Morgunblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JltorgunbUibib
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1977
Flugleiðir:
75% aukning á
fragtflutningum
yflr Atlantshafid
Allt f fullum gangi hjá Hraðfrystistöd Stokkseyrar. - (Ljosm. mbl. Fnðþjofur)
Frystihúsið á Stokks-
eyri í fullum gangi
- þrátt fyrir uppsagnir í síðustu viku
FLUGLEIÐIR hafa til
þessa ekki náð þeim
árangri í Atlantshafsflug-
inu á árinu, sem búizt var
við, en hins vegar hafa að
undanförnu verið að koma
fyrstu viðbrögðin við nýj-
um fargjöldum Flugleiða
og er árangurinn heldur
jákvæður. Aftur á móti
hefur orðið 75% magn-
aukning í vöruflutningum
yfir Atlantshafið og veru-.
leg aukning hefur einnig
orðið í vöruflutningum í
Evrópu. Þetta kemur fram
í viðtali, sem Mbl. átti við
Sigurð Helgason, forstjóra
Flugleiða, en viðtalið birt-
ist á bls. 14, og segir
Sigurður þar einnig frá
auknu leiguflugi Flugleiða
og möguleikum til enn
meiri aukningar á því
sviði.
í viðtalinu er einnig komið inn
á endurnýjun fiugflota Flugleiða.
1 þvi sambandi segir Sigurður, að
ljóst sé að þær DC 8 flugvélar,
sem nú eru notaðar i utanlands-
fluginu, verði reknar áfram í tvö
ár eða svo og af orðum hans má
ráða, að flugvélar af gerðinni DC
Hassmál:
Tveir ungir
menn í gæzlu
TVEIR Reykvíkingar, annar 27
ára og hinn 24 ára, voru úrskurð-
aðir í allt að 30 daga gæzluvarð-
hald í fyrrakvöld vegna rannsókn-
ar nýs fíkniefnamáls. Eitthvað
smávegis af fíkniefnum fannst í
fórum þeirra en grunur lék á að
eitthvað meira lægi að baki og
voru mennirnir því úrskurðaðir í
gæzluvarðhald.
10 séu raunhæfari kostur fyrir
Flugleiðir en Boeing 747.
Varðandi innanlandsflugið seg-
ir Sigurður, að þrátt fyrir 15%
farþegaaukningu á árinu og eldri
vélar sé flugið rekið með halla.
Hann segir engar áætlanir á döf-
inni um endurnýjun flugvéla-
kostsins, en segir ljóst, að þegar
Framhald á bls 22.
Kantaðir
tómatar
HJA rannsóknarstöðinni
Neðri-Asi í Hveragerði hafa
vcrið ræktaðir kantaðir tómat-
ar. Að sögn dr. Einars Sigur-
geirssonar fékk rannsóknar-
stöðin 20 plöntur frá Banda-
ríkjunum og voru fyrstu tóm-
atarnir teknir um helgina.
Dr. Einar sagði, að vestra
væru þessir tómatar ræktaðir
til niðursuðu. Þeir eru heilir,
eins og epli, en hins vegar
sagði dr. Einar að í þeim væru
sýrur, sem gætu valdið maga-
truflunum, ef mikið væri etið
af þeim ferskum. Dr. Einar
sagði, að ekkert væri ákveðið
um framleiðslu í sambandi við
þessa ræktun, en henni yrði
haldið áfram.
Þá sagði dr. Einar, að á rann-
Framhald á bls 22.
Kantaðir tómatar frá Neðri-
Asi.
— VIÐ ERUM hreinlega
tilneyddir að halda þessu
gangandi meðan einhver
möguleiki er á að greiða
vinnulaun hjá okkur, sagði
Asgrímur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrysti-
stöðvar Stokkseyrar, er
Morgunblaðið ræddi við
hann í gær, en eins og fram
hefur komið í fréttum
blaðsins var öllu starfs-
fólki frystihússins sagt
upp störfum frá og með sl.
mánudegi. Þann dag mætti
starfsfólkið allt til vinnu.
— Aðstæður okkar hér gera
það einfaldlega að verkum að við
verðum að hafa opið. Við erum
með fjóra báta á veióum og á
þeim eru fastráðnir starfsmenn
með nokkuð langan uppsagnar-
frest og meðan þeir veiða verðum
við að taka hráefnið og vinna það
|þó að aðstæður leyfi það engan
Iveginn.
Það kemur að því hjá
íokkur, eins og svo mörgúm öðr-
um, að við getum ekki greitt
vinnulaun nema til komi ein-
hverjar aðgerðir frá ríkisvaldinu
og þar með lokum við.
