Morgunblaðið - 01.09.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
19
HEIMIL]Ð ’77
Halldór Júllusson, veitinga-
maður.
Ljósm. Friðþjófur.
gefur það sér tíma fyrir hlut-
ina.
— Ég hef verið með veit-
ingarekstur á flestum stærri
sýningum á landinu, en til
þess að geta það, þarf maður
að eiga sérstök tæki sem að-
eins er hægt að nota á sýn-
ingum, en lítið þess á milli,
svo þetta eru mikil fjárútlát,
reyndar kostar það milljónir
að setja allt þetta í gang fyrir
eina sýningu.
— Verðið á veitingum
hérna er svipað og í Útgarði,
sumt dýrara og annað ódýr-
ara. Þetta er allt útbúið þar
og flutt hingað og „traffíkin"
er ótrúlega jöfn, þótt hún sé
áberandi meiri eftirt.d. tizku-
sýningarnar og kringum
matartíma, jafnvel strax við
„Pizzan er
vinsælust”
Rætt við Halldór Júlíusson, veitingamann
— Á boðstólnum er
Tolonapizza, smurt braut,
tertur, kökur, pönnukökur
og einn heitur réttur á dag
frá kl. 6.30—9.00. Svo er
ég með heitar samlokur og
hamborgara, auk allra
drykkja, einnig sérbás fyrir
kjörís, pylsurog gosdrykki.
Þetta voru orð Halldórs
Júlíussonar, veitingamanns,
eiganda Útgarðs í Glæsibæ,
en hann sér um alla veitinga-
sölu á Heimilissýningunni
'77.
— Það er forvinnan og
bakgrunnurinn sem skiptir
mestu máli við veitingarekst-
ur á svona sýningu. Annars
finnst mér fólk vera orðið
rólegra á seinni tímum, áður
rauk það í gegnum sýning-
una í hendingskasti, en nú
opnun. Yfirleitt seljast milli
100—200 skammtar af
heitum mat á dag, en það er
misjafnt.
— Pizzan er vinsælasti
rétturinn, en þar næst koma
hamborgarar og franskar
kartöflur og svo kökur og
kaffi. Þess má geta að á
síðustu sýningu slógum við
sölumet i pizzusölu á sýn-
ingu.
— Það er ákaflega erfitt
að vera veitingamaður á ís-
landi, sérstaklega vegna
hráefnaskorts, t.d. er nauta-
kjöt ófáanlegt, svínakjöt erfitt
að fá og í dag er eggjalaust
með öllu. Það er einnig dýrt
að hefja veitingarekstur og
verðlagseftirlitið er þungt í
skauti, sagði Halldór Júlíus-
son, að lokum.
„Mikil samkeppni
í innréttingastarf-
semi á íslandi”
Rætt við Jón Pétursson hjá JP innréttingum
— Maður byrjaði smátt,
við vorum tveir með inn-
réttingar, en núna hef ég
38 menn I vinnu, sagði Jón
Pétursson, framkvæmda-
stjóri JP innréttinga.
— Við sérhæfum okkur í
Jón Pétursson, fram-
kvæmdarstjóri JP innrétt-
inga.
Ljósm. Friðþjófur.
eldhúsainnréttingum, en
einnig höfum við á boðstól-
um fataskápa, baðskápa,
sólbekki, innihurðir og við-
arklæðningu.
— Það tekur tvo og hálf-
an mánuð að smiða og setja
upp eldhúsinnréttingu, en
við erum þeir einu sem teikn-
um hverja innréttingu fyrir
sig, hún getur kostað frá 1 20
þúsund kr. upp í 1,2 millj.
kr., en meðaltali kostar hún
um 600 þúsund kr. hjá okk-
ur.
— Ég er mjög ánægður
með þessa sýningu, tel hana
vera þá beztu til þessa Það
sem við erum með nýtt hér
eru t.d. nýir viðarlitir frá Dan-
mörku m.a. antiklitur með
dökkum æðum, sverir viðar-
staurar og sérstök horn úr
bæsuðum viði i mörgum lit-
um allt í eldhús Allt það sem
er gamaldags er vinsælt
núna, t.d tvöfaldir eldhús-
skápar sem er alveg nýtt
Framhald á bls. 26
Hormón gegn geðklof a
New York, 31. ágúst. — AP.
NATTÚRULEGUR hormón f
mannsheilanum hefur veitt 5 af
fyrstu 6 geðsjúklingum, sem hafa
fengið meðferð með honum,
nokkurn bata, að því er banda-
rískur og kanadfskur geðlæknir
skýrðu frá f dag. Læknarnir, dr.
Nathan Kline við Rocklandrann-
sóknarstöðina f Orangeburg New
York og Heinz Lehmann við Mc-
gillháskóla f Montreal sögðu að
þótt tilraunirnar væru á algeru
frumstigi renndu þær stoðum
undir þá kenningu að lífefna-
fræðileg orsök væri fyrir þung-
lyndi og geðklofa. Hormón þessi
er Beta-Endorphin og hefur hann
við gjöf létt sjúkdómseinkenni
frá 15 mfnútum upp f eina
klukkustund hjá þunglyndis-
sjúklingum og hjá geðklofasjúkl-
ingum hafa sum sjúkdómsein-
kenni horfið f nokkra daga.
Læknarnir tveir lögðu ritgerð
um þetta mál fyrir geðlæknaþing-
ið i Honolulu á Hawaii i dag og
verður hún einnig birt i septem-
berútgáfu General Psychiatry.
Það er heiladingullinn sem fram-
leiðir Beta-Endorphin, en hormón
þessi var einangraður af dr. Choh
Hao-li við Kaliforníuháskóla í San
Francisco.
