Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
23
Meistaraflokkuri
Einliðaleikur karla*
Fjórðungsúrsliti
Víðir Bragason, ÍA, vann Sigurð Haralds-
son, TBR, 15:1, 10:15, 15:12.
Sigfús Ægir Árnason, TBR, vann Jóhann
Möller, TBR, 15:3 og 15:12.
Sigurður Kolbeinsson, TBR, Brodda
Kristjánsson, TBR, 15:11 og 18:14
Jóhann Kjartansson, TBR, vann Hörð
Ragnarsson, ÍA, 15:5 og 15:4.
Undanúrsliti
Sigfús Ægir vann Víði Bragason 15:11 og
15:4.
Jóhann vann Sigurð 15:5, 15:17 og 15:7.
Úrsliti
Jóhann vann Sigfús 15:11 og 15:3.
Einliðaleikur kvennat
Undanúrsliti
Lovísa Sigurðardóttir, TBR, vann Kristínu
Kristjánsdóttur, TBR, 4:11, 12:9 og 11:7.
Kristín Magnúsdóttir, TBR, vann Hönnu
Láru Pálsdóttur, TBR, 11:0 og 11:8.
Úrsliti
Kristín vann Lovísu 10:12, 11:7 og 11:3.
Tvíliðaleikur kvennai
Undanúrsliti
Kristín Kristjánsdóttir og Kristín
Magnúsdóttir, TBR, unnu Sif Friðleifs-
dóttur og örnu Steinssen, KR, 10:15, 15:6
og 15:3.
Lovísa Sigurðardóttir og Hanna Lára
Pálsdóttir, TBR, fengu sinn leik gefinn.
Úrsliti
Lovísa og Hanna Lára unnu Kristínu og
Kristínu 11:15, 15:4 og 15:7.
Tvenndarleikuri
Undanúrsliti
Sigurður Haraidsson og Hanna Lára unnu
Brodda Kristjánsson og Kristínu Magnús-
dóttur, 17:14 og 15:9.
Jóhann Kjartansson og Kristín Kristjáns-
dóttir unnu Sigfús Ægi og Vildísi
Kristmannsdóttur, KR, 15:3 og 15:5.
Úrsliti
Jóhann og Kristín unnu Sigurð og Hönnu
Láru 10:15, 15:2 og 15:12.
Tvíliðaleikur karla.
Undanúrsliti *
Árni Sigvaldason, BH og Þórhallur
Jóhannesson, Val, unnu Ágúst Jónsson og
ur Jónasdóttir, ÍA, unnu Ásu Gunnars-
dóttur, Val, og Jórunni Skúladóttur, TBR,
15:11 og 15:11.
Tvenndarleikuri
Undanúrsliti
Skarphéðinn Garðarsson og Jórunn Skúla-
dóttir, TBR, unnu Helga Magnússon og
Ragnnheiði Jónasdóttur, ÍA, 11:15, 15:7 og
15:7.
ÁVISUDS«U
í p AnMlNTQN-
Sigurð Ágúst Jenssson, KR, 12:15, 15:8,
15:6.
Guðjón Jónsson og Gunnar Jónatansson,
Val, unnu Skarphéðinn Garðarsson og
Walter Lentz, TBR, 11:15, 15:6 og 15:3.
Úrsliti
Árni og Þórhallur unnu Guðjón og
Gunnar 15:10 og 15:11.
Einliðaleikur kvennat
Undanúrsliti
Ása Gunnarsdóttir, Val, vann Hlaðgerði
Laxdal, KR, 12:11 og 11:7.
Ragnheiður Jónasdóttir, í A, vann Jórunni
Skúladóttur, TBR, 11:5 og 12:10.
Úrsliti
Ragnheiður vann Ásu 11:6 og 11:1.
Tvfliðaleikur kvennai
Jóhanna M. Steindórsdóttir og Ragnheið-
Þórhallur Jóhannesson og Ása Gunnars-
dóttir, Val, unnu Walter Lentz og
Hlaðgerði Laxdai, KR 15:8, 6:15 og 15:6.
Úrsliti
Þórhallur og Ása unnu Skarphéðinn og
Jórunni 9:15, 15:7, 18:14.
Öðlingaílokkuri
Einliðaleikur karia.
Jón Árnason, TBR, vann Garðar Alfons-
son, TBR, 15:7 og 15:1.
Tvfliðaleikur karla.
Garðar Alfonsson og Kjartan Magnússon,
TBR, unnu Hæng Þorsteinsson og Viðar
Guðjónsson, TBR, 15:11 og 15:9.
