Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRIL 1978 Þýzk ferðáhand- bók um ísland NÝLEGA er komin út í Þýzka- landi ferðahandbók um ísland og er það útgáfufyrirtekið Inter- tours sem stendur að útgafunni. Tveir starfsmenn fyrirtækisins voru á ferð hérlendis nýlega og kynntu ritið, en undirbúningur að útgáfu þess hefur staðið yfir síðan fyrir rúmu ári. Forstjóri Intertours Jiirgen F. Bethge og samstarfsmaður hans Herbert Czoschke sögðu að megin- efni ferðahandbókarinnar væri skrifað af þýzkum rithöfundi, sem dvaldi hérlendis í nokkrar vikur á s.1. ári, og væri bókin skrifuð af þjóðverja og fyrir þjóðverja, sem gerði það að verkum að þar kæmi bezt fram það sem hinn almenni þýzki ferðamaður vill fá að vita um landið. Þá eru í bókinni allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig komast má til landsins, hvar sé hótel að finna, mataræði, verzlanir, hvernig komast má um landið, tjaldstæði o.s.frv. Þeir félagar lögðu á það áherzlu að bókin væri unnin af starfsmönn- um Intertours og væri með því tryggt að allar upplýsingar væru hlutlausar, þar væri aðeins bent á þá þjónustu sem væri fyrir hendi. Intertours hefur áður staðið fyrir útgáfu ferðahandbóka, m.a. um Norðurlöndin, og hyggst í framtíðinni gefa þessi rit út árlega. Áður hefur hún einnig gefið út bæklinga um nokkrar borgir í Þýzkalandi. Um dreifingu ferðahandbókarinnar sögðu þeir m.a.: — Bókin um ísland verður í þetta sinn gefin út í 20 þúsund eintökum og er henni dreift þannig, eins og öðrum ferðahand- bókum okkar, að ferðaskrifstofur fá senda 1—2 bæklinga til að byrja með og síðan geta þær pantað meira. Þannig sendum við til ferðaskrifstofa í Þýzkalandi, Aust- urríki og Sviss og er bæklingurinn ókeypis, það eru auglýsingar, sem greiða kostnaðinn við hann. Á þennan hátt fá ferðaskrifstofurn- ar og viðskiptavin%r þeirra hlut- lausar upplýsingar um viðkomandi land og allar upplýsingar um ferðir þangað, ferðir innan lands- ins og um flest það sem ferðamað- urinn þarf að vita um land og þjóð. Þeir Bethge og Czoschke sögðu að nokkur gagnrýni hefði komið fram á þau vinnubrögð að erlendir aðilar gæfu út ferðahandbækur og þegar þeir hefðu verið að vinna að undirbúningnum þá hefðu menn jafnvel efast um að þær myndu sjá dagsins ljós. Þessar efasemdir hefðu þeir einnig orðið varir við hérlendis, en þær væru að veita þjóðverjum sem gleggstar upplýs- ingar um allt er varðaði ferðalög á Islandi. Böðvar Valgeirsson framkvstj. Atlantik Travel hefur verið þeirra umboðsmaður hérlendis og aðstoð- að þá og sögðu þeir að yrðu menn varir við eitthvað sem mætti leiðrétta í ferðahandbókinni gætu viðkomandi snúið sér til hans og einnig ef bæta þyrfti við ein- hverju. Ljósm. Kristján. Jiirgen F.Bethge (t.v.) og Herbert Czoschke eru hér með ferðahandbækur Intertours um Norðurlöndin og bækling um Hamborg. Sænska sjónvarpið: Vill kaupa óséðar myndir af Þorsteini SÆNSKA sjónvarpið og jafnvel hið finnska er tilbúið að kaupa á hæsta verði dreifingarréttinn á tveimur kvikmyndum Þorsteins Jónssonar kvikmyndagerðar- manns, sem hann hefur á prjón- unum en aðeins kynnt þessum aðilum f frumdrögum. Sænska sjónvarpið hefur jafnframt boðið honum aðstöðu til klippingar og hljóðvinnslu. Að sögn Þorsteins á önnur myndin að fjalla um líf sjómanns á Islandi og lýsa hversu háðir íslendingar eru sjósókn en hitt verkefnið er um íslenzka fjöl- skyldu í paradísarleit í Svíþjóð, og inn í þá mynd hyggst Þorsteinn flétta Norðurlöndum sem menn- ingarheild, skilningi landanna á milli ásamt athugun á þessu norræna lýðræði og félagslega öryggi. Þorsteinn sagði, að þótt þetta boð væri óneitanlega mikils virði, þá hrykki það engu að síður skammt til að fjármagna verkefn- ið í heild sinni, sem hann gizkaði á að næmi um 7 til 10 