Morgunblaðið - 28.01.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 28. JANÚAR 1978
3
Síld smyglað frá
Noregi til Svíþjóðar
t NVÚTKOMNU upplýsingabréfi
Síldarútvegsnefndar segir, að
Ijóst sé að mun meira hafi borizt
á land f Noregi af slld af norsk-
íslenzka sfldarstofninum en afla-
skýrslur gefi til kynna. Þegar Ifða
hafi tekið á síldarvertfðina f Nor-
egi f haust muni hafa verið al-
gengt að norsku vinnslustöðvarn-
ar fengju „velútlátna vigt“, er
þær sömdu um kaup á fersksfld-
inni, enda muni umframmagnið
hvergi hafa komið fram á skýrsl-
um. Segir að ótrúlegar tölur hafi
verið nefndar f þessu sambandi.
I upplýsingabréfinu segir, að
iögregluyfirvöld í Noregi séu nú
að reyna að kanna þessi mál, en
erfitt sé um vik þar sem síldin var
lögð á lánd á mörgum og afskekkt-
um stöðum á hinni löngu strand-
lengju Norðvestur- og Norður-
Noregs.
Þá segir að norsk blöð, sem
venjulega lofsyngi allt, sem við
kemur norskum sjávarútvegi,
hafi að mestu þagað um málið, en
þó hafi SÚN nýlega borizt nokkr-
ar úrklippur, þar sem skýrt sé frá
þessum málum og þess m.a. getið,
að heilar bílalestir hafi flutt
smyglaða saltsíld („svarta síld“)
yfir landamærin til Svíþjóðar.
Kynna sér rekstur
f iskim j ölsver ksmið j a
í þremur löndum
SEX menn halda utan á morgun á
vegum sjávarútvegsráðuneytisins
til að kynna sér rekstur fiski-
mjölsverksmiðja f Færeyjum,
Danmörku og f Noregi. Tillaga
um þessa ferð var borin fram af
Kristjáni Ragnarssyni formanni
L.I.Ú. á fundi loðnusjómanna á
Akureyri fyrir nokkru og þegar
fulltrúar sjómanna ræddu við for-
sætisráðherra um verðlagningu
loðnu á Islandi var rætt um þetta
mál og nú hefur sjávarútvegs-
ráðuneytið boðið samtökum sjó-
manna, útgerðarmanna og fram-
leiðenda að senda menn f þessa
ferð.
Þeir sem fara í kynnisferðina
eru: Agúst Einarsson frá L.Í.Ú.,
Gamalíel Sveinsson frá Þjóðhags-
stofnun, Haraldur Gíslason fram-
kvæmdastjóri Fiskimjölsverk-
smiðjunnar í Eyjum, Gunnar
Ólafsson framkvæmdastjóri Fisk-
iðjunnar í Keflavík, Einar B.
Ingvarsson aðstoðarmaður sjávar-
útvegsráðherra og Óskar Vigfús-
son formaður Sjómannasambands
tslands.
Ágúst Einarsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að þeir
félagar myndu fyrst fara til Fær-
eyja og kynna sér rekstur verk-
smiðjunnar í Fuglafirði, síðan
yrði haldið til Danmerkur og
fiskimjölsverksmiðjur í Esbjerg
og Hirtshals skoðaðar. Frá Hirts-
hals yrði haldið til Bergen í Nor-
egi, en þar er höfuðsetur norskra
fiskrannsókna og verðlagningar-
skrifstofur sjávarútvegsins í Nor-
egi.
Baráttuskemmtunin á
Hallærisplaninu i dag
BARÁTTUSKEMMTUN áhuga-
fólks um verndun gömlu húsanna
austan Aðalstrætis — húsanna
kringum Hallærisplanið hefst kl.
2 i dag, laugardag, á Hallæris-
planinu sjálfu við Björnsbakarf.
Dagskráin verður á þá leið, að
hornaflokkur leikur áður en
fundurinn hefst en síðan talar
fundarstjórinn, Pétur Gunnars-
son rithöfundur. Þá flytur Hjör-
leifur Stefánsson arkitekt ávarp,
sýndur verður leikþáttur í flutn-
ingi leiklistarskólanema, Þorvald-
ur Friðriksson háskólanemi flyt-
ur ávarp, kór Menntaskólans við
Hamrahlíð syngur, Guðrún Helga-
dóttir háskólanemi talar, síðan
verður hornablástur á ný en að
því búnu talar einn ibúanna í Vík,
Ólafur Gislason, þá verður söngur
og harmónikuleikur, Þorgeir Þor-
geirsson rithöfundur flytur
ávarp, síðan syngur og leikur
Spilverk þjóðanna og ioks verður
borin upp ályktun fundarins.
Aætlað er að dagskráin standi í
eina klukkustund. Undirbúnings-
nefndin hefur í dreifibréfi sagzt
ætla að reyna að þurrka þjóð-
hátiðarsvipinn sem mest af
ásjónu fundarins og leggja meiri
áherzlu á gleðina og baráttuand-
ann en ræðuhöldin og fundurinn
eigi að verða eins skemmtilegur
og miðbærinn eigi að vera.
