Morgunblaðið - 01.09.1977, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
Hús Lloyd-George
spilavíti fyrir Araba?
London, 31. ágúst — Reuter.
NOKKUR hópur Araba frá
Bahrein hefur gert tilboð í hús
það, sem David Lloyd-George,
fyrrum forsætisráðherra Bret-
Rauðvínið
flóði um
alla götuna
EKIÐ var á gangandi mann á
Snorrabraut, fyrir framan út-
sölu ATVR, skömmu eftir
klukkan þrjú í gærdag. Maður-
inn var á leið austur yfir göt-
una en bifreiðin ók I suður á
vinstri akgrein. Maðurinn var
fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans, þar sem gert var að
skrámum á höfði og kannað
hvort um frekari meiðsl væri
að ræða. Maðurinn var með 5
rauðvínsflöskur I fanginu.
Féllu þær í götuna og brotn-
uðu og voru rauðvínstaumar
um alla götu. Brá ýmsum i
brún er þeir komu á slysstað-
inn því verksummerki gátu
vissulega bent til þess að
þarna hefði orðið stórslys.
TVær bílvelt-
• •
ur í Oxnadal
Akureyri. 31. ánúsl.
TVÆR bílveltur urðu á þjóð-
veginum í Öxnadal í morgun en
engin slys urðu á fólki. Um klukk-
an 7 valt stór flutningabíll á leið
frá Reykjavík til Vopnafjarðar,
skammt fyrir sunnan Engimýri og
um klukkan 8 valt síðan fólksbill
á suðurleið hjá Bæjisá. Fólksbil-
inn skemmdist allmikið en lítið
tjón mun hafa orðið á flutninga-
bilnum og farmi hans.
—Sv. P.
Sprengingar
við Elliðaámar
Á ELLEFTA tímanum í gær-
kvöldi varð fólk í efra Breiðholti
vart við þrjár kröftugar spreng-
ingar, sem voru svo öflugar að
börn, sem höfðu fest svefninn,
vöknuðu hastarlega upp.
Samkvæmt tilkynningum sem
lögreglunni bárust, virtist fólki
sprengidrunurnar koma einhvers
staðar frá Elliðaánum.
Lögreglumenn fóru þegar á
vettvang, en er Mbl. leitaði frétta
siðast höfðu þeir ekkert fundið
sem bent gæti til, hvað þarna átti
sér stað.
Snarpur
jarðskjálfti
Golden Colorado, 31. ágúst.
ÖFLUGUR jarðskjálfti varð i
gær, skammt frá borginni
Medellin í Colombiu í Suður-
Ameríku. Bandaríska jarðfræði-
stof.nunin í Golden Colorado
skýrði frá þessu í dag og sagði að
skjálftinn hefði mælzt 6.6 stig á
Richterkvarða. Fréttir af tjóni
herma að 2 hafi látizt og 30 slas-
azt.
— Nixon
Framhald af bls. 1
Dálkahöfundur Daily News,
Liz Smith, segir að Haldeman
sé ákveðinn i að segja frá öll-
um málum i bók sinni og ekki
reyna að bera blak af Nixon
forseta. Haldeman hefur gefið
bókinni nafnið „Valdataum-
ar“. Segir Smith, að í bók
Haldei fram að Nixon hafi ger-
samlega brotnað saman síð-
ustu daga forsetatíðar sinnar
og þá afklætt sig eins og fyrr
segir.
lands, átti með það fyrir augum
að setja þar upp spilavíti. Hafa
Arabarnir boðið um 710 milljónir
isl. kr. fyrir húsið og 16 ekru
svæði, sém því fylgir í Esher,
skammt frá London. Hyggjast
þeir setja þar upp spilavíti fyrir
Araba eingöngu. Staðinn völdu
þeir af því, segja þeir, að sam-
keppnin milli spilavíta í West
End í London er orðin svo hörð og
lítið um bílastæði. Lloyd-George
keypti húsið- 1933 fyrir einkarit-
ara sinn og ástkonu, Frances Stev-
enson, sem hann kvæntist 1943,
tveimur árum eftir lát fyrri konu
sinnar.
Tæpum 200
þúsundum stoL
id á Akureyri
Akureyri, 31. ágúst.
