Morgunblaðið - 25.04.1978, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1978
VIÐ lukum þriöja þætti á 3 undirbúningsæf-
ingum varöandi höfuðspyrnu í kyrrstöðu.
Fullkominni skallatækni verður aldrei lokið,
við erum alltaf að læra eitthvað nýtt og auka
getu okkar á knattsþyrnusviðinu. Því bætum
við nokkrum erfiðari æfingum við höfuð-
spyrnuna frá síðasta þætti og bætast nú
hlaup m.a. inn í æfingarnar.
4. 3 og 3 saman með tvo knetti. Leikmenn
A og B skiptast á að kasta knetti til M.
Eftir að M hefur skallað knött til A, snýr
hann sér strax við (M1) og tekur á móti
knetti frá B. Sjá nánar mynd 28.
5. 2 og 2 æfa saman. Annar þeirra hleyþur
aftur á bak og kastar knetti til félaga síns
sem hleypur áfram. Síðan skipt um
hlutverk, mynd 29.
6. Sams konar æfing og 5., en nú er hlaupiö
til hliðar, sbr. mynd 30.
7. 2 og 2 saman og reyna að halda knetti
á lofti með höfuðspyrnum.
8. Að síðustu fáum við eina erfiða en ekki
síður styrkjandi æfingu. Leikmaður liggur
á bakinu, og kastar félagi hans knetti,
sem hinn skallar um leið og hann rís upp.
Sjá mynd 31.
Höfuðspyrna til hliðar
(í kyrrstöðu)
Viðbragðsstaðan er sú sama og við
höfuðspyrnu beint áfram. í fyrsta hluta
hreyfingar höllum við bolnum aftur, og
snúum okkur í þá átt sem við ætlum að
senda knöttinn. Hér erum við tilbúin til að
framkvæmda sjálfa spyrnuna.
Annar hlutinn, hin eiginlega skallahreyf-
ing er nákvæmlega eins og við höfuðspyrnu
beint áfram. Mynd 32 sýnir okkur þetta
tækniatriði framkvæmt.
Knatt-
spyrnu-
þættir
Janus Cjudlauiísson tók saman
Spyrnan æfð
1. Við byrjum á að æfa hreyfingarnar vel án
knattar.
a) Bolur lagður aftur.
b) Snúum okkur á tábergí beggja fóta.
c) Sjálf spyrnan framkvæmd.
2. Æft við dingul (knött sem festur er í
snúru). Leikmaður tekur sér stööu til
hliðar við knöttinn sem hangir í
höfuðhæð.
3. 3 og 3 saman og mynda þríhyrning, (3--4
m milli leikmanna). A kastar knetti til B
sem skallar til C. C grípur og kastar til
A sem skallar til B o.s. frv. Sjá mynd 33.
S'pyrnan æfð:
1. Framkvæmdaratriðn (a—e) framkvæmd
án knattar, mynd 35.
2. Spyrnan framkvæmd með aðstoð ding-
uls, sjá mynd 36.
3. Nú kastar félagi knettinum upp fyrir
okkur og við framkvæmum spyrnuna eins
og áður hefur verið lýst. Athugið vel að
tímasetja uppstökkið rétt. Mynd 37.
Einnig þurfum við að framkvæma höfuð-
spyrnu til hliðar eftir uppstökk. Fram-
kvæmdin verður alveg sú sama að viðbættu
því, að leikmaðurinn (þú) snýr(ð) bol og
höfði í uppstökkinu. Athugið því vel
hreyfingu bols og höfuðs á myndum 38 og
39 við æfingar 4 og 5.
4. A kastar knetti til leikmanns sem skallar
hann (til hliðar) til baka. Sjá nánar mynd
38.
5. Sams konar æfing og 4, en nú kastar X
knetti til A sem skallar hann til hliðar til
Z. Mynd 39.
Höfuðspyrna eftir tilhlaup
og uppstökk af öðrum fæti
Tilhlaupið fyrir uppstökkið er yfirleitt stutt
en meö hraðaaukningu. í síöasta skrefinu
komum við niður á hæl stökkfótar og veltum
fram á táberg. Fráspyrnan verður aö vera
kröftug til að ná góðri hæð í uppstökkið.
Þegar fullri stökkhæð er náð, hefst
framkvæmd sjálfrar spyrnunnar. Henni
þurfum við ekki að lýsa hér, því hún
framkvæmist á sama hátt og viö höfuö-
spyrnu þar sem stokkið er upp af báðum
fótum.
Þessari spyrnu getum viö skipt í 5 þætti:
a) Tilhlaup
b) Uppstökk
c) Svif (undirbúningur spyrnunnar)
d) Spyrnan
e) Niðurkoma
Athugið vel mynd 35 þegar þiö lesið yfir
og íhugið framkvæmdaratriði spyrnunnar.
Á myndum 40 og 41 höldum við áfram
æfingum á skallatækninni að viðbættri
hindrun (mótherja) sem truflar okkur. Þegar
um skallaeinvígi er að ræða, er mikilvægt
aö stökkva upp á undan mótherjanum og
einnig aö fá rétta tímasetningu í uppstökk-
ið.
Höfuðspyrna með uppstökki af
báðum fótum
Viö stöndum í gleiöstööu með fætur
örlítið í sundur. Við beygjum okkur í
hnjánum og sveiflum örmum niður og
aftur, og síðan til baka, fram og upp,
réttum úr hnjánum um leið og við
stökkvum upp. Þegar fullri stökkhæö
hefur veriö náö, sveigjum við líkamann
aftur, drögum höfuð aftur, (hakan að
líkamanum) og framkvæmum síöan
spyrnuna meö kröftugu átaki kvið-,
mjaöma- og hálsvööva aö viöbættri
armsveiflu aftur.
Lending eftir spyrnuna skal vera mjúk
og fjaörandi, annaöhvort á báöum eöa
öörum fæti.
Spyrnan æfð
Við þessa spyrnu notum við sömu æfingar
og við höfuðspyrnu beint áfram.(Æfingar
1—7). Skipulagið við æfingarnar er það
sama, en nú bætist aðeins uppstökkið inn
í. Á mynd 34 höfum við bætt við
uppstökkum frá mynd 26. (Æf. 7).