Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 + Eiginmaöur minn VILHJÁLMUR HÓLMAR VILHJÁLMSSON, flugmsður og (öngvari, ÁHaakaiði 125, Hafnarfirði, sem lézt af slysförum aöfararnótt þriöjudagsins 28. marz s.l. í Luxemborg, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í dag þriöjudaginn 4. apríl kl. 3 e.h. Fyrir hönd barna, annarra ættingja og vina. Þóra Guómundadóttir. + Móöir okkar. UNNUR GÍSLADÓTTIR SMITH, kennari, Eskihlíð 18, andaöist sunnudaginn 2. aprfl. Gunnar Sigurðsson, Ólafur Sigurðsson, Einar Páll Smith. + Elskulegur eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, BJARNI GUOMUNDSSON, bitreióaatjóri, Hólmgaröi 20, lézt aö heimili sinu, aöfararnótt 3. apríl. Magnea Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Maöurinn minn, BOGI PÉTUR THORARENSEN, frá Kirkjubte á Rangárvöllum, andaöist miðvikudaginn 22. marz. Útförin hefur fariö fram. Steinunn Thorarenaen. + Eiginmaöur minn og faöir LEIFUR GUNNARSSON, lést í Landsspítalanum að morgni 2. apríl. Fyrir hönd annarra vandamanna. Hulda Jónedóttir, Brynjar Leifeeon. + Eiginmaöur minn, HARALOUR G. DUNGAL, tannlteknir, lézt þ. 31. marz, s.l. Fyrir hönd aöstandenda. Inga Bima Dungal. + Elskuleg móðir okkar og tengdamóöir. GUÐBJÖRG FRIORIKSDÓTTIR, Faxabraut 11, Keflavík, andaöist aö kvöldi 1. april á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Garðar Magnúason, Sigriður Benediktedóttir, Sigríður Magnúedóttir, Róbert Birdsall. + SIGRÍDUR ÓLAFSOÓTTIR, Birkilundi við Vatneveituveg, veröur jarösungin á morgun, miövikudag 5. apríl frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Páll Melsted Ólafsson, Hulda Guðmundsdóttir, Svavar Guóni Svavarsson, Brynhildur Ingólfsdóttir, Óskar S. Ólafsson, Lára Loftsdóttir, og barnabörn. + Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, GEIRS H. ZOÉGA, forstjóra, Kleifarvegi 8, Reykjavík. fer fram frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Anna Zoðga, Tómas og Jóhanna Zoöga og börn. Rósa Jónsdóttir —Minningarorö Fædd 15. ágúst 1888. Dáin 26. marz 1978. Að kvöldi páskadags s.l. andaðist hér í borg Rósa Jónsdóttiiriir Nesvegi 65. Hún var fædd í Eyjum í Breiðdal, S. Múl. 15. ágúst 1888. Foreldrar hennar voru hjónin Anna Eiríksdóttir og Jón Bjarna- son bóndi þar. Rósa ólst upp á heimili foreldra sinna ásamt bróður sínum Sigurði. Um tvítugsaldur lyst hún með fjölskyldu sinni að Ósi í Breiðdal. Æskuheimili hennar var orðlagt fyrir gestrisni og glaðværð og sá heimilisbragur hefur ætíð sett svip sinn á hennar heimili, allt til dauðadags. Um tvítugt fór hún til Reykjavíkur og nam fatasaum hjá Andrési Andréssyni klæðskera. Árið 1914 urðu þátta- skil í lífi hennar, en þá trúlofaðist hún Emil Guðmundssyni frá Felli í Breiðdal. Eignuðust þau eina dóttur, Huldu, en hún er gift Birni Bjarnasyni bónda í Birkihlíð, Skriðdal. Samvistir Rósu og Emils urðu ekki langar því að ári síðar eða 1915 andaðist Emil úr berkl- um. Þremur árum síðar eða 18. júlí giftist Rósa eftirlifandi manni sínum Sigurpáli Þorsteinssyni frá Flögu í Breiðdal. Það eru því tæp sextíu ár sem sambúð þeirra hefur staðið. Þau hjónin hófu búskap sama árið á Ósi í sambýli við bróður Rósu,Sigurð og konu hans Jóhönnu Sigurðardóttur. Á Ósi eignuðust þau fjögur börn þau voru: Anna kennari gift Magnúsi Þórarinssyni kennara en