Morgunblaðið - 25.04.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1978
25
lamótið var
ium til sóma
vtrrki UAx'tn lók tlrcniíiU'KH ug
s>ndi mikla ha-fni.
Sttar ktmiu nn-t’i umct otr
timi'itai) lit\ til mtitsin-'. liU srm
kunni mikid fvrir mt cn 'kurti
aiiAsjáanictía mciri kraft («
rccnsiu. cn ntcð samtt mann
skap icttu þcir a<\ ná laniít á
na-'tu árum. íslcnska li<\i<\ stú<\
'itt vtmunt framar cins t*tt
íjallaú hcfttr vcrið um. N unandi
vcrdur haidiil áfratn á siiimi
hraut <m þá cr iíúús a<\ va-nta.
Norúmcnn hafa sýnt frant-
farir < n samt citta þ< ir lanitt í
land miú ad ná h<-stu liúunum.
Uanir komu á óvart mcrt þaó
h\c uctulitlir þtir vtirti <»u cr
auósjáanlciít aí) ckki hcfur
mikill undirhúninuur farió
fr;tm. Ln hvaó scnt því líótir
skultim \ió vcra minnutí þcss
aó ofar siuri cr drcnuilcir
kcppni mr samnorrant sam-
starf mikils tirói fxrir okkur i
íþróttinni.
-þr.
Finnar rufu
þriggja ára
einokun Svía
ÚRSLITALEIKUR Norðurlandamótsins í körfuknattleik
var á milli Finna og Svía og voru þeir óumdeilanlega með
tvö bestu liðin. Svíar hafa sigrað þrjú undanfarin ár en nú
rufu Finnar sigurgöngu þeirra og sigruðu þá með
yfirburðum 100 stig gegn 74. — Staðan í leikhléi var 77—50
Finnum í hag.
Leikur þessi var aldrei
spennandi eða skemmtilegur, til
þess voru yfirburðir Finna of
miklir. Þeir tóku strax forystu í
leiknum og lentu aldrei í neinum
vandræðum, allur leikur þeirra
einkenndist af yfirvegun og góðu
leikskipulagi. Leikmenn liðsins
sem flestir eru um eða yfir 2
metrar á hæð eru mjög kröftugir
og vel þjálfaðir, þá er hittni þeirra
áberandi best. Besti leikmaður
Finnanna var Kalevi Sarkalahti,
fjölhæfur og skemmtilegur leik-
maður, var hann stigahæstur í
leiknum, skoraði 22 stig og hirti
einnig fjölda frákasta í vörn og
sókn. Þá léku bakverðir Finnanna
mjög vel í öllu mótinu og voru
sterki hlekkurinn í góðri vörn
þeirra. Svíar eru með ungt lið sem
á eftir að ná angt, knattmeðferð
þeirra var góð svo og leikskipulag,
hins vegar skorti þá líkamsburði
og kraft til að standa Finnum á
sporði í þessum leik. Leikmenn
eins og Sten Feldreich og Leif
Yttergren ásamt Peter Gunter-
berg sýndu allir geysiskemmti-
legtilþrif í þessum leik sem í
mótinu í heild. Stigahæstu menn
Svía í þessum leik: Peter
Gunterberg 16, Yttergren 10,
Feldreich 10.
- þr.
URSLIT
ÚRSLIT leikja f Noröurlandamótinui
ísland — Finnland 62.99
Danmtírk — Svfþjóð 43.102
ísland — Danmörk 105.61
Finnland — Noregur 104.58
Svíþjóð — ísland 99.82
Danmtírk — Noregur 80.87
Noregur — Svíþjóð 61.102
Finnland — Danmörk 107.79
Island — Noregur 96.84
Finnland — Svíþjóð 100.74
STAÐAN
LOKASTAÐAN í Norðurlandameistaramót-
inu í körfuknattleik.
Finnland
Svíþjóð
fsiand
Noregur
Danmtírk
4 0 0 410.273 8
3 0 1 377.286 6
2 0 2 345.343 4
1 0 3 290.382 2
0 0 4 263.401 0
ons
Dnz
16 -45. Það var gjörbreytt íslenskt
lið sem kom inn á í síðari hálfleik,
varnarleiknum var breytt, leikin
var pressuvörn, sem gafst það
betur, og samvinna Símons Ólafs-
sonar og Péturs Guðmundssonar
var góð og virtust þeir vera
komnir í góðan takt saman, er
Símon lenti í villuvandræðum og
varð að fara útaf, sem kom sér illa
fyrir liðið því Símon hafði verið
einn besti maður þess. Er staðan
var 65—63 kom kafli Jóns fyrirliða
eins og áður greinir. Sigur íslands
var nokkuð öruggur þrátt fyrir að
Pétur Guðmundsson og Torfi
Magnússon færu útaf með 5 villur.
