Morgunblaðið - 01.09.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
23
Stefán Jónsson á Kagaðarhóli f ræðustóli á aðalfundi Stéttarsambands-
jns Lj»sm. Mbl. ts.
Stéttarsambandsfundinum lokið:
5 milljóna króna fjárveiting
til markaðsleitar samþykkt
AÐALFUNDI Stéttarsambands
bænda lauk á Eiðum skömmu
fyrir hádegi I gær. Síðast á dag-
skrá fundarins var kosning
stjórnar og voru allir stjórnar-
menn sambandsins endurkjörnir
nema Sigurður Jónsson á Reynis-
stað, sem ekki var f kjöri. 1 stað
hans var kosinn Þórarinn
Þorvaldsson á Þóroddsstöðum í
Vestur-Húnavatnssýslu. Aðrir f
stjórn voru kjörnir Gunnar Guð-
bjartsson, Hjarðarfelli, Ólafur
Andrésson, Sogi, Jón Helgason í
Seglbúðum, Guðmundur Ingi
Kristjánsson, Kirkjubóli, Ingi
Tryggvason, Kárhóli og Þorsteinn
Geirsson á Reyðará.
Fjölmargar tillögur voru af-
greiddar á fundinum en lengstar
urðu umræður um tillögu Fram-
leiðslunefndar fundarins um
verðjöfnunargjald á búvörufram-
leiðsluna, fóðurbætisskatt og
kvótakerfi i framleiðslunni en til-
laga þessi var kynnt í blaðinu í
gær. Var tillagan samþykkt, að
viðhöfðu nafnakalli með 37 at-
kvæðum gegn 6 en þrír greiddu
ekki atkvæði, lítið breytt frá upp-
haflegri tillögu nefndarinnar. Af
öðrum tillögum, sem fundurinn
samþykkti og ekki hefur verið
getið um áður, má nefna tillögu
þar sem itrekað er að verðlags-
grundvöllur landbúnaðarvara
gefi sem réttasta mynd af hinum
ýmsu kostnaðarliðum við bú-
reksturinn svo og afurðamagni.
Benti fundurinn sérstaklega á að
taka þyrfti tillit til óreglulegs
vinnutíma bænda og einnig að
styðjast þyrfti við samninga
verkalýðsfélaganna um greiðslur
fyrir útköll og viðveruskyldu. Það
þyrfti að leiðrétta fjármagnsliði
verðlagsgrundvallarins og liðinn
annan kostnað. Smaþykkti
fundurinn einnig að taka þyrfti
tillit til þess við ákvörðun launa-
liðar grundvallarins hvort bænd-
ur hefðu náð þeim tekjum, sem
þeim voru ætlaðar næsta timabil
á undan. Og einboðið væri að
tímakaup húsfreyju í grund-
vellinum yrði jafnhátt timakaupi
bóndans.
Fundurinn samþykkti að verja
5 milljónum króna af rekstrar-
hagnaði ársins 1977 til markaðs-
leitar i trausti þess að a.m.k. tvö-
föld þessi upphæð komi til viðbót-
ar frá öðrum aðilum. Fundurinn
lýsti einnig yfir undrun sinni að
ekki skuli mögulegt að greiða
hærra verð en nú er gert fyrir
gærur, sem eru svo eftirsótt hrá-
efni. Samþykkt var tillaga um að
brýnt væri að tryggja eðlilegan
vöxt og þróun innlends fóður-
iðnaðar, svo hann verði snar þátt-
ur í kjarnfóðurnotkun land-
búnaðarins.
í varastjórn Stéttarsambands
voru kosnir Magnús Sigurðsson,
Gilsbakka, Jónas R. Jónsson á
Melum, Grimur B. Jónsson, Ær-
lækjarseli, Sveinn Guðmundsson
á Sellandi, Sigsteinn Pálsson,
Blikastöðum, og Böðvar Pálsson,
Búrfelli.
Veðurofsinn sleit
samæfingu björgunar-
sveita á Austurlandi
LEIT AÐ „tveimur slösuðum
mönnuni í flugvélarflaki" var
m.a. á dagskrá samæfingar björg-
unarsveita S.V.F.l. á Austurlandi,
sem fram fór í Arnardal á laugar-
dag, en æfingunni varð að slíta á
laugardagskvöld, þar sem tjöld
héldust þá vart niðri lengur.
