Morgunblaðið - 25.04.1978, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1978
11
og segja að samkomulagið sé eins og
bezt verður á kosið.
— Er ekki mikið umstang í
kringum skepnuhaldið hjá ykkur?
— Við komumst hæglega yfir
þetta og erum ekki í neinum
þrældómi dag og nótt, segir Guðrún.
Hins vegar er útilokað að bregða sér
frá, þetta er svo bindandi. Mesta
verkið er að þrífa í kringum þetta og
það þarf helzt að gera tvisvar á dag.
Aðalatriðið er að sinna þessu jafnt
og þétt, — það er lítið varið í að láta
óþrifin safnast fyrir. Daunninn er
víst nógu mikill af svínunum, segir
hún og bætir því við að kannski hafi
það verið erfiðast að sætta sig við
ólyktina af þessum skepnum, sem
aldrei hafa fengið orð fyrir hrein-
læti, svo og lítt fágaðar aðfarir
þeirra þegar þau slafra í sig fóðrið.
— En það vandist strax, segir hún.
— Þykir ykkur vistæin aldrei dauf-
leg þar sem þið getið ekki brugðið
ykkur af bæ?
— Stundum verður þetta einum of
tilbreytingasnautt, en okkur leiðist
ekki. Við horfum á sjónvarpsdag-
skrána eins og hún leggur sig.
Sleppum engu. Svo prjónum við og
saumum ókjörin öll, auk þess sem
við erum alltaf að baka. Okkur finnst
nefnilega svo gaman að baka, segir
Guðrún. Hlaðið kaffiborðið ber
þessum myndarskap vitni, því að þar
eru tegundirnar ekki færri en fimm.
— En nú líður að sauðburði. Ekki
standið þið einar í þeim stórræðum?
— Nei, nú erum við á förum
héðan. Margrét er væntanleg um
mánaðamótin og það er búið að ráða
hingað mann til að vera við sauð-
burðinn, segir Carina. — Upphaflega
var nú ekki ætlunin að við yrðum hér
einar nema mánaðartíma en þetta
hefur dregizt.
— Gætuð þið hugsað ykkur að
leggja fyrir ykkur búskap?
Carina afturtekur það ekki, en
Guðrún svarar spurningunni ein-
dregið neitandi: — Ég sé samt alls
ekki eftir þessum tíma. Þetta hefur
verið ærinn starfi og við höfum
fengið að finna fyrir því að þessu
fylgir mikil ábyrgð. En það er líka
rnikil ánægja í því fólgin að leggja
fram krafta sína og finna að maður
hefur afkastað einhverju, sem raun-
verulega skiptir máli. Sú ánægja er
ekki sízt í því fólgin að geta hlaupið
undir bagga þegar þörf er á, segir
Guðrún að endingu.
Ur lessal bókasafnsin í Siglu-
firði.
Lána út 25 þúsund
bindi á ári
— Hvað lánið þið út mörg
bindi á ári?
„Að meðaltali lánum við út
24—25 þúsund bindi á ári og nú
síðustu árin hafa útlánin aukist
mikið. Um tíma eftir að sjón-
varpið kom til sögunnar, dvínaði
áhugi fólks fyrir bóklestri mik-
ið, en nú er svo komið að fólk
hér í Siglufirði lætur sjónvarpið
ekki hafa nein áhrif á bók-
menntaáhuga sinn. Og til að
hafa þjónustu fyrir sem flesta,
þá höfum við komið á laggirnar
vísi að talbókasafni fyrir blinda
og ennfremur lánum við mikið í
skip.
Þá tökum við mikið af ljósrit-
um úr bókum, sem við lánum
ekki út, handa fólki sem hefur
áhuga á að fræðast um innihald
bókanna."
Framhald á bls. 31
22 skátar fengu forsetamerkið
LAUGARDAGINN 15. aprfl fór
fram á Bessastöðum afhending
æðsta prófmerkis skáta, svokall-
aðs forsetamerkis. Að þessu sinni
fengu 22 skátar víðs vegar að af
landinu þetta merki afhent úr
hendi forseta Islands, herra
Kristjáns Eldjárns, en hann er
verndari skátahreyfingarinnar á
íslandi.
Að sögn Páls Gíslasonar, skáta-
höfðingja, hafa nú 460 skátar
fengið þetta æðsta prófmerki
skáta og lokið prófum í því
sambandi. Flestir skátanna, sem
að þessu sinni fengu forsetamerk-
ið, voru frá Akureyri sem oft áður.
Skátastarf á Akureyri hefur ávallt
verið mjög öflugt og fer vaxandi,
sagði Páll Gíslason, sem sést hér
á myndinni ásamt forsetanum og
skátunum. Athöfnin fór fram í
kirkjunni á Bessastöðum.
Ekki beinlínis útsala - en mikill afsláttur af fargjöldum
og margir afsláttarmöguleikar.
Helstu afsláttarfargjöld:
Almenn sérfargjöld: 8-21 dags fargjöld
með sérstökum unglingaafslætti til viðbótar
fyrir aldurinn 12 - 22ja ára - sérstökum hóp-
afslætti ef 10 fara saman - og nú
einnig með sérstökum fjölskylduafslætti
til viðbótar. Fjölskylduafslátturinn gildir til
allra Norðurlandanna, Bretlands og Luxem-
borgar, en „almenn sérfargjöld’’ gilda annars
allt árið til nær 60 staða í Evrópu.
Afsláttur samkvæmt „almennum sérfargjöld-
um“ getur orðið allt að 40%.
Fjölskyldufargjöld: 30 daga fargjöld sem gilda
allt áriðtil Norðurlandannaog Bretlands. Þegar
fjölskyldan notar þessi fargjöld borgar einn úr
fjölskyldunni fullt fargjald (venjulegt fargjald)
en allir hinir aðeins hálft.
Þótt við sláum mikið af fargjöldunum - þá
sláum við ekkert af þeim kröfum sem við gerum
til sjálfra okkar um fullkomna þjónustu. Áætl-
unarstöðum fjölgar stöðugt og tíðni ferða
eykst. Við fljúgum til fjölmargra staða í Evrópu
og Bandaríkjunum á hverjum einasta degi.
Þú ákveður hvert þú ætlar og hvenær -
viðfinnum hagkvæmasta fargjaldið fyrir þig og þína.
flucfélac LOFTLEIDIR
/SLANDS