Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 47 Birgir Björnsson um ieikinn við Dani í dag: „Um líf og dauða að tefla fyrir bæði lið" Jón og Árni verða báðir með í dag GUNNAR Einarsson landsliðsmarLvörður á við lítils háttar meiðsli að strfða í dag og sagði Birgir Björnsson, að hann reiknaði ekki með að meiðslin væru alvarleg og taldi víst að Gunnar gæti leikið með á mðti Dönum í Randers. Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenzkum tíma og verða dómararnir rúmenskir. Islenzka landsliðið hefur ekki verið valið en Ifklegt er að ein breyting verði gerð á liðinu, Jón H. Karlsson komi að nýju inn. Hann æfði með liðinu f morgun og sagðist ekki hafa fundið það mikið fyrir meiðslunum að hann gæti ekki leikið. Eitt dönsku blaðanna velti því fyrir sér í dag hvort Árni Indriðason fengi leikbann í einn leik vegna útilokunarinnar f leiknum gegn Sovétmönn- um en slfkt hefur ekki við rök að styðjast að sögn landsliðsnefndar- manna og verður Arni örugglega í liðinu á móti Dönum. — Leikurinn við Dani er upp á líf eða dauða fyrir bæði liðin, sagði Birgir Björnsson í dag. Það verður því örugglega um mikinn baráttuleik að ræða og hvergi Ársþingið haldið hér ÁRSÞING Álþjóða handknatt- leikssambandsins verður haldið á tslandi f septembermánuði n.k. og er reiknað með um 200 gestum á þingið. Undirbúningur þingsins hefst strax að lokinni Heims- meistarakeppninni. verður gefið eftir, sagði Birgir. Leif Mikkelsen þjálfari danska liðsins sagði f dag að hann liti á íslenzka liðið sem mjög erfiðan andstæðing. Hann sagði að það væri sérstaklega erfitt að gæta Björgvins E iörgvinssonar, sem væri mjög ste -kur línumaður. Aðal verke.'ni íslenzku varnar- mannanna verður að gæta þeirra Anders Dahl-Nielsen og Michael Berg. Þeir eru hálft danska lands- liðið og þó að línumennirnir dönsku hafi staðið sig vel á móti Spáni var það fyrst og fremst skipulagsleysi spænsku leik- mannanna að kenna að þeir skor- uðu mörg mörk af línunni. — Ég á von á því að Rússar vinni C-riðilinn með fullu húsi £ > Þeir JónH. Karlsson og Arni Indriðason verða báðir með f leiknum gegn Danmörku í dag. stiga úr þvi sem komið er og fari með tvö stig með sér i milliriðil, sagði Birgir Björnsson. — Spurn- ingin er svo bara sú hvort það verðum við eða Danir, sem kom- ast áfram. Það kemur ekki í ljós fyrr en að loknum síðasta leikn- um í riðlinum hvor þjóðin það verður en ef við sigrum Danina eigum við að verða í hópi þeirra 8 beztu í heiminum. Spænski markvörðurinn sagði i blaðaviðtali í dag að hann ætti ekki von á því að Spánn fengi stig í keppninni fyrst liðið hefði tapað Ólarnir óheppnu ÓLAFUR H Jónsson fyrrum landsliðs- fyrirliði er vænfanlegur hingað til Dan- merkur um helgina Ekki er vist að hann sjái leiki íslands, heldur sagði Axel Axelsson i dag. að Ólafur myndi fylgjast með riðli þeim, sem Ungverjar leika i en lið þeirra Ólafs og Axels, Dankersen, mætir næst ungverska lið- inu Honved í Evrópukeppni meistara- liða Fleiri fyrrum islenzkir landsliðs- menn eru komnir hingað til að fylgjast með keppninni Nefna má Ólaf Bene- diktsson markvörð, sem kom hingað á þriðjudaginn frá Sviþjóð Og loks er að nefna það að einn Ólanna þriggja, sem léku með lansliðinu i Austurríki. Ólafur Einarsson. er ekki með nú Ólafur Ein- arsson yfirgaf félaga sina i landsliðinu i dag og fór til Kaupmannahafnar Vildi hann heldur dvelja þar fram yfir helgi hjá skyldmennum en með islenzka lið- inu á Hótel Scanticon Hefur það