Á laugardagsmorgun hófst dag-
skráin með námskeiðum i skyndi-
hjálp, notkun áttavita, korta og
fjarskiptatækja. Eftir hádegið var
flugslys sett á svið og hafði lituðu
jöklatjaldi verið komið fyrir i
hrauninu skammt vestan Kreppu,
i um 20 km fjarlægð frá æfinga-
búðunum. Sjö leitarflokkar fóru í
leitina og upp úr klukkan 17
komu menn að ,,flakinu“ og
tveimur tímum siðar var komið
með þá ,,slösuðu“ til búðanna.
Svæðið, sem leitað var á, er á
fjórða hundrað ferkílómetrar.
Með kvöldinu bætti stöðugt í
vind og varð að slíta æfingunni
um áttaleytið, en siðar um kvöldið
átti að fara fram kvöldvaka og á
sunnudagsmorgun æfing í með-
ferð fluglínutækja og í merkja-
gjöfum.
Æfinguna sóttu um 80 manns
en mótsstjórar voru Skúli Magn-
ússon og Þorsteinn Páll Gústafs-
son.
Aflaskýrsla úr Þorlákshöfn
Þorlákshöfn — 29. áíiúst
AFLASKVRSLA frá Þorláks-
höfn, sem miðast við 24. ágúst s.l.
Um humarvertíðina er það að
segja, að heildaraflinn frá ára-
mótum var 146 tonn en í fyrra á
sama tíma var aflinn 153 tonn.
Hæstu humarbátarnir voru Jón
Sturlaugsson, 14,5 lestir,
Snætindur með 12.5 lestir og Sæ-
unn Sæm. Með 12.2 1. Alls Iönd-
uðu á tímabilinu 34 bátar, þar af
9 heimabátar og var unninn hum-
ar af 5 á staðnum.
Spærlingsveiðin var á timabil-
inu 3500 lestir en 1976 var hún
2741 tonn, og hæstu bátar á þess-
ari vertíð voru Búrfell með 621
tonn, Gissur 597, og Arnar 563.
Alls voru tiu bátar á spærlingi,
allt heimabátar.
Bolfiskaflinn var á þessu tíma-
bili 16,725 tonn en i fyrra 16.341
tonn, þar af var afli togaranna
Jóns Vidalin 1670 lestir og
Brynjólfs 194 tonn. Þrír bátar
voru gerðir aút á troll og er afli
þeirra tregur. Þrir bátar eru á
handfærum og er afli þeirra
sæmilegur þegar gefur.
Loðnulöndun er 21.118 tonn en
i fyrra 8.674 tonn. Alls vó sjávar-
afli 24. ágúst s.l. 40.976 tonn en i
fyrra 27,911 tonn.
Þessar tölur sýna að sumar.
vertiðin hefur komið vel út og
mun betur en i fyrra. Það er þvi
ekki hráefnisskortur, sem veldur
að 80 manns hefur verið sagt upp
störfum hjá Utgerðarfélaginu
Meitlinum h.f. frá og með degin-
Framhald á bls. 26
Við viljum vekja athygli yðar á hinum
fjölhæfu rafdrifnu klippum,
BF 30 - 12, frá Muhr & Bender.
Til sýnis í verzlun vorri næstu daga.
Sími: 18560
Vélin klippir
1. Plöturogflatjárn
2.Sivalt og ferkantaó stangarjárn
3. Geira i flat-og vinkiljárn
má breyta i 30 mm lokk
4. Prófila af öllum geróum
G.J. Fossberg hf.,
vélaverzlun
Skúlagötu 63
Leyft Okkar
\ verð verð
’ 97,- 86,-
212- 190,-
129.- 116,-
161- 145,-
129,- 117,-
734,- 576,-
1183- 1.109,-
300- 270,-
EmmEss appelsínu-, marsípan- eða
ávaxtaís 1 líter .................................. 300.-
Þetta eru aðeins fáein verðsýnishorn.
einnig verðsamanburð sem sést á tvöföldum
verðmerkimiðum er sýnir leyft verð og okkar verð
C Opið til kl. 10 föstudag
Sími86111.