Morgunblaðið - 28.01.1978, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978
Leiðbeiningar við útreikn-
ing tekjuskatts, útsvars og
fleiri opinberragjalda ’78
íviinunar á skattgjaldstekjum
hjá skattstjóra, ef um hana er
sótt, og færa hana í e-lið enda
er ómögulegt að setja fram
reglu um þetta atriði þar eð
umsókn hvers framteljanda er
metin sérstaklega.
Þegar niðurstaða a, b og
c-liða skv. framangreindum
reglum er fengin skal finna
prósentuhlutfall niðurstöðu-
tölunnar með útsvarsprósentu
ársins 1 977, þó aldrei hærri en
10%. Útkomu skal færa út á
eyðublaðið lengst til hægri
neðan við reiknaða útsvarsupp-
hæð i 1. tölulið
I 3. tölulið E-liðar skal reikna
út lækkun útsvars vegna fjöl-
skyldu á sama hátt og gert er í
C-lið eyðublaðsins. Dragið nú
útkomutölu 2. og 3. töluliðar
E-liðar eyðublaðsins frá út-
svarsupphæð í 1. tölulið E-
liðar. Niðurstaða þessa út-
reiknings er svonefnt tak-
mörkunarútsvar.
Hafi framteljanda, sem
engan tekjuskatt á að bera,
tekist að reikna út A, C, D og
E-liði eyðublaðsins, þ.e.
ónýttan persónuafslátt i A-lið,
útsvar í C-lið, hámark ónýtts
persónuafsláttar til greíðslu út-
svars í D-lið og takmörkunarút-
svar í E-lið þá getur hann séð
hve háa upphæð ætla má að
rikissjóður greiði af útsvari
hans en það er lægsta
upphæðin af hinum fjórum
upptöldu niðurstöðum i A, C, D
eða E-liðum eyðublaðsins.
F. 2% álag á gjald-
stofna úrsvara
skv. lögum
nr. 70/1977.
Sjúkratryggingagjald er 2%
af gjaldstofni álagðra útsvara
1 978, þó að frádregnum:
a. bótum samkvæmt II og IV.
kafla laga um almanna-
tryggingar (í E-lið hér að
framan sést hvaða bætur
þetta eru).
b námsfrádrætti er skattstjóh
ákveður vegna þeirra er
stunda nám a.m k sex
mánuði á árinu;
c. lækkun skattgjaldstekna
(ivilnun) er skattstjóri
ákveður samkvæmt 52. gr.
skattalaganna;
d i viðbót við þær fjárhæðir
elli- og örorkulifeyrisbóta
sem frá eru dregnar skv.
a-lið þessa töluliðar, skal
draga frá hjá þeim ein-
staklingum sem nutu elli-
ogkörorkulífeyris á árinu
1977, 300 000 kr , og hjá
hjónum 500 000 kr
Eigi skal gjald þetta lagt á þá
sem ekki yrði gert að greiða
útsvar væri það 10% af gjald-
stofni til sjúkratryggingagjalds
að frádreginni lækkun útsvars
vegna fjölskyldu Sjúkratrygg-
ingagjaldið skal á lagt í heilum
hundruðum króna, þannig að
lægri fjárhæð en 100 krónum
skal sleppt
G. Skyldusparnaður
skv. lögum nr.
77/1977.
Allir tekjuskattskyldir menn
sem ekki eru orðnir 67 ára fyrir
1. janúar 1978, skuli á árinu
1978 leggja til hliðar fé til
varðveislu i ríkissjóði sem hér
segir.a. Eínstaklingar:
10% af skattgjaldstekjum
skattársins 1977 að frá-
dregnum 2.400.000 kr.,
auk 186.000 kr. fyrir hvert
barn sem er á framfæri
þeirra.
b Samsköttuð hjón og karl og
kona sem búa saman i
óvigðri sambúð og heimild
hafa til samsköttunar. 10%
af skattgjaldstekjum skatt-
ársins 1977 að frádregnum
3.100 000 kr., auk
186 000 kr. fyrir hvert
barn sem er á framfæri
þeirra.
c. Hjón sem telja fram hvort i
sínu lagi: 10% af skatt-
gjaldstekjum hvors um sig
á skattárinu 1977 að frá-
dregnum 1 860.000 kr
hjá hvoru, auk 93 000 kr.
hjá hvoru fyrir hvert barn
sem er á framfæri þeirra.