örygglega verið allt annað en gaman fyrir hann að dvelja þar og fylgjast með undirbúningi landsliðsins en geta ekki tekið þátt i honum sjálfur Frá Agústi I. Jónssyni blaðamanni Morgunblaósins á Heimsmeistarakeppninni f handknattleik: fyrir Dönum með fjögurra marka mun. Gaf hann i skyn að bæði lið Sovétríkjanna og Islands væru betri en það danska. Dönsku blöðin skrifa mjög mikið um Heimsmeistarakeppnina og virðast dönsku landsliðsmennirn- ir ekki geta farið á salerni án þess að ljósmyndarar fylgi þeim þang- að. Velta dönsku blaðamennirnir því mjög fyrir sér hvað sé að Anders Dahl-Nielsen þessa dagana, hann sýni ekki þá leik- gleði, sem hann sé þekktur fyrir. Við skulum vona að Anders verði ekki búinn að taka gleði sína að nýju í leiknum á laugardaginn. Með honum fellur eða stendur danska liðið. Ræða enn um skaðabætur ENN ræða Danir um að krefjast skaðabóta frá Islendingum vegna svika eins og þeir orða það þegar íslenzka landsliðið mætti ekki til auglýsts leiks gegn Arhus KFUM á þriðjudaginn. Upphæðirnar. sem þeir nefna sem skaðabætur, eru á bilinu 3—10 þúsund krónur danskar eða allt að 380 þúsund íslenzkar krónur. Ennþá hefur HSf ekki borizt nein krafa um skaðabætur, enda verður slfkum kröfum ekki sinnt því HSl-menn telja mistökin algerlega vera Dananna sjálfra. „Við verðum að vara okkur á íslendingum" - sögðu dönsku blöðin eftir leik íslands og Sovétríkjanna Skruppu í ÆFING var hjá islenzka landslið inu i morgun en siðan var lands liðsmönnunum gefið fri til þess að skreppa i bæjarferð. Siðdegis var horft á leik Spánverja og Dana á myndsegulbandi og loks var ráðgerð bióferð um kvöldið. Tímarnir fyrir leikinn verða einnig notaðir til þess að fara yfir ýmis atriði í sambandi við leikinn. Lið- ið verður tilkynnt um hádegisbil ið og ef tími gefst til verður kíkt á leik landsliðsins gegn Rússum. „ ÍSLENDINGARNIR þreyttu rússneska björninn" var fyrirsögn á grein Johns Björklund i BT i dag og þesSi fyrrverandi landsliðsþjálfari Dana fer lofsamlegum orðum um leik íslendinga. Hann segir að íslenzka liðið hafi komið mjög á óvart með góðum leik og segir að „Í Magnússyni (Einari) eigi íslendingar góða skyttu. sem Danir verða að gæta vel. Sömuleiðis verði þeir að gæta Axels Axelssonar, sem leiki i vestur-þýzka meistaraliðinu Danker- sen". Aðaleinkenni leiks íslands við Rússana segir hann hafa verið að íslendingarnir hafi leikið betur en nokkurn óraði fyrir. Auk þess hefðu þeir haft með sér æsta stuðnings- menn, sem öskruðu á þá allan leik inn og þessir rúmlega 200 áhorfend- ur hefðu getað látið þakið fjúka af höllinni. Björklund kveðst ekki vera viss um hvort Rússarnir hafi sýnt allt sem þeir geti. Eftir að hafa náð góðri forystu í leikhléi hafi þeir misst leikinn niður i eins marks mun en þá tekizt að auka muninn aftur ..Hafa Rússarnir ekki enn látið grímuna siga," spyr Björk lund Hann segir að Maximov hafi stjórnað spilinu í sókninni en i vörninni hafi Tchernyshev gnæft upp úr i bók- staflegum skilningi, en þessi risi, 2,07 metrar, sé eins konar sambland af grínleikaranum Freddy Albeck og hroll- vekjunni Frankenstein og erfitt sé að eiga við slika menn (Þessi kappi sást á mynd á iþróttasíðunni i gær. varnar- maður nr 10 á myndinni þar sem Gunnar Einarsson sótti að markinu) í Berlingske Tidende segir, að is- lendingar geti orðið skeinuhættir, þeir hafi veitt Rússum miklu harðari mót- stöðu en búizt hefði verið við Leif Mikkelsen. landsliðsþjálfari Dana. horfði á leikinn og hann