Morgunblaðið - 12.02.1978, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRUAR 1978
47
Ríkisspítalarnir:
Yfir 55 þúsund aðgerðir
og viðtöl á göngudeildum
SKRIFSTOFA ríkisspftalanna
hefur sent frá sér tölur um sjúkl-
inga- og legudagafjölda á ríkis-
spftölunum árið 1977 svo og um
fjölda aðgerða og viðtala á göngu-
deildum þeirra.
DVALARHEIMILIÐ Höfði á
Akranesi verður vígt í dag kl. 14.
Eftir vígsluna verður það til sýnis
aimenningi fram til kl. 17.30.
Fyrstu vistmenn fluttust inn á
dvalarheimilið hinn 2. febr. s.l.
Vietnamski
sendiherrann
farinn heim
New York, 11. feb., Reuter.
DINH Ba Thi, sendiherra Víet-
nams hjá Sameinuðu þjóðunum,
sem bandarísk stjórnvöld vfsuðu
á dögunum úr landi vegna tengsla
við njósnamál, fór skyndilega frá
Bandaríkjunum á föstudagskvöld.
Hélt sendiherrann til Parisar á
leið sinni til Vietnams. Dómari í
Virginia-fylki gaf út þá tilskipun
skömmu fyrir brottför This, að
hann skyldi kyrrsettur í Banda-
ríkjunum.
Kvennaskák-
mótið hafið
FYRSTA umferð á Skákþingi
Reykjavíkur í kvennaflokki, þar
sem brezka skákkonan Jane
Hartston keppir sem gestur, var
tefld á föstudag.
Hartston vann Sigurlaugu
Regínu Friðjónsdóttur, Guðlaug
Þorsteinsdóttir vann Ölöfu Þrá-
insdóttur og Aslaug Kristinsdóttir
vann Svönu Samúelsdóttur. Birna
Norðdahl sat hjá í fyrstu umferð-
inni. Þær Jane og Guðlaug höfðu
nokkra yfirburði i sínum skákum,
en Svana lék af sér hrók í jafnri
stöðu. „
Önnur umferð var tefld í gær
og þriðja umferð verður tefld í
dag.
I DAG, sunnudag 12. febrú-
ar verður hin árlegi merkja-
söludagur Kvenfélags Laugarnes-
sóknar. Merkin verða afgreidd í
kjallara kirkjunnar og eru börn
hvött til að koma og selja merki.
Einnig verða kvenlélagskonur
með merki til sölu við kirkjudyr
að lokinni fjölskyldumessu, sem
verður kl. 11.
Allur ágóði af merkjasölunni
rennur í byggingarsjóð safnaðar-
heimilisins. í mörg ár hefur það
verið mikið áhugamál Kvenfé-
lagsins að koma upp safnaðar-
heimili við Laugarneskirkju og
hafa þær stutt við það mál með
mikilli elju og fórnfýsi. Uin þess-
Þeir spítalar sem hér um ræðir
eru Landspítalinn, Kleppsspítal-
inn, Vífilsstaðaspítalinn, Kópa-
vogshælið, Gunnarsholtshælið og
Kristneshælið. 1 þessu yfirliti
kemur fram, að alls hafa 17.565
en það stendur nálægt sjónum við
Sólmundarhöfða.
Dvalarheimilið Höfði er eign
Akraness og hreppanna fjögurra
sunnan Skarðsheiðar og er það
rekið sem sjálfseignarstofnun.
Alls er rúm fyrir 22 vistmenn sem
búa f 16 einstaklingsibúðum og 3,
hjónaíbúðum. I hverri íbúð er
baðherbergi með steypibaði,
svefnherbergi, stofu, anddyri
með eldhúskrók þar sem eru
skápar, rafmagnshella, vaskur og
lítill ísskápur.
I sumar verður síðari áfangi
dvalarheimilisihs tekinn í notkun
en hann er eins og fyrri áfanginn
og geta þá vistmenn verið alls 44.
