Morgunblaðið - 29.04.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.04.1978, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 88. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mikil en árangurs- laus leit að Aldo Moro í Genúa 1 gær Rómaborg, 28. apr. Reuter. ITALSKI kommúnistaflokkurinn ítrekaði í kvöld þá afstöðu að ekki yrði samið við mannræn- ingja Aldo Moros fyrrverandi forsætisráðherra og hvatti til aðgerða gegn skæruliðunum. í kvöld hafði ekkert nýtt spurzt frá skæruliðum. en síðdegis í dag hófst skyndilega mjög umfangs- mikil leit af hálfu lögreglu í Genúa. í ritstjórnargrein blaðsins L'Unita, málgagni kommúnista, Sama stjóm í Líbanon Uoirut. 28. apr. Reutor. ELIAS Sarkis forseti Líbanons fól Selim Al-IIoss, forsætisráð- herra að sitja áfram f embætti sínu og mynda nýja ríkisstjórn. Ekki kom þessi tilkynning á óvart og var hún birt af forseta þjóðþingsins Kamel Assad eftir að sá hafði verið á fundi hjá forsætis- ráðherranum. Selim Al-Hoss stýrði ríkisstjórn embættismanna sem var mynduð eftir borgara- styrjöldina í landinu árið 1975—1976. Sú stjórn sagði af sér í fyrri viku, þar sem tímabært þótti að stjórnmálamenn fengju meiri áhrif í landinu. Hefur augljóslega verið horfið frá því ráði. var lögð áherzla á að það vekti fyrir Rauðu herdeildinni og fylgi- fiskum hennar að vekja skelfingu meðal fólksins og þeir vilji geta greitt höggin þung þar sem þeir sjálfum þóknist. Ránið á Aldo Moro sem sé stórkostlega alvarleg- ur glæpur sé hins vegar augljós- lega aðeins liður í ráðabruggs- keðju þeirra. Nokkrum sinnum í dag var hringt til lögreglunnar og sagt að Moro væri að finna á ýmsum nefndum stöðum, en í öllum þessum tilvikum var um gabb að ræða. í morgun birtist í tveimur morgunblöðum á Ítalíu II Tempo og ILGiornale viðtal við Cristoforo Piancone, einn fylgismann Rauðu herdeildarinnar þar sem hann segir að innan hreyfingarinnar séu um fimmtán hundruð manns og fái hver þjálfun í eitt ár. Allir sem séu í samtökum þessum séu reiðubúnir að drepa en geri sér einnig ljóst hvað kunni að bíða þeirra sjálfra. Piancone er í fangelsissjúkrahúsi í Tórínó eftir að hafa meiðzt í árás á fangelsis; vörð fyrir tveimur vikum. I viðtalinu var haft eftir Piancone að Rauðu herdeildarmenn hefðu aðsetur sín í Mílanó, Tórínó, Genúa og Rómaborg og ynni hver deild sjálfstætt. Dregið hefur verið í efa að viðtal þetta geti verið ófalsað ð sönnur að svo væri. orustuþotna til Miðausturlanda þrjú aðskilin mál Washington, 28. aprfl. Reuter. BANDARIKJASTJÓRN hcfur ákveðið að skoða ekki sem eitt mál umdeildar áætlanir sínar um sölu orustuþotna til þriggja landa fyrir botni Miðjarðarhafs, að því er háttsettur þingmaður öldungardeildar Bandaríkjaþings skýrði frá í dag. Talið er líklegt að gripið sé til þessa ráðs til að afstýra yfirvofandi árekstrum milli þingsins og stjórnarinnar. en talsverður ágreiningur ríkir um þessar áætlanir stjórnar Jimmy Carters. Frá þessari slökun stjórnarinn- ar í málinu, skýrði þingmaðurinn Frank Church skömmu áður en utanríkismálanefnd' þingsins hóf fyrir luktum dyrum umræðu um sölusamningana, sem gefa Banda- ríkjamönnum 4,8 milljarða dollara í aðra hönd. Áætlunin gerir ráð fyrir því að seldar verði 60 F-15 orustuþotur til Saudi Arabíu, 50 F-5 þotur til Egyptalands og 90 stykki af F-5 og F-16 þotum til ÍSraels. Skýrt var frá því í dag að; tveKgja daga viðræður Cyrus Vance utanríkisráðherra Banda-1 ríkjanna og Moshe Dayans utan- ríkisráðherra Israels hefðu verið vinsamlegar og gagnlegar. Dayan skýrði frá ýmsum nýjum hugmyndum varðandi frið í lönd- framhald á bls. 30 Óvenjulegt er að sjá mynd á borð við þessa af Irinu McCellen (t.v.) og Lenu dóttur hennar. Myndin er tekin þegar sovézkir lögreglumenn handtóku þær úti fyrir bandaríska sendiráðinu í Moskvu 20. aprfl en þar mótmæltu þær því að fá ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Líkur aukast á því að Irina McCellan fái að fara frá Sovét Moskvu. 