sagði að íslendingar væru álika erfiðir and- stæðingar og Spánverjar Hann sagði að miklar framfarir hefðu orðið hjá Islendingum siðan i haust og munaði mestu um að nú lékju með leikmenn sem spiluðu með liðum i V-Þýzkalandi og hefði einn þeirra, Axel Axelsson. verið bezti maður liðsins Leif Mikkel- sen sagði að Rússarnir hefðu skotið mjög vitlaust á Gunnar Einarsson og því hefði hann varið svona mörg skot. en Danirmr myndu ekki láta slíkt henda sig þvi þeir þekktu veikleika Gunnars Jyllandsposten sagði að leikur ís land gegn Rússum hefði kennt Dönum að þeir þyrftu að vera vel á verði gegn íslandi. ísland hafi látið Sovétmennina vinna fyrir sigrinum og góð frammi- staða íslands hafi komið á óvart sér- staklega vegna þess að liðið hafi misst ..varnarklettinn” Árna Indriðason útaf mjög snemma i leiknum Þróttur - Fylkir: leikur helgar- innar í 2. deild EFTIRFARANDI leikir fara fram i meistaraflokki íslandsmótsins i hand- knattleik um helgina Aðalleikur helgarinnar verður viðureign Þróttar og Fylkis í 2 deild karla i dag, en það er einn af úrslitaleikjunum í deildinni Laugardagur íþróttahúsið i Njarðvík Kl 1 6. UMFN — Týr, 3 deild karla íþróttaskemman á Akureyri Kl. 14. KA — ÍR. 2 deild kvenna Kl 1 5, Þór — Ármann, 1 deild kvenna Kl 1 6, Dalvik — ÍA, 3 deild karla Laugardalshöll Kl 15.30, Þróttur — Fylkir, 2 deild karla Kl 16 45, Leiknir — Stjarnan, 2. deild karla Sunnudagur íþróttahúsið í Njarðvík Kl 13. UMFN — UBK, 2 deild kvenna Kl 14. ÍBK — UMFG, 2 deild kvenna Laugardalshöll Kl 20.30, Vikingur — Valur, 1 deild kvenna Fyrstu punkta- mótin í vetur FVRSTU punktamót vetrarins á skiðum verða haldin i skiðasvæðum Reykjavik- ur i dag og á morgun Keppt verður í alpagreinum i Skálafelli Kl 13 i dag hefst þar keppni i stórsvigi og á morgun kl 12 verður keppt í stórsvigi Nafnakall verður hins vegar 1 Vi klst fyrir keppni, báða dagana Kringum 50 keppendur eru skráðir til keppm i Skálafelli, frá Reykjavik. ísafirði. Húsavik. Siglufirði og Akureyri Við Skiðaskálann i Hveradölum verður punktamót i göngu og verður keppt í 5 km, 7.5 km, 10 km og 1 5 km Keppni hefst þar í dag kl 13 og aftur á sama tima á morgun LEEDS ÍBANN LEEDS United var í gær bannað að leika bikarleiki á heimavelli sinum, Elland Road, næstu þrjú árín vegna mikilla óláta meðal áhorfenda sem urðu þar nýveríð f bikarleik liðsins gegn Manchester City. Enska knattspyrnusambandið tók ákvörðun um þetta bann og einnig var félaginu gert að setja upp girðingar við völlinn til þess að koma í veg fyrir að áhorfendur ryddust inn á hann. Þetta er þriðja meiriháttar aðgerðin gegn Leeds á örfáum árum vegna slæmrar hegðunar áhangenda liðsins. Heim á mánu- dag ef allir leikir tapast TAKIST svo slysalega til að íslendingar tapi leikjum sínum gegn Dönum og Spánverjum í ríðlakeppninni um helg ina er liðið þar með úr leik í keppninni. Farí svo heldur liðið heimleiðis á mánudag Ef liðið kemst áfram keppnina um 8 efstu sætin leikur það áfram hér i Árósum og nágrenni en i keppninni um 9. —12. sætið verður leikið i Kaupmannahöfn og nágrenni. Grétu víst örugglega í FRÉTT um leik Dana og Spónverja á íþróttasiðunni i gær féll aftan af sá kafli fréttarínnar, sem fjallaði um grát Spán- verjanna eftir leikinn og kom þvi fyrir- sögnin eins og skrattinn úr sauða leggnum. í þessum kafla stóð, að Spánverjunum hefði orðið svo mikið um ósigurinn að sumir þeirra hafi yfirgefið völlinn hágrátandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.