Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. APRIL 1978 ANNATÍMI — Senn íer sauðburður í hönd ok þá um leið einn annasamasti tími ársins hjá bændum ojf búaliði. Margir bændur halda sig í húsunum mestan tíma sólarhringsins meðan á sauðburði stendur. Ef stund gefst milli stríða nota þeir ííjarnan tækifærið til að kasta sér niður stutta stund í senn og hlöðugólfin eða dýnuræfill á áburðarpokum eru þá sem konunglegt rúm. Þessi mynd er tekin meðan sauðburður stóð yfir í fyrra og sýnir ungan bónda í Hrunamannahreppi, Eirík Kristófersson á Grafarbakka. (Ljósm. Sig. Sigm.) Aðalfundur Mjólkursamsölunnar: Fyrirtækið gangi úr VSÍ og í VMSS Landbúnaóarsýning á Selfossi: Reiknað með 100 þátttak- endum og 100.000 gestum ,.I>að hcfur verið geysimikið um fyrirspurnir vegna þessarar sýn- ingar. þannig að við reiknum með skjótum og góðum viðbriigðum þegar við nú sendum út upplýs- ingar um sýninguna og um- sóknareyðublöð.” sagði Kjartan Ólafsson framkvæmdastjóri Landhúnaðarsýningarinnar á Selfossi 1978. sem Búnaðarsam- band Suðurlands efnir til í tilefni af 70 ára afma-li sínu. en sam- handið hélt einmitt upp á 50 ára afmælið með landbúnaðarsýn- ingu á Selfossi. Kjiiitan Ólafsson sagði að sýn- ingarsvæðið inni og úti, en sýning- in verður í og við gagnfræðaskól- ann og íþróttahúsið, yrði um 33.000 fermetrar. Kvað hann áætlanir hyggjast á um 100 sýningaraðilum og 100.000 gestum. Sýningin verður þróunar- og tæknisýning jafnframt því sem kynnt verða hjutverk og staða iandbúnaðarins í þjóðfélaginu. Sagði Kjartan að innanhúss yrðu þróunarsý n i ng. tækj asýni ng, heintilisiðnaðarsýning, afurðasýn- Blásaratón- leikar Tón- listarskólans Tónlistarskólinn í Reykjavík gengst fyrir tónleikum í Bústaða- kirkju kl. 5 í dag, láugardag, en þar munu nemendur í Itlásara- kennaradeild skólans leika saman á blásturshljóðfæri. A efnis- skránni eru m.a. verk eftir Beethoven, Poulenc og nemendur sjálfa, svo sem Ásgeir Steingríms- son, Björn Leifsson og Atla Guðleifsson. ing, garðyrkjusýning, vöru- og þjónustusýning, blómasýning, byggðasafn og þar verða sýndar kvikmyndir en á útisvæði er reiknað með vélasýningu, tækja- sýningu, búfjárræktarsýningu, jarðræktarsýningu, þróunarsýn- ingu, afurðasýningu og þar verða sýningartorg fyrir sérsýningar, vörukynningar og sýningar á búfé. Sýningin mun standa dagana 11.—20. ágúst og mun forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, verndari sýningarinnar, opna hana við hátíðlega athöfn 11. ágúst. ÞRIÐJUDAGINN 25. apríl var haldinn aðalfundur Mjólkursamsöl- unnar formaður stjórnarinnar Ágúst Þorvaldsson bóndi á Brúnastöðum, stjórnaði fundi og flutti ásamt Guðlaugi Björgvinssyni fram- kvæmdastjóra yfirlit um rekstur og afkomu Mjólkursamsölunnar: Reksturinn gekk mjög vel á árinu, bændum er greittgrundvallarverð sem er kr. 84.06 en það er 7 aurum hærra en landsgrundvallarverðið. Auk þess fá þeir greidda þá 33 aura sem vantaði uppá grundvallarverðið fyrir framleiðslu ársins 1976. Þannig verður meðal útborgunarverð á hvern lítra fyrir framleiðslu árins 1977 krónur 84.35, en það var 72.8% af útsöluverði mjólkur. Heildarinnvigtun mólkurbúa á svæði Mjólkursamsölunnar var á síðastliðnu ári 58,5 milljón lítrar, en það var 6,3% aukning frá fyrra ári. Mest varð aukningin hjá Mjólkurbúi Flóamanna 7,7% en smávegis