INNBROT var framið í veitinga-
söluna Krókeyrarstöð í fyrrinótt
og þaðan stolið hátt á annað
hundrað þúsund krónum i pen-
ingum. Af einhverjum ástæðum
fórst fyrir að gera upp kassann og
læma hann kviildið áður en þó
mun það vera alger regla að svo
sé gert. Rannsóknarlögreglan á
Akurevri hefur unnið að könnun
málsins og telur að ekki sé þess
langt að bíða að málið upplýsist.
---------------Sv. P.
— Landsleikur
Framhald af bls. 39
leiknum, hinum megin á vellin-
um. Nokkrum sekúndum áður en
leikurinn var flautaður af komst
Matthías í færi en fast skot hans
af 20 metra færi fór framhjá.
Holiendingar fengu í þessum
leik alls 14 hornspyrnur og þar af
níu í fyrri hálfleiknum. Aðeins
einu sinni fengu isiendingar
hornspyrnu. Aukaspyrnur á liðin
voru hins vegar 13 til Hollendinga
11 til íslendinga. Um 25 þúsund
áhorfendur sáu Ieik þennan hér í
Nijmegen og komu mun fleiri en
búizt hafði verið við. Einhver úr
hópi áhorfenda henti reyk-
sprengju inn í vítateig íslenzka
liðsins og sást Sigurður Dagsson
varla um tíma vegna reykkófsins.
I lok leiksins var greinilega
blandin stemmning meðal áhorf-
enda. Sumir púuðu á Hollend-
inga, en aðrir þökkuðu leikmönn-
unum frammistöðuna.
Dómari I leiknum var Laakso
frá Finnlandi og var hann tvi-
mælalaust lélegasti maðurinn á
vellinum. Algjör heimadómari.
— Orðrómur
Framhald af bls. 1
útlánsvextir hefðu verið lækkaðir
um 1 af hundraði. Vinnuveitend-
ur í Finnlandi hafa undanfarna
daga lagt hart að stjórninni að
fella gengið til að bæta sam-
keppnisaðstöðuna á erlendum
markaði, einkum gagnvart Svium.
Höfðu vinnuveitendur gert sér
vonir um að gengislækkunin yrði
meiri en 3%, en litið er á þá
ákvörðun stjórnarinnar að fara
svo varlega i sakirnar sem raun
ber vitni sem ráðstöfun til að
styggja ekki kommúnista í sam-
steypustjórninni en þeir höfðu
eindregið lagzt gegn gengislækk-
un.
— Rhodesía
Framhald af bls. 1
ferðalögum um Afriku sunnan-
verða í því skyni að miðla málum í
Rhódesíu-deilunni, settu sér úr-
slitakosti varðandi sáttatillögurn-
ar, sem þeir leggja fyrir hann á
morgun, fimmtudag.
Síazt hefur út að þessar tillögur
feli meðal annars í sér að Smith
segi af sér ti! að greiða fyrir því
að lýðræðisreglan um eitt atkvæði
á hvern atkvæðisbæran einstakl-
ing nái fram að ganga, svo og að
öryggissveitir hvitu minnihluta-
stjórnarinnar verði leystar upp. Á
máli Smiths var að skilja, að þeir
Young og Owen væru nú komnir i
sjálfheldu með sáttaumleitanirn-
ar, — svo virtist sem þeir vildu
ekki láta rugla sig i riminu með
röksemdum Rhodesíustjórnar,
sem þrátt fyrir það væri tiibúin
að ræða málið.
Heimildarmenn innan stjórnar
Smiths greindu frá þvi i dag, að
forsætisráðherrann ætlaði að
halda fund með fréttamönnum á
föstudagsmorgun, og er það nú
mál manna að hann hyggist við
það tækifæri skýra frá því að
hann hafi visað á bug tillögum
stjórnar Breta og Bandaríkja-
manna í Rhodesiumálinu.
