Morgunblaðið - 12.02.1978, Qupperneq 19
19
MÖRGUNBLÁðYðTsÚNNÚDÁGÚR l'£ FÉBRÚÁR'"Í978
þjálfi, hinn„ betlari. Gústav
stendur milli tveggja kvenna i
upphafi, hinnar fögru og riku og
lauslátu Neöribæjar-Önnu og Idu,
sem á allan hátt virðist standa
henni að baki. Hann kvænist Idu,
af því að hún er heiðarleg stúlka,
og hann sér aldrei eftir því. En í
gegn um alla söguna vofir „dökka
daman“ í baksýn. Andstæðurnar
milli liðþjálfans og bóndans Elías-
ar verður að ættarfjandskap á
borð við uppgjörið milli Monta-
guanna og Capulets i leikriti
Shakespears. Gustav er sá sterk-
ari, þegar fjandskapurinn endar í
blóðugum slagsmálum. Þar
kemur strax fram hjá Moberg til-
hneiging hans, sem entist alla
ævi, að velja sér að söguhetju
þann, sem er sterkari en allir aðr-
ir. En það merkilegasta við
bókina er kannski hve hún er
ekta, þrátt fyrir þessar gamal-
grónu manngerðÍK. En þar bjarg-
ar hinn sérkennilegi stíll
Mobergs. Annað kemur þarna til.
Nákvæmni Mobergs, þegar hann
lýsir fýrri tíma með siðum sinum
og háttum. Hann lýsir nákvæm-
lega klæðnaði ' piltanna, sem
ganga berfættir í skónum og með
litlu kollhúfurnar með leðurderi
til að hlífa augunum við sólinni.
Og frásögnin er raunsæ og
dramtisk.
_c___________________________
Mesta verk sænska
sjónvarpsins
Úr þessu verki í 19. köflum á
400 síðum um 30 ára lifsstrit
þeirra Gustavs Karlssonar, sem
varð hermaðurinn Gustav Röskur
númer 132 og Idu konu hans,
gerði Per Sjöstrand 8 þátta sjón-
varpsleikrit. Og það er stærsta
verk, sem sænska sjónvarpið hef-
ur ráðist í. Sjöstrand vann
textann upphaflega í góðri sam-
vinnu við höfundinn, Vilhelm
Moberg. Talaði við hann viku
áður en hann féll frá. Upptakan,
sem Sjöström stjórnaði líka hófst
í fébrúar 1975 og stóö fram undir
jól það sama ár. Sven Wollter
leikur aðalhlutverkið, hermann-
inn Gustav Rösk. Hann er einn af
þekktustu sjónvarpsleikurum
Svía. Gurie Nordwall, eiginkona
Sjöströms, er sjaldséðari gestur á
skjánum, en hún starfar hjá
Ríkisleikhúsinu í Stokkhólmi.
Bæði eru þau frá Gautaborg,
uppalin í sömu götu og gengu í
skóla saman, en hafa ekki leikið
saman í 20 ár. I kvikmyndinni og
meðan á upptöku stóð töluðu þau
ekki annað saman en smálenzku.
Mest af myndinni er kvikmynd-
að í 100 ára gömlum bæ í Sátila á
Vesturgautlandi. Þar fannst eftir
mikla leit býli, sem var næstum
alveg eins og Moberg lýsir
hermannabýlinu í sögunni. Um-
hverfið var líka dæmigert fyrir
Smálöndin, með skógum, akur-
spildum á milli og hlöðnum veggj-
um.
Vesturfararnir
Sú bók sem gerði Vilhelm
Moberg heimsfrægan, hefur líka
verið kvikmynduð til framhalds-
sýninga í sjónvarpi. Það er Vest-
urfararnir, sem sýnd var í
íslenzka sjónvarpinu, með Liv
Ullman og Max von Sydov í aðal-
hlutverkum.
Fyrsta bókin um Vesturfarana
kom út árið 1,949 og fjallar um
sænska útflytjendur til Vestur-
heims. Alls urðu bækurnar fjórar.
