Morgunblaðið - 25.04.1978, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. APRIL 1978
45
5?
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
milljón þá spyr maður hverjum er
það hagstæðast að bílar séu
keyptir til landsins. Er það
bíleigandanum eða ríkinu?'
Bileigandi."
• Kom skemmti-
lega
á óvart
„Frú Sigrún Jónsdóttir, kona
Jóns Eyjólfssonar skipstjóra á
Herjólfi, hefur verið með mál-
verkasýningu í Vestmannaeyjum.
Opnaði hún síðasta vetrardag og
átti að ég held að standa til 24.4
‘78. Ég sá þessa sýningu fyrsta
sumardag og mig rak í rogastanz.
Ég þóttist vita að við ættum von
á góðum málverkum hjá byrjanda
en að maður sæi þar listaverk datt
mér tæpast í hug. Ég er sann-
færður um að þó nokkur málverk
hennar eru listaverk. Þar kemur
fram hlýleiki sálar og djúpur
skilningur á atvinnuháttum Is-
lendinga og þar birtast dular-
heimar. Sýningin var að mínu viti
góð og göfgandi. Ég var njög
fanginn af sýningunni. Ég gaf mér
góðan tíma til að skyggnast um
sýninguna í heild. Hafðu hjartans
þökk fyrir sýninguna, Sigrún,
haitu áfram, því þú átt örugglega
eftir að ylja okkur löndum þínum.
Listin leikur í höndum þér, þú ert
á götu til gæfu og gengis í listinni,
hafðu mínar hjartans þakkir.
Eiríksson.“
• Ferð með
Herjólfi
„Mjög góð sportferð er með
Herjólfi milli lands og Eyja, skipið
er skemmtilega innréttað, tilvalið
til orlofs- og ánægjuferða, áhöfnin
samvalin til góðrar þjónustu fyrir
farþega, skipstjóri ljúfur og
prúður við alla. Fargjöld eru að
mínu viti alltof lág, og mættu vera
helmingi hærri og væru þó að
mínu viti væg. Reksturinn bæri sig
betur og tæplega yrði um tap-
rekstur að ræða. En þessar ferðir
eru mjög hagkvæmar Eyjabúum
og tilvaldar til ánægjuferða fyrir
aðra. Ég vona að skipið beri sig
fjárhagslega.
Sveinn."
Þessir hringdu . . .
• Eftir
Robert Burns
Hér verða á eftir raktar
upplýsingar sem Velvakanda hafa
borizt um kvæði er spurt var um
nú fyrir helgina, en a.m.k. fimm
hafa hringt og greint frá hver sé
höfundurinn og af því má e.t.v.
ráða að íslendingar séu vel heima
í erlendum kveðskap.
Hrefna Sigmundsdóttir hefir
komið að máli við Velvakanda
vegna fyrirspurnar konu að vestan
um höfund ákveðins ljóðs, sem
hluti var birtur úr í Velvakanda á
laugardag. Hrefna upplýsir að
umrætt kvæði, sem raunar er ekki
alveg rétt farið með í laugardags-
pistlinum sé eftir Robert Burns.
Það þýddi á íslenzku Steingrímur
Thorsteinsson og birtist það í
kvæðabókinni Svanhvíti, sem inni-
heldur ljóðaþýðingar eftir
Matthías og Steingrím.
Annar sem hafði samband við
Velvakanda upplýsti að bókin
hefði komið út árið 1913 í annarri
útgáfu og héti kvæðið í þýðing-
unni: Því skal ei bera höfuð hátt?
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Staðan hér að neðan kom upp á
alþjóðlega skákmótinu í Nis í
Júgóslavíu sl. haust. Tékkneski
stórmeistarinn Jansa. sem hafði
hvítt og átti leik lék síðast 24. b2
— b3 og andstæðingur hans
Dzukic, Júgóslavíu svaraði með
Rc4 — a3? Jansa þvingaði nú
snarlega fram vinning:
25. Rd6+ - Kf8, 26. Rxe8 - Ke8,
27. Da4+ og svartur gafst upp.
JúgóslavarnirSahovic og Nikolic
sigruðu fremur óvænt á mótinu,
hlutu báðir IQ'/i v. af 15 möguleg-
um. Þriðji varð landi þeirra
Knezevic með 10 v.
Fleiri hringdu og höfðu kannast
við umrætt kvæði og sagði t.d. einn
m.a.: Þetta ljóð, sem er eitt
þekktasta verk Burns, er um
hismið og kjarnann, eða eins og
skáldið segir: For a‘ that, an‘ a‘
that, Their dignities, an‘ a‘ that;
The pith o‘ sense, an‘ pride o‘
worth, Are higher rank than a‘
that.
Sagði hann einnig að ljóðið væri
hin þarfasta hugvekja og mætti
gjarna birta það í heild í íslenzkri
þýðingu.
• Samtök
símnotenda
Símnotandi kom áð máli við
Velvakanda og sagðist telja tíma-
bært að stofna hagsmunasamtök
símnotenda. Hefðu slík samtök
verið starfandi hér í eina tíð og
hefðu þau getað haft nokkur áhrif.
