Morgunblaðið - 25.04.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1978
15
sama dag. 20 hermenn meö hríö-
skotabyssur umkringdu þá. Lim Lea,
sem þar var af tilviljun meö öörum
þorpsbúum horfði á þaö og heyrði
Rauöan Kmera kvarta undan því að
hafa ekki skot, svo hann gæti tekið
þátt í drápunum. En þarna þekkti
hann 7 kennara. Sjálfur var hann
kennari.
Þetta eru aöeins stuttar glefsur úr
hræðilegum frásögnum af einstökum
atburöum, sem eru aö gerast í
Kambódíu, skv. persónulegri reynslu
vitnanna. Flóttamennirnir segja aliir,
aö ekkert sé hægt aö gera nema
hlýða Anka eins og þeir oröa það, en
þaö viröist í þeirra munni vera allir,
sem störf hafa fyrir Rauöu Kmerana
og fá sínar skipanir frá stjórnvöldum.
Eöa eins og eitt vitnið orðaöi það:
Við höfum aðeins rétt til að vinna, sjá
ekkert og heyra ekkert — og hlýöa
möglunarlaust.
Byltingartiiraun
barin niöur
Af frásögn flóttamannanna og
sérfræölnganna fimm um Kambodíu-
mál, sem sátu réttarhöldin og fluttu
fyrirlestra um ástandið, viröast
stjórnvöld, eöa öllu heldur alvaldur-
inn Pot Pol, hafa algera stjórn á
landinu. Tveir fyrirlesaranna, Frakk-
inn Francois Ponchaud, sem lengi
bjó í Kambódíu, m.a. stuttan tíma
eftir aö Kmerarnir komu til valda og
hefur fylgst vel meö málum þar síðan
og skrifaö bækur um þau, og
Bandaríkjamaðurinn Antony Paul,
annar höfundur bókarinnar „Cambo-
dia. Murder of a Gentle land“, sem
byggö er á viötölum viö 350 flótta-
menn, geröu grein fyrir byltingartil-
raun gegn Anka, sem var í undirbún-
ingi 1976 og fram á 1977, en komst
upp. Hófst þá enn ný hreinsunaralda,
sem enn stendur yfir og gengur út
yfir hina svokölluöu „gömlu menn“,
en þaö eru áhangendur Rauöu
Kmeranna fyrir og fyrst eftir bylting-
una, þó flest séu þaö 17—18 ára
piltar. (Nýja fólkið er aöflutta fólkiö úr
borgunum). Eru yfirmenn þorpanna
fyrirvaralaust fjarlægöir og aörir
koma í staðinn. Og allir vita hvaö þaö
þýöir, því í Kambódíu eru engin
fangelsi og engir dómstólar. Þaö er
óþarfi — aöeins ein hegning er viö
öllum frávikum, skjót aftaka. Telja
þessir fyrirlesarar margar rökstuddar
sannanir fyrir uppreisnartilrauninni
og jafnvel aö hún hafi nú veriö barin
niður. Byltingin etur börnin sín þar
líka. Þetta kom i raunar óbeint fram
í ræöum stjórnvalda í útvarpinu í
Pnom Penh nú. En það sýni að
byltingin hafi nú veriö barin niður og
allt undir haröri stjórn, að ofurlítið er
hægt aö slaka á og opna rifu inn í
landið.
Francois Ponchaud, sem er mjög
vinstri sinnaöur og tók raunar fram
að hann styddi og heföi stutt
kommúnistastjórnir, sagöi við frétta-
mann Mbl.: Þó aö ég sé sósíalisti, get
ég ekki sætt mig við þau grimmdar-
verk, sem ekki er vafi á að framin eru
í Kambódíu. Þar lifir enginn
boöskapur um friö, frelsi, jafnrétti og
framfarir. Þetta er karikatúr af
samfélagi. Og í lokin segir hann: Ég
vil vera rödd allra þeirra einstaklinga
í Kambódiu, sem ekki hafa neinn
talsmann. Ef til vill getur þetta þing
orðið til þess að rödd þeirra heyrist.