sam- dráttur varð hjá Mjólkurstöðinni í Reykjavík eða 1.9%. Um Mjólkur- stöðina í Reykjavík fóru 33.1 milljón lítrar af mjólkurvörum, þar af 5.2 milljón Itr. beint frá framleiðendum. Mest var mjólkurframleiðslan í júlí í fyrra 6.56 millj. ltr. en minnst í febrúar 3.19 milljón Itr. Þessi sveifla í mjólkurframleiðslunni skapar mikið vandamál, því er ákveðið að hækka verulega haustuppbót á mjólkurverðið. Samtals voru seldir 32.6 milljón Itr. af nýmjólk, en það var 5.3% minna en á árinu 1976. Nokkur samdráttur varð í sölu á venjulegu skyri og jógurt, en hann vannst upp með sölu á Ýmir, sem hófst á árinu. Mest varð aukningin I sölu undan- rennu. Keypt var af mjólkurbúunum á Norðurlandi 106 þúsund ltr. af Samningur um ríkissjóðs og viðskipti Seðlabanka SAMNINGUR um viðskipti ríkis- sjóðs og Seðlabankans um lána- fyrirgreiðslu og vaxtakjiir var undirritaður nýlega. eins og fram hefur komið í Mhl. Samkva/mt samningnum skal árstíðahundin rekstrarfjárfyrirgreiðsla Seðla- hankans við ríkissjóð í mánaðar- lok og innan hvers mánaðar miðast við greiðsluáætlun. sem fjármálaráðuneytið gerir í upp- hafi hvers fjárlagaárs og aðilar koma sér saman um. Greiðslu- áatlanir þessaf- skulu byggðar á íjárliigum og þeim breytingum. sem kunna að verða samþykktar á þeim. og skulu þær miðast við jöfnuð í lok hvers fjárlagaárs. eftir að greitt hefur verið af samningsbundnum skuldum ríkissjóðs við hankann. Reynist rekstrarfjárþörf ríkis- sjóðs nieiri en ráð er fyrir gert Karl Olsen jr. opnar fyrstu einkasýningu sína í Sjálfstæðishús- inu Ilólagötu 15. Njarðvíkum á laugardag. Karl sýnir 33 verk. olíu-. túss-. krítar- og vatnslitamyndir. Sýningin stendur til 15. maí. Myndin er af Karli við tvö verka sinna. mun Seðlabankinn veita viðbótaryfirdrátt á viðskipta- reikningum allt' að 30G umfram greiðsluáætlun, en jafnframt mun fjármálaráðuneytið bejta tiltæk- um ráðum til þess að draga úr lánsfjárþörfinni, svo sem nteð endurskoðun útgjaldaáforma og öflun viðbótartekna. Við afgreiðslu fjárlaga og láns- fjáráætlunar fyrir næsta ár skai þess gætt, að heimild til lántöku rúrni hgsanlega skuld-amyndun ríkissjóðs við Seðlabankann á því ári, sem er að líða. í samrænti við það skal skuld á viðskipta- reikningum ríkissjóðs við Seðla- bankann í árslok jöfnuð í upphafi næsta árs með lántöku á lána- markaði utan Seðlabankans og aðstoðar bankinn ríkissjóð við þá lánsfjáröflun eða lánsútboð. Ef hins vegar eru innstæður á viðskiptareikningum ríkissjóðs í árslok, verði stefnt að því að nota þær til að flýta endurgreiðslum umsamir.na lána við Seðla- bankann. Dagsmeðaltal nettóskuldar á viðskiptareikning- um, er til vaxtareiknings konia, beri vexti endurkeyptra afurða- lána að þeint mörkum, er greiðslu- áætlun setur en sé skuld þar umfrarn, verði greiddir almennir yfirdráttarvextir, eins og þeir eru hjá innlánsstofnunum á hverjum tíma, þ.e. samtala vaxta og við- skiptagjalds. Af nettóinnstæðu á viðskipta- reikningum, skal reikna vexti endurkeyptra afurðalána í Seðla- bankanum. Af viðskiptáskuld, sem unt hefur verið samið, sé samkvæmt náriara samkomulagi að jafnaði hluti í formi ríkissjóðsvíxla, er beri almenna víxilforvexti, eins og þeir eru á hverjum tí-ma. Fari kaup ríkisví.xla fram úr 15% af þeirri fjárhieð, skal það sem umfram er ekki skerða þá fjárhæð, er ber ve.xti