28. apr. Reutor. RÚSSNESK eiginkona bandarísks háskólapróf- essors, Irina McCellan, sem kom af stað diplómatísku fumi og fáti þegar hún skipulagði mótmæli fyrir utan bandariska sendiráðið í Moskvu. hefur nú fengið boð um að hún skuli sækja að nýju um vegabréfsáritun. Frúin hlekkjaði sig við grindverk sendiráðsins í fyrri viku til að láta í ljós gremju sína vegna þess að hún fékk ekki leyfi til að flytjast úr landi og til Bandaríkjanna. Gerði hún þetta er Cyrus Yance utanríkisráðherra var í Sovétríkjunum. Mun Vance síðan hafa tekið að sér málið og rætt það við starfsbróður sinn Andrei Gromyko. Fjölskylda Irinu sagði í dag að hún hefði ætlað að fara í sendiráðið til viðræðna þegar Iögreglu- menn komu til hennar og fylgdu henni á vegabréfsskrifstofu. Þar var hún látin endurnýja umsókn sína og telja menn það benda til að hún fái nú að fara úr laridi. 10.000 flýðu í gær frá Burma til Bangladesh Dacca. 28. aprfl. Reuter. TÍU þúsund flóttamenn flýðu í dag til Bangladesh frá Burma og skýrðu þeir frá því að hermenn stjórnarhersins hefðu hrakið þá frá heimilum sínum. Margir skýrðu einnig frá því að þVir hefðu orðið a þola lfkamsmeiðing- ar. nauðganir og rán. Þar með hafa um 40.000 manns flúið frá Burma í þessum mánuði. Afganistan: Byltingarstjórnin vird- ist haf a tögl og hagldir Islamabad, 28. apr. Reuter. í KVÖLD virtist komin kyrrð á að mcstu í höfuðborg Afganistan Kahul. eftir hörð átök þar í gær cr herinn í landinu gerði byltingu og hratt frá völdum Daoud forseta og var hann drcpinn er hann neitaði að gefast upp íyrir byltingarmönnum. Ekki hefur verið gert uppskátt hversu mikið mannfallið hefur orðið en ljóst er að það er mikið og af fréttatil- kynningum sem birtar hafa verið í útvarpinu í Kahul má ráða að ekki séu alls staðar allir á eitt sáttir um nýju ríkisstjórnina. Daod forseti hafði sætt gagn- rýni fyrir einræðiskennda stjórn- arháttu og hann hafði lagt sig fram um að koma á eins flokks kerfi í laridinu sem á landamæri að Sovétríkjunum, Pakistan, Iran og Kína. Diplómatiskar heimildir segja að tala fallinna í höfuðborginni sé áreiðanlega mjög há og eftir þeim framhald á bls. 30 en flóttafólkið segir allt að það hafi verið rekið frá heimilum sínum af hermönnum sem síðan hafi brennt heilu þorpin til grunna. Stjórn Bangladesh lokaði í dag landamærum sínum við Burma, þegar þær fregnir bárust að handan landamæranna væru um 60.000 flóttamenn sem biðu færis að komast yfir landamærin. Var landamæravörðum skipað að snúa flóttamönnum frá landamæra- stöðvunum. Áreiðanlegar heimildir í Ran- goon segja að flóttafólkið sé ólöglegir innflytjendur frá Bangladesh, sem nú séu að snúa til fyrri heimkynna af ótta við aðgerðir stjórnvalda Burma gegn þeim. Settar hafa verið á stofn flótta- mannabúðir og hefur Alþjóða rauði krossinn tekið þátt í hjálpar- starfinu ásamt stjórnvöldum í Bangladesh. Sikim Ali, 56 ára flóttamaður, sem kom til Bangladesh fyrir tveimur dögum með konu sína og börn sagði við fréttamann Reuters að hermenn hefðu allt í einu birtst í þorpinu sem hann hafði búið í í 20 ár og skipað öllum þorpsbúum að yfirgefa heimili sín. „Nokkrir þorpsbúar voru barðir og kveikt var í húsunum. Sumir hermann- anna nauðguðu einnig kvenfólki í þorpinu," sagði Ali. framhald á bls. 30 Kólerutilfell- unum fækkar (Icnf. 28. apr. Reuter. SJÖ þúsund færri kólerutilfelli komu upp í heiminum á árinu 1977 en árið á undan að því er segir í skýrslum Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar WHO í dag. Engu að síður stakk veikin sér niður í fleiri löndum nú en árið á undan eða alls 34 borið saman við 25 árið á undan. Alls er vitað um að 58.661 maður hafi veikzt af kóleru á árinu 1977. Er veikin mjög á undanhaldi og má geta þess að kólerusjúklingar árið 1975 í heiminum voru 90.467.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.