Símnotandinn sagðist vilja vekja á
því athygli að nú væri svo komið
að í fastagjaldi væru ekki innifalin
nema 3 símtöl á dag — það er 300
samtöl á ársfjórðungi.
HÖGNI HREKKVÍSI
Freyðibað, síðan blástur og fótasnyrting — það kostar
2000 krónur!
Unnið við hafnar-
gerð fyrir 120 miUj.
kr. í Bolungarvík
Bolungarvík 15, apríl 1978.
í SUMAR er fyrirhugað að vinna
við hafnargerð hér fyrir um 120
millj. Settur verður 50 m langur
viðlegu- og löndunarkantur á
svonefndan Grundargarð.
Þar er fyrirhugað að afgreiða
stærri fiskiskip svo sem loðnuskip
og togara, en til þess að þau geti
lagst að þessum kanti þarf að
dýpka töluvert fyrir framan hann.
Dýpkunarskipið Hákur kom
hingað í byrjun apríl og mun hann
dæla um 1500 rúmm. upp úr
höfninni fyrir framan þennan
fyrirhugaða kant. Seinna í sumar
er svo dýpkunarskipið Grettir
væntanlegt hingað og mun taka
álíka magn upp úr höfninni á
sama stað.
Af öðrum framkvæmdum á
vegum bæjarins í sumar má nefna
meðla annars byggingu íbúða fyrir
aldraða, hafin verður bygging
Fyrirlest-
ur í Norr-
æna húsinu
SÆNSKA tónskáldið Áke Her-
manson flytur í kvöld kl. 20.30
erindi í Norræna húsinu sem hann
nefnir „Verket och upphovsmann-
ens idenditet“.
Áke Hermanson dvelst hérlendis
í þrjár vikur í boði Norræna
hússins, en hann hefur m.a. stund-
að tónlistarnám í Stokkhólmi og
lék árum saman á kaffihúsum, en
,frá árinu 1960 hefur hann eingöngu
starfað sem tónskáld og segir í
frétt frá Norræna húsinu að hann
sé talinn eitt fremsta og sérstæð-
asta tónskáld Svía.
tveggja hjónaíbúða og fjögurra
einstaklingsíbúða fyrir aldraða.
Haldið verður áfram byggingu
íþróttamannvirkis en fyrri áfangi
þess, sundlaugin, var tekinn í
notkun í byrjun sl. árs. I sumar er
fyrirhugað að vinna fyrir um
10—15 milljónir króna við síðari
áfanga sem er íþróttahús.
Hafin verður bygging leikskóla,
en að þeirri framkvæmd stendur
bæjarfélagið í samvinnu við
félagssamtök á staðnum.
Undanfarin ár hefur verið unnið
að endurbótum á vatnsveitu
staðarins. I sumar er áætlað að
koma fyrir nýjum og fullkomnari
síubúnaði á veitukerfið auk ann-
arra framkvæmda sem miða að
endurbótum á dreifikerfinu, en
alls er áætlað að kostnaður við
vatnsveituframkvæmdir verði um
10 millj. kr.
Gunnar.
Áke Hermanson
Framboðslisti samtakanna
lagður fram
FRAMBOÐSLISTI Samtaka
vinstri manna á Akureyri við
kosningar til bæjarstjórnar þann
28. maí n.k. hefur nú verið lagður
fram og skipa listann eftirtaldin
1. Ingólfur Árnason, rafveitu-
stjóri, 2. Úlfhildur Rögnvaldsdótt-
ir, húsmóðir, 3. Þorsteinn
Jónatansson, ritstjóri, 4. Dröfn
Friðfinnsdóttir, húsmóðir, 5. Ari
Rögnvaldsson, vélstjóri, 6. Björn
Hermannsson, verkstjóri, 7. Elín
Stefánsdóttir, ljósmóðir, 8. Gunn-
ar J. Gunnarsson, verkamaður, 9.
Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, 10.
á Akureyri
Jón Hjaltason, sjómaður, 11.
Kristín Hólmgrímsdóttir, húsmóð-
ir, 12. Hákon Sigurðsson, rafvirki,
13. Þengill Jónsson, bifvélavirki,
14. Eiríkur Jónsson, verkfræðing-
ur, 15. Guðmundur Olsen, vélvirki,
16. Pétur Stefánsson, vélvirki, 17.
Guðmundur Sigurbjörnsson,
tæknifræðingur, 18. Þórarinn Þor-
bjarnarson, verkamaður, 19.
Kristján Einarsson, skáld frá
Djúpalæk, 20. Guðmundur Frí-
mann, skáld, 21. Ingólfur Árnason,
verkamaður, 22. Tryggvi Helgason,
fv. formaður Sjómannafélags
Eyjafjarðar.
Rimla-
hurdir
2 breiddir, 4 hædir
Kúreka-
hlið
3 breiddir
Hurðir h.f.
Skeifunni 13, sími 81655