Vel var barist í lokakaflanum og
vörnin vel leikin.
Bestu menn íslands í þessum
leik voru þeir Jón Sigurðsson,
Pétur Guðmundsson og Símon
Ólafsson, þá sýndu Torfi Magnús-
son og Kristján Ágústsson góða
spretti inn á milli. Kristján var
eini nýliðinn og stóð hann sig
vonum framar. Kári Maríusson
skoraði ekki mikið en er sívinn-
andi baráttuhestur og var hann
liðinu dýrmætur í þessum leik sem
öðrum í mótinu.
Stig íslands. Pétur Guðmunds-
son 20, Kristján Ágústsson 18, Jón
Sigurðsson 14, Torfi Magnússon
12, Símon Ólafsson 8, Gunnar
Þorvarðarson ‘ 8, Kolbeinn
Kristinsson 6, Kári Maríusson 5,
Bjarni Gunnar Sveinsson 3, Þor-
steinn Bjarnason 2.
Stig Noregsi Pal Vik 25, Are
Larsen 16, Morten Kirkerud 15,
Jan Engzelius 9, Hans
Augustgulen 7, Björn Rossow 7,
Asmund Berge 4, Ola Morin 1.
- Þr.
KR-strákarnir gerðu það gott í vetur og urðu öruggir meistarar í 4. flokki undir stjórn Hauks Ottesen.
FRA ALTARINU A
ÍÞRÓTTAVÖLLINN
Framhald af bls. 21
Til að gera langa sögu stutta urðu
Valsmenn meistarar í yngsta flokkn-
um eins og þeim elzta og það var
einmitt Guðni Bergsson, fyrirliði
Valsliðsins, sem skoraði markið, sem
tryggði Val titilinn með marki beint
úr aukakasti eftir að leiktíma lauk.
Bergur hafði rétt frétt af sigri sonar
síns og félaga er hann gekk inn á
völlinn til úrslitaleiks við Víking í 1.
flokki karla. Formaður Vals var að
sjálfsögðu fyrirliði Valsmanna í
þessum leik og eftir mikla baráttu
stóðu Valsmenn uppi sem sigurveg-
arar í þessum flokki. Sannarlega góð
uppskera hjá Bergi og fjölskyldu um
þessa helgi, en það var á fleiri
stöðum, sem gleðin og ánægjan var
mikil.
AJLDREI ÁÐUR ÍR-SIGUR í
KVENNAFLOKKI
í þriðja flokki kvenna sigruðu
ÍR-stúlkurnar og er þetta í fyrsta
skipti, sem ÍR eignast íslandsmeist-
ara í kvennaflokki, en hér á árum
áður varð lið ÍR Reykjavíkurmeistari
í meistaraflokki kvenna. Fyrirliði
ÍR-stúlknanna er Hanna Katrín
Friðriksson og gleði hennar var
tvöföld þennan dag. Áður en síðasti
leikurinn í þriðja flokki kvenna fór
fram gekk Hanna Katrín upp að
altarinu ásamt jafnöldrum sínum og
var tekin í kristinna manna tölu við
fermingu.
— Þetta er búinn að vera stór-
kostlegur dagur, sagði þessi 13 ára
stúlka eftir að hún hafði tekið við
sigurlaununum í handknattleiksmót-
inu. — Við erum búnar að vera
saman allar stelpurnar síðan við
vorum 10 ára gamlar. Þjálfarinn
okkar er mjög góður og mér finnst
ofsalega gaman að handboltanum.
Eg held sko örugglega áfram að æfa.
Hanna Katrín lék einnig með 2.
flokki kvenna í IR og þar urðu
ÍR-stúlkurnar í öðru sæti á eftir
Fram. Fyrirliði Fram í þeim flokki
er Arna Steinsen, en hún er einnig
mjög snjöll í badminton og unglinga-
meistari í þeirri grein. Arna er dóttir
KR-ingsins Arnar Steinsen og Ernu
Fraklín, konu hans.
— Ég held ég hafi nú meira
gaman af badmintoníþróttinni, en
það er einnig gaman að handboltan-
um og ég reikna með að halda áfram
að æfa báðar greinarnar.
