Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 25
24 25 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 STAÐAN í 1. DEILD ENNÞÁVON HJÁ VAL EFTIR SIGUR YFIR ÍR VALUR hefur ennþá miÍKuleika á því að halda meistaratitlinum í handknattleik eftir sigur yfir ÍR á sunnudagskvöldið 18.17 en sá möguleiki byggist á því að Víkingarnir tapi a.m.k. þremur stigum í þremur síðustu leikjum sínum. Það er ekki hœgt að segja með sanni að Valsmenn hafi vcrið sannfærandi í leik sínum við ÍR, þvert á móti léku þeir mjög laklega og hefðu ekki verðskuldað nema annað stigið. Eftir að hafa horft á leik toppliðanna Víkings og Hauka á undan voru það mikil viðbrigði að fylgjast með viðureign IR og Vals. Handknattleikurinn, sem liðin buðu upp á, var mörgum gæða- flokkum fyrir neðan það, sem sést hafði í fyrri leik kvöldsins. Fyrri hálfleikurinn var ákaflega sveiflukenndur. Um miðjan fyrri hálfleikinn var staðan 4:3 fyrir Val én þá skoruðu ÍR-ingar fjögur mörk í röð og komust yfir 7:4. En Valsmenn gáfust ekki upp og náðu að jafna fyrir hlé 7:7. Eins og hin lága markatala gefur kannski til kynna var sóknarleikur liðanna fálmkenndur í fyrri hálfleik og mikið um mistök hjá báðum liðum. Þetta breyttist ekki í seinni hálfleik. Liðin skipt- ust þá á um að hafa eins marks forystu en þegar 8 mínútur voru til leiksloka komust Valsmenn tvö mörk yfir 16:14. en ÍR-ingarnir náðu að jafna 16:16, Valsmenn komust í 17:16, IR náði aftur að jafna en á lokamínútunni tryggði Þorbjörn Jensson Val sigur með lausu skoti, sem Jens markvörður hafði nærri varið. ÍR-ingarnir brunuðu upp völlinn en síðasti vonarneisti þeirra var slökktur þegar Vilhjálmur stökk inn í horninu á lokasekúndunum og dæmd var á hann lína. Valsmen reyneu að %eika mjög hraðan s 'knarleik a þessu sinnien þeir réðu ekki sullkomlega viðhraðann g sóknin var öví heldur bitlaus. Þrir menn voru áberandi bezt%r hjá jval í þessum leik, Jón Pétur Jónsson, Stefán Gunnarsson og Steindór Gunnars- son. Lið IR leikur sterkan varnarleik og Jens markvörður varði oft á tíðum mjög vel en sóknarleikur ÍR-inganna er ákaflega máttlaus og tilþrifalítill og líklega er ÍR það lið 1. deildar, sem leikur lakasta sóknarleikinn. En það skal endur- tekið að vörn liðsins er góð, með þeim betri sem þekkjast í deild- inni. Mörk Vals: Jón Pétur Jónsson 5, Steindór Gunnarsson 4, Þorbjörn Guðmundsson 3, Jón H- Karlsson 2, Stefán Gunnarsson 2, Þorbjörn Jensson og Bjarni Guðmundsson 1 mark hvor. Mörk Vals: Bjarni Bessason 5, Brynjólfur Markússon 3, Vilhjálm- ur Sigurgeirsson 3 (1 v), Jóhann Ingi Gunnarsson 2, Ársæll Haf- steinsson 2, Guðmundur Þórðar- son og Ásgeir Elíasson 1 mark hvor. Misnotuð vítaskot: Jens Einars- son varði vítakast frá Jóni H. Karlssyni í f.h. Brottvísanir af velli: Engin. Dómarar voru Kjartan Stein- baeh og Kristján Ö. Ingibergsson og dæmdu þeir leikinn vel. - SS. Arsæll Hafsteinsson hendir sér inn í vítateig Vals og skorar framhjá Brynjari