Nemi munur vergra tekna til
skatts og skattgjaldstekna
hærri fjárhæð en 532.000 kr.
hjá einstaklingi og hvoru hjóna
sem telja fram hvort i sinu lagi,
en 798 000 kr hjá sam-
sköttuðum hjónum, skal
hækka skattgjaldstekjur sam-
kvæmt stafliðum a, b og c um
þá fjárhæð sem munurinn er
umfram þessar fjárhæðir, eftir
þvi sem við á, og reiknast
skyldusparnaður þá af þessum
upphækkuðu skattgjaldstekj-
um sbr. stafliði a, b og c.
Hjá skattþegnum sem vinna
við eigin atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi, skal, áður
en ákvæðum 2. mgr. er beitt,
hækka vergar tekjur til skatts
um þá upphæð sem tekjur af
þessum störfum eru lægri en
ætla má að laun þessara aðila
miðað við vinnuframlag þeirra
hefðu orðið ef þeir hefðu unnið
starfið i þágu óskylds aðila.
Önnur gjöld
Onnur gjöld en að framan
eru tilgreind, flest tengd
atvinnurekstri, verða ekki talin
upp hér, þó með eftirfarandi
undantekningum: Slysatrygg-
ing við heimilisstörf sem verður
árið 1 978 4.368 kr. fyrir hvern
aðila, Kirkjugarðsgjald sem er
reiknuð ákveðin prósenta af út-
svari, mishá hjá hinum ýmsu
kirkjugarðsstjórnum. Kirkju-
gjald, skv. núgildandi lögum
lagt á einstaka framteljendur í
Þjóðkirkjunni á aldrinum
16 — 67 ára, og samsvarandi
gjöld sem aðrir þurfa að greiða
annaðhvort til safnaða sinna
eða til Háskóla íslands. Gjaldið
er mismunandi hátt i hinum
ýmsu sveitarfélögum. Á árinu
1977 var það í Reykjavik
2.000 kr. fyrir einstakling en
4.000 kr fyrir hjón.
Barnabætur.
Með hverju barni, sem
heimilisfast er hér á landi, þar
með talin stjúpbörn, kjörbörn
og fósturbörn, sem ekki er
fullra 16 ára i byrjun þess
almanaksárs þegar skattur er
lagður á og er á framfæri
heimilisfastra manna hér á
landi sem skattskyldir eru skv.
1 gr. skattalaganna, skal rikis-
sjóður greiða barnabætur til
framfæranda barnsins er nemi
63.900 kr. með fyrsta barni en
95.850 kr með hverju barni
umfram eitt. Þó skal fjárhæð
barnabóta skert um þær barna-
bætur eða hliðstæðar bætur
sem framfærandi hefur fengið
erlendis á skattárinu vegna
barnsins.
Barnabætur greiðast til fram-
færanda barns að þvi marki
sem eftirstöðvar nema þegar
frá hafa verið dregnar greiðslur
eftirtalinna opinberra gjalda
framfærandans i þessari for-
gangsröð:
1 Tekjuskatts sem á er lagður
á greiðsluárinu.
2. Annarra þinggjalda sem á
eru lögð á greiðsluárinu.
3 Ógoldinna þinggjalda frá
fyrri árum.
4 Útsvars sem á er lagt á
greiðsluárinu.
5. Aðstöðugjalds sem á er lagt
á greiðsluárinu.
Framanrituð ákvæði um
barnabætur eru ákvæði 25. gr.
laga nr. 63/ 1971, sbr. C-lið 9.
gr. laga nr. 1 1/1 975.
Auðvelt á að vera fyrir fram-
teljanda eftir lestur þessara
ákvæða að átta sig á hversu
háar barnabætur hann fær á
árinu 1 978 og hvernig greiðslu
þeirra er háttað.
Ef framteljanda hefur tekist
að reikna út gjöld og ónýttan
ptersónuafr _at á meðfylgjandi
eyðublaði og ef hann hefur auk
þess reiknað út barnabætur
1 978 eiga a.m.k. launþegar að
geta áttað sig á hversu há
opinber gjöld skv. skatt- og
útsvarsskrám þeim ber að
greiða á árinu 1978 að
óbreyttum lögum þar um.
Þeir sem hafa með höndum
sjálfstæðan atvinnurekstur
standa ver að vígi en geta
a.m.k. að einhverju marki
stuðst við áætlunartölur með
samanburði við fyrri ár.
