Morgunblaðið - 01.09.1977, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
þjónusta
Iðnrekendur —
Útgerðarmenn —
Bændur
Notfærið ykkur nýjungar í íslenskum iðnj
aði. Látið heit-zinkhúða hlutina og forðist
tæringu og viðhald Tæknilegar upplýs-
ingar um meðferð efnis og smíðahluta
veittar á tæknideild fyrirtækisins.
Stálver h / f
Funahöfða 1 7
sími 83444.
Hringnótaskip
Óskum eftir að taka á leigu, 1 til 200 tonna hringnótaskip,
leigutími 1 til 2 mánuðir, skipið þarf ekki að hafa síldveiðileyfi.
Fasteignamiðstöðin, Austurstræti 7, s. 14120.
Bátar til sölu
6 — 7 — 1 1 — 20 — 30 — 38 —46
— 51 — 55 — 88 — 90 — 230 tn.
Einnig opnir bátar af ýmsum stærðum.
Höfum sérstaklega verið beðnir að útvega
80 —100 tn. stálbát og 2—300 tn bát
fyrir góða kaupendur.
Aðalskipasalan,
Vesturgötu 1 7.
Símar 26560 og 28888.
Heimasímar 75511 og 51119.
Skagafjörður
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Skagfirðinga verður haldinn í
Sæborg Sauðárkróki (Aðalgötu 8) þriðjudaginn 6. sept. n.k.
kl. 9 síðdegis.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Ungir sjálfstæðismenn í
Austur-Húnavatnssýslu
JÖRUNDUR FUS boðar til fundar í Félagsheimilinu (litla sal)
föstudaginn 2. september kl. 20:30.
Fundarefni:
— Þing SUS í Vestmannaeyjum 16. —18. september. Full-
trúar frá stjórn SUS munu koma á fundinn og skýra frá
væntanlegu þinghaldi.
— Staða ungra sjálfstæðismanna í A-Hún. og starf fyrir
kosningar.
— EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON alþm. mun koma á
fundinn og svara fyrlrspurnum fundarmanna.
JÖRUNDUR FUS.
— Höfum ekki
Framhald af bls. 15
stækka, en dýrasti hluturinn í öllum
flugvöllum eru brautirnar”
Gautaborg
í áætlun í haust
— Við höfum ekki minnzt á
Norðurlandaflugið ennþá.
„Við höfum fullan áhuga á þvi að
efla samgöngurnar við skandinavíu og
höfum lagt vaxandi áherzlu á að fá
fleiri Skandmava til að heimsækja ís-
land Við höfum aukið flugið til
Skandinavíu með því að bæta Stokk-
hólmi inn í áætlunarflugið og í haust
byrjum við að fljúga til Gautaborgar
aftur eftir sjö ára hlé Meiningin er að
halda Gautaborgarfluginu árið um
kring.
„Já í innanlandsfluginu hefur orðið
mjög veruleg farþegaaukning á þessu
ári, um 15% En því miður er innan-
landsflugið rekið með tapi þrátt fyrir
það, að þar erum við með eldri tæki,
sem verulega hafa verið afskrifuð
Ástæðan fyrir þessu eru fyrst og fremst
verðlagshöft
Það er hins vegar staðreynd að með
samanburði við svipaðar flugleiðir að
vegalengd til á hinum Norðurlöndun-
um, þá eru fargjöldin hér innanlands
allt að því helmingi lægri en á sam-
bærilegum flugleiðum i Noregi, Sví-
þjóð ogDanmörku ”
— Hvað með fragtina í innan-
landsflugi?
„Þar hefur ekki orðið nein aukning
Þar kemur að sjálfsögðu til bætt vega-
kerfi og svo óvenju mildur vetur ”
— Þú talar um eldri tæki. Hvað
með endurnýjun?
„Það er engar áætlanir að döfinni
um endurnýjun í innanlandsfluginu
Þrátt fyrir 15% farþegaaukningu I innanlandsflugi er halli á rekstri þess.
Þá er einnig rétt að geta þess, að
Bretlandsflugið hefur mjög aukizt í ár
og er nú að rétta úr kútunum aftur eftir
þorskastrlðið."
— Hafa Flugleiðir nú sömu hlut-
deild í Skandinavlumarkaðinum og
Loftleiðir og Flugfélagið höfðu áður?
„Ef átt er við Ameríkuferðir Skandi-
nava um ísland þá hafa þær minnkað
Við erum háðir þeim kvöðum að vera
með sömu fargjöld og SAS og því hafa
þessír flutningar minnkað verulega
Hins vegar er mjög vaxandi áhugi á
íslandi í Skandinavíu og hefur Skandi-
navluflugið að því leytinu farið heldur
vaxandi."