Ég býst ekki viö að ástandiö breytist
við þessar yfirheyrslur. En þetta er
e.t.v. byrjunin. Viö verðum aö minna
aftur og aftur á það, sem er aö
gerast. Ég er heilshugar meö ykkur
í öllu sem þiö eruö aö gera hér. Ég
þakka ykkur fyrir.“
Annar vinstri sinnaður sérfræöing-
ur um Kambódíumál blaðamaðurinn
Jean Lacouture, sem m.a. skrifar í Le
Monde og Nouvelle Observatör í
París, lýsti því yfir aö sér heföi
aigerlega skjátlast og hann veriö
seinn aö átta sig á byltingunni (
Kambódíu. Nú geti hann ekki skiliö
hvernig Sameinuðu þjóöirnar geti
látiö vera aö taka málið upp og varpa
Ijósi á þaö sem er aö gerast í
Kambódíu. En hann varaði sem aðrir
viö aö láta áróöur gegn Kambódíu
valda því aö Víet Nam taki landiö.
Ponchaud vísaði algerlega á bug
ásökunum um aö flóttamennirnir
væru ekki áreiöanleg vitni, og aö
flestir þeirra væru úr vel stæöum
stéttum 09 óvinveittum stjórnvöld-
um. — Eg fullyrðj að þetta sé
vitleysa, sagöi hann. Um og fyrst eftir
aö Rauöu Khmerarnir komu til valda
kann eitthvaö að hafa veriö til í því.
Síðan í júlí 1976 eru flóttamennirnir
Framhald á bls. 31
Þinganes endurbyggt
NÝLEGA lauk Daníel
Þorsteinsson og co. hf.
í Reykjavík við endur-
byggingu eikarbáts-
ins Þinganes SF 25
fyrir Þinganes hf. á
Hornafirði. Var bátur-
inn allur tekinn í
gegn og skipt um
stýrishús á honum. Er
þetta áttunda stýris-
húsið af þessari gerð,
sem fyrirtækið hefur
smíðað og liggja fyrir
pantanir hjá fyrirtæk-
inu um endurbætur á
fleiri bátum. Myndin
var tekin af bátnum
eftir breytinguna.
Þinganes er 76 tonn
að stærð.
Sumarbústaðaeigendur
Skemmtilegir
Vindhanar
á sumarbústaðinn.
HURÐIR hf.,
Skeifunni 13
SKIL hjólsögina er óþarfi að kynna náið, svo þekkt
er hún orðin. Er frábærlega vel hönnuð og jafnvægi
vélarinnar gott. Þannig þarf ekki nein stórátök, þó
verið sé að saga þykkt efni. Auðvelt er að stilla dýpt
sagarblaðsins og ,,landið“. Fáanleg eru allar teg-
undir sagarblaða og fljótlegt er aö skipta um þau.
Auk hjólsaga framleiðir SKIL afsömu alúð og vand-
virkni, stingsagir, stórviðarsagir, hefla, slipivélar og
fræsara. SKIL rafmagnshandverkfæri svara fyllstu
kröfum nútimans og henta jafnt leikmönnum sem
atvinnumönnum.
Póstsendum myndlista ef óskað er.
ÞEIR SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI,VELJA Sé(fL
Einkaumþoð á íslandi fyrir SKIL rafmagnshandverkfæri:
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI
Það er okkur mikil ánægja að geta nú boðið hin margreyndu og
viðfrægu SKIi. rafmagnshandverkfæri. SKIL verksmiöjurnar
voru stofnaðar i Chicago i Bandarikjunum árið 1924
til framleiðslu á nýrri einkaleyfisuppfinningu,
rafknúinni hjólsög, hinni heimsfrægu
SKIL-sög, sem viðbrugðið var fyrir gæöi,
Siðan hafa verið framleidd mörg verkfæri og
gerðar margar nýjar uppgötvanir
á rannsóknarstofu SKIL verksmiðjanna,
sem hafa gert SKIL handverkfærin
heimsfræg og eftirsótt.