markverði. Bjarni Guðmundsson reynir einnig að koma við vörnum en án árangurs. Ljósm. RAX. 0%, FRÁ ÞVÍ fyrir páska hafa 5 leikir veriö afgreiddír í deildinní, prír leiknir og tveir gefnir. Eftir tvo fyrstu leikina af Þessum 5 var Ijóst orðió, aö Eyjaliðið Þór heföi tryggt sér sigursætið. Og hafa Þórsarar raunar pegar verið krýndir sigurvegarar. Á hinn bóginn liggur ekki enn fyrir, hvort Breiðablik eða hitt Eyjaliðið, Týr, hreppir 2. sætiö í deildinni og par með rétt til pess að leika tvo leiki við næst neðsta lið í 2. deild um sæti par. Þessí félög standa jöfn að stigum, en Breiðablik á hins vegar leik til góða, við Keflavík, sem leikinn verður að Varmá á miövikudaginn kl. 21.00. Nái Breiðablik stigi úr peim leik, er 2. sætið peirra, en að öðrum kosti kemur til aukaleikja um pað. AFTURELDING — BREIÐABLIK 24:22. í upphafi ætluðu Blikarnir sér sýnílega sigur en ekkert annað og komust fljótt í nokkurra marka forystu. En Mos- fellingar voru á hinn bóginn ekki á pví að gefa sig, heldur staðráðnir í að hefna fyrir fyrri ósigra í vetur gegn Blikunum. Þeir höfðu heldur engu að tapa í deildinni. Og svo fór, aö Mosfellingar héldu leikgleði sinni til enda, en leikmenn Breiðabliks hrein- lega töpuðu áttum og á löngum köflum var varla heil brú í leik peirra. Þó tóku Blikarnir sig ögn á undír lokin, en of seint. Þriðji tapleikur peirra í deildinni varö staðreynd. 3. deild karla í handknattleik; UBKstefnir áaukaleik ÞÓR — TÝR 19:16. Þessa leiks haföi verið beðið með eftirvæntingu, enda réðu úrslit hans miklu fyrir bæði félögin og Breiðablik einnig. Því er skemmst frá að segja, að Þórsarar höfðu yfirhöndina leikinn á enda og tryggöu sér par með sigursætið í deildinni og sæti í 2. deild næsta tímabíl. En Týrarar, sem skömmu áður höfðu tapað fyrir Blikunum, misstu um leið að mestu vonina um 2. sætið í deildinni. Þetta varð fjórði tapleikur peirra. Hátt í 700 manns horfðu á pennan leik, sem er alger metaðsókn á 3. deildar leik, og myndu mörg félög í 1. deild mega gera sig ánægð meö slíka aðsókn um pessar mundír. BREIOABLIK — AKRANES 23:20. Það er greinilega skrekkur í Blikunum í pessum leik, eftir tapið gegn Aftureld- ingu. Þó komust peir í nokkra forystu framan af fyrri hálfleik, 2—3 mörk, en Akurnesingum tókst að jafna og komast marki yfir. Þá tóku Blikarnir sprett og höfðu tvö mörk yfir í leikhléi. Framan af seinni hálfleik héldu Þeir strikinu og komust í 7 marka forystu. En undir lokin færöist harka í leikinn, sem ætlaði aö veröa Blikunum dýr, Akurnesingar söxuöu á og rétt fyrir leikslok voru Blikarnir orönir aðeins 5 inná. Þeim tókst pó aö innbyrða sigur, sem hefði átt að verða mun stærri. ÞÓR og TÝR fengu síðan sín 2 stigin hvort félag frá DALVÍK, en Dalvíkingar mættu ekki til leikja í Eyjum núna um helgina og höfðu áður ekki mætt til leikja við Breiöablik og Njarðvík. Er hlutur Dalvíkurliðsins í keppni 3. deildarinnar heldur bágur og hefur Einkunnagjðfin VÍKINGURi Kristján Sig- mundsson 