Morgunblaðið - 25.04.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1978
13
ÁrbókFÍ1978 um
S-Þingey j arsýslu
ÁRBÓK Ferðafélags Islands fyrir 1978 er komin út. Þetta er 51.
Árbók Ferðafélagsins og er efni hennar þríþætti 1. Lýsing
S-Þingeyjarsýslu austan Skjálfandafljóts, rituð af Jóhanni Skaptasyni,
frv. sýslumanni á Húsavík. 2. Um jarðmyndanir á Tjörnesi, ritað af
Þorleifi Einarssyni, jarðfr. 3. 50 ára saga Ferðafélagsins, sem er
skrifuð af dr. Haraldi Matthíassyni á Laugarvatni, en sagan kom út
sem sérprent á 50 ára afmæli félagsins 27. nóv. sl. tölusett og árituð.
Auk þess eru í bókinni ársskýrslur og reikningar félagsins.
Arbókin er 216 síður að stærð
prentuð á vandaðan pappír og
prýdd fjölda ljósmynda bæði
svart/hvítra og litmynda. Árbókin
er prentuð í ísafoldarprentsmiðju,
en myndirnar eru unnar af Prent-
myndastofunni Litrófi, Offset-
myndum sf. (litmyndir) og Mynda-
mót hf. (litgreining). Svipmyndir
fyrir ofan helstu kafla bókarinnar
eru teiknaðir af Gunnari Hjalta-
syni. Einnig eru 2 uppdrættir:
Yfirlitskort af því svæði sem er
meginefni bókarinnar og jarð-
fræðikort af Tjörnesi.
Það hefur verið stefna stjórnar
F.í. að ávallt séu allar árbækur
Ferðafélagsins fáanlegar og því
hafa bækurnar verið ljósprentaðar
jafnóðum og frumútgáfurnar selj-
ast upp.
Árbækur féiagsins eru einhver
besta íslandslýsing, sem völ er á
og ættu þær að vera til á hverju
heimili á landinu.
r
Astand öku-
tækja kann-
að á Hall-
ærísplaninu
og rúntinum
Ritstjóri Árbókarinnar er Páll
Jónsson, bókavörður, og hefur
hann séð um útgáfu hennar í
áraraðir.
í formála Árbókar segir rit-
stjórinn Páll Jónsson m.a.: „I
þessari Árbók birtist lýsing Suð-
ur-Þingeyjarsýslu austan Skjálf-
andafljóts, rituð af Jóhanni
Skaptasyni sýslumanni á Húsavík.
Hann hefur áður ritað fyrir F.í.
lýsingu sýslunnar vestan Fljóts,
Árbók 1969, og má því líta á þessa
bók sem beint framhald hennar,
eins og Jóhann víkur að í inngangi.
Þessi ritgerð Jóhanns ber með sér,
að hann er gjörkunnugur hérað-
inu, sögu þess, atvinnuvegum og
íbúum, og er þessum þáttum gerð
nokkru ýtarlegri skil en aigengast
er í Árbókum F.í.“
Og síðar segir hann: „Eðlilegt
hefði verið að lýsing Mývatnssveit-
ar hefði fylgt þessari bók, en bæði
er það, að Jóhann taldi sig ekki
nægilega kunnugan þar og svo
hitt, að sú lýsing gæti orðið meira
en efni í álíka stóra bók. Loks er
um þessar mundir þar allt í
nokkurri óvissu vegna eldsumbrot-
anna í nágrenni byggðarinnar, og
þess vegna er sjálfsagt að bíða um
sinn með þá Árbók. Þá má líka
minna á, að F.í. hefur gert
Mývatnssveit nokkur skil í Árbók
1934.“
LÖGREGLAN í Reykjavík og
Bifreiðaeftirlit ríkisins hafa
s.I. miðvikudags- og föstu-
dagskvöld staðið fyrir skyndi-
skoðunum ökutækja og hefur
athyglin fyrst og fremst
beinzt gegn ökutækjum á
rúntinum og Hallæris-
planinu.
