Morgunblaðið - 01.09.1977, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
29
UmHORF
Umsjón Erna Ragnarsdóttir
Kjör kennara
Sú árátta margra að líta á þetta mikilvæga starf sem eins konar
,,hobby fyrir húsmæður" er ekki gæfuleg fyrir land og lýð.
„Hobby fyrir
húsmæður“
Mikið hefur verið rætt um
það undanfarið, að kennara
skorti til starfa, meira að
segja í Reykjavík. Leitað
hefur verið margvíslegra
skýringa á þessu. Lág laun
eru þar efst á blaði hjá flest-
um. A sama tlma og vaxandi
fjöldi fólks lýkur prófum
sem veita því réttindi til að
stunda kennslustörf skortir
kennara, einkum á grunn-
skólastigi. Laun kennara
miðast við skólastig og
menntun. Lægst eru launin
á lægstu skólastigunum.
Þessu þarf að breyta á þann
hátt að miðað sé við mennt-
unina eingöngu. Það er að
mínu mati ekki hvað
nauðsynlegast að fá vel
menntaða kennara til starfa
með yngstu börnunum. Þar
er sá grunnur lagður er allt
framhald byggir á.
Kennarastarfið
— kvennastarf
Konur taka í vaxandi mæli
að sér kennarastörf, einkum
í grunnskólanum. Þær hafa í
auknum mæli aflað sér
starfsmenntunar á þessu
sviði. Mun láta nærri að 70%
kennara séu konur. Mikill
meirihluti stundakennara
eru konur. Af þessum sök-
um hafa menn velt þvi fyrir
sér hvort konur eigi veru-
lega sök á því hve lág laun
kennara eru. Benda má á að
giftar konur njóta skatta-
Ivilnunar með svokallaðri
50% reglu. Þær hafa ekki
litið á sig sem fyrirvinnu
heimilisins á sama hátt og
karlmaðurinn gerir.
Heimilisstörfin hvíla enn
verulega á konunum.
Konurnar líta á kennslu-
starfið sem aukastarf,
meðan karlmaðurinn litur á
það sem aðalstarf. Allt þetta
og miklu fleira stuðlar að
því að veikja kennara-
stéttina i heild.
Opinberir
starfsmenn f
launasvelti
gerast í launamálum
kennara. Ein er sú að rikis-
valdinu hefur tekizt að beita
með mjög góðum árangri
gömlu rómversku reglunni
„deildu og drottnaðu“ á
kennara. Þeir hafa verið
klofnir í fjölmörg félög,
hvert um sig með marga
félaga á skrá, en sárafáa
vírka. Heldur hefur þetta þó
batnað á siðustu árum.
Önnur er sú staðreynd, að
opinberir starfsmenn eru á
öllum sviðum i launasvelti.
Víða hefur verið gripið til
þess ráðs að fetta ekki
fingur út i það að menn taki
að sér ýmiss konar auka-
störf. Margs konar bitlingar
eru og skapaðir til að draga
úr óánægjunni. Kennarar
geta haft sómasamleg laun
með óhóflegu vinnuálagi.
Hvaða vit er í því að sami
kennari hafi 40—50 stunda
kennslu á viku. Eg man eftir
því að menntaskólakennari
einn hafði fyrir nokkrum
árum 56 stunda kennslu á
viku. „Þetta geta menn gert
meðan þeir eru ungir,“ sagði
einn af samkennurum hans.
Hvernig eru afköst þessara
manna?
Breyttir
kennsluhættir
Leita verður víðtækari
skýringa á því sem er að
Nú er það svo að kennarar
eins og aðrir menn leggja
misjafnlega mikla vinnu í
starf sitt. Reynt hefur verið
að breyta kennsluháttum á
þann veg að í stað hinnar
hefðbundnu itroðsluaðferð-
ar komi sjálfstæðari vinna
nemenda sjálfra. Kennarinn
verður þannig oft eins konar
verkstjóri í stað þess að vera
fyrirlesari. Nemandinn þarf
að læra að nýta sér söfn og
ýmiss konar nútímatæki við
námið. Þessar breytingar
gera mjög miklar kröfur til
kennarans og vinnu hans
utan hefðbundins kennslu-
tíma. í grunnskólanum hef-
ur það gerst i vaxandi mæli
að bekkir eru blandaðir
nemendum með mjög mis-
jafna námsgetu. Til þess að
ná verulegum árangri í slik-
um bekkjum verður kennar-
inn að hafa verkefni við
hæfi hvers og eins. Nemand-
inn þarf alltaf að vera
virkur. Þetta kallar á geysi-
mikla vinnu, sem enginn
vinnur á hlaupum.
Skólinn
vinnustaður
nemcnda og kennara
í dag eru flestir skólar
margsetnir og kennarar
hlaðnir vinnu til að hafa í
sig og á. Meðan slikt ástand
varir er ekki við góðu að
búast. Skólinn er vinnu-
staður kennara og nemenda,
þeir þurfa að geta komið
þangað að morgni og unnið
eðlilegan vinnudag og farið
síðan heim. Þetta er ekki
siður mikilvægt fyrir
nemendur en kennara.
Nemandinn þarf að geta
lokið við heimaverkefni
áður en heim er komið, jafn-
vel er það nauðsynlegt að
hægt sé að veita þeim aðstoð
við ýmiss konar vandamál er
upp koma. Þetta er ekki
mögulegt nema farið verði
að líta á vinnudag kennara
sem eina heild í stað þess að
mæla hann í fjölda kennslu-
stunda. Sú árátta margra að
líta á þetta mikilvæga starf
sem eins konar „hobby fyrir
húsmæður“ .er ekki gæfuleg
fyrir land og lýð.