2, Magnús Guð- mundsson 2. Jón G. Sigurðsson 2. Ólaíur Jónsson 1, Skarphéð- inn Óskarsson 3, Páll Björg- vinsson 2, Árni Indriðason 4, Þorbergur Aðalsteinsson 3, Viggó Sigurðsson 3, Eggert Guðmundsson 1, Björgvin Björgvinsson 3. Sigurður Gunnarsson 2. IIAUKARi Ingimar Haralds- son 3. Elías Jónasson 3, Ólafur Jóhannesson 2, Sigurður Aðal- steinsson 1, Árni Hermanns- son 2, Stefán Jónsson 2, Þórir Gíslason 1, Sigurgeir Marteinsson 2, Andrés Kristjánsson 3, Þorgeir Haraldsson 2, Gunnar Einars- son 3. VALUR: Jón Breiðfjörð 1, Gísli A. Gunnarsson 1, Björn Björnsson 1, Bjarni Guð- mundsson 2, Steindór Gunnarsson 3, Þorbjörn Guð- mundsson 2, Þorbjörn Jensson 1. Stefán Gunnarsson 3, Jón IL Karlsson 2, Jón Pétur Jónsson 3, Brynjar Kvaran 2. ÍRi Jens G. Einarsson 3, Ásgeir Elíasson 2, Ólafur Tómasson 1, Guðmundur Þórðarson 2, Bjarni Bessason 3, Jóhann Ingi Gunnarsson 1. Ársæll Hafsteinsson 2, Vil- hjálmur Sigurgeirsson 2, Sigurður Svavarsson 1, Sigurður Gíslason 2, Brynjólf- ur Markússon 2. margt gengið á afturfótunum hjá peim og vegna peirra seinni hluta keppn- innar, eins og peir vita, sem fylgst hafa með henni. Erfitt er aö meta fyllilega tildrög og ástæður, en mótanefnd HSÍ er a.m.k. afar óhress og telur Dalvíkinga hafa brugðist illa og gerst brotlega við mótareglur HSÍ, svo að jafnvel varði útilokun frá pátttöku í handknattleiksmótum í náinni framtíð. Þá er hugsanlegt, að eftir að Dalvíkingar mættu ekki til pessara fjögurra síðustu leikja sinna, eigi peir yfir höfði sér bótakröfur frá peim félögum, sem sent hafa liö sín norður til keppni við pá í vetur en ekki fengið heimaleiki við pá á móti. Að sögn eins talsmanns Dalvíkinga, telja peir sig ekki eiga alla sök í pessum málum og hugleiöa nú, að senda greinargerð um afstöðu sína. Er vonandi, að peir láti veröa af pví, svo að ápreifanlegar skýringar fáist. STAÐAN Leikir Dalvíkur við Breiða- blik, Njarðvík, Þór og Tý eru skráðir án marka. Þór E. 14 11 2 1 286:241 24 Breiðablik 13 9 1 3 288:257 19 Týr E. 14 9 1 4 263:232 19 Afturelding 14 8 0 6 319:314 16 Akranes 14 6 0 8 288:290 12 Njarðvík 14 4 2 8 248:265 10 Keflavík 13 3 0 10 247:314 6 Dalvík 14 2 0 12 221:258 4 — herb. ,Búnir að finna lykt- ina af meistaratitlinum Víkingar unnu Hauka verðskuldaðog þurfa fjögur stig úr þremur síðustu leikjunum — ÚR ÞESSU verður erfitt að stöðva okkur Víkinga. Við erum búnir að finna lyktina af Islandsmeistaratitlinum og gefum ekkert eftir það sem eftir er mótsins. Það var ánægður Viggó Sigurðsson, sem mælti þessi orð í búningsklefa Víkinga að loknum sigurleiknum gegn Haukum í 1. deildinni í handknattleik á sunnudagskvöldið. Vfkingar höfðu náð sínum bezta leik í vetur og unnið hið skemmtilega Haukalið með 23 mörkum gegn 19. Víkingar eiga eftir að spila á móti fram, ÍR og Val og dugar þeim sigur í tveimur þessara leikja til að hljóta meistaratignina. Leiki þeir eins og á móti Haukunum verður erfitt að stöðva Vikingsliðið, en þeir skyldu þó ekki gleyma sér strax í sigurvímu, þeir hafa fyrr í vetur náð góðum leik, en siðan dottið niður í meðalmennsku næsta leik á eftir. 