Sagt upp
starfi dóm-
organista
AUGLÝST hefur verið laust til
umsóknar starf dómorganistans í
Reykjavík. Mbl. hafði samband
við Ragnar Björnsson og spurðist
fyrir um ástæðu þess að hann
hætti nú störfum og sagði Ragnar,
að sér hefði verið sagt upp störf-
um nú eftir að hann kom úr
hljómleikaferð til Sovétríkjanna.
Sagði Ragnar að sér kæmi þetta á
óvart og hann vissi ekki um
ástæðu uppsagnarinnar, en hann
hefði starfað sem organisti í um
20 ár, fyrst sem aðstoðarorganisti
dr. Pájs heitins ísólfssonar. Að
öðru leyti kvaðst Ragnar Björns-
son ekki vilja tjá sig um þetta
mál.
Erling Aspelund sem á sæti í
sóknarnefnd sagðist ekki vilja tjá
sig um þetta og sagði það skoðun
sína að málið ætti ekki erindi í
fiölmiðla.
vegna væntanlegrar byggingar
safnaðarheimilisins og vonandi
verður fljótlega hægt að hefjast
handa. Það er því ástæða til að
hvetja ibúa i Laugarneshverfi að
styðja við þetta mikilvæga mál-
efni með þvi að taka vel á móti
merkjasölufólki á sunnudaginn
kemur.
Ég vil að lokum vekja athygli á
starfsemi Kvenfélags Laugarnes-
sóknar, sem er gróskumikil nú
sem endranær. Kvenfélagskonur
leggja mikið á sig í þágu safnaðar-
ins og vil ég þakka þeim illilega
fyrir það.
sjúklingar komið á þessa spitala,
flestir á Landspítalann eða
14.772. Legudagafjöldi er alls
tæplega 380 þúsund, 146 rúmlega
á Landspítalanum, um 94 þúsund
á Kleppsspítalanum, 69 þúsund á
Kópavogshælinu, 28 þúsund á
Kristneshælinu, um 24 þúsund á
Vífilsstaðaspítalanum og um 15
þúsund á Gunnarsholtinu. Á þess-
um spítölum er meðaltalsfjöldi
sjúklinga á dag 1.039,8.
Þá hafa komið á göngudeildir
þessara spítala alls 55.151 sjúkl-
ingur til viðtals og/eða aðgerða á
árinu 1977.
Athugasemd
Mbl. hefur borizt eftirfarandi
athugasemd frá Sjómannasam-
bandi Islands og Farmanna- og
fiskimannasamhandi íslands
„vegna fréttar frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu":
,,Hinn 6. þ.m. gaf sjávarútvegs-
ráðuneytið út reglugerð um tak-
mörkun á þorskveiðum í mars
1978. i frétt frá ráðuneytinu var
þess getið, að reglugerðin væri
sett að höfðu samráði við hags-
munasamtök í sjávarútvegi. Hef-
ur frétt þessi valdið verulegum
misskilningi og vilja því Sjó-
mannasamband íslands og Far-
manna- og fiskimannasamband ís-
lands koma þeirri áthugasemd á
framfæri, að sjávarútvegsráðu-
neytið hafði að engu tillögur sam-
bandanna um tímasetningu eða
tilhögun á framkvæmd þess
þorskveiðibanns, sem reglugerðin
kveður á um, heldur var farið að
öllu eftir tillögum fiskkaupenda á
Suðurnesjum.“
— Gengis-
breyting
Framhald af bls. 2
valda í kjarasamninga. í desem-
ber 1956 var ákveðin binding
verðlagsbóta í þrjá mánuði, í maí
1958 skerðing verðlagsbóta á
laun, í janúar 1959 lækkun verð-
lagsbóta á laun, í febrúar 1960
bann við vísitölubindingu launa,
nóvember 1970 frestun vísitölu-
bóta, febrúar 1973 gengislækkun
og skerðing vísitölubóta, í maí
1974 gengislækkun og binding
visitölubóta og í september 1974
gengislækkun og takmarkaðar
launajöfnunarbætur í stað verð-
lagsbóta, svo nokkur dæmi séu
nefnd.
