Morgunblaðið - 04.04.1978, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
„Fredu Utley sárnaði mjög þar
sem hún sat hálfsvöng í lítilli
herbergiskytru, því húsnæðis-
skorturinn var mikill og matar-
skorturinn, en hún sat og las
„þjóðviljana" frá mörgum löndum.
Þeir voru allir eins, bara hós-
íannasöngur um velferðina í Rúss-
landi.
Öll Evrópa átti sína Kuusinína,
sem ólmuðust við að koma helsi
kommúnismans á sína eigin lands-
menn svo voru það menningarvit-
arnir með útgáfur og áróður, og
svo fóru þeir að bjóða lærðum
mönnum að koma til Rússlands og
sjá herlegheitin með eigin augum,
til þess að vitna þegar heim kæmi.
Þeir buðu ekki öllum frægum
mönnum, þeir buðu til dæmis ekki
Bertrand Russel, því hann hafði
sagt að Karl Marx væri grautar-
haus og fullur haturs. Þetta er rétt
því ofbeldið er það eina úr kerfinu
sem kommúnistum hefur tekist
ágætlega að framkvæma. í fyrra
var haldin ráðstefna í Belgrad sem
bara fjallaði um það að málið væri
ekki af almenningi í kommúnista-
ríkjunum. Flokkurinn hefur tekið
allt frelsi og öll mannréttindi í
sínar hendur og fólkið má ekki
tala nema eftir kerfinu. Er þá ekki
mannskapurinn í sömu aðstöðu og
nytjadýrin á samyrkjubúunum?
Freda Utley hitti prófessor frá
Lundúnaháskóla og var hann
búinn að vera á lúxushóteli við
baðströnd flokksins. Hann sagði
að það hlyti að vera ósatt að
hungursneyð væri í Úkraínu, því
hann hefði þar fengið íburðar-
meiri mat en á Savoy í London.
Hún hafði farið yfir til Úrkaínu og
gaf nærri allan matinn, sem hún
hafði safnað sér í ferðalaginu,
betlurum, sem stóðu á öllum
járnbrautarstöðvum þó að lestar-
stjórarnir rækju þá frá miskunn-
arlaust. Hún þorði ekki að segja
prófessornum frá þessu af hræðslu
við það að þá mundi maðurinn
hennar verða tekinn sem reyndar
var gert seinna.
Árið 1923 þegar hungursneyðin
var í algleymi eftir byltinguna
(sem var óþörf því það var komið
þing og verkamennirnir voru búnir
að fá að hafa trúnaðarmenn í
verksmiðjunum, en það voru ekki
mannréttindi sem kommúnistar
vildu), þá var safnað mat handa
þjóðinni í öllum löndum. 1934
neitaði Stalín að það væri hungur-
sneyð í Úkraínu þó að hann væri
búinn að láta ræna öllum mat.“
Undir bréf þetta skrifar hús-
móðir og vill að öðru leyti ekki láta
nafns síns getið. Bréf hennar varð
að stytta nokkuð, en hún segir í
niðurlagi þess að Stalín hafi
kunnað að meta verk Bresnevs á
yngri árum og sé hann nú enda
allsráðandi í Rússlandi.
Þessir hringdu . . .
§ Hraun við
Djúpavog
Dr. Jakob Jónsson hafði
samband við Velvakanda og vlldi
koma á framfæri nokkrum orðum
til skýringar vegna fyrirspurnar
hjá Velvakanda fyrir helgina:
— Það Hraun sem er hér um að
ræða er Hraun við Djúpavog.
Þegar ég var ungur maður var það
algeng sérvizka meðal þeirra sem
fengust við skáldskap af einhverju
tagi, að kenna sig við staðinn sem
þeir voru frá. Sem dæmi af
handahófi má nefna Halldór Guð-
jónsson frá Laxnesi, Sigurjón
Jónsson frá Snæhvammi, Gunnar
Árnason frá Skútustöðum og
Þórodd Guðmundsson frá Sandi.
Mér fannst því ósköp eðlilegt að
kenna mig við þann stað sem ég
fluttist til á öðru ári og var alltaf
kenndur við í minni heimabyggði
Ég hefi haldið þessu áfram þegar
ég hefi skrifað annað hvort sögur
eða leikrit eða ljóð og þetta
stendur á leikskrám þar sem
leikrit mín hafa verið leikin. Mér
var bent á að þetta kynni að valda
ruglingi þegar sjónvarpsleikritið
kom til sögunnar, en austfirsk
þverska réð úrslitum og ég ákvað
að halda þessu áfram. En ég nota
þetta heiti aðeins þegar um
skáldskap er að ræða en ekki
ritgerðir eða greinar. Svo bið ég
kærlega að heilsa Ingimar.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
HÖGNI HREKKVÍSI
Lýsir þetta ekki hugmyndaflugi hans?
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu
Addo bókhaldsvélar aðstoða stofnanir og fyrirtæki um allt land við að
fylgjast með rekstrinum. Addo er löngu þekkt fyrir gangöryggi, léttan
áslátt og hljóðláta vinnslu. Vélarnar má programera fyrir ólíkustu
verkefni, svo sem launabókhald, birgðabókhald, viðskiptamannabók-
hald, svo eitthvað sé nefnt. Með sjálfvirkum spjaldíleggjara má auka
færsluafköst um 40%. Fullkomin þjónusta, kennsla og aðstoð við
uppsetningu á bókhaldi ef óskað er. Leitið nánari upplýsinqa um verð
og gerðir.
BMÆUMMÖ® KJARAIMhf
.skrif.Ktofuvélar & -vvrkstæði Tryggvagötu 8. sfmi 24140
r ^
nýjar bækur
aaglega
Bókaverzlun Snæbjamar
LHAFNARSTRÆTI 4 OG HAFNARSTRÆTI 9J
Verkamannafélaginu
Dagsbrún
Tekiö veröur á móti umsóknum um dvöl í
orlofshúsum félagsins í sumar í skrifstofu
félagsins aö Lindargötu 9 frá og meö fimmtudeg-
inum 6. apríl.
Vikudvöl kr. 12.000.- greiöist viö pöntun. Þeir
sem ekki hafa dvaliö í húsunum áöur hafa
forgang til mánudags 10. apríl.
Félagsmenn athugiö: orlofshúsin eru nú á 3
stööum.
I. Ölfusborgum 5 hús.
II. Illugastööum f Fnjóskadal 1 hús.
III. Svignaskaröi í Borgarfiröi 1 hús. 7
Stjórn félagsins