Glæsilesar
skólabygginsar
A undanförnum árum
hafa risið glæsilegar skóla-
byggingar um allt land.
Þessi hús eru byggð fyrir
almannafé og er það vel að
þjóðin skuli hafa ráð á slík-
um fínheitum er viða blasa
við. En hvað með starfsfólk-
ið sem í þeim starfar? Hefði
ekki mátt eyða einhverju af
þvi fjármagni til að bæta
kjör kennaranna? Eða
skiptir ef til vill hin ytri
umgerð mestu máli. Skóla-
kerfið á íslandi er orðið
óhemju fjármagnsfrekt 'og
eðlilegt er að menn spyrji
hvort þvi fé sé vel varið.
Hvers vegna er frekar hægt
að hafa réttindalaust fólk
við kennslu en t.d. við
múrverk. Ef maður verður
veikur þykir sjálfsagt að
hann leiti læknis. Enginn
fær að snerta tennur barns
þins nema tannlæknir. En
hverjir kenna þvi í
skólanum? Foreldrar, og
raunar er það almennt ein-
kenni, hafa litlar áhyggjur
af þvi. Þetta gengur allt
saman. Hann spjarar sig, þó
eftir BESSI
JÓHANNSDÓTTURl
Bessí Jóhannsdóttir er 29
ára gömul. Ilún var stúdent
frá MR 1967 og lauk BA
prófi í sagnfræði og félags-
fræði frá Hl 1973. Hún er
fastur kennari við Kvenna-
skólann i Reykjavfk og er
varafulltrúi Sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn
Reykjavíkur.
kennarinn hafi ekki hunds-
vit á þvi sem hann er að
kenna.
Og háknið
stækkar æ meir
Eins og ég sagði fyrr í
þessari grein þarf að lita á
launamál kennara i víðara
samhengi. A fjölmörgum
sviðum innan rikiskerfisins
þarf að gera gagngerar
breytingar. Ungir menn með
góða menntun veigra sér við
að ráða sig til starfa hjá hinu
opinbera nema hvers konar
umbun fylgi. Margir þeirra
fá þar sina fyrstu starfs-
þjálfun, en þegar henni er
lokið bjóða einkaaðilar þeim
hærri laun.
Sú þróun sem átt hefur
sér stað í launamálum opin-
berra starfsmanna er þjóð-
hagslega stórhættuleg.
Þegar dugmikill maður
lætur af störfum og annar
lélegri kemurí staðinn er
þess ekki langt að bíða, að
krafan um nýjan starfsmann
kemur upp, og þannig
hleður boltinn utan á sig og
báknið stækkar æ meir.
Bessf Jóhannsdóttir
Doktorsritgerð um gerla-
flóru í fiskeldisskerjum
Safnaðarsystir í
Hallgrímssöfnuði
FIMMTÁNDA ágúst sl. lauk
Grimur Þór Valdimarsson
doktorsprófi frá Strathclyde há-
skólanum í Glasgow, Skotlandi.
Heiti prófritgerðarinnar er „Eco-
logical studies of baeterial types
associated with marine fish tanks
and numerical classification of
isolated Vibrio strains". Fjallar
ritgerðin m.a. um árstíðabundnar
breytingar á gerlaflóru í fiskeldis-
kerjum, einkum með tilliti til
sýkla af ættkvíslinni Vibrio.
Stúdentsprófi lauk Grímur frá
Menntaskólanum í Reykjavik
1969 og B.S. prófi í liffræði frá
Háskóla íslands 1973.
Foreldrar Gríms eru Valdimar
Einarsson bifreiðarstjóri frá
Neðradal, Biskupstungum, og
Þuríður Sigurjónsdóttir frá
Hvammi, Vestur-Eyjafjöllum.
Eiginkona Gríms er Kristín Jóns-
dóttir, Reykjavík, og eiga þau
þrjú börn. Gríntur starfar nú á
gerladeild Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins.
Grímur Þór Valdimarsson
Hallgrímssöfnuður í Reykjavik
hefur ráðið Ingunni Gisladóttur
til starfa sem safnaðarsystur. Er
hún sérstaklega ráðin til húsvitj-
ana og sálgæzluþjónustu i sam-
vinnu við sóknarprestana. Ingunn
Gisladóttir er landskunn fyrir
störf sin á islenzku kristniboðs-
stöðinni í Konsó um 20 ára skeið
og hefur víðtæka reynslu í kristi-
legu starfi. Er þvi mikill fengur
að henni í þetta starf og verður
hún boðin velkomin til starfa við
guðsþjónustu I Hallgrimskirkju
n.k. sunnudag, 4. sept., kl. 11, og
mun Ingunn ávarpa söfnuðinn við
það tækifæri.
Fyrst um sinn verð-
ur þetta aðeins hlutastarf, en hún
mun hafa fastan viðtals- og sima-
tima I Hallgrimskirkju, norður-
álmu turnsins, á þriðjudögum kl.
2—3, sími 10745.
Sóknarprestur.
Ingunn Gísladóttir.
SKIPTILYKLAR
RÖRTENGUR
VÍR- OG
BOLTAKLIPPUR
RÉTTSKEIÐAR
MÁLBÖND
STANLEY
KLAUFHAMRAR
SKRALL-SKRÚF-
JÁRN
SPORJÁRN —
VINKLAR
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLA-SETT
fjölbreytt úrval
JÁRNSAGARBOGAR
ÚTSÖGUNARSAGIR
MEITLAR
BOLTAKLIPPUR
HEFLAR
HVERFISTEINAR
JÁRNKARLAR—
HAKAR
TENGUR
fjölbreytt úrval.
ÁLSTIGAR
Tvöfaldir
Simi 28855