Morgunblaðið - 12.02.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1978
Jón H. Bergs, form. Vinnuveitendasambands
Gengisbreytíng
óumflýjanleg
„ÉG TEL að bre.vting á skráðu
gengi krónunnar hafi verið óum-
flýjanleg eins og ástatt er f.vrir
útflutningsatvinnuvegunum,"
sagði Jón H. Bergs, formaður
Vinnuveitendasambands Islands,
er IVIbl. spurði hann álits á fvrir-
huguðum efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar. „Aðgerðar-
leysi hefði íeitt af sér rekstrar-
stöðvanir fjölda framleiðslufyrir-
tækja og stórfellt atvinnulevsi.
Tillaga fulltrúa ASÍ og fulltrúa
st jórnarandstöðunnar er botn-
leysa. Eg hefði haldið að atvinnu-
reksturinn í landinu þyrfti nú á
öðru meir að halda en tekjuskerð-
ingu, álagningu veltuskatts, á
allar atvinnugreinar upp á 5—6
milljarða og öðrum nýjum álög-
um. sem felast í þeirra samdrátt-
ar-, styrkja- og skattlagningarleið.
Hiiðarráðstafanir í efnahags-
málafrurhvarpinu tel ég nauðsyn-
legar meðal annars til þess að
draga úr þeim víxlhækkunum
kaupgjalds og verðlags, sem
gengisfellingar leiða af sér. Einn-
ig finnst mér rétt að draga úr og
milda áhrif gengisbreytingarinn-
ar fyrir þá sem verst eru settir í
þjóðfélaginu með ákvæðum frum-
varpsins þar að lútandi.
Vinnuveitendasambandið
hefur lengi talið og telur enn að
ríkisvaldið eigi að hafa sem
minnst áhrif á gerð og fram-
kvæmd kjarasamninga. Islenzkir
vinnuveitendur eru áreiðanlega
andvigir því fyrirkomulagi sem
ríkir í kommúnískum aðgerðum
aö ríkisvaldið ákveði kaup og
kjör. Hins vegar eru menn einnig
þeirrar skoðunar að rétt og skylt
sé ríkisvaldinu að grípa inn í
kjarasamninga ef aðgerðarleysi
leiddi af sér stórfelldar fram-
leiðslustöðvanir og stórfellt at-
vinnuleysi. Menn tala nú sumir af
mikilli vandlætingu um og for-
dæma afskipti ríkisvaldsins af
kjarasamningum eins og slikt
hafi aldrei gerzt áður. Ef farið er
nokkur ár aftur í tímann rifjast
m.a. þetta upp um inngrip stjórn-
Framhald á hls. 47.
Rúml. 5800 ferðamenn
til landsins í janúar
I JANUARMÁNUÐI komu hing-
að til lands 5.847 ferðamenn skv.
skýrslu útlendingaeftirlitsins.
Alls voru erlendir ferðamenn
2.384, en íslendingar 3.463. I
janúar 1977 komu til landsins
2.592 útlendingar, en 2.947 ls-
lendingar svo hér er um nokkra
fjölgun að ræða.
Flestir ferðamannanna voru frá
Bandaríkjunum eða 1198, næst
flestir frá Bretlandi 170, 161 kom
frá Þýzkalandi, 145 frá Noregi og
143 frá Danmörku. Alls komu
hingað til lands ferðamenn frá 48
löndum, m.a. Bangladesh,
Srilanka, Nígeríu, Tanzaníu,
Brazilíu, Búlgaríu, Grikklandi,
Suður-Kóreu, Malasíu, Lichten-
stein og Trinidad, einn frá hverju
þessara landa.
Tónleikum Kammer-
sveitarinnar frestad
Af óviðráðanlegum ástæðum
verður að fresta áskriftartónleik-
um Kammersveitar Reykjavikur
sem fyrirhugaðir voru í dag.
Tónleikarnir verða haldnir í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
sunnudaginn 19. febrúar kl. 5 e.h.
Flutt verða verk eftir Jón Ás-
geirsson, Beethoven og Franz
Berwald. (Fréttalilk.vnninf!)
Jón G. Sólnes vegna áburðar um
mútur vegna Kröflu:
„Tilhæfulaus
rógburður”
Yfirlýsing frá honum vegna
blaöaskrifa um Finansbanken
Morgunhlaðinu harst í gær svo-
felld yfirlýsing frá Jöni G.
Sölnes.
„Vegna blaðaskrifa um
bankainnstæður í Danmörku á
nafni mínu og konu minnar
þykir mér rétt að upplýsa. að
náinn ættingi minn, sent starf-
aði í Danmörku um margra ára
skeið, hefur átt innstæður á
nöfnum okkar hjóna. Var þetta
gert til þess að auðvelda yfir'-
færslu á innstæðum. Þessi
ættingi minn er fluttur heim til
Islands og í ágúst 1977 var um-
ræddum reikningum lokað og
inneignir yfirfærðar heim og
hlutaðeigandi yfirvöldum gerð
grein fyrir málinu.
