Morgunblaðið - 04.04.1978, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
V iðskiptasamn-
ingur milli Kín-
verja og EBE
Sprenjíjum varpað á Amoco-Cadiz. Seinni hluta dags 3U. marz geroi transKi sjonerinn aora niraun
til að sprengja risaolíuskipið Amoco Gadiz, og tókst sú tilraun mun betur en sú íyrri. Telja
sérfra'ðingar nú góða möguleika á að allir geymar skipsins séu tómir, og að öll olían hafi lekið
í sjóinn.
011 olían í Amoco Cadiz er runnin út
Djúpsprengjum hefur verið
varpað úr þyrlum í nokkra
daga á flak risaolfuflutninga-
skipsins Amoco Cadiz undan
strönd Bretagne-skaga og þar
með er talið- að öll olfa hafi
lekið úr skipinu en það verður
athugað nánar.
Áður en djúpsprengjunum var
varpað í dag var talið að af
220.000 lesta olíufarmi skipsins
væru um 4.000 lestir eftir í
geymum í skuti þess. Vonað er
að fljótlegra verði að hreinsa
200 kílómetra strandlengju sem
hefur mengazt þegar öll olía er
farin úr skipinu.
Svindluðu milljarða úr
tryggingum í Astralíu
Brússel, 3. apríl, AP-Reuter.
KÍNVERJAR undirrituðu við-
skiptasamning við Efnahags-
bandalag Evrópu í Briissel í dag.
Er samningurinn einkum talinn
pólitfskur ávinningur fyrir Efna-
hagsbandalagið en það er einnig
sigur í keppni bandalagsland-
anna við Japan og Bandarfkin
um að sjá Kínverjum fyrir vélum
og tækjum til iðnaðaruppbygg-
ingar landsins. að sögn sérfræð-
inga.
I viðskiptasamningnum er
heitið gagnkvæmari velvild í
viðskiptum og gert er ráð fyrir
árlegum fundum fulltrúa til að
leysa ágreining. Engar tölur eða
markmið f samningnum hafa
verið látin uppi, en hvor aðili
væntir aukinna vipskipta.
Með undirskrift viðskiptasamn-
ings við Efnahagsbandalagið í
stað sérsamninga við lönd þess
viðurkenna Kínverjar bandalagið
sem pólitíska einingu, en það gera
Rússar og önnur lönd Aust-
ur-Evrópu ekki.
Utanríkisráðherra Danmerkur,
K.B. Andersen, núverandi formað-
ur ráðherranefndar EBE, og
Wilhelm Háferkamp utanríkis-
málafulltrúi bandalagsins skrif-
uðu undir samninginn af hálfu
EBE. Li Kiang utanríkisviðskipta-
ráðherra undirritaði samninginn
af hálfu Kína.
„Samkomulagið er vottur um
vinattu Kína og Efnahagsbanda-
lagsins. Það er framfaraskref í
heimi þar sem nauðsyn á gagn-
London, 3. apríl. AP. Reuter
GESTUR í brezka listasafninu
skar og reif í sundur málverkið
„Dáðst að gullkálfinunT eftir
Frakkann Nicolas Poussin, að því
er talsmenn listasafnsins til-
kynntu í dag.
Málverkið, sem hefur verið til
sýnis í safninu frá 1945, var mikið
skemmt, en það er metið á um
tvær milljónir punda (944 milljón-
ir króna).
„Maðurinn steig yfir kaðalinn
fyrir framan málverkið og risti
með hnífi í það. Hann ýtti
hnífinum niður og reif í málverkið
með hinni hendinni, og henti því
á gólfið. Ég trúði ekki mínum eigin
augum og varð dálítið hrædd,"
kvæmu trausti fer vaxandi," sagði
Li Kiang við undirskrift sam-
komulagsins í Brússel í dag.
K.B. Andersen sagði að sam-
Framhald á bls. 31.
Veður
víða um heim
Amsterdam 11 skýjaó
Apena 17 skýjaö
Berlín 15 skýjað
Brilssel 17 skýjað
Chicago 2 rígning
Frankfurt 17 skýjað
Genf 12 boka
Helsinki 7 sólskin
Jóhannesarborg 21 sólskin
Lissabon 17 sólskin
London 15 rigning
Los Angeles 20 skýjaö
Madrid 13 sólskin
Malaga 20 léttskýjað
Miami 24 Heiðríkja
Moskva 7 heiðríkja
New York 11 skýjað
Ósló 6 sólskin
Palma, Majorka 16 létlskýjaó
París 14 skýjað
Rómaborg 12 skýjað
Stokkhólmur 5 heiðríkja
Tel Aviv 25 skýjað
Tókýó 8 rigning
Vancouver 12 skýjað
Vínarborg 17 skýjaö
sagði Tracy 0‘Mara, 15 ára skóla-
stúlka, sem var vitni að atburðin-
um.