Þannig er hafa allir stjórnmála-
flokkarnir staðið að því að gripa
inn í kjarasamninga," sagði Jón.
,,Það er ömurlegt ef nú á enn að
æsa til nýs kjarakapphlaups til
þess að knýja framleiðslufyrir-
tæki umfram getu þeirra til þess
að greiða fleiri verðbólgukrón-
ur,“ sagði Jón er Mbl. spurði hann
um samþykkt miðstjórnar ASÍ,
sem Mbl. birti i gær. „Slíkt mundi
leiða til langvarandi stöðvana, því
að þótt nú hafi verið gerðar ráð-
stafanir til þess að forða yfirvof-
andi rekstrarstöðvunum i frani-
leiðslugreinum þjóðarinnar, fela
þessar ráðstafanir ekki í sér svig-
rúm til nýrra kauphækkana í
bráð, og myndi leiða til dýrtíðar-
holskeflu og kollsteypu i efna-
hagsmálunum án tillits til þess
hverjir stjórna landinu eftir
næstu alþingiskosningar."
— Sadat
Framhald af bls. 1
Sadat muni einnig fara i heim-
sókn til ýmissa Arabaríkja fljót-
lega eftir að heim er komið, þar á
meðal Sýrlands. Muni hann hafa
mikinn hug á að reyna að bæta
samskipti Egypta við ýmis þau
Arabarríki sem hvað harkalegast
hafa fordæmt hann og frumkvæði
hans um frið við ísraela.
Eins og fram kemur í upphafi
fréttar fór Sadat flugleiðis frá
Austurríki til Rúmeniu eftir
fundinn með Peres og Kreisky.
Ceausescu forseti bjóst til að taka
á móti Sadat um kl. 17 að staðar-
tíma á Otopeniflugvelli við
Búkarest. Rúmenía er eina
austantjaldsrikið sem Sadat heim-
sækir i þessari ferð sinni. Rúmen-
ar hafa um langa hríð gegnt tölu-
verðu meðalgönguhlutverki í
deilu Miðausturlanda. Þeir hafa
góð samskipti við ísrael og Caus-
escu forseti reyndi fyrir allmörg-
um árum að koma á fundi með
Sadat og þáverandi forsætisráð-
herra Israels, Goldu Meir.
Ekki hefur verið skýrt frá dag-
skrá heimsóknarinnar i Rúmeníu
að lokinni móttökuathöfninni á
laugardag. Blaðamenn búast við
því að Ceausescu haldi kvöldverð-
arboð honum til heiðurs á laugar-
dag og síðdegis á sunnudag held-
ur Sadat að svo búnu til Parísar.
ENNGAGNRÝNA
BANDARIKJAMENN
LANDNAM ISRAELA
I Reutersfrétt frá Washington
laugardag sagði að Bandaríkin
hefðu enn á ný ítrekað mjög
harkalega gagnrýni á þá stefnu
Israela að leyfa landnám á
hernumdu svæðunum og það sé
ásamt með framtíðarskipan á
Vesturbakkanum að verða helzta
friðartálmunin.
Svo virtist þó sem þessi yfirlýs-
ing Bandaríkjamanna hefði ekki
umtalsverð áhrif og forsvars-
menn Israela og Egypta ítrekuðu
bjartsýni á að raunhæfir friðar-
fundir hæfust á ný eins og fram
kom í Mbl. laugardag.
— 17 fórust
Framhald af bls. 1
farþegar og tveir flugmenn. Flug-
vélin hrapaði mjög skömmu eftir
flugtak, hafði klifrað i um 500
metra hæð. Sjónarvottar sögðu að
vélin hafi stungizt á nefið og mik-
ill eldur komið upp er hún brot-
lenti.