I ritgerðinni segir að ekki sé
hægt að draga fastar ályktanir af
gerðum tilraunum, þar sem svo
fáir sjúklingar hafi fengið með-
ferð og áhrifin ekki varanleg.
Hins vegar sé efnasamsetning
hormónsins algerlega þekkt og
hægt sé að framleiða hann. Því
geri menn sér vonir um að með
breytingu á samsetningu sé hægt
að fá lengri virkni. Ein sprauta af
þessu efni í dag kostar 3000 doll-
ara, en ef frekari tilraunir stað-
festi árangurinn verði hægt að
framleiða meira af hormóninum,
og lækka verðið. Þeir Khline og
Lehmann eru þekktir fyrir frum-
herjastarf sitt i notkun róandu
lyfja við geðlækningar á árunum
eftir 1950.
Það varð bægslagangur f mörgæsahópnum á Suðurheimsskautinu þegar þessi óvænti gestur kom til
miðdegisverðar ekki alls fyrir löngu. Hvalurinn atarna er þeirrar náttúru að vera einstaklega gefinn
fyrir mörgæsir, og liggur á því lúalagi að sveima undir ísnum þar til hann verður þess var að hann er
kominn í návígi við lostætið. Þá tekur hann viðbragð, setur á fulla ferð og brýtur vök á ísinn. Veslings
mörgæsirnar, sem hafa glatað þeim eiginleika að geta flogið og eiga sér einskis ills von, missa
fótfestuna, lenda 1 vökinni, og þá á óvinurinn hægt um vik.
Ostborgari í stað mjólk-
ur fyrir svefninn?
VÍSINDAMENN við
Northwesternháskólann í
Bandaríkjunum, sem unn-
ið hafa að rannsóknum á
svefnleysi, sögðu á blaða-
mannafundi í dag, að ost-
borgari eða rækjur kynnu
að vera betri við svefnleysi
en svefnpillur. Vísinda-
mennirnir fluttu erindi
um þetta mál á ráðstefnu
samtaka bandarískra sál-
fræðinga og sögðu að fæða
með miklum eggjahvítu-
efnum, eins og t.d. hið
hefðbundna mjóikurglas
fyrir svefninn, innihéldi
Tryptophan, sem talið er
Washington, 31. ágúst. — Reut-
er.
HOLLENZKUR blaðamaður,
William Oltman, hélt því fram á
blaðamannafundi f Washington í
dag, að Gerald Ford, fyrrum
Bandaríkjaforseti, hefði fengið
upplýsingar, sem hefðu getað
sannað að morðið á John F. Kenn-
edy fyrrum forseta hefði verið
samsæri, en að Ford hefði ekkert
gert I málinu.
Oltman sagði að Ford hefði
fengið i hendur fullkomna leyni-
að vaidi syfju. Segja þeir
að ekki skipti máli hvort
mjólkin sé köld eða volg og
að ostborgari eða rækju-
réttur gætu gert sama
gagn.
Talsmaður vísindamannanna,
Richard Bottzin, sagði að þótt
rannsóknir á heimi svefnsins
væru tiltölulega skammt á veg
komnar væri ljóst að lyf verkuðu
ekki á stöðugt svefnleysi. Svefn-
pillur kæmu fólki aðeins á 1. og 2.
stig svefnsins, eins konar meðvit-
undarleysi, en ekki á 3. og 4. stig
hins djúpa svefns. Að auki gætu
svefnlyf verið vanabindandi og
þeir sem þjást af svefnleysi geta
margir aldrei vanið sig af notkun
skýrslu um málið, sem hefði nafn-
greint þá, sem fyrirskipuðu morð-
ið.
Einnig hefði Jacqueline Kenn-
edy, ekkju forsetans, verið sent
eintak af skýrslunni. Oltman
sagðist hafa fengið vitneskju um
þetta frá nýju og áreiðanlegu
vitni, sem væri reiðubúið að koma
fram í dagsljósið, ef Carter forseti
tryggði öryggi þess. Oitman hefur
skrifað bók um morð Kennedys,
og verður hún gefin út í Banda-
ríkjunum innan skamms.
lyfja og ná samt ekki að sofna
almennilega. Þá var á þinginu
skýrt frá að tilraunir til að kenna
svefnleysissjúklingum að hvíla
likama og huga til að ná svefni
lofuðu góðu á ýmsu leyti þó mikið
væri enn óunnið.
Albanir
ráðast á
Kínverja
Vtnarborg, 30 ágúst — Reuter
ALBANIR hafa enn gagnrýnt ktn-
verska ráðamenn harkalega fyrir
að vera á hugsjónalegum villu-
götum. Opinbera fréttastofan t
Albaniu, ATT. birti t dag langa
grein, þar sem fordæmt er hug-
takiS um þriSja heim þróunar-
landa, sem óháð séu Moskvu og
Washington. Ekki er Ktna nefnt á
nafn I greininni, en stjórnmála-
fréttaritarar segja engan vafa á
að henni sé beint gegn ktnversk-
um valdhöfum. Segir I greininni
að hugmyndin um þriðja heiminn
feli ágreininginn milli sóslalisma
og kapitalisma. Voru aukin tengsl
Evrópuþjóða og þróunarþjóðanna
gagnrýnd mjög. en Kinverjar hafa
mjög stutt þá þróun til að koma á
svæði, sem skilji stórveldin tvö
af. Albanir hafa löngum verið
helztu hugsjónalegu bandamenn
Kinverja og sendu fyrir viku ein-
lægar óskir og kveðjur til hinna
nýju klnversku leiðtoga.
Ford sagður hafa vitað
allt um Kennedymorðið