í kosningabaráttunni hefur Ian
Smith haldið fast við fyrri fullyrð-
ingar um að hann muni aldrei
fallast á kröfuna um kosningar
þar sem hvítir og blakkir hafi
jafnan kosningarétt, en í landinu
búa um 6 milljónir blökkumanna
og tæplega 300 þúsundir hvítra
manna. Atkvæðisrétt i kosningun-
um nú hafa einungis 0.3 af hundr-
aði þeirra 2.4 milljóna blökku-
manna, sem komnir eru á kosn-
ingaaldur. Við einn af sjö kjör-
stöðum blökkumanna i Salisbury
varð fréttamaður aðeins var við
tvö kjósendur i tvær klukku-
stundir eftir að kjörfundur hófst í
morgun.
— Sómalíu-
forseti
Framhald af bls. 1
eiginleg hagsmunamál rfkjanna.
Þykir orðalag þetta gefa vís-
bendingu um að ekki hafi tekizt
að jafna ágreining ríkjanna um
styrjöldina á Afríkuhorninu svo-
nefnda.
Þá hefur vakið athygli að Leo-
nid Brezhnev hefur ekki átt fund
með Siad Barre, og er það túlkað
sem frekari staðfesting á versn-
andi samskiptum Sovétríkjanna
og Sómalíu.
Yfirlýsing Tass er fyrsta opin-
bera staðfestingin, sem fæst á því
að Sómalíuforseti hafi haldið til
viðræðna við sovézka ráðamenn,
en áður höfðu óljósar fregnir bor-
izt um þetta ferðalag. Hafa stjórn-
málaskýrendur í Afríku austan-
verðri látið í Ijósi þá skoðun, að
slík heimsókn skipti sköpum um
samskipti Sómaliu og Sovétrikj-
anna á næstunni. Sómalía var til
skamms tima eitt dyggasta stuðn-
ingsriki Sovétmanna í Afríku.
Síðan átökin um Ogaden-
eyðimörkina hófust fyrir nokkr-
um mánuðum, hafa veður skipazt
í lofti, einkum síðan Eþíópíu-
stjórn skar á öll tengsl við Banda-
ríkin og fór að fá vopnabirgðir frá
Sovétríkjunum.
— 75% aukning
Framhald af bls. 40
að henni komi verði fargjöid að
hækka um helming vegna fjár-
magnskostnaðarins eins. Sigurður
kveðst ekki sjá þotur í innan-
landsfluginu i fyrirsjáanlegri
framtíð og telur sennilegast að
Fokkerarnir verði leystir af hólmi
með stærri og fullkomnari vélum
sömu gerðar.
— Bátur sökk
Framhald af bls. 40
bátnum. Þá sagði Jón að enginn
halli hefði verið kominn á Gaut
þegar vélin drap á sér. „Og þó
að allir botnlokarnir hafi opn-
ast snögglega þá hefði aldrei
allur þessi sjór komizt inn i
bátinn á jafn skömmum tíma“,
sagði Jón ennfremur.
Jón sagði að þeir þremenn-
ingar, en með honum voru á
þeir Jóhann Adolfsson frá
Hveragerði og Andrés Hannes-
son frá Þorlákshöfn, hefðu ekki
orðið varir við ferðir báta í ná-
grenninu. Hefðu þeir flýtt sér í
gúmmibjörgunarbát þvi Gautur
seig ört. Úr björgunarbátnum
sendu þeir siðan neyóarkall um
neyðartalstöð, og sendu upp
neyðarrakettur. Jón kvaðst
ekki hafa heyrt, nema mjög
óljóst, • svör við neyðarkalli
þeirra. Hefðu þeir þó ekkert
orðið óttaslegnir i björgunar-
bátnum, því sjór var góður, og
þeir sendu neyðarljós og blys
upp sem þeir treystu á að ein-
hver sæi. „Við höfum vart verið
nema 45 mínútur i björgunar-
bátnum, þar til að Fylkir NK
bjargaði okkur, og gafst því lít-
ill timi til að óttast.
Við treystum líka alltaf á að
okkur yrði bjargað", sagði Jón,
en þeim skipbrotsmönnum skil-
aði Fylkir NK heilum til Þor-
lákshafnar um nóttina.
Motorbáturinn Gautur ÁR 19
var 47 tonna eikarbátur, smið-
aður i Danmörku árið 1955. Eig-
endur bátsins voru tveir skip-
verja, Jóhann Adolfsson og Jón
Ólafsson. Eignaðist Jón sinn
hlut um sl. áramót, en áður
hafði Jóhann átt bátinn með
öðrum. Gautur ÁR var tryggður
hjá Vélbátaábyrgðinni Heklu,
en endurtryggður hjá Sam-
ábyrgð íslands á fiskiskipum.
