Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 48
U <;I.YSINí;ASIMI\\ ER:
22480
Al''(ÍI.YSIMÍASIMIW ER:
22480
Jílorfluublníiiö
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
LEÓ VE Á ÞYKKVABÆJARFJÖRU.
Rétt í þann mund sem Leó fór á
hliðina 1 fjörunni féllu gúmmfbátar
skipsins útbyrftis og blésust upp. Sjá
frétt ok fleiri myndir af strandstað á
bls. 29.
Mbl. RAX
Ú tflutningsbannið:
Búizt við að bannið komi til framkvæmda
15. til 17. apríl - eitt félag boðar 10. apríl
Verkamannasamhand ís-
lands hélt í gær fund, þar
sem fjallað var um tilmæli
Læknamálið:
A annað þús.
manns þarf
að yfirheyra
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins vinnur nú af fullum
krafti að rannsókn læknamáls-
ins svokallaða. Svo sem fram
hefur komið í fréttum leikur
Krunur á því. að Jæknir einn
hafi dregið að sér fé út úr
tryKgingakerfinu á þann hátt
að taka jjreiðslur fyrir læknis-
Framhald á bls. 30.
10-manna nefndar ASÍ um
að félögin boðuðu aðgerðir,
sem kæmu í veg fyrir út-
flutning einhvern tíma eftir
10. apríl. Verkamannasam-
bandið ákvað að senda út í
aðildarfélög sín þessi til-
mæli og munu nú stjórnir
félaganna taka þessi tilmæli
til athugunar. Er búizt við
því, að útfiutningsbann
verði boðað um miðjan apríl-
mánuð.
Tilmæli Verkamannasambands-
ins munu hafa verið þau að
aðgerðir yrðu boðaðar eins fljótt
og auðið væri. Mestar líkur eru á
að útflutningsbann geti orðið að
veruleika 15. eða 17. apríl, sem eru
laugardagur og mánudagur.
Eitt félag hefur boðað verkfall
við hafnarvinnu og útskipun. Er
það Verkamannafélagið Fram á
Seyðisfirði, sem boðað hefur verk-
fall frá og með 10. apríl. Það
verkfall er þó dálítið öðru vísi til
orðið, þar sem inn í það fléttast
deila um útskipun á loðnumjöli frá
Síldarverksmiðjum ríkisins. Hefur
þar verið breytt um vinnutilhögun,
menn hafa byrjað að flytja mjölið
ósekkjað og í sambandi við það
fellur niður greiðsla, sem verka-
menn höfðu á hvert tonn fyrir að
þurfa að handlanga sekki.
Enn hefur engin ákvörðun verið
tekin um það meðal vinnuveitenda,
Fleiri Eyja-
bátar kærðir
vegna óleyfi-
legs þorskafla
„SAMKVÆMT þeim gögnum.
sem okkur hafa borizt í hendur,
þá hafa orðið einhver brögð að
því, að bátar hafi komið með
meiri þorsk að landi þann tíma,
sem þorskveiðibannið stóð yfir,
en heimilt var, en það voru 15%,“
sagði Þórður Ásgeirsson skrif-
stofustjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Þórður sagði, að nokkrir Eyja-
bátar aðrir en þeir sem voru
kærðir í páskavikunni, hefðu
komið með meiri þorsk að landi en
leyfilegt hefði verið og mál þess-
ara báta væru nú í rannsókn. Að
sögn Þórðar mun þó hafa verið um
lítinn óleyfilegan afla að ræða hjá
þessum bátum. Um togarana sagði
Þórður, að ekki hefði borið á, að
þeir hefðu komíð með meiri
þorskafla að landi en heimilt var.
VMSI vísaði málinu
áfram til aðildarfélaga
hvernig þeir bregðast við þessum
aðgerðum aðildarfélaga ASÍ, enda
eru engar formlegar boðanir
komnar fram nema frá verkalýðs-
félaginu á Seyðisfirði.
Fundur vinnuveitenda með
ríkisstjórn hafði ekki verið ákveð-
inn í gær, en búizt er við því að
hann verði einhvern næstu daga.
Vinnuveitendur ætla að ræða þar
vandamálin við stjórnvöld í fram-
haldi viðræðna, sem farið hafa
fram milli aðila vinnumarkaðarins
um kaupmátt og ígildi samning-
anna frá því í sumar.
Selja Hólm
á strandstað
Eigendur og tryggingaraðilar
færeyska flutningaskipsins
Hólms sem strandaði við Olafs-
fjörð í síðustu viku hafa verið
nyrðra, til þess að kanna
aðstæður og möguleika á björg-
un skipsins, en tilraunir land-
helgisgæzlunnar í því efni báru
ekki árangur. Munu eigendur
skipsins nú hafa. ákveðið að
selja Hólm á strandstað, en þar
stendur skipið á kili í sandin-
um. Um 100 tonn af salti eru í
skipinu.
Engin ákvörðun tekin
um ný viðmiðunarmörk
vegna smáfisksdráps
Hafrannsóknastofnunin gcrði
það að tillögu sinni í byrjun þessa
árs að viðmiðunarmörkum þeim,
sem giitu s.l. ár, og gripið var til
vegna skyndilokunar sva“ða, yrði
breytt á þessu ári, þannig að í
stað þess að þegar 40% af fjölda
þorska væri undir 58 sm yrði
miðað við 20% af fjölda þorska
undir 58 sm fram til 1. júlí og
siðan 20% af fjölda undir 62 sm
það sem eftir er ársins. Þegar
Morgunblaðið innti Matthías
Framhald á bls. 30.
Bílatollsvikin:
Milljónatugir voru
hafðir af ríkissjóði
RANNSÓKN bílamálsins svo-
nefnda er vel á veg komin hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Þegar hefur verið kannaður
innflutningur eitthvað á annað
hundrað bifreiða, aðallega frá
Þýzkalandi, og liggur ljóst
fyrir samkvæmt upplýsingum
Rannsóknarlögreglunnar að fé
hefur verið haft af ríkissjóði í
formi tolla og innflutnings-
gjalda svo að skiptir mörgum
milljónatugum, ef upphæðirnar
eru reiknaðar yfir til verðlags
í dag. Björn Hermannsson
tollstjóri staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að cmbætti
hans hefði sent nokkrum aðil-
um kröfur um greiðslu við-
bótargjalda vegna innflutnings
einstakra bifreiða og hafa
kröfurnar verið á bilinu 100 til
600 þúsund krónur auk vaxta.
Eins og fram kom í fréttum á
sínum tíma vaknaði grunar um
að ákveðinn maður, sem stund-
aði þá atvinnu að flytja inn
notaða bíla, hefði staðið í
stórfelldu svindli í sambandi við
innflutninginn. Var maðurinn
af þessum sökum hnepptur í
gæzluvarðhald en honum var
sleppt úr varðhaldinu fyrir
nokkrum vikum. í ljós kom að
hann hafði á árunum 1972—‘77
flutt inn mikinn fjölda notaðra
bifreiða ýmist í eigin nafni eða
fyrir aðra. Hafði hann stundað
margvíslegt fals í sambandi við
innflutninginn en í öllum til-
fellunum falsaði hann vöru-
reikninga að því er Rannsóknar-
lögreglan tjáði Mbl.
Fyrst beindist athyglin að
Framhald á bls. 30.