— Þessi fargjaldakvöð. Er hún
hindrun fyrir Flugleiðir?
„lATA-aðild Flugfélagsins hefur
bæði kosti og galla Hún kemur I veg
fyrir að við getum farið þarna inn með
undirboð, en hins vegar erum við inni I
mjög fullkomnu tölvukerfi SAS, sem
nær ógjörningur væri að vera án
Þannig er þetta eiginlega akademísk
spurning fyrst og fremst."
Innanlandsfargjöld
of lág
— Og frá Skandinavlu hingað
heim.
En eitt er víst; að þegar endurnýjunin á
sér stað og auðvitað kemur að henni,
þá verður með tilliti til fjármagnskostn-
aðar að hækka fargjöldin um 50% af
þeirri ástæðu einni saman.
Það er annars furðulegt fyrirbæri að
við skulum neyddir til að reka innan-
landsflugið með tapi á sama tíma og
ríkið hefur veitt okkur ábyrgðir, sem
við þurfum að standa skil á. Það er
hreint furðuleg mótsögn í þessu."
— En þegar að endurnýjun kem-
ur. Hvaða tegundir koma þar helzt til
greina?
„Ég tel að hreinar þotur i innan-
landsflugi séu ekki í sjónmáli
Hins vegar er til stærri og fullkomn-
ari gerð af F 27, sem væri mjög
æskilegt að stefna að Ég tel mjög
sennilegt að það sé sú flugvél sem
kemur til með að henta bezt sem
arftaki þeirra, sem við nú notum "
— 0 —
— Og til að koma okkur niður á
jörðina svona í lokin. Hvernig er
. fjárfiagsafkoman á þessu á*i?
„Það má segja, að við töpum fé sex
mánuði ársins og hinir sex mánuðirnir
fari í að bæta þetta upp
Staðan nú miðað við sama tíma í
fyrra er heldur lakari og ég á þess
vegna von á lakari útkomu þetta árið
en var i fyrra, en það varð hagnaður af
reglulegri starfsemi fyrirtækisins 462
milljónir króna "
— Er fyrirsjáanlegt hvorum meg-
in við núllið þið lendið?
„Enn eru eftir fjórir mánuðir af árinu
og framundan eru miklir óvissutímar
Ég vil því ekki vera uppi með neina
spádóma "
fj
— Verkalýðsfél.
r
í Arnessýslu
Framhald af bls. 18
hallir rísa og nýir bankar eru
settir á fót!
Síöan eru útlánavextir hækkað-
ir til að standa undir síauknum
reksturskostnaði bankanna og
tryggja þeim milljóna gróða-, á
sama tíma og alþýðu manna er
neitað um smávægilega fjármuna-
fyrirgreiðslu til nauðsynlegustu
þarfa.
Sú ríkisstjórn, sem slíkt ástand
hefur skapað og engan umbóta-
vilja sýnir, á að víkja — rjúfa
þing strax i haust og gefa þjóðinni
kost á að velja sér aðra forystu-
menn.
— Þing
norrænna
Framhald af bls. 18
Norðurlöndunum.
í sambandi við þingið var dag-
ana 19,—22. ágúst haldin í Nor-
ræna húsinu sýning á ýmsu sölu-
og auglýsingaefni, sem þátttöku-
félögin hafa gefið út, ásamt til-
heyrandi upplýsingum.
Að þinginu loknu ferðuðust
flestir þátttakendanna um Suður-
land og til Vestmannaeyja.
Næsta þing norrænna sam-
vinnutryggingafélaga verður
haldið i Kaupmannahöfn árið
1980.
— BSRB
Framhald af bls. 3
koma saman til fundar upp úr
næstu helgi og yrði staða samn-
ingamálanna þar rædd. Það er
stjórn og samninganefnd BSRB,
sem vald hefur til þess að boða til
verkfallsaðgerða. Til verkfalla
getur þó ekki komið, nema sátta-
semjari ríkisins hafi lagt fram
sáttatillögu, sem greitt hafi verið
atkvæði um í allsherjaratkvæða-
greiðslu, og sé hún felld getur
verkfall fyrst komið til fram-
kvæmda.
- Frystihúsi BÚH
Framhald af bls. 3
lagi. Það hefur verið brestur í því
hér“.