endurkeyptra afurðalána. Verði verulegar breytingar á innbyrðis hlutfalli útlánsvaxta skulú vaxtaákvæði samningsins tekin til endurskoðunar nteð viðræðum milli samningsaðila. ö INNLENT Leiðrétting á gagnrýni m’ ■ I gagnrýni um tónleika Skag- u firzku söng- ^ sveitarinnar ^ féll niður eitt orð, þar sem fjallað er um söng Hjálmtýs Hjálmtýssonar. njáimt>r Setningin á að iijáimt<»Min vera svona: „Hjálmtýr hefur, eins og einn hlustandi §agði svo- vel, óþægilega fallega rödd og það er einmitt það, sem gerir'söng hans svo viðkvæman fyrir allrí tilgerð og stælingar augljósar“. Ennfremur var annað orð, fyrr í greininni, brenglað og á setning- in að vera: „Það er varla hægt að tala um flóknari samsetningar í verkum hans en einfaldar eftirlík- ingar stefja." J.Ásg. rjóma, en engin mjólk var flutt að norðan. Seldar voru mjólkurvörur fyrir samtals 535 milljón krónur. Lagt var í byggingarsjóð 24,8 milljón krónur, en í honum voru um s.l. áramót 371 milljón kr. Mest var fjárfest við ostagerðina í Búðardal, en heildar- fjárfesting þar, er nú orðin 170 milljónir króna. Starfsmönnum Mjólkursam- sölunnar fækkaði um 171 á árinu en það voru eingöngu afgreiðslustúlkur í mjólkurbúðunum. Starfsmenn um síðustu áramót voru 112. Flestar búðirnar hafa verið seldar, þó eru enn 6 í eigu M.S. Frá því að mjólkursalan var gefin frjáls hefur útsölustöum mjólkur fjölgað um 29. þar af 10 í Reykjavík. Mjólkurfram- leiðendum fækkaði um 71 á árinu, um síðustu áramót voru þeir 1295. Á aðalfundi Mjólkursamsölunnar í fyrra var kosin nefnd til að kanna aðild fyrirtækisins að Vinnuveit- endasambandinu og hvort ástæða væri til að hætta þar þátttöku. Nefndin skilaði áliti nú, þar sem lagt er til að stjórn Mjólkursamsölunnar segi fyrirtækið úr Vinnuveitenda- sambandinu og sæki um aðild að Vinnumálasambandi Samvinnu- manna og hafi um það samráð við stjórn Mjólkurbús Flóamanna, ályktun nefndarinnar var samþykkt samhljóða. Tveir stjórnarmenn áttu að ganga úr stjórn að þessu sinni, það voru þeir Eggert Olafsson, Þorvaldseyri og Oddur Andrésson, Neðra Hálsi, voru þeir báðir endurkosnir. Fyrir eru í stjórn Ágúst Þorvaldsson, Brúnastöðum, Gunnar Guðbjarts- son, Hjarðarfelli og Vífill Búason á Ferstiklu. Stefán Björnsson forstjóri framhald á bls. 30 ALFTAMYRI 4ra—5 herb. íbúð á 1. hæð ca. 110 ferm., suður svalir, bílskúr fylgir. Skipti á sérhæð koma til greina. Upplýsingar á skrifstof- unni. MIKLABRAUT 4ra herb. íbúð á 1. hæð í mjög góðu ásigkomulagi. Aukaherb. í kjallara fylgir. 2JA OG 3JA HERB. ÍBÚOIR í Hlíðunum og Norðurmýri. 5 HERB. ÍBÚÐ HAFNARFIRÐI 120 ferm. glæsileg íbúð í Norðurbænum, þvottahús inn af eldhúsi, stórar suður svalir. Verð 16.5 millj. ÞINGHÓLSBRAUT KÓP. góð 3ja herb. íbúð á 1. hæö, bílskúrsréttur. Verð 11.5—12 millj. GÓÐ 2JA HERB. ÍBÚÐ viö Þverbrekku í Kóp. á 2. hæö. Útb. 6.5 millj. 3JA HERB. ÍBÚÐ viö Grettisgötu á 3. hæö. Góð íbúð. Verð 10.5 millj. HÁTEIGSVEGUR 5 herb. íbúð á 2. hæð ca. 140 ferm., bílskúr. Verð 17 millj. réttarholtsvegur 4ra herb. íbúð-á 2. hæð, bílskúr fylgir. Verð 15 milij. SÖRLASKJÓL 3ja herb. risíbúð, bílskúr fylgir. VESTURBÆR góð 3ja herb. íbúð á 4. hæö. Verð 10—11 millj. ÓSKUM EFTIR ÖLLUM STÆPÐUM FASTEIGNA A SOLUSKRA. Pétur Gunnlaugsson, lögfr. Laugavegi 24, simar 28370 og 28040.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.