þau eru bæði látin; Bergur múrari, kvæntur Rósu Reimarsdóttur; Guðbjörg gift Sigtryggi Runólfs- syni húsasm. og Nanna, gift Hilmari Elíassyni húsasm., en þau hafa verið búsett í Svíþjóð síðast- liðin 8 ár. Þau bjuggu á Ósi næstu 19 árin eða til ársins 1937, er þau fluttust að Hóli í sömu sveit. Auk þeirra fimm systkinanna ólu þau upp tvö dótturbörn sín; Jón Guðlaug Sig- tryggsson bifreiðastjóra sem er ógiftur, og Sigrúnu Sigtryggsdótt- ur gifta Emil Karlssyni húsgagna- smið. Eftir að þau fluttust að Hóli bjuggu þau í sambýli við dóttur sína og tengdason, Önnu og Magnús, foreldra mína. Þó heimili þeirra hjóna væri stórt og gestakoma tíð, enda í þjóðbraut, var ætíð tími til að hjálpa því samferðafólki sem átti í erfiðleikum. Rósa var sérstaklega nærgætin og hlý við sjúka og tók á móti mörgum börnum. í Breiðdal var starfapdi um margra ára skeið líknarfélag, Einingin, og var hún virkur félagi í því og í stjórn þess um langt skeið. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp á Hóli fyrstu ár ævi minnar og eftir að ég fluttist þaðan með foreldrum mínum og bróður var hugurinn samt heima á Hóli hjá afa og ömmu. Árið 1954 brugðu þau búi og fluttust til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu í sambýli við son sinn og tengdadóttur, Berg og Rósu, til hinstu stundar. Á því heimili ríkti sérstakur samhugur og eindrægni svo leitun er á öðru eins. Ættar- tengsl þessarar fjölskyldu eru mjög sterk en afkomendur þeirra eru orðnir 79 talsins. Amma var skapmikil kona og trygglynd, öll börn hændust að henni, því hjá henni fundu þau það örygg' sem börn þarfnast, og lítilmagninn átti góðan málsvara þar sem hún var. Síðustu fjögur árin hefur hún háð harða baráttu við erfiðan sjúkdóm og í því veikindastríði heyrðist hún aldrei kvarta. í þessum veikindum naut hún sér- stakrar umhyggju eftirlifandi eiginmanns síns, tengdadóttur og sonar. Með henni er genginn einn fulltrúi þess fólks, sem varð lengst af að heyja lífsbaráttuna við mjög frumstæð skilyrði, án allra nútíma lífsþæginda, en leit þó ætíð björtum augum á lífið. Hún var ekki úr hópi kröfugerðarmanna, heldur spurði: „Hvað get ég gert fyrir þig? Hvernig get ég orðið öðrum að liði?“ Nú hefur hún lagt upp í sína hinstu för, og leiðir okkar skiljast um stund. Minningin um ömmu mína er með þeim dýrmætustu sem ég og fjölskylda mín eigum og fyrir það erum við þakklát. Við biðjum góðan Guð að blessa minningu hennar og styrkja afa í söknuði sínum. Páll R. Magnússon. í dag er til moldar borin amma okkar, Rósa Jónsdóttir. Við getum aldrei fullkomlega þakkað elsku- legri ömmu okkar fyrir alla þá gæsku, sem hún sýndi okkur bræðrunum. Hún var alltaf til- búin, að rétta huggandi og hug- hreystandi faðm á móti öllum börnum, sem til hennar komu. Skilningsríkari manneskju gat maður vart hugsað sér. Það var alltaf hægt að treysta ömmu fyrir öllu. Það var sama hvað amaði að. I öllum veikindum sínum heyrð- ist aldrei nein kvörtun, nei, æðruleysið sem amma okkar sýndi, mun seint gleymast. Þótt við ritum þessar fáu línur, geta þær aldrei fullkomlega þakk- að það sem hún var okkur. Guð veri með ömmu. Sonarsynir. Að kvöldi páskadags barst mér sú fregn að amma væri dáin, og í dag þegar hún er til moldar borin er margs að minnast, sérstaklega frá mínum bernskuárum. Þegar ég var