23:19 urðu úrslitin á móti Haukunum eins og áður sagði, en í Morgunblaðinu á laugardaginn spáði Viggó því að úrslit leiksins yrðu 23:20 fyrir Víking, þannig að hann fór nærri um úrslitin. — Það lá beint við að spá þessum úrslitum, sagði Viggó. — Eg fann það einhvern veginn á mér að leikurinn myndi þróast svona og ég held að Víkingur sé 3—4 mörkum betra lið en Haukarnir. Við náðum þarna okkar bezta leik í vetur og baráttan hefur aldrei verið meiri. Eftir að markvarzlan komst í lag hjá okkur í byrjun seinni hálfleiksins var ekki spurn- ing um hvort liðið myndi vinna, sagði Viggó Sigurðsson. Strax í upphafi leiks Víkings og Hauka var mikil stemmning á meðal áhorfenda, sem hvöttu bæði lið ákaft til dáða. Víkingar hafa ekki fyrr í vetur fengið annan eins stuðning við bakið og Haukafólkið lét ekki heyra minna í sér en þegar lið þeirra leikur á fjölunum í Hafnarfirði. Haukarnir höfðu smalað stuðningsmönnum sínum á leikinn og bæði lið höfðu auglýst mikið til að fá sem flest fólk. Áhorfendur munu hafa verið á 15. hundraðið og fjölmargar fermingarveizlur á sunnudaginn hafa eflaust dregið úr fjölda áhorfenda, en hann var þó meiri en fyrr í vetur á 1. deildinni. Bæði lið höfðu undirbúið sig vel fyrir leikinn og Víkingar t.d. eytt öllum laugardeginum saman og síðan farið saman á kvikmyndina Rocky um kvöldið. Höfðu þeir þar sama hátt á og íslandsmeistarar KR í körfuknattleik, en kvöldið fyrir úrslitaleikinn við Njarðvík á dögunum sáu þeir einmitt Rocky. Það gafst KR-ingum vel og Víking- um ekki síður. Næsta laugardag ætla Víkingar að hafa sama háttinn á, halda hópinn og síðan er ætlunin að fara í leikhús og sjá Kátu ekkjuria um kvöldið. Spurningin er hvernig hún reynist. Víkingum. Haukarnir þurftu alltaf að sækja Það var skorað mikið af mörk- um framan af leiknum á sunnu- daginn og sóknarleikur beggja liðanna var mjög skemmtilegur. Jafnt var 3:3 eftir 5 mínútur, en þá tóku Víkingar mikinn kipp og komust í 7:3. En Haukarnir áttu 4 næstu mörk leiksins og jöfnuðu. Jafnt var enn 9:9, en Víkingur komst yfir 12:9. Enn jöfnuðu Haukar 12:12 og sýndu þeir mikla baráttu í fyrri hálfleiknum, þeir voru alltaf undir, þurftu alltaf að sækja á brattann og ævinlega tókst þeim að jafna. Undir lok hálfleiksins klúðruðu Haukarnir nokkrum góðum færum og Víking- ar leiddu í leikhléi 14:12. Elías gerði fyrsta mark seinni hálfleiksins og munurinn var aðeins eitt mark, 14:13. Er hér var komið sögu náðu Víkingar mjög góðum leikkafla, komust í 17:13, 18:14 og síðan 19:15. Þá voru 10 mínútur eftir af leiknum og í rauninni gert út um hann. Jafn- ræði hélst með liðunum það sem eftir var og lokatölur urðu 23:19. Með þessum ósigri eru vonir Hauka um að sigra í 1. deildinni í rauninni úr sögunni, þó svo að enn séu á því fræðilegir möguleik- ar. Haukaliðið er mjög léttleikandi