Flugvöllurinn þar sem slysið
varð er í suðausturhluta Washing-
ton-fylkis. Talsmenn flugvallar-
ins sögðu enn óljóst hvað valdið
hefði slysinu. Ekkert óvenjulegt
var að sjá við flugtak.
— Utanríkis-
ráðherra
Framhald af bls. 1
I dag, laugardag, var allt með
kyrrum kjörum í Beirut en aftur
á móti kom enn á ný til skothriðar
í Suður-Libanon milli einangr-
aðra sveita kristinna Líbana og
Palestinumanna. Israelskar sveit-
ir flugu yfir stöóvar Palestinu-
manna að sögn ferðamanna sem
komu frá Norður-Israel. Um
manntjón var ekki vitað.
— Los Angeles
Framhald af bls. 1
legum usla, sérstaklega í ásum og
hæðum Los Angeles-borgar. Sum-
staðar myndaðist allt að fimm
metra há flóðbylgja og olli hún
miklu tjóni á eignum og landi. Að
sögn lögreglu hafa lik 8 manna
þegar fundizt og 9 er enn saknað.
Tvær stærstu hafnir vestur-
strandar Bandaríkjanna, Long
Beach og Los Angeles-höfn eru
lokaðar vegna fljótandi braks.
Hundruð smábáta og skemmti-
snekkja sukku eða e.vðilögðust í
óveðrinu.
— Minning
Þórarinn
Framhald af bls. 39
eiga einn son, Þórarin Óla.
Mikil hamingja ríkti á heimili
þeirra Hildar og Þórarins, börnin
voru dugleg og yndisleg foreldr-
um sínum, en skugga bar á, hús-
móðirin elskulega var heilsutæp
siðustu árin, og andaðist 17. júní
1975. Það var mikið áfall fyrir
Þórarin og börnin hans, er öll
unnu henni svo heitt og mikið.
Þórarinn sem að eðlisfari var til-
finningamaður átti erfitt með að
komast yfir þá miklu sorg. Ég vil
að lokum færa mínum kæra
frænda, minar hinstu kveðjur og
fjölskyldu minnar og þakka hon-
um þá löngu leið er við höfðum
gengið saman. Börnum hans og
öldruðum föður og öðrum ástvin-
um vottum við einlæga samúð
okkar og við biðjum algóðan guð
að styrkja þau og blessa í hinni
miklu sorg.
Þorsteinn Halldórsson.
En minninnar fagrar um vinina vaka
og viðkvæma strengi í hjartanu taka.
Þær knýja fram þakkir við hollvina hæfi
fyrir h jartfólgna sambúð og starfsama æfi.
H.B.
— Röskur
hermaður
Framhald af bls. 19
konan Ulrika, sem varð ný
manneskja í Ameríku.
í mörgum af bókum Mobergs
koma þessi tvö þemu fyrir,
hermaðurinn og útflytjandinn.
Til dæmis kom bókin „Soldat með
brutet gevár“ út 1944, sem er upp-
gjör við hlutleysisstefnu Svia og.
nokkurs konar sjálfsævisaga. Og
1963 lýsir Moberg í bókinni „Þín
stund á jörðinni" gömlúm sænsk-
amerískum útflytjadna, sem lítur
til baka á uppvaxtarár sín í
Smálöndum. Leikverkið sem gert
var úr þeirri bók 1967 og m.a. var
flutt í útvarp, vakti mikla athygli.
Vilhelm Moberg er líklega vin-
sælastur allra sænskra rithöfunda
og hafa sjónvarpsþættir úr bók-
um hans aukið við vinsældir hans
á siðari árum. Og í bókmenntarit-
um er talið að skáldsögur hans
hafi rutt braut heimildaskáld-
sögunum sem blómstruðu á
sjöunda áratugnum.
(E. Pá. tók saman).