ársgamall og bróðir minn fæddist, flutti ég mig til ömmu og afa og var eftir það meira hjá þeim en foreldrum mínum fram til fermingaraldurs. Amma var alltaf tilbúin að rétta okkur hjálparhönd og taka svari okkar í hvívetna, jafnvel þótt við gerðum eitthvað sem ekki mátti gera. Þar sem bróðir minn hefur lýst lífsferli hennar, mun ég ekki rekja hann. Þó get ég ekki stillt mig um að geta þess, að ég minnist þess ekki að amma gæti nokkurn tíma reiðst það mikið að hún segði styggðaryrði til nokkurs manns, heldur gekk hún í burtu á meðan hún var að ná valdi á skapi sínu, þar sem hún var skapmikil og greind kona. Það má segja að hún hafi haldið öllu sínu til hinstu stundar án þess að gleyma nokkru þótt veikindi hafi hrjáð hana hin síðustu ár og að með henni sé gengin enn einn tengiliður á milli gamla tímans og þess nýja. Amma hafði sérstakt yndi af ferðalögum, en þeirri löngun sinni gat hún ekki sinnt fyrr en eftir að hún fluttist til Reykjavíkur, þótt aldrei færi hún neina langferð í nútíma merkingu. Amma kom norður í Ólafsfjörð og hélt mínu yngsta barni undir skírn þegar hún var áttræð, kom hún i nokkur ár eftir það, ennfremur fór hún austur á land til dóttur sinnar. Ekki fóru langömmu drengirnir fyrir norðan varhluta af hennar umhyggju og hjartahlýju, sem veitt var í ríkum mæli. Þá má segja að ömmu minni væri betur lýst með orðum í kvæði Árna Björnssonar, en ég gæti gert í langri grein með mínum fátæklegu orðum. Ámeðan tungan geymir góðar sögur mun gildi þinna miklu verka sjást bétt hár þín gráni ertu alltaf fögur ok ung og sönn í þinni tryggð og ást. Þótt atundum dapri.st Ijómi bjartra bauga ok hrosin sólar hylji hin myrku ský. Þá fellur aldrei fölvi á móður auga scm fÖKur sál og guðotrú Ijómar f. Að endingu vil ég og fjölskylda mín þakka Rósu og Bergi fyrir hversu góð þau reyndust ömmu alla tíð, þar sem hún fékk að starfa og njóta sín allt til hins síðasta eftir því sem heilsa og kraftar leyfðu. Við viljum biðja guð að blessa afa og minningu ömmu. Gunnar Þór Magnússon. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUDRÚN MAGNÚSDÓTTIR, Hringbraut 101, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikud. 5. apríl kl. 3 e.h. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanlr. Guðmundur Guðmundsson, Páll í. Guðmundsson, Kristjana M. Guðmundsdóttir, Ástráður Valdimarsson, og barnabörn. + Móöir okkar, MAGNÍNA SALÓMONSDÓTTIR, lézt í sjúkrahúsi ísafjaröar 1. apríl. Haraldur Jónsaon, Sigurður Jónsson, Ágúst Jónsson. + . Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi GUÐMUNDUR INGVAR ÁGÚSTSSON, kaupmaður, Rauðagerði 52, sem andaöist þann 26. marz s.l., veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju miövikudaginn 5. apríl n.k. kl. 10.30. Guðfinna Ólafsdóttir, Maja Guðmundsdóttir, Hafliöi Björnsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Kristján Guðmundsson, Kristbjörg Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Guðmundadóttir, Benedikt Eypórsson, og barnabörn. + LOVÍSA GUÐMUNDSDÓTTIR, Grjótá, Garöahverfi, veröur jarösungin frá Garöakirkju miövikudaginn 5. apríl, kl. 1.30. Jarösett veröur í Hafnarfjaröarklrkjugarði. Tryggvi Gunnarsson, Skúli G. Tryggvaaon, Björg Pálmadóttir, Hulda Tryggvadóttir, Hörður Þorleifsson,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.