Sú næsta hét Innflytjendur og
kom út 1952, þá Landnemarnin
1956 og Síðasta bréfið til Svíþjóð-
ar 1959. En þar lýkur frásögninni
af bóndanum Karli Oskari Nilson
úr Smálöndum, konu hans
Kristínu og öðrum útflytjendum
frá Ljuder. Þessar bækur unnu
saman í eina skáldsögu, „Skáld-
söguna um útflytjendurna“, er út
kom 1962 og er álitin eitt af
höfuðskáldverkum heimsins um
19. öldina. Þar kemur hvað skýr-
ast fram hugsjón Mobergs um
frelsið og einstaklinginn.
Kristína, sem alltaf hefur heim-
þrá, en beygir sig undir hlutskipti
sitt, er sígild kvenlýsing. Hann
uppstökki en trausti Karl Johann.
Draumóramaðurinn Róbert og
gullgrafaraleiðangur háns. Gleði-
Framhald á bls. 47.
Jágerschiöld kapteinn (John Harryson) hafnar fyllibyttunni Ágústi
Olson (Micha Gabay) og tekur Gustav Karlson í staðinn og gerir hann
að Rösk nr. 132 í herdeildinni.
Per Sjöstrand sem þarna er að leiðbeina leikaranum Sven Wolter, er
mfkill sérfræðingur í verkum Mobergs og hefur sjálfur leikið Rösk í
útvarpsleikriti.
Hvað átti hún að gera, fátæk og
mædd? Hún yrði send á fátækra-
heimili, og hún gæti ekkert gert
til að koma í veg fyrir það. Einn
var þó til í hæstum hæðum, sem
hún gæti beðið um hjálp, sem hún
alla sína ævi hafði beðið um hjálp
Og þegar þeir koma með uxa-
vagninn nokkrum dögum síðar til
að flytja Idu á elliheimilið, hefur
hún verið bænheyrð. Hún liggur
látin í hvílu sinni. Frásögninni
lýkur Moberg með þessum
orðum: Ekkja Rösks gat verið
ánægð. Siðasta bæn hennar til
Drottins hafði verið heyrð.
Ekki verður hér rakið efni
sögunnar eða sjónvarpsmyndar-
innar um rösku sveinana. Henni
geta sjónvarpshlustendur fylgst
með á skjánum sínum. I sögunni
koma fyrir ýmsar fastar mann-
gerðir. Léttlyndi hermaðurinn
Gústav fær andstæðu sína í hin-
um alýörugefnari Jóhanni, sem
verður áfengi og léttlyndum kon-
um að bráð. Annar verður lið-
36 sinnum þrammaði langafi Mobergs hina löngu leið til heræfing-
anna með þungan matarpakka sinn og 36 sinnum aftur heim með
tóman mal. Hér sjáum við herdeildina á leið til æfinga í myndinni.
Gustav (Sven W’olter) á flótta gegn um skóginn með aleiguna í klút.
Hef til afgreiðslu strax örfáar
fólksbílakerrur á gamla verðinu.
Gerið góð kaup fyrir vorið greiðslukjör.
Allar gerðir af
kerrum — vögnum
og dráttarbeislum
Allir hlutir í
kerrur fyrir þá
sem vilja smída
sjá/fir
Póstsendum
Þórarinn
Kristinsson
Klapparstíg 8
sími 28616
“ ’ - mmm \
KVENNADEILD
Reykjavíkurd.
R.K.Í.
Fræðsla um
sjúkravinastarf
kvennadeildarinnar
hefst miðvikudaginn 15. febrúar kl. 20.30 í
kennslusal Rauða Kross íslands, Nóatúni 21.
Flutt verða erindi um eftirfarandi efni:
1. Rauði krossinn og starfsemi
kvennadeildar.
2. Störf í sölubúðum sjúkrahúsa.
3. Störf í heimsóknarþjónustu.
4. Föndurstörf.
Væntanlegum sjúkravinum er næstu daga
gefið tækifæri til þess að kynnast starfsemi
sjálfboðaliða á sjúklingabókasöfnum, sölu-
búðum og öðrum starfsgreinum deildarinnar,
en fræðslunni lýkur miðvikudaginn 1. marz
kl. 20.30 með erindum um:
1. Störf í sjúklingabókasöfnum.
2. Framkomu í starfi.
Þátttaka tilkynnist í síma 28222 eða 14909
í síðasta lagi 13. febrúar.
Stjórnin.