— Urslitaleikirnar voru mjög erfið-
ir, en okkur tókst að sigra. Reyndar
var keppnin í riðlinum einnig erfið
og við töpuðum fyrir Víkingi og
möguleikar okkar minnkuðu því
mikið. En við vonuðum alltaf að
Víkingarnir myndu missa stig og við
komumst í úrslitin þegar Víkingur
mætti ekki til eins leiksins, sagði
Arna að lokum.
BJART FRAMUNDAN
HJÁ ÍR OG FH_______________
I piltaflokkunum er framtíðin
vissulega björt hjá KR og FH.
KR-strákarnir sigruðu í 4. flokki og
voru þeir greinilega með bezta liðið,
en Þróttarar stóðu þeim þó ekki
langt að baki. FH-strákarnir máttu
hins vegar taka á öllu sínu til að ná
sigri í 3. flokki gegn Víkingi og KA,
en leikir þessara liða fóru fram á
Akureyri eins og í 5. flokki. Víkingur
og KA léku fyrsta leikinn og komust
Akureyringarnir í 5:1, en er Víkingar
byrjuðu að taka Gunnar Gíslason,
stórefnilegan KA-mann, úr umferð,
breyttist leikurinn og Víkingur vann
13:12. Á móti FH byrjaði lið Víkings
jafn illa og staðan varð 7:1 fyrir FH.
Víkingar foru þá í gang og undir
lokin mátti ekki miklu muna, en FH
vann verðskuldað 13:11. í síðasta
leiknum í þessum flokki vann FH
síðan lið KA 14:13 og kom lið KA
mjög á óvart í úrslitakeppninni.
Sveinn Bragason er fyrirliði FH-
inga og einn efnilegasti handknatt-
leiksmaður Hafnfirðinga. Hann
sagði að keppninni lokinni að
úrslitaleikirnir hefðu verið mjög
erfiðir. — Sérstaklega var leikurinn
við KA erfiður, en á móti Víkingi
náðum við óskabyrjun, sem gerði út
um leikinn. — Það er góð samstaða
í hópnum og þjálfarinn mjög góður,
sagði Sveinn. — Við göngum flestir
upp í 2. flokk og næst á dagskrá er
að ná meistaratitli þar, sagði þessi
hressilegi Hafnfirðingur að lokum.
— áij/ — Sigb.G.
CRSLIT í úrslitaleikjum yn>íri flokkanna í
Hafnarfirði og á Akureyri um síðustu helgii
5. FLOKKUR KARLAi
Vaiur — Þór 6-4
Valur — Fram 6-6
Þór — Fram 14-8
4. FLOKKUR KARLA.
KR — Þróttur 8-7
KA - KR 5-9
Þróttur — KA 11-9
3. FLOKKUR KARLA.
Víkingur — KA 13-12
FH — Víkingur 13-11
FH - KA 14-13
3. FLOKKUR KVENNA.
Haukar — ÍR 1-2
ÍR - Þór 11-3
Haukar — Þór 7-3
2. FLOKKUR KVENNA.
Fram — (R 7-5
ÍR — Vðlsungur 10-7
Fram — VtílsunKur 11-9
Fyrst Framstúlkurnar komust í úrslitin létu þær ekkert stöðva sig og
unnu verðskuldað í úrslitaleikjunum þremur.
Myndir af meisturum í öðrum
flokkum verða birtar síðar í vikunni
AU KA-
LEIKIR
• Um helgina fóru fram aukaleikir um
sæti í 2. deild karla í handknattleik.
Leiknir sigraði Þór, Akureyri, meó 21
marki gegn 16 og heldur sæti sínu í
deildinni, Þar sem Þeir sigruðu einnig í
fyrri leik liðanna. Þór sigraði svo UBK á
sunnudag 19—18 og má búast við að
Þeim takist að sigra i leiknum fyrír
norðan og tryggja sér áframhaldandi
dvöl í annarri deíld.
í meistaraflokki kvenna sigraði Víking-
ur ÍBK 11—6 en síðari leikur Þessara liða
fer fram í kvöld kl. 20 í iÞróttahúsi
Njarðvíkur.
Fyrri leikur KR og Fram i meistara-
flokki karla fer fram í Laugardalshöllinni
í kvöld kt. 20, leikir Þessir skera út um
hvort liðanna leikur víð HK um sæti í 1.
deild næsta keppnistímabil.