Poussin var uppi frá 1593 til
1665, en ekki er nákvæmlega vitað
hvenær hann málaði „Dáðst að
gullkálfinum". Málverkið er eitt
af þekktustu verkum evrópskra
listmálara, og er stærsta og
verðmætasta mynd Poussins sem
til sýnis er í brezka listasafninu.
Lögregla sagði í dag, að hún
hefði handtekið 27 ára gamlan
Itala, Salvatori Borzi, sem grunað-
ur er um að hafa skemmt málverk-
ið. Kemur Borzi fyrir rétt á
morgun.
Talið er líklegt í dag, að hægt
yrði að gera við málverkið að
mestu leyti.
Sydney, 3. apríl, AP-Reuter.
LÖGREGLAN í Ástraliu handtók
um helgina niu manns sem hafa
svindlað stórfé út úr almanna-
tryggingakerfi landsins. Talið er
að hringurinn hafi haft um 40
milljónir Ástraliudala, um 10
milljarða íslenzkra króna, út úr
tryggingakerfinu frá 1971.
Um 100 manns voru handteknir
í Sydney um helgina í sambandi
við fjárglæfrabrotið, og það er
talið með mestu aðgerðum f sögu
lögreglunnar í landinu. Ilöfuð-
paurarnir eru taldir vera níu,
fjórir Grikkir og fimm læknar í
Sydney. Þrír læknanna eru
þekktir sérfræðingar á sínu sviði
í Ástralíu.
Læknunum er gefið að sök að
hafa útvegað ólöglegar trygginga-
greiðslur til handa 1200 einstakl-
ingum, þar á meðal 300 grískum
innflytjendum sem aftur eru
fluttir til fyrri heima. Læknarnir
eru sagðir hafa tekið um 1000 dali
fyrir að útvega einstakling eins
árs veikindagreiðslur úr trygging-
unum, en þær nema um 5000
dölum. Fyrir 1000 dali í viðbót
gátu sjúklingarnir fengið vottorð
sem tryggði þeim lífstíðarörorku-
bætur. Auk þessa gerðu læknarnir
tilkall til greiðslna frá trygginga-
kerfinu fyrir rannsóknir sínar á
„sjúklingunum".
Hringurinn starfaði á þann hátt
að fjórir umboðsmenn bentu lækn-
unum á fólk, flest innfluttir
Grikkir, sem gefið var vottorð
fyrir fölsuðu tryggingabótunum. I
fréttaskeytum segir að umboðs-
mennirnir hafi fyrir sinn snúð
fengið um 1000 dali frá hverjum
einstakling.
Tryggingasvindl þetta kostaði
hið opinbera um níu milljónir
Nýju-Delhi, 3. apríl. Reuter.
HERLIÐ var kvatt út og 1.200
hermenn tóku við löggæzlu í
tviburaborginni Ilyderabad og
Secundorbad á Mið-Indlandi í dag
Ástralíudala á ári. Á síðustu 12
mánuðum voru yfir sex milljónir
dala greiddir til sjúklinga og
læknarnir fengu um 500 þúsund
dali frá hinu opinbera vegna
rannsóknanna.
Lögregla komst fyrst á snoðir
um svindlið árið 1971, og hefur
sléitulaust verið unnið að rann-
sókn þess upp frá því. Yfir 100
lögreglumenn tóku þátt í aðgerð-
unum um helgina. Flestir hand-
teknu bótaþegarnir hafa þegar
verið sakaðir um að aðstoða við
svindl gegn hinu opinbera. Mesta
refsing fyrir slíkt er þriggja ára
fangelsisvist.
eftir óeirðir sem leiddu til þess að
níu voru skotnir til bana og
rúmlega 80 slösuðust. Tveggja
sólarhringa útgöngubann var fyrir
skipað.
Forsætisráðherrann í Andhra
Pradesh, dr. M. Chenna Reddy, hélt
því fram að óeirðirnar væru af
pólitískum toga. Óeirðirnar byrjuðu
um leið og hefjast áttialsherjarverk-
fall sem stjónarandstöðuflokkar í
fylkinu hvöttu til, til þess að
mótmæla lögregluofbeldi.
