Morgunblaðið - 01.09.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
37
Hann ákvað að dveljast í
Reykjavik i tvær vikur, þar eð
hann bjóst við því að þurfa að
mæta nokkrum sinnum hjá sér-
fræðingnum, og fékk sig lausan
frá störfum þann tima.
Þar sem ég er kunnug piltinum,
keyrði ég hann á flugvöllinn þeg-
ar hann hélt heim aftur, og spurði
hann þá hvernig gengið hefði hjá
iækninum.
„Það var nú litið sem ég fékk út
úr þvi,“ sagði hann. „Læknirinn
talaði við mig i um 10 mín. og lét
mig hafa eitthvað róandi. Hann
sagði að ég þyrfti ekki að koma
aftur.“
Ég ætlaði varla að trúa þessu og
bað hann að lofa mér að sjá hvað
hann hefði fengið frá lækninum.
Jú, eitt recept og kvittun fyrir
viðtali, kr. 3.000. Mér fannst þetta
undarleg rannsókn, og hringdi
þvi til Læknafélags Reykjavíkur
og skýrði frá þessu:
% Allt í lagi,
sjúkrasamlagið
borgar
Sá starfskraftur, sem þar
varð fyrir svörum, var ekki lengi
að leysa málið. „Þetta er allt í lagi
því að hann fær þetta greitt hjá
sjúkrasamlaginu." Þá veit maður
það — skitt með rannsóknina.
Greiðslu fékk sérfræðingurinn og
pilturinn þurfti ekki að greiða
það sjálfur.
3164-4917
% Fólskuleg
framkoma
Sem innlegg i umræður um
skyldur íbúa í fjölbýlishúsum hef-
ur Velvakanda borizt eftirfarandi
bréf, undir ofangreindri fyrir-
sögn:
Blokkarsambúð er ágæt út af
fyrir sig. Oft er nú samt að 1—2
húsmæður í stigagangi hafa gam-
an af að finna að og baknaga sina
sambýlisfélaga. Hafa þær kosið
sér að hafa það fyrir stafni í dag-
legu lifi.
Nú, það er margt sem ná þarf
samkomulagi um í samvinnu
íbúa, t.d. um ræstingu, rusl, lóð og
fleira. Oftast er fengin starfs-
kraftur á launum til að þrifa í
þessum stigagöngum. Einnig er
lika til að íbúar stigagangs skipti
með sér að sjá um þrif þessi, hver
íbúð viku i senn. Sumir þrifa vel,
aðrir sæmilega, og svo eru aðrir
sem gera alls ekki neitt. Og er þá
komið að þvi hvernig refsa skuli
þeim sem ekkert sinna þessum
þrifum. Mætti ekki stela póstin-
um úr póstkassa þeirra, og undir-
strika i blöðum þeirra greinar
sem refsiverða passar að lesa?
Þetta verður að gánga fljótt fyrir
sig, svo sá refsiverði komi ekki að
mönnum iaumandi blöðunum i
póstkassa þeirra á ný. Og, að lok-
um, ekki má gleyma að tala hátt
um þrif á stigapöllum svo sóðinn
heyri.
Rósa Helgadóttir,
Vesturbergi 146, R.
Rétt er það, sambýlisvandamái
geta verið erfið viðureignar, en
engin lausn er það á þeim, þó þeir
„þrifnu" hefji hefndarráðstafanir
gagnvart „sóðunum". I sliku sam-
býli yrði hreinlega ólíft og and-
legri heilsu manna stefnt i voða.
Velvakandi hefur trú á þvi að í
langflestum tilfellum væri hægt
að fá „sóðana“ til þess að taka
þátt i eðlilegri ræstingu og þrif-
um á sameign, ef rétt er að málum
staðið. En þá verður oft að sýna
lipurð og sáttfýsi en ekki hið
gagnstæða.
Þessir hringdu . . .
9 Á móti reyk
í strætó
Gribba hringdi:
— Það var skrifað í dálk-
inn þinn nýlega og beðið um að
reykingar yrðu leyfðar í strætó.
Þar var spurt hvort það væri ekki
brot á almennum mannréttindum
að banna reykingar í strætó, og
hvort með því væri ekki einnig
verið að hygla sérhópum. Mig
langar nú bara að spyrja á móti:
Eru reykingafólk ekki sérhópur?
Margt fólk þolir illa tóbaksreyk
i bifreiðum. Fær það andarteppu,
sviða og þess háttar, og almennt
liður þessu fólki illa ef reykt er í
farartækjum. Flestir þessara eru
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A skákþingi Argentínu í fyrra
kom þessi staða upp í skák þeirra
Szmetans, sem hafði hvitt og átti
leik, og Belmonts
28. Df4! — Hxfl 29. Re5 — Hgl +
30. Kh3 — f5 31. Db4! — Dfl+ (Ef
31. . .Kxg7 þá 32. De7+ — Kh6 33.
Rf7+ _ Kg7 34. Rg5+ — Kh6 35.
Dxh7+ — Kxg5 36. Dh4 — Mát)
32. Kh4 — g5+ 33. Kxg5 — Dcl +
34. f4 og svartur gafst upp. Szmet-
an varð skákmeistari Argentfnu.
Hann hlaut lO'/í vinning af 15
mögulegum. Hálfum vinningi
neðar komu síðan þeir Anelli og
Campora.
aldraðir sem eiga ekki í önnur
hús að venda. Ég er því á móti
reykingum í strætó. Ég held að
reykingafólk geti sleppt reyking-
um þessar örfáu mínútur sem það
er að ferðast í vögnunum. Ein-
hvers staðar las ég að menn ættu
ekki að menga umhverfi sitt.
Reykingar eru ekkert annað en
mengun.
Hárgreiðslustofa
óskast keypt
Tilboð sendist Mbl. merkt: „H — 2595".
Til sýnis og sölu:
CROWN 2600 SUPER SALOON '74
CORONA 1900 MKII '72
CORONA 2000 MKII '75 AUT.
CORONA 2000 MKII '77
CARINA 1 600 '74
COROLLA 20 COUPÉ '72
" COROLLA 20 2 DYRA '74
AUSTIN MINI '73
Toyota umboðið h. f.,
Nýbýlaveg 8, Kóp.
Sími 44144
Bás nr. 8 HEiíiiUÐn
Með Scadanla
útihurð fáið þér
2ja ára ábyrgð
Scadania — útihurðin er smíðuð þannig, að hún
vindur sig ekki — þrátt fyrir regn, kulda og hita-
breytingar. Þetta kemur í veg fyrir hita — og
orkutap. Hurðin borgar sig því smám saman sjálf
með minnkandi hitakostnaði. Þær eiga að endast
jafnlengi og húsið. Þær eru einangraðar með mjúku
trefjagleri, sitt hvorum megin einangrunarlagsins
þekja hurðina ÁLPLÖTUR sem er þrautreynd vörn
við raka, sem ætíð reynir að þrengja sér inn i útihurðir
Spónn (teak eða fura að vild) veitir hurðinni fallegt
útlit. Gúmmíþéttilistar í karmi treystir síðan enn
betur að raki smjúgi ekki inn með hliðunum
E BÚSTOFN
Aðalstræti 9 — Reykjavik,
simar 81077 — 81663.