— Gárur
Framhald af bls. 25.
siðari Og þarf ekki meira um það að
ræða Enda ekki spurningin um að
taka lyf eða ekki heldur að taka þau í
hófi Eða svo enn sé vitnað i gamla
auglýsingu fyrrverandi apótekara á
Húsavík
Heilsan fylgir
hófi Húsavikurapótek
Þarna verður að sjálfsögðu að
reiða sig á fagmenn. sem árum
saman hafa búið sig undir þetta
erfiða val, að ákveða hve mikið
magn skuli i hvern skrokk og hven-
ær þörfin er nægilega brýn, til að
taka með ókostina. sem felast i
aukaverkunum
Enn hefur vist ekki fundist lyf,
sem ekki hefur einhverjar
aukaverkanir — jafnvel ekki aspirin-
ið. að því er ég las i grein nýlega
Það er sjálfsagt mikið vandaverk að
finna þarna meðalhófið Og þó! Eftir
að hafa fyrir tilviljun séð fyrrnefndar
meðalaglasamyndir og upptalningu
á ársskammti róandi og örvandi lyfja
í einn skrokk. er markið liklega
hærra en ófróður leikmaður heldur.
Eða hvað?
Lýk ég svo þessu leikmannsspjalli
á gamalli áramótaauglýsingu úr Ár-
bók Þingeyinga Hún hljóðaði svo.
og þótti stinga nokkuð i stúf við
auglýsingar annarra sölumanna
Túsavikurapótek óskar Þingeying-
um árs og friðar, og sem minnstra
viðskipta á komandi ári!
— Bakkus
Framhald af bls. 22
umferðinni. Það er því Ijóst, að þjón-
usta þeirra Mahons og Zacks getur
orðið hið mesta þjóðþrifafyrirtæki, ef
að vonum lætur.
Og mér þykir ýmislegt benda til
þess, að svo fari. Hér nægir að nefna
eina ástæðu; hún er nýtilkomin —
en þung á metunum. Það var kvöld
nokkurt i fyrra, að maður einn i Los
Angeles kom við á bar og dvaldist
honum heldur lengi. V; r hann orðinn
þéttdrukkinn, er hann kom út. Hann
settist samt undir stýri i bil sinum og
ók af stað. Hann hafði ekki ekið
lengi er maður varð fyrir. Slasaðist
sá, ungur leikari að nafni James
Stacy, svo illa að taka varð af honum
fótlegg og handlegg. Hann höfðaði
siðan mál — á hendur eiganda veit-
ingahússins, þar sem hinn drukkni
ökumaður hafði setið að sumbli áður
en hann ók af stað. Stacy vann málið
— og fékk 1.9 milljónir dala (rúmar
400 millj. isl. kr.) í miskabætur.
Forráðamenn veitingahússins voru
fundnir sekir um það að hafa veitt
manninum vín áfram eftir að Ijóst
mátti vera, að hann var orðinn
..óökufær", Það má sem sé gera ráð
fyrir þvi, að veitingahúsaeigendur
taki heimkeyrsluþjónustu Zacks og
Mahons fagnandi Þeir geta þá haldið
áfram að veita meðan viðskiptavin-
irnir halda höfði. Svo er bara að
hringja í einkabílstjóra
— VILLIAM SCOBIE
ar mundir er ötullega unnið aö Jón D. Hróbjartsson
teiknintfum og undirbuningi sóknarprestur.
Landssamband iðnverkafólks
mótmælir efnahagsfrumvarpi
STJÓRN Landssambands iðnverkafólks hefur mótmælt frumvarpi
rikisstjórnarinnar um ráóstafanir i efnahagsmálum. Segir i ályktun
stjórnarinnar hér sé um aó ræða tilefnislausa árás á lifskjör fólks og sé
með ákva'ðinu um að draga óheina skatta úr visitölunni stefnt að þvi að
gefa rikisvaldinu sjálfdæmi i launamálum. Skorar stjórn landssam-
bandsins á sámtöklaunafólks að snúast til várnar þessúm árásum.
Yígt Dvalarheimil-
ið Höfði á Akranesi
Merkjasöludag-
ur Kvenfélags
Laugamessóknar