Ástand ökutækjanna reynd-
ist almennt gott og af þeim
mikla fjölda bifreiða og bif-
hjóla, sem lögreglan hafði
auga með, var 71 ökutæki tekið
úr umferð. Ýmist voru
skrásetningarmerkin tekin af
eða notkun bönnuð og aðeins
leyft að aka bifreiðinni beint á
verkstæði og rauður miði
settur í framrúður. Aðrir
ökumenn fengu ákveðinn frest
til þess að lagfæra minni
háttar bilanir.
Þessum skyndiskoðunum
verður haldið áfram og er því
vissara fyrir ökumenn að hafa
bifreiðir sínar í góðu ástandi
því auk óþæginda, sem öku-
menn verða fyrir, fylgja
þessum aðgerðum lögreglunn-
ar háar sektir.
Sænsku-
námskeið
í Svíþjóð
NORRÆNA félagið í Norbotten
i Svíþjóð býður í ár nokkrum
íslendingum á sænskunámskeið
og stendur námskeiðið frá 31.
júlí til 14. ágúst.
Að námskeiðinu loknu er
ráðgerð ferð um Nordkalotten,
sem lýkur með þátttöku í
Nordalottráðstefnu í Alta í
Norður-Noregi hinn 20. ágúst.
Undirbúningsnámskeiðið verður
haldið hérlendis dagana 2.-4.
júní fyrir væntanlega þátttak-
endur, en umsóknareyðublaða
má vitja á skrifstofu Norræna
félagsins í Norræna húsinu.
SKJALDHAMRAR, sjónleikur Jónasar Árnasonar, hefur verið sýndur
af Leikfélagi Húsavíkur 13 sinnum fyrir fullu húsi og virðist ekkert
lát á aðsókn, því uppselt er á næstu sýningar. Á myndinni eru
aðalleikarnir Snædfs Gunnlaugsdóttir og Benedikt Sigurðsson.
(Ljósm. Pétur).
A-listinn í Hafnarfirði
FRAMBOÐSLISTI Alþýðuflokks-
ins í Hafnarfirði við bæjar-
stjórnarkcmingarnar hinn 28.
maí næstkomandi hefur verið
birtur. Listann skipa eftirtaldir
menni
1. Hörður Zópaníasson, skóla-
stjóri, 2. Jón Bergsson, verkfræð-
ingur, 3. Lárus Guðjónsson, vél-
virki, 4. Grétar Þorleifsson, tré-
smiður, 5. Guðrúður Eilíasdóttir,
formaður Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar, 6. Guðni Krist-
jánsson, verkamaður, 7. Gunnar
Friðþjófsson, formaður FUJ, 8.
Eyjólfur Sæmundsson, efnaverk-
fræðingur, 9. Arnbjörg Sveinsdótt-
ir, skrifstofumaður, 10. Bragi
Guðmundsson, læknir, 11. Ingvar
Viktorsson, kennari, 12. Guðrún
Emilsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
13. Guðfinna Vigfúsdóttir, hús-
móðir, 14. Gylfi Ingvarsson, vél-
virki, 15. Svend-Aage Malmberg,
haffræðingur, 16. Margrét A.
Kristjánsdóttir, 17. Dagbjört
Sigurjónsdóttir, ritari Verka-
kvennafélagsins Framtíðarinnar,
18. Guðni Björn Kjærbo, kennari,
19. Yngvi Rafn Baldvinsson,
íþróttafulltrúi, 20. Hrafnkell Ás-
geirsson hæstaréttarlögmaður, 21.
Stefán Gunnlaugsson, deildar-
stjóri og 22. Þórður Þórðarsson,
fyrrum framfærslufulltrúi.
Ný Hrafnista í Hafnarfirði hefur verið tekin í notkun og
búa þar nú þegar 87 vistmenn. Þetta er aðeins fyrsti áfangi
þessa glæsilega vistheimilis, sem fullbúið mun rúma 240
manns. Auk þess verður rúm fyrir 60 manns á dagvistunar-
deild, sem er merk nýjung hér á landi. Margt gamalt fólk
býr við ótrúlega erfiðar aðstæður og þarf nauðsynlega á
þeirri þjónustu og því öryggi að halda, sem dvalarheimili
D.A.S. getur veitt því.
Hver miði í happdrætti D.A.S. er framlag sem kemur
gamla fólkinu til góða, — framlag sem er mikils metið.
Verum með í happdrætti D.A.S.
I lappdrætti 1
HB