Sjópróf hófust á Selfossi síð-
degis i gær, en er Mbl. aflaði
fregna af þeim voru þau
skammt á veg komin og ekkert
komið fram sem bent gæti til
hvað orsakað hefði lekann. Við
sjóprófin í gær mættu, auk full-
trúa sýslumanns Árnessýslu,
þeir Páll Sigurðsson, forstjóri
Samábyrgðar íslands á fiski-
skipum, Magnús Guðmundsson
frá Siglingamálastofnun ríkis-
ins og Þórhallur Hálfdanarson
frá Rannsóknarnefnd sjóslysa.
Aðspurður um hvað við tæki,
eftir skiptapann, sagði Jón
Ólafsson slíkt ekki ákveðið enn.
„Maður hefur ekkert ákveðið
hvort keyptur verði annar bát-
ur, maður hefur nóg annað um
að hugsa núna. En við höfum
okkar lifibrauð af sjónum, og
verður sjálfsagt svo áfram“,
sagði Jón að lokum.
— Stéttar-
sambands-
fundur
Framhald af bls. 2
lögum eða sem svaraði 10% af
heildarverðmæti landbúnaðar-
framleiðslunnar. Nú væri hins
vegar uppi ágreiningur um það
milli Hagstofunnar og Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins
hversu hátt ætti að áætla verð-
mæti búvöruframleiðslunnar og
munaði þar um 170 milljónum
hve tala Framleiðsluráðs væri
hærri. — Við gerum því þann
fyrirvara í samþykkt okkar að
þetta verðjöfnunargjald verði
innheimt í trausti þess að mat
Framleiðsluráðs á heildarverð-
mæti landbúnaðarframleiðslunn-
ar verði viðurkennt. Ef það verð-
ur gert þá má gera ráð fyrir að
verðjöfnunargjaldið verði 20 til
25 krónur á hvert kíló, sem lagt
var inn i fyrra, en verði tala Hag-
stofunnar ofan á þá þarf að inn-
heimta milli 30 og 40 krónur á
hvert kíló, sagði Gunnar.
Fram kom hjá Gunnari að ef úr
því yrði að verðjöfnunargjald yrði
innheimt þá gengi sú innheimta
jafnt yfir alla innleggjendur sauð-
fjárafurða en síðan yrði greitt til
þeirra, sem ekki fengju útflutn-
ingsbætur greiddar. Um gjaldið á
fóðurbætinn sagði Gunnar að það
væri hugmynd með þessari tillögu
að nota þá peninga, sem þannig
fengjust til að greiða til þeirra
búvörugreina, er ekki næðu fullu
verði fyrir framleiðslu sina á
næsta ári og ef nauðsynlegt
reyndist þá yrði gripið til þess að
greiða lægra verð fyrir aukna
framleiðslu.
í meðförum fundarins var gerð
sú breyting á tillögunni að þar
sem talað er um að heimilt verði
að ákveða lægra verð fyrir aukna
framleiðslu á hverri jörð, þá var
bætt við að þó verði greitt fullt
verð fyrir framleiðslu lítilla búa.
Aðspurður um þetta atriði sagði
Gunnar að það kæmi sjálfsagt í
hlut Framleiðsluráðs að ákveða
hvaða bústærð teldist innan þess-
ara marka en sér þætti þó líklegt
að þarna yrði miðað við bústærð
verðlagsgrundvallarbúsins eða
nálægt þvi. Verðlagsgrundvallar-
búið nú er 440 ærgildi eða 10 kýr,
1 kvíga, 2 geldneyti, 2 kálfar og
204 kindur.
— Þessar ráðstafanir koma
vissulega illa við bændur. En eins
og staðan er nú verður ekki hjá
því komizt að grípa til einhverra
ráðstafana og þetta varð niður-
staða fundarins, sagði Gunnar
Guðbjartsson að lokum.