Starfsfólk frystihúss Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar fékk upp-
sagnarbréf í gærmorgun. Fyrir-
tækið lét verkalýðsfélögin íHafn-
arfirði fylgjast með málinu og það
skýrði gaumgæfilega fyrir þeim
og fólkinu ástæður þessara ráð-
stafana. ,,Ég held að það sé ekki
ofmælt af mér,“ sagði Guð-
mundur Ingvason, „að allir hafi
tekið mjög vel í þessar ráðstafanir
og skilið það að þetta er vanda-
mál, sem verður að ráðast gegn og
mun væntanlega skila sér til mik-
illa hagsbóta fyrir umbjóðendur
vérkalýðsfélaganna." Samt er
þetta mjög sárt að þurfa að stöðva
húsið, en hjá því verður ekki kom-
izt á meðan breytingarnar fara
fram.“
— Aflaskýrsla
Framhald af bls. 23
um í dag, því að loka á frystihús-
inu á staðnum.
Fólk trúði því ekki að til þess
arna myndí koma hér, fyrr en
staðreyndirnar blöstu við, þar
sem flestir íbúanna vinna að út-
gerð og fiskvinnslu. Það er von
manna að sem fyrst rætist úr
þessu ástandi, og í ljós komi hvað
í raun valdi slíkri uppgjöf, að
talið er hagkvæmara að senda tog-
arann Jón Vidalín með aflann til
Færeyja óunninn en vinna hann
hér heima. Hann var með 40—50
tonn eftir 10 daga sjóferð og það
af þorski.
—Ragnheiður.
— Mikil
samkeppni
Framhald af bls. 19
fyrirbæri hjá okkur. Venju-
lega komum við með eina til
tvær nýjar „typur" af eldhús-
skápum á ári.
— Á íslandi ríkir míkil
samkeppni í innréttingastarf-
semi, en verðið er svipað á
þeim íslenzku og erlendu.
Við erum tveir sem erum
með íslenzkar innréttingar,
en fimm aðilar eru með inn-
flutning á innréttingum.
— 20% af starfsemi JP
innréttinga eru endurbætur
og það sem mér finnst at-
hyglisverðast er að um 50%
viðskiptavinanna eru við fólk
utan af landi, þá sérstaklega
frá Austur- og Vesturlandi en
einnig Vestmannaeyjum
— Það eina sem ég
kvarta yfir er ónóg fyrir-
greiðsla hjá ríkinu, sagði Jón
°étursson að lokum.
—Hey til Noregs
Framhald af bls. 40
líkað mjög vel og þegar væri kom-
in pöntun um 500 tonn og hugsan-
legt væri að frekari pantanir bær-
ust.
Guðbjörn sagði ekki væri enn
að fullu búið að semja um verð á
heyinu en þó væri ljóst að til
bænda yrði verðið mjög hagstætt
miðað við það verð, sem fengist
fyrir hey hér innanlands. Að-
spurður um, hvort flutningskostn-
aður á heyinu kynni að hindra
franhald á þessum útflutningi,
sagði Guðbjörn að hann sæi engin
merki þess. Ekki væri að visu enn
vitað hver flutningskostnaðurinn
yrði en skip i millilandasiglingum
væri það oft tóm á útleið að mögu-
legt ætti að vera að ná hagstæðum
samningum um flutningana. Sem
fyrr sagði er það KFK í Dan-
mörku, sem kaupir heyið en gert
er ráð fyrir að þvi verði skipað
upp í Noregi og það selt til bænda
þar. Gerði Guðbjörn ráð fyrir að í
fyrstu yrði heyið keypt af bænd-
um í Eyjafirði en kæmu pantanir
um meira þá yrði það flutt frá
Suð—Vesturlandi.
Við vitum að bæði Hollendingar
og Norðmenn kaupa árlega mikið
af heyi erlendis frá og hjá fóður-
verzlunarfyrirtækjum erlendis
eru viðskipti með hey engu minni
en verzlun með fóðurbæti. Við á
íslandi ættum því að hafa góða
möguleika til að framleiða hey til
útflutnings, ef okkur tekst að
framleiða það á hagstæðu verði,
því vel verkað hey héðan er tals-
vert betra en það hey, sem er á
boðstólum erlendis, sagði Guð-
björn.
— Saklaus
Framhald af bls. 40
ára gamlan, og við yfirheyrslur
viðurkenndi hann brot sitt.
Hinum manninum var þá strax
sleppt úr gæzluvarðhaldi en hann
hafði þá setið inni í fimm sólar-
hringa saklaus. Að sögn Þóris
Oddssonar, deildarstjóra við
Rannsóknarlögreglu rikisins,
þóttu við upphaf rannsóknarinn-
ar nægar ástæður til þess að
hneppa manninn í gæzluvarðhald,
þar sem stúlkan benti eindregið á
hann jafnframt því að ýmsar lik-
ur bentu til sektar hans, þótt ann-
að kæmi á daginn.
Fordæmi eru fyrir því að menn
hafi fengið greiddar skaðabætur
fyrir að sitja í gæzluvarðhaldi að
ósekju.