Tvenndarleikur.
Jón Árnason og Hulda Guðmundsdóttir,
TBR, unnu Kjartan Magnússon og Snjó-
laugu Sveinsdóttur, TBR, 15:9 og 18:16.
BIKARMÓTÍA
í BADMINTON
BIKARMÓT ÍA í badminton í
öllum flokkum unglinga fór fram
í íþróttahúsinu á Akranesi laug-
ardaginn 25. mars. Helstu úrslit
uröu sem hér segir>
Piltar — einliðaleikur
Broddi Kristjánsson TBR.
Piltar — tvíliðaleikur
Guðmundur Adolfsson TBR og
Skarphéðinn Garðarsson.
Piltar og stúlkur
Sigurður Kolbeinsson og Sif Frið-
leifsdóttir.
Drengir — einliðaleikur
Þorgeir Jóhannsson TBR.
Telpur — einliðaleikur
Kristín Magnúsdóttir TBR.
Drengir og telpur
Þorgeir Jóhannsson og Kristín
Magnúsdóttir.
Sveinar — einliðaleikur
Þorsteinn P. Hængsson TBR.
Sveinar — tvíliðaleikur TBR
Gunnar Mýrdal og Þórhallur
Ingason IA.
Sveinar og meyjar
Þorsteinn Hængsson og Mjöll
Daníelsdóttir
Meyjar — einliðaleikur
Ingunn Viðarsdóttir IA.
Meyjar — tvíliðaleikur
Elín Gylfadóttir og Elísabet
Þórðardóttir TBR
Ilnokkar — einliðaleikur
Árni Þór Hallgrímsson ÍA
Tátur — einliðaleikur
Þordís Klara Bridde TBR
Kristín Magnúsdóttir
— íslandsmeistari í einliðaleik kvenna.
HINN 18 ára gamli Jóhann
Kjartansson úr TBR gerði sér
lítið fyrir á sunnudaginn og varð
þrefaldur íslandsmeistari í bad-
minton. Var Jóhann vel að
þessum meistaratitlum kominn
og tók hann við hlutverki félaga
síns, Sigurðar Haraldssonar, sem
varð þrefaldur meistari á íslands-
mótinu fyrir ári. Á mótinu nú
gerðist það að hin kornunga
Kristín Magnúsdóttir, aðeins 13
ára gömul, bar sigurorð af Lovísu
Sigurðardóttur í einliðaleik
kvenna og var þetta í fyrsta
skipti í um 20 ár, sem Lovísa varð
ekki meistari í greininni.
Á íslandsmótinu, sem fram fór
í Laugardalshöllinni á laugardag
og sunnudag kom glögglega fram
hin aukna breidd, sem skapast
hefur í íþróttinni og einnig fór það
ekki framhjá neinum, að ný
kynslóð er nú að taka völdin í
íþróttinni. Þannig var Sigurður
Haraldsson sleginn út í fjórðungs-
úrslitum á móti Skagapiltinum
Víði Bragasyni og þó svo að þeir
Sigfús Ægir og Jóhann kepptu til
úrslita í einliðaleiknum voru það
þó ungu mennirnir, sem mesta
athygli vöktu, einkum Jóhann,
Sigurður Kolbeinsson og Broddi
Kristjánsson.
í einliðaleik karla var ekki um
mikla keppni að ræða í úrslitun-
um, Jóhann virkaði alltaf sterkari,
en þurfti þó að hafa fyrir sínu
framan af fyrri leiknum. I einliða-
leik kvenna var aftur á móti um
mikla baráttu að ræða milli Lovísu
og Kristínar, en sú síðarnefnda
hafði vinninginn í aukalotu, 11:3,
en þá var úthald Lovísu greinilega
þorrið.
I tvíliðaleiknum í meistaraflokki
áttust þeir við Sigurður og Jóhann
á móti Haraldi Kornelíussyni og
Steinari Petersen í úrslitum.
Fyrstu lotuna unnu þeir fyrr-
nefndu örugglega, eftir að staðan
var 4:4 breyttist hún snarlega í
13:14 og Sigurður og Jóhann unnu
síðan 15:6. í 2. lotunni gáfu þeir
Haraldur og Steinar ekkert og
unnu lotuna 15:10 eftir mikla og
skemmtilega baráttu. Sömu tölur
Þrefalt hjá
JÓHANNI
urðu síðan í oddaleiknum, en nú
voru það þeir Sigurður og Jóhann
sem unnu og tryggðu sér íslands-
meistaratitilinn. Þeir voru vel að
sigrinum komnir, en það verður þó
að segjast að þeir höfðu nokkra
meistaraheppni með sér.