— Náðun
Framhald á bls 22.
hluta af refsingu eða ekki. Kvað
Baldur mörg dæmi þess að menn
hefðu verið náðaðir án þess að
þeir hefðu tekið út refsingu þótt
slikum tilvikum hefði fækkað hin
seinni ár. Slikt hefði gerzt í tíð
allra dómsmálaráðherra, sem set-
ið hefðu í embættinu lengur en
nokkrar vikur. Þetta tilfelli væri
því alls ekkert einsdæmi. Sagði
Baldur að við ákvörðunartöku
væri tekið tillit til aðstæðna, t.d.
þess hvort viðkomandi hefði
hreinan skjöld að öðru leyti, eins
og væri i þessu tilfelli. „Mjög
margir menn eru náðaðir ár hvert
og vekur það sjaldnast athygli. í
þessu tilfelli vekur náðunin
væntanlega athygli vegna þess að
umræddur maður hefur komið
nálægt stjórnmálum," sagði
Baldur Möller að lokum.
— Síld
Framhald af bls. 2.
með 120—30 tunnur og Hamra-
svanur frá Rifi fékk 30 tunnur.
Þá fengu Hringur og Vonin II
einnig sildarafla undan Malarrifi.
Síldarverðið, sem ákveðið var I
gær, er uppsegjanlegt með viku
fyrirvara. Verðið var ákveðið af
oddamanni og fulltrúum kaup-
enda i nefndinni gegn atkvæðum
fulltrúa seljenda. í nefndinni áttu
sæti: Ólafur Davíðsson, sem var
oddamaður nefndarinnar, Agúst
Einarsson og Ingólfur Ingólfsson
af hálfu síldarseljenda, Margeir
Jónsson og Jón Þ. Árnason af
hálfu kaupenda á síld til söltunar
og Árni Benediktsson og Ólafur
B. Ólafsson af hálfu kaupenda á
sild til frystingar.
— Mjólkursala
Framhald af bls. 2.
Sagði Guðlaugur að það væri
einnig af hagkvæmisástæðum,
sem neytendur keyptu undan-
rennu en mönnum gleymdist
oft hversu mjólkin gæti verið
holl, væri hennar neytt i hófi.
Samdráttur i sölu annarra
mjólkurvara án nýmjólkur
væri m.a. tilkominn vegna
meiri fjölbreyttri mjólkurvöru.
Aukin undanrennusala skapaði
aukna mjólkurfitu, sem væri
verðlitil eins og ástandið væri
nú. Fyrir bændur kæmi þetta
ekki að sök meðan hægt væri að
framleiða osta úr mjólkurfit-
unni og fá útflutningsbætur og
niðurgreiðslur til að tryggja
verð fyrir framleiðsluna. —
Þetta er hins vegar rangt fyrir
þjóðfélagið i heild að selja vör-
una með þessum hætti. Við eig-
um að hætta verðlagningu
mjólkurvara á grundvelli fitu-
prósentu heldur eigum við að
taka aukið tillit til eggjahvitu-
innihalds, sagði Guðlaugur.
— Léttmjólk gæti verið
málamiðlun í þessari stöðu og
ég tel að neytendur hafi hug á
að fá hana á markað en það
stendur kannski á þvi að neyt-
endur láti nógu kröftuglega í
sér heyra um það efni. Við hjá
Mjólkursamsölunni erum til-
búnir að hefja framleiðslu
hennar og leggjum til að hún
verði þá verðlögð mjög svipað
og venjulega nýmjólk og vita-
mínbætt. Aðrar leiðir væru að
draga úr þeim mun, sem nú er á
undanrennuverðinu og
mjólkurverðinu auk þess, sem
það þarf að koma til hlutlausari
upplýsingamiðlun um gildi
mjólkur sem matvöru, sagði
Guðlaugur að lokum.
— Tómatar
Framhald af bls. 40
sóknarstöðinni Neðri-Ási
hefðu verið gerðar tilraunir
með frostþolnar kartöflur, sem
þar hafa verið kynbættar með
stofni frá Perú. Sagði hann
þessar tilraunir hafa gengið
vel og þyldu kartöflurnar ör-
ugglega fimm gráðu frost. Hef-
ur Neðri-Ás sent kartöflur af
þessu tagi víða um heim, m.a.
til Sovétríkjanna, Póllands,
Kenya og Israel.