Okkar vandi hér á Stokkseyri er
þannig sízt minni en vandi sumra
húsa sem þegar hafa lokað, það
eru einungis misjafnar aðstæður
sem þessu valda.
Þá ræddi Morgunblaðið við Jó-
hann Reynisson sveitarstjóra á
Stokkseyri og spurði hann hvaða
áhrif það hefði fyrir byggðina á
Stokkseyri ef Hraðfrystistöðinni
yrði lokað. — Það myndi þýða
algeran dauðadóm yfir allri byggð
hér þvi að um 90% allra vinnandi
manna vinna að fiskiðnaði á ein-
hvern máta.
Nauðgunarmálið í Keflavik upplýst:
Saklaus maður sat
5 daga í fangelsi
„Eins og hann opn-
aði sig allt í einu”
— sagði skipstjórinnn á Gaut AR 19 sem
sökk í fyrrinótt út af Selvogsvita
„ÞAÐ var eins og hann opnaði
sig allt ( einu. Við urðum ekki
varir við neitt óeðlilegt á sigl-
ingunni, en allt í einu drepur
vélin á sér. Var þá kominn tals-
verður sjór í bátinn, og jókst
óðum. Sendum við þá út eitt
neyðarkall, en komum okkur
strax í björgunarbát, þvf Gaut-
ur seig óðum“. Þannig mælti
Jón Ólafsson skipstjóri á Gaut
AR 19 frá Þorlákshöfn, í viðtali
við Mbl. f gær, en Gautur fórst f
fyrrinótt undan Selvogsvita.
Þrfr menn voru á Gaut en þeir
björguðust allir.
„Við vorum á keyrslu, á leið-
inni á troll, þegar þetta gerðist.
Vorum við staddir um 3 sjómíl-
ur suður af Selvogsvitanum og
klukkan var um eitt eftir mið-
nætti. Eftir að við urðum lek-
ans varir liðu ekki nema um
það bil 15 mínútur þar til bátur-
inn var sokkinn,“ bætti Jón við.
Jón Ólafsson sagðist alls ekki
geta imyndað sér hvað hefði
raunverulega gerzt. Væri það
þeim félögum ráðgáta. Hefðu
þeir ekki orðið varir við að þeir
hefðu siglt á nokkurn hlut, en
miðað við þann tíma sem það
tók bátinn að hverfa í hafið
eftir að þeir félagar urðu lek-
ans varir, sagði Jón að svo virt-
ist sem stórt gat þefði opnazt á
Framhald á bls 22.
NAUÐGUNARMALIÐ f Keflavík,
sem Mbl. skýrði frá á baksíðu s.l.
föstudag, er nú að fullu upplýst.
Fyrir liggur játning 18 ára pilts
um að hann hafi neytt 14 ára
stúlku til samfara við sig. Piltur-
inn var í yfirheyrslum hjá Rann-
sóknarlögreglu rfkisins í gær og
átti að sleppa honum að yfir-
heyrslum loknum.
Atburður þessi gerðist i ná-
grenni Keflavíkur á þriðjudags-
kvöldið í síðustu viku. Stúlkan
kærði nauðgunina þegar til lög-
reglunnar og við skoðun á mynda-
safni benti hún á ákveðinn mann,
sem hinn seka. Var maðurinn,
sem er rúmlega þrítugur að aldri,
handtekinn á fimmtudag í fyrri
viku og úrskurðaður i allt að 15
daga gæzluvarðhald sama dag.
Hann neitaði stöðugt sakargift-
um. Rannsóknarlögregla-ríkisins
vann stöðugt að málinu og i fyrra-
dag handtók hún annan mann, 18
Framhald á bls. 26
500 tonn af heyi
flutt til Noregs
Verdið mjög hagstætt miðað
við heyverð innaniands
AKVEÐIÐ hefur verið að flytja
héðan frá lslandi 500 tonn af heyi
en það er fóðurblöndunarfyrir-
tækið KEK í Danmörku, sem
kaupir heyið og verður það að
öllum lfkindum selt til Noregs.'
Það er Heildverslun Guðbjörns,
Guðjónssonar, sem annast þenn-
an útflutning og sagði Guðbjörn f
samtali við Morgunblaðið f gær,
að sér hefði nýverið borizt fyrir-
spurn um það frá KFK í Dan-
mörku, hvort hugsanlegt væri að
flytja út hey héðan og hefði hann
þá sent sýnishorn út. Heyið hefði
Framhald á bls. 26