I keppni kvenfólksins héldu þær
Lovísa og Hanna Lára sínum hlut
í tvíliðaleiknum á móti Kristínun-
um, Magnúsdóttur og Kristjáns-
dóttur, þannig að kynslóðaskiptin
eru enn ekki algjör. í tvenndar-
leiknum hins vegar sigruðu Jó-
hann og Kristín Kristjánsdóttir
eftir mikla spennu í oddaleik á
móti Sigurði og Hönnu Láru, þar
sem allir aðilar voru greinilega
orðnir þreyttir og gerðu því
óeðlilega mörg mistök.
í keppninni í a-flokki skiptust
verðlaunapeningarnir nokkuð, en
þeir Þórhallur Jóhannesson og
Aðalsteinn Huldarson vöktu
mesta athygli. í þessum flokki var
meðal keppenda og stóð sig vel,
Skarphéðinn Garðarsson, sonur
Garðars Alfonssonar.
í öðlingaflokki var Jón Árnason,
TBR, maður mótsins, hann vann
örugglega í einliðaleiknum og í
tvenndarkeppni ásamt Huldu
Guðmundsdóttur. í úrslitunum
mættu þau foreldrum Jóhanns
Kjartanssonar, þeim Kjartani
Magnússyni og Snjólaugu Sveins-
dóttur. Þess má geta að eftir að
Jón Árnason hafði fengið gott
nudd á sunnudagsmorgun dreif
hann sig í golf vestur á Nes, spilaði
þar 9 holur. Góð upphitun fyrir
badmintonið, sagði hann.
GOTT AF ÞVÍ AÐ
SPILA VIÐ DANANN
Að lokinni keppninni á sunnu-
daginn var Jóhann Kjartansson
eðlilega mjög ánægður með árang-
urinn, en hann varð nú í fyrsta
skipti íslandsmeistari í einliðaleik.
Undanfarin tvö ár hefur Sigurður
Haraldsson tekið þann titil og
Haraldur Kornelíusson fimm árin
þar á undan. I vetur hefur
Sigurður hins vegar ekki getað æft
sem skyldi, þar sem hann stundar
nám við Háskólann. Sigurður
kemst af þeirri ástæðu ekki með
landsliðinu til Færeyja í næsta
mánuði. Til þeirrar farar hafa
verið valdir Jóhann Kjartansson,
Sigfús Ægir Árnason, Sigurður
Jóhann Kjartansson mundar spaðann í úrslitaleikn-
um í einliðaleiknum gegn Sigfúsi Ægi Árnasyni.
(Ljósm. RAX).
Kolbeinsson, Haraldur Kornelíus-
son og Steinar Petersen.
Jóhann sagði að keppnin við
Færeyinga yrði í rauninni ekki
nema góð skemmtun fyrir íslenzka
liðið, því á undanförnum árum
hefði orðið mjög miklar framfarir
í íþróttinni hérlendis, en Færey-
ingarnir hins vegar staðnað og þar
hefði ekki orðið endurnýjun í
íþróttinni.
Jóhann sagðist æfa fimm sinn-
um í viku og það væri sízt of mikið
ef árangur ætti að nást. Það væri
ekki lengur hægt að dútla í
badminton og mæta síðan á mót
og hirða verðlaunapeninga. Að-
spurður um hvort danski þjálfar-
inn, sem staddur er hér á landi á
vegum BSI, hefði þjálfað hann
fyrir þetta Islandsmót, sagði
Jóhann svo ekki vera. Hins vegar
hefði hann spilað talsvert við hann
undanfarnar vikur og haft mikið
gagn af því, maðurinn væri snjall
spilari og léki auk þess allt öðru
vísi, en íslenzkir badmintonmenn.
Þess má að lokum geta að auk
Jóhanns og foreldra hans, Kjart-
ans og Snjólaugar, var Sveinn
Kjartansson, bróðir Jóhanns mjög
sterkur badmintonspilari fyrir
nokkrum árum, en hann er nú
læknir á ísafirði. Systur eiga þeir
bræður, en hún spilar þó ekki
badminton, en leikur á fiðlu í
staðinn, eins og Jóhann orðaði það.
— áij
Kynslóðaskiptí á íslandsmótinu í badminton