og markvarzla liðsins er yfirleitt ■njög góð. Það sem háir liðinu mest er skyttuleysið og er ekki gott að segja hver staða Haukanna væri nú ef Hörður Sigmarsson hefði leikið með þeim í vetur og verið í toppæfingu. Af leikmönn- um Haukanna á sunnudagskvöldið er erfitt að gera upp á milli manna, en þó voru línumennirnir Andrés og Ingimar hvað sterkast- ir. Elías og Ólafur gerðu góða hluti, en sá síðarnefndi er mjög útsjónarsamur og lipur leikmaður, en vantar meiri burði. Gunnar Einarsson átti sæmilegan dag, en hefur þó oft leikið betur. — Við æfðum okkur sérstaklega á því hvernig á að skora hjá Gunnari og það gaf góða raun, sagði Viggó Sigurðsson eftir leikinn. Þeir Árni Indriðason, Þorbergur Aðalsteinsson, Björgvin Björg- vinsson og Viggó Sigurðsson voru menn Víkingsliðsins að þessu sinni. Sömuleiðis lék Skarphéðinn Óskarsson mjög vel, sinn bezta leik í langan tíma. Sigurður Gunnarsson, sá ungi leikmaður, hlýtur að eiga orðið fast sæti í Víkingsliðinu. Páll Björgvinsson gerði 10 mörk í jafnteflisleik, 19:19, Víkinga og Hauka í Hafnar- firði fyrr í vetur. Að þessu sinni virtist Páli lengi vel fyrirmunað að skora, enda skaut hann nú allt öðru vísi, en bezt hafði gefist gegn Gunnari í fyrri leikjum. Kristján Sigmundsson varði lítið framan af, en mjög vel í lok leiksins. I stuttu málii íslandsmótið 1. deild, Laugar- dalshöll 2. apríl. Víkingur — Haukar 23:19 (14:12). Mörk VíkingSi Björgvin Björg- vinsson 5, Árni Indriðason 4, Þorbergur Aðalsteinsson 4, Viggó Sigurðsson 4, Skarphéðinn Óskarsson 2, Páll Björgvinsson 2, Sigurður Gunnarsson 1, Jón G Sigurðsson 1. Mörk Ilaukai Andrés Kristjáns- son 7 (6v), Elías Jónasson 4, Árni Hermannsson 2, Ingimar Haralds- son 2, Stefán Jónsson 2, Ólafur Jóhannesson 1, Þorgeir Haralds- son 1. Brottvísanir af leikvellii Engin. Misheppnuð vftakösti Gunnar Einarsson varði frá Páli Björg- vinssyni og Kristján Sigmundsson varði frá Andrési Kristjánssyni. Dómarari Jón Friðsteinsson og Gunnlaugur Hjálmarsson dæmdu leikinn í flesta staði vel, eins og gengur voru skoðanir skiptar um einstaka dóma, en víst er að Víkingar töpuðu ekki á dómgæzl- unni. - áij. Víkingur 11 7 3 1 240.202 17 Haukar 12 6 1 2 216.218 16 Valur 11 6 2 3 224.210 11 FH 11 5 2 3 214,193 12 ÍR 11 3 3 5 214.210 9 Fram 11 3 3 5 228.236 9 KR 10 2 2 6 205.216 6 Ármann 11 2 1 8 204,242 5 MARKA- HÆSTIR Andrés Kristjánss. Ilaukum 70 Bjiirn Jóhannss. Árm. 62 Jón Karlsson Valur 62 Brynjólfur Markúss. ÍR 59 Haukur Otteseo KR 49 Símon Unndórs ,on KR 46 Þórarinn Ragnarss. FH 44 Janus Guðlaugss. Fll 14 Elías Jónason Haukum 44 Viggó Sigurðss. Víking 44 Páll Björgvinss. Víking 43 NÆSTU LEIKIR N.-ESTU leikir í I. deild karla eru á miðvikudagskiöld í Laugardalshiill þá eigast við Ármann og Fram og síðan leika KR og FH. Næstu leikir í 1. deild kvenna fara fram f kviild f Laugardalshöllinni þá leika Valur gegn Ármanni og Fram gegn Vík- ingi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.