Bæjarstjóm Njarðvíkur:
11% útsvar en fasteigna-
gjöld 10% lægri en heim-
ilt er samkvæmt lögum
BÆJARSTJÓRN Njarðvíkur hef-
ur afgreitt fjárhagsáætlun fyrir
1978 og er gert ráð fyrir að leggja
á 11% útsvar, en fasteignagjöld
verða 0,45% af íbúðarhúsum og
0,90% af iðnaðarhúsnæði, eða
10% lægri en heimilt er sam-
kvæmt lögum.
Helstu tekjuliðir eru:
Útsvör kr. 167 milljónir, Að-
stöðugjöld kr. 70 milljónir, fast-
eignagjöld kr. 49 milljónir, gatna-
gerðargjöld kr. 10 milljónir, jöfn-
unarsjóður jtr. 32 milljónir, þétt-
býlisfé kr. 5 milljónir.
Helstu gjaldaliðir eru:
Stjórn bæjarmála kr. 28
milljónir, almannatryggingar kr.
16 milljónir, heilbrigðismál kr. 11
milljónir, fræðslumál kr. 56
milljónir, félágs- og menningar-
mál kr. 12 milljónir, rekstur
iþróttamannvirkja kr. 24 milljón-
ir, þrifnaður og hreinlætismál kr.
12 milljónir.
Til nýframkvæmda verður var-
ið, 140 milljónum, sem skiptast
þannig:
Varnanleg gatnagerð kr. 60
milljónir, ný íbúðarhverfi kr, 40
milljónir, íþróttahús, viðbygging
kr. 20 milljónir, vatnsveitufram-
kvæmdir kr. 18 milljónir.
Þannig var umhorfs i stofunni i ibúðinni sem brann í Gaukshólum 2 i gærmorgun. Tjón á
ibúð og innbúi varð mjög mikið. Ljósm. Mbl. RAX
Mikið tjón í eldi
að Gaukshólum 2
Starfsmenn
Slökkvistöðvar-
innar ónáðaðir
með óþarfa
símhringingum
MIKIÐ tjón varð í eldi sem
upp kom i Gaukshólum 2 i
Reykjavik i gærmorgun, en
engan sakaði. Ókunnugt er
um eldsupptök.
Slökkviliðinu í Reykjavik
var tilkynnt um að eldur væri
laus í íbúð á sjöttu hæð í
fjölbýlishúsinu við Gaukshóla
2 kl. 8.12 í gærmorgun, að
sögn Gunnars Sigurðssonar
varaslökkviliðsstjóra. íbúar í
nærliggjandi íbúðum til-
kynntu um eldinn er þeir
heyrðu rúður brotna og sáu
reyk leggja út um glugga.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang var töluverður eldur í
íbúð H og hún full af reyk.
Eldurinn var í stofu og var
mestur í sófa þar. Kona með
ungt barn bjó í íbúðinni en
henni hafði verið hjálpað út
úr henni. Atburðurinn hafði
fengið mjög á hana og var
hún og barnið flutt á slysa-
varðstofuna vegna gruns um
reykeitrun.
Miklar skemmdir urðu í
íbúðinni sem eldurinn kom
upp i og einnig urðu nokkrar
skemmdir vegna reyks á
göngum sjöttu og sjöundu
hæðar. Að sögn slökkviliðs-
ins urðu ekki skemmdir af
vatni, heldur eyðilagðist inn-
bú í ibúðinni vegna elds og
reyks.
Gunnar Sigurðsson sagði
að fólk í fjölbýlishúsinu hefði
brugðist mjög vel við þeim
ráðleggingum Slökkviliðsins
að það héldi sig inni í íbúðum
sinum og límdi borða fyrir
dyr til að halda úti reyk.
„Fólkið brást mjög vel og
alveg rétt við óskum okkar.
Við leggjum áherzlu á að fólk
haldi sig i ibúðum sinum svo
starf björgunarmannanna
gangi vel. Það er hrein
undantekning ef eldur kemst
á milli ibúða i tilviki sem
þessu,” sagði Gunnar. Gunn-
Tvöfalt gler í stofuglugga splundraðist og dreifðist inn á
stofugólfið.
ar bætti við að starfsmenn
slökkvistöðvarinnar hefðu
verið truflaðir við störf sín af
fólki sem hringdi á stöðina til
þess eins að forvitnast. „Við
vorum önnum kafnir við að
leiðbeina íbúum hússins i
gegnum síma og allar línur
okkar rauðglóandi vegna
þess að á sama tima var fólk
sem heyrði í bílum okkar
hringja og spyrja hvað um
væri að vera. Þetta gerði það
meðan við vorum á leið á
brunastað og vissum í raun
ög veru ekki hvað gerst
hafði," sagði Gunnar að lok-
um.