni á
hugrekki undirsáta þinna á
Vesturlandi að þeir skuli dveljast
við þetta kvabb, og yfirleitt bera
sér í munn hugtakið „vegir i
Eyrarsveit", jafnvel þótt i sima
sé.
Afskiptaleysi og dáðleysi vega-
gerðarinnar i vegamálum hér i
Grundarfirði og þeirra, sem henni
stjórna er slík, að fólk er farið að
trúa því, sem i gammni hefur
verið sagt, að hér muni heil kyn-
slóð ala aldur sinn án þess að sjá
lífsmark með vegagerð ríkisins.
Rétt elztu menn muna eftir þvi að
hafa séð vegi malarborna, enda
bera þeir þess órækt vitni. Vilji
forráðamenn vegagerðarinnar sjá
vonda vegi eru þeir velkomnir
hingað. Hér getur að líta allar
tegundir; holóttir, stórgrýti og
egggrýti í stað ofaníburðar, og svo
N(J STENDUR yfir á Hótel Loft-
leiðum ársfundur Nordisk Foren-
ing for Neuroradiologi. Hann
hófst C gær og lýkur f kvöld.
Þetta eru samtök þeirra rönt-
genlækna á Norðurlöndum, sem
hafa sérhæft sig f röntgenskoðun
á heila og miðtaugakerfi. A þess-
um fundi verða m.a. fluttir fyrir-
lestrar um nýja tækni við rönt-
genskoðun, þ.e.a.s. tölvustýrða
röntgenskoðun.
hafi verið tekið of bókstaflega á
æðri stöðum vegamála, sem stend-
ur í helgri bók, að menn ættu
fremur að fara þrönga veginn en
þann breiða.
Ef marka má fyrri viðbrögð
vegagerðarinnar, geri ég mér
ekki háar hugmyndir um úrbæt-
ur, slikt væru tálvonir einar.
En hitt væri ekki nema sann-
gjarnt, að fara þess á leit við hana
að hún léti okkur i friði meðan við
erum að bagsa i okkar framfara-
málum af litlum efnum.
Hvort þingmenn Vesturlands
láta sér sæma þetta ástand öllu
lengur skal engu spáð, en nokkrar
vonir eru þó bundnar við það,
a.m.k. að þeir þingmenn, sem á
annað borð hafa unnið kjördæmi
sinu gagn til þessa, og þekkja
þessa vegi, taki nú til sinna ráða.
Með vaxandi virðingu.
Arni M. Emilsson.
Þessi nýja tækni er alger bylt-
ing I sjúkdómsgreiningu með
röntgengeislum og hefur farið
sigurför um heim allan undanfar-
in ár. Tækni þessi hefur verið í
notkun á Norðurlöndum i nokkur
ár, en er ekki fyrir hendi hérlend-
is.
Með þessari tækni má stytta
skoðunartima sjúklinga til muna
og er hún óþægindalaus með öllu.
Auk þesser sjúkdómsgreining
mun nákvæmari.
I Morgunblaðinu 13. ágúst s.l.
er greinarkorn á annarri siðu,
sem ber heitið „99% tilfinninga-
mál — en ekki dynamit", og er
unnið úr viðtali við fulltrúa Orku-
stofnunar, sem sagður er heita
Stefán Sigurmundsson. Vonandi
er allt i þeirri grein, sem haft er
eftir fulltrúanum, rétt hermt.
Kemur fram að þar talar sá sem
vitið og valdið hefur. Er hann
auðvitað hátt hafinn yfir hinn
norðlenzka lýð, sem er eitthvað að
prumpa á rússneska landreksvis-
indamenn. Reynir herra fulltrú-
inn að gera mýflugu úr úlfalda.
Orðrétt er haft eftir fulltrúanum
„þá er það rétt ef menn læðast að
nóttu til að sprengja i hyl fullum
af fiski, þá er það tugthússök". En
spurningin er hvort gjörðin er
ekki sú sama, þótt hábjartur dag-
ur sé? Hver á að dæma um það og
skilgreina, hvar og hvenær hylur
er fullur af fiski? Veiðifélagi
minn varð fyrir því 16. júli næst-
liðinn á miðjum veiðitímanum, að
vera rekinn úr einum af betri
veiðistöðunum i Fnjóská, þar sem
ofangreindir menn sprengdu
dynamit i miðri ánni, um 50
metra frá miðjum veiðistaðnum,
og grjótinu úr sprengingunni
rigndi allt um kring, meðal ann-
ars f áðurnefndan veiðistað.
Hvort öll seiði Fnjóskár hafa ver-
ið að synda þar sem sprengt var,
skal látið ósagt. En að taka þannig
til orða sýnir bezt gorgeir þess,
sem telur sig hafa valdið. Og að
leyfa sér að halda því fram, að
okkur Akureyringum komi þetta
mál ekki við, jafnvel þótt veiði-
félag okkar, Flúðir, hafi ána á
leigu, sýnir enn betur yfirstéttar-
sjónarmið fulltrúans, þar sem
hann vill neita mönnum um að
standa á rétti sínum. Síðar i grein-
inni sljákkar nokkuð i fulltrúan-
um, þegar hann allt í einu segir
„hitt er svo að við vissum ekki að
veiðifélag væri i Fnjóská, eila
hefðum við talað við þá að sjálf-
sögðu, þvi viö viljum fyrst og
fremst frið...“. Dálagleg sáttatil-
raun greinin. Mér er nú spurn,
því i ósköpunum er fulltrúinn að
láta hafa eftir sér það sem á und-
an er gengið? Var ekki nóg að
biðjast afsökunar á óréttlæti þvi
sem gert var þessu saklausa veiði-
félagi? Nei, heldur skal hreita
skætingi, þykjast vera háðskur,
sýna vigtennurnar og opinbera
svo fákunnáttu sina. Ekki skulum
við hafa á móti vísindastörfum
þessarra manna og svo auðvitað
fulltrúans, sem fær að nota 100
millj. króna tækin. En krefjast
verður þess af opinberri stofnun,
að hún vandi betur framkomu
sina við þegna landsins, og virði
meginreglur allra kurteisra
manna og láti þá a.m.k. vita af
svona fyrirætlunum, sem trúlega
eru brot á landslögum, nema til
komi leyfi ráðuneytis þess er með
málið fer. Það leyfi verðum við þó
að ætla að sprengingamennirnir
hafi.
Ný tækni við
röntgenskoðun
hmvildi...
var -elna saumavél.vegna:
Hagkvæm í rekstri,
hagkvæm í veröi.
Sérstaklega lágvær
Sjálfvirk hnappagöt
og festir á tölur.
Jafnvel rýjar.
Saumar auöveldlega
yfir títuprjóna og er
því þræöing óþörf.
Saumar allar þykktir af
efnum, öll hugsanleg
mynstur og meö
teygjuþræöi.
■elna
Verolaunagripur
um víðaveröld.
heimilistœki sf
Haf narstræti 3—Sætúni 8
N
V
Gólfdúkur á gótf og veggi!
(í^) krommenie gólfdúk: níösterkur,
einstæö hönnun, hagstætt verö og
þaö er auðvelt, aö halda honum
hreinum.
Hvers getiö
þér krafistj^^^
Seljum málningavörur
og margt fleira.
Síðumúla15 sími 3 30 70