Jón G. Sólnes."
X \ X
I tilefni af þessari yfii’lýsingu
Jóns G. Sólness s|>urði Mbl.
hann hvað hanh vildi segja um
þann áburð, sem fram hefur
komið að hann hafi þegið mútu-
fé frá japanska fyrirtækinu
Mitsubishi. Jón sagði þetta til-
hæfulaust með öllu og til
viðbótar tók hann fram að
ákvarðanir um véla- og efnis-
kaup til Kröfluvirkjunar og
framkvæmdir í því sambandí
hefðu aldrei verið teknar af
honum, heldur ráðgefandi
verkfræðingum sem fullskipuö
Kröflunefnd hefði svo fjallað
um á eftir. Þá sagði Jón enn-
fremur að síendurteknar
aðdróttanir í þessu máli „gefi
manni fyllstu ástæðu til að taka
til gaumgæfilegrar athugunar-,
hvort aðili sem lenti i því hlut-
verki að starfa i stjórnskipaðri
framkvæmdnefnd eins og
Kröflunefnd er, væri virkilega
varnarlaus samkvæmt lögum
fyrir tilhæfulausum rógburði
og lygum í sambandi við slík
störf og hef ég fullan hug á því
að kanna það mál nánar."
Ragnar Björnsson organisti
Húsfyllir á
öllum orgel-
tónleikunum
Rætt við Ragnar Björnsson dóm
organista nýkominn heim úr
hljómleikaferð til Sovétríkjanna
RAGNAR Björnsson dóm-
organisti er nýkominn heim úr
vel heppnaðri hljómleikaför til
Sovétríkjanna en þar hélt hann
nokkra tónleika víðs vegar um
landið og voru tónleikasalirnir
ávallt fullskipaðir áhe.vrendum
og svo var einnig í Tschaj-
kovski-tónlistarhöllinni í
Moskvu sem rúmar 2000 áheyr-
endur og er aðaltónlistarhöllin
þar.
„Þetta var ævintýraleg ferð,"
sagði Ragnar i samtali við
Morgunblaðið um ferðina,
„fyrstu tónleikarnir voru í
Moskvu í Tschajkovski-
tónlistarhöllinni, sem er aðal-
tónleikahöllin þar. Aldrei á
ævinni hef ég verið eins tauga-
óstyrkur fyrir nokkra tónleika
en þetta var í fyrsta skipti sem
ég spilaði í Moskvu. Þegar ég
kom inn á sviðið hvarf allur
óstyrkleiki samstundis, en í
salnum voru 2000 áheyrendur.
Reyndar var húsfyllir á öllum
tónleikum mínum. Næstu tón-
leikar voru í Taskent, en þar
hef ég leikið áður. Á þeim tón-
leikum var m.a. aðstoðar-
menntamálaráðherra Sovétríkj-
anna og það var skemmtilegt að
í samtali okkar eftir tónleikana
kom hljóðfærið í húsinu til tals
og hann lýsti því þarna yfir að
keypt yrði nýtt orgel í húsið
vegna hins mikfa áhuga sem
fólk sýndi á þessari tegund tón-
listar. Það var skemmtilegt að
koma aftur til Taskent, þessar-
ar fögru borgar.
Þá voru tónleikar í borginni
Alma-Ata austur undir landa-
mærum Kina og þar lék ég á
tveimur tónleikum og var yfir-
fullt á báðum og fjöldi fólks
mun hafa haft samband við for-
stjóra hljomleikahússins og
óskað eftir aukatónleikum. Það
var skemmtilegt að kynnast
hinum mikla áhuga fólks þarna
á orgeltónlistinni og t.d. á siðari
tónleikunum var svo þétt skip-
að að fólk stóð hvarvetna sem
mögulegt var að standa í stiga-
göngum og anddyri hússins.
Síðustu tónleikarnir voru síð-
an í Kazan við Volgu, en þar var
eitt bezta orgelið sem ég lék á í
ferðinni.
Þarna spurði ég staðarmenn
að því hvernig stæði á hinum
mikla áhuga á orgeltónlist og
töldu menn það vera vegna
allra möguleikanná sem orgelið
byði upp á, en ég heíd að það sé
ekki síður vegna þess að þessir
tónleikar fara fram í konsert-
sölum og áheyrendur hafa
orgelið og orgelleikarann fyrir
framan sig.
Að lokinni hljómleika-
ferðinni til Rússlands átti ég að
leika á tveimur tónleikum í
Helsingfors, en varð að aflýsa
þeim vegna óhagstæðra ferða."
Ragnar sagðist aldrei hafa
leikið sömu efnisskrá á tón-
leikunum en af íslenzkum verk-
um lék hann verk eftir dr. Pál
og Inter media noctis eftir Atla
Heimi Sveinsson, en Ragnar
kvað fólk hafa haft gaman af
því. Þetta er í annað skiptið
sem Ragnari er boðið til Rúss-
lands í hljómleikaferð, en að-
sþurður um eftirminnilegt at-
vik úr ferðinni nefndi hann
flautuleikara sem hann heyrði
á hljómleikum í Kazan. „Hann
heitir Alexander Karneev og er
einn af svokölluðum listamönn-
um þjóðarinnar, en hann er
albezti flautuleikari sem ég hef
heyrt, stórkostlegur listamaður
og það væri mikill fengur að fá
hann hingað til lands til þess að
spila."