Fyrirframgreiddar barna-
bætur.
Fjármálaráðuneytið hefur,
sbr. auglýsingu dags. 27. des.
1977, ákveðið að þeim gjald-
endum sem vænta mega veru-
legra eftirstöðva barnabóta til
útborgunar við álagningu
skatta árið 1978, gefist kostur
á að sækja um að fá helming
þeirra greiddan fyrirfram á fyrri
hluta ársins 1978. Á umsókn-
areyðublaði um fyrirfram-
greiðslur barnabóta 1978 eru
eftirfarandi leiðbeiningar:
„Leiðbeiningar fyrir um-
sækjanda
Umsækjanda er bent á að
fylgja nákvæmlega eftirfarandi
leiðbeiningum og vanda út-
fyllingu eyðublaðs og framtals,
að öðrum kosti getur afgreiðsla
umsóknar tafist eða henni verið
hafnað.
Fjármálaráðherra hefur
ákveðið að þeim gjaldendum,
sem vænta mega verulegra
eftirstöðva barnabóta til út-
borgunar við álagningu skatta
árið 1978, gefist kostur á að
sækja um að fá helming þeirra
greiddan fyrirfram á fyrri hluta
ársins 1 978, samkvæmt eftir-
farandi reglum:
1. Fyrirframútborgun fer ein-
ungis fram til þeirra, er hafa
fleiri en eitt barn á framfæri
sínu, og einungis til þeirra,
sem vænta má, að eigi
meira en 60.000 kr. eftir af
barnabótum sinum eftir að
frá hafa verið dregin þau
opinber gjöld. sem væntan-
lega verða lögð á á árinu
1978, ásamt eftirstöðvum
þinggjalda frá fyrri árum.
Sé helmingur væntanlegra
eftirstöðva barnabóta undir
30.000 krónum kemur
hannekkitilútborgunarfyrir-
fram.
2. Umsókn i tviriti skal senda
skattstofu í umdæmi um-
sækjanda
3. Umsókn skal fylgja skatt-
framtali umsækjanda árið
1978. Umsókn og framtal
skal leggja i umslag og
■merkja það: Umsókn um
fyrirframgreiðslu barna-
bóta
4. Ef um er að ræða sambýli
fólks, sem átt hefur börn
saman, skulu skattframtöl
beggja sambýlisaðila fylgja
umsókn.
5. Umsóknarfrestur er hinn
sami og almennur skila-
frestur framtala, þ e. 31.
janúar' 1978. Þeir, sem
hafa annan skilafrest fram-
tala en að ofan greinir,
skulu hafa sent inn umsókn
í allra siðasta lagi 28.
febrúar 1978.
6. Stefnt er að þvi að útborg-
un barnabóta samkvæmt
umsóknum, sem borist hafa
innan 31 janúar 1978,
hefjist i mars 1978. Út-
borgun samkvæmt um-
sóknum sem berast milli 1.
og 28 febrúar hefst ekki
fyrr en i apríl/maí 1978.
7. Skattstofa tilkynnir um-
sækjanda ef umsókn er
synjað en samþykktar um-
sóknir munu berast hlutað-
eigandi innheimtumanni
rikissjóðs sem annast út-
borgunina.
Útborgun fyrirfram-
greiðslu er háð takmörkun
fjárhæðar skv. 1. tölulið að
ofan og því að umsækjandi
(og sambýlisaðili ef við á)
eigi ekki vangreiddar eftir-
stöðvar þinggjalda frá fyrri
árum."
Með þvi að reikna út vænt-
anleg gjöld á árinu 1978 á
margumræddu eyðublaði, nota
neðsta hluta eyðublaðsins til
samlagningar á væntanlegum
gjöldum ársins 1978 og bera
gjöldin saman við væntanlegar
barnabætur getur framteljandi
séð hvort og hve háar fyrir-
framgreiddar barnabætur hann
getur vænst að fá
Aðeins þeir sem hafa fleiri
en eitt barn á framfæri og
mega vænta þess að barna-
bætur til þeirra nemi hærri
fjárhæð en 60.000 kr. eftir
að heildarfjárhæð opinberra
gjalda ársins 1978 hefur
verið dregin frá barnabótum
þeirra geta fengið barnabæt-
ur greiddar fyrirfram.
Fyrir aðra er tilgangslaust
að sækja um fyrirframgreidd-
ar barnabætur.
Reykjavik 24. janúar 1978.