milljónum króna. Taldi Þorsteinn að tiiboð sænska sjónvarpsins stæði undir sem næst 1/10 af kostnaði við verkefnið, en afganginn yrði hann að fjármagna sjálfur. Þorsteinn kvaðst því hafa í hyggju á næstunni að leita til um 10 innlendra stofnana og fyrir- tækja eftir fjárstuðningi vegna gerðar sjómannamyndarinnar en hins vegar kvaðst hann ekki sjá aðra leið til að standa undir kostnaði við gerð hinnar myndar- innar en að sækja um styrk til Norræna menningarmálasjóðsins. Á þessu stigi væri því ekkert hægt um það að segja hvenær eða hvort honum tækist að hrinda þessum áformum sínum í framkvæmd. Þorsteinn fékk fyrstu verðlaun á fyrstu íslenzku kvikmyndahátíð- inni fyrir heimildamynd sína, Bóndi. . JÉÍ: 1, j * '$&■ ■ •. mtliÉttfiflðÍÉKi Audi Avant kostar frá 4,6 millj. og upp í 4,9 millj. Audi 100 og Audi Avant FYRIR nokkrum árum hóf Hekla h.f. innflutning á Audi bflum frá Þýzkalandi og komu fyrstu bflarnir til lands- ins árið 1974. Hafa þeir tekið nokkrum breytingum á þessum árum og nú er einnig kominn til sögunnar minni gerð, Audi 80 og Audi Avant, sem er frábrugðinn Audi 100 á þann veg að hann hefur stóra gátt að afan og má leggja aftursætið niður til að fá aukið farangurs- rými. Nú eru framleiddir um það bil 1400 Audi bílar á dag og telja v'erksmiðjurnar sig nú vera í sókn á heimamarkaði með tæp- lega 10% markaðarins. Audi er bíll af stærri gerðinni og jafn- framt vandaðri og kostar frá 4,4 m.kr. upp í 4,9 auk þess sem má fá hann með ýmsum aukabúnaði svo sem vökvastýri, sjálfskipt- ingu o.fl. sem þá hækkar verðið. Má því segja að billinn tilheyri efri hluta millistærðarflokka. Audi 100 er um 4,7 m á lengd, 1,76 á breidd, 1,39 á hæð og vegur 1150 kg. Vél er 4 strokka, vatnskæld, 115 hestafla DIN við 5500 snúninga, en einnig má fá hann með 5 strokka vél 136 DIN hestafla. Talið er að eyðslan nemi 13 1 á 100 km en geti farið niður I um 10 1 úti á vegum. Hemlakerfið er tvöfalt með diskum að framan, en skálum að aftan og eru bremsur mjúkar og léttar. Allir venjulegir fylgi- hlutir tilheyra hinni venjulegu útgáfu, þ.e. LS-gerðinni, svo sem öryggisbelti, útispeglar, rafhit- uð afturrúða, höfuðpúðar. Lítil ábending um þægindi er að útispegillinn er stillanlegur inn- anfrá -og er það vissulega hentugt og bendir til þess að mikið er hugsað um þægindi bílstjóra. Fer líka vel um hann undir stýri, sætið styður vel við mjóhrygginn og er stillanlegt eftir þörfum og auðvelt ef að ná til stjórntækja. Gott rými er í aftursæti, einnig fyrir fætur, og stórir gluggar veita mjög gott útsýni. Allur frágangur virðist vand- aður, teppi eru á gólfum og það vekur e.t.v. athygli að stokkur er aftur eftir gólfinu þrátt fyrir að bíllinn sé framhjóladrifinn. En í honum er m.a. komið fyrir púströri, sem hlýtur að reiknast plús þar sem hljóðkútar ættu að vera betur varðir, og síður er nokkuð sem hangir um of niður úr undirvagnjnum. Bflar eftir JÓHANNES TÓMASSON Um akstur er það að segja, að hann er mjög þægilegur, ekki er hávaði frá vél, en nokkuð mikið heyrist í vetrardekkjum eins og alltaf er. Við þessa stuttu athugun á Audi 100 er því ekki neina sérstaka galla að finna, en frekar má hæla honum fyrir vandaðan frágang og þægindi þar sem hugsað er um vellíðan ökumanns og farþega. Audi 100 er rennilegur að sjá. Hann má fá I ýmsum gerðum og kostar frá rúmum 4,4 m.kr. Að innan er allur frágangur vandaður. Auðvelt er að ná til allra stjórntækja og eru þau flest í örmum í stýrinu. Hægt er að beina köldum blæstri á hendur ökumanns undan stýrinu og getur það verið notalegt þegar ekið er í miklum hita, en er e.t.v. sjaldan nauðsynlegt hériendis. 5 strokka vélin er 136 DIN hestöfl og ef hún er tekin hækkar verðið um rúm 430 þúsund kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.