Tuttugu og tveggja ára gamall
maður beið bana og þrír særðust í
lögregluskothríð á föstudaginn þeg-
ar háskólastúdentar efndu til mik-
illia mótmælaaðgerða gegn dauða
manns sem lögregla hafði handtekið.
Því er haldið fram að konu hans hafi
verið nauðgað.
í óeirðunum í dag var ráðist á
barnaspítala og kveikt í þremur
pósthúsum, þremur lögreglustöðv-
um, járnbrautarstöð og öskubílum
og almenningsvögnum. Lögregla var
sögð hafa nokkrum sinnum hafið
skorhríð þegar ráðizt var á hana með
grjótkasti. Meðal hinna særðu eru
rúmlega 50 lögreglumenn að sögn
indverska útvarpsins.
Herinn hefur ekki verið kallaður
út til að bæla niður óeirðir á
Indlandi síðan í matvælaóeirðunum
í vesturfylkinu Gujajat í janúar og
febrúar 1974.
Kongressflokkur Indiru Gandhi
hefur farið með stjórnina í Andhra
Pradesh síðan hann sigraði óvænt í
fylkiskosningum fyrir rúmum mán-
uði.
Efnahagslífið í Tékkóslóvakíu:
Slakað á miðstýringarklónni
undir nákvæmu eftirliti
EKKI alls fyrir löngu
þótti tíðindum sæta er
tékkneski kommúnista-
flokkurinn viðurkenndi að
á ýmsum sviðum efnahags-
og atvinnulifs f landinu
væri um að ræða óraun-
hæfa áætlunargerð og
óstjórn, sem leiddu af sér
léleg afköst, óvandaða
framleiðslu og orkubruði.
Nú hefur flokkurinn, sem
er allsráðandi í landinu,
ákveðið að slaka nokkuð á
miðstýringu, bæði í fjár
málum og stjórnun fyrir
tækja. Ætlunin er að til-
raun verði gerð í sam-
bandi við rekstur 150
iðnfyrirtækja á þriggja
ára timabili, og verður
stjórnendum fyrirtækj-
anna veitt mun meira
sjálfdæmi en tíðkazt hefur
s.l. tíu ár, eða frá því að
Dubcek og íylgjendum
hans var rutt úr vegi 1968.
Ljóst er að hér er ekki
ætlunin að taka upp að nýju þá
stefnu, sem við lýði var í
stjórnartíð Dubceks, enda sagði
Leopold Ler, fjármálaráðherra,
í tímaritsgrein nýlega, að þessi
tilraun yrði engan veginn aftur-
hvarf til „vélrænnar" stefnu í
markaðsmálum, sem reynt hefði
verið að koma á í landinu á
síðasta áratug.
I sambandi við hina nýju
áætlanagerð þykir það nýmæli
til mikilla bóta, að miðað verður
við þriggja. ára tímabil, en slík
tilhögun ætti að veita fyrirtækj-
um og framleiðslueiningum mun
meira svigrúm til að taka upp
nýja og bætta framleiðsluhætti
og markvissari skipulagningu
en tíðkazt hefur. Hingað til hafa
fyrirtæki aðeins geta ráðgert
umsvif sín eitt ár fram í tímann.
Þau hafa starfað undir þrýstingi
þar sem sett hefur verið á
oddinn að sýna fram á aukna
framleiðslu og hagræðingu í lok
hvers árs, þannig að stjórnend-
ur þeirra hafa freistazt til að
láta skammtímasjónarmið ráða.
Enda þótt nú sé ætlunin að
•veita stjórnendum fyrirtækja
mun meira sjálfstæði í
ákvörðunum og ráðstöfunum
hefur stjórnin lýst því yfir á
afdráttarlausan hátt, að
nákvæmt eftirlit verði samt sem
áður haft með rekstri þeirra, og
að gengið verði hart eftir því að
þau ari ekki út fyrir ákveðinn
ramma í fjárfestingu og launa-
málum.
Tilgangur stjórnarinnar í
Prag með hinni nýju stefnu er
augljóslega sá að efla sam-
keppnishæfni tékkneskrar
framleiðslu á erlendum mark-
aði, þannig að hægt verði að
draga úr vöruskiptaverzlun.
Þannig fengist beinharður
gjaldeyrir, sem Tékka vantar
sárlega, bæði til innkaupa á
hráefnum og fullkomnum
tækniútbúnaði, sem nauðsynleg-
ur er til að færa iðnað í landinu
í nútímalegra horf.
Listaverk eftir
Poussin skemmt
Indversk borg
undir herst jórn