Um tónleikahald framundan
sagði Ragnar að sér hefði verið
boðið í tónleikaferð í haust til
Bandarikjanna og Kanada.
Skora á
sambands-
félögin að
segja upp
samningum
FRAMKVÆMDASTJÓRNIR Sjó-
mannasambands tslands og Far-
manna- og fiskimannasambands
lslands samþykktu á sameiginleg-
um fundi á föstudagskvöld að
skora á öll samhandsfélög að
segja nú þegar upp gildandi
kjarasamningum og alls ekki síð-
ar en 1. marz n.k.
Mbl. barst cftirfarandi tilkynn-
ing frá samböndunum í gær:
„Sameiginlegur fundur fram-
kvæmdastjórna Sjómannasam-
bands íslands og Farmanna- og
fiskimannasambands íslands,
haldinn föstudaginn 10. febrúar
1978, mótmælir harðlega kjara-
skerðingaráformum þeim sem
fram koma í frumvarpi því serrj
lagt hefur verið fram á Alþingi
um ráðstafanir í efnahagsmálum.
Fundurinn lítur svo á, að ekkert
það hafi gerst í viðskiptakjörum
eða öðrum þáttum þjóðarbúsins
frá því að kjarasamningar við sjó-
menn voru undir.ritaðir á s.l. ári,
sem réttlæti það að með lagaboði
sé gildandi kjarasamningum koll-
varpað eins og áformað er með
frumvarpi þessu.
Jafnframt mótmælir fundur-
inn harðlega þeirri ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar, að krefja endur-
greiðslu framlags ríkissjóðs til
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins
á s.l. ári af gengismunarsjóði, sem
nú hefur verið ákveðið að mynda
af sölu sjávarafurða sem fram-
leiddar voru á s.l. ári, og fluttar
verða út eftir að gengi krónunnar
var fellt.
Samþykkir fundurinn að skora
á öll sambandsfélög Sjómanna-
sambands íslands og Farmanna-
og fiskimannasambands íslands,
að segja nú þegar upp gildandi
kjarasamningum og alls ekki síð-
ar en 1. marz n.k."
Lézt af völdum
bifreiðarslyss
LÁTIN er í Reykjavik Aslaug G.
Torfadóttir til heimilis að Vestur-
götu 20, en hún varð fyrir bifreið
á Bólstaðarhlíð hinn 12. desember
s.l. Áslaug heitin var 46 ára að
aldri. Hafði hún ekki komizt til
meðvitundar eftir slysið.
Aslaug G. Torfadóttir.
5500 lestir fengust í Vest-
firðingafjórðungi í janúar
HEILDARAFLINN í Vestfirðing-
afjórðungi varð alls 5.539 lestir í
janúarmánuði. en var 4.903 lestir
í sama mánuði í fyrra. Keinur
þetta fram í yfirliti um sjósókn
og aflabrögð í fjórðungnum, sem
skrifstofa Fiskifélagsins á ísa-
firði hefur tekið saman. Segir í
yfirlitinu, að stiiðugir umhleyp-
ingar hafi verið megineinkenni
vcðráttunnar í janúar ogsett mik-
inn svip á sjósóknina. Fór veður-
hæð sjaldan niður úr 6—7 vind-
stigum og voru aflabrögð i sam-
ræmi við það, bæði hjá togurum
og línubátum. Þá segir að sjó-
menn kvarti undan því að fiski-
slóðin undan Vestfjörðum sé nú
óvenjulega lffvana.
í janúar stunduðu 43 bátar bol-
fiskveiði frá Vestfjörðum, reru 32
með línu, 10 með botnvörpu og 1
með net, en í fyrra reru 25 með
línu og 9 með botnvörpu. Línubát-
arnir stunduðu allir dagróðra
nema Heiðrún frá Bolungarvík,
sem var í útilegu.
Afli línubátanna í mánuðinum
var 2.649 lestir í 527 róðrum eða
5,0 lestir að meðaltali í róðri, en í
fyrra var línuaflinn 2.593 lestir í
429 róðrum eða 6,0 lestir að með-
altali í róðri. Afli togaranna var
nú 2.788 lestir eða 50% heildar-
aflans i mánuðinum.
Aflahæsti línubáturinn var
Vestri frá Patreksfirði með 148,0
lestir í 20 róðrum, en í fyrra var
Tungufell frá Tálknafiíði afla-
hæst í janúar með 172,1 lest í 23
róðrum. Gyllir frá Flateyri var
aflahæstur togaranna með 395,9
lestir. Hann var einnig aflahæst-
ur í janúar í fyrra með 368,9 lest-
ir.