Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978 47 Asgeir endurnyjar samning við Stand- ard til þriggja ára KNATTSPYRNUMAÐURINN Asgeir Sigur- vinsson undirritaði á fimmtudaginn nýjan samning við belgíska félagið Standard Liege til næstu þriggja ára, en Ásgeir hefur leikið með félaginu undanfarin 5 ár. Þegar samningurinn tekur gildi verður Ásgeir hæstlaunaði knatt- spyrnumaðurinn hjá Standard og einn hæst- launaði knattspyrnumaður í Belgíu. Eins og áður hefur komið fram í Mbl. hafði Asgeir gengið frá samningnum við belgíska stórliðið Anderlecht og félagið hafði gert tilboð í Asgeir að upphæð 18 milljónir franka eða 144 milljónir íslenzkra króna. Þessu tilboði hafnaði Standard og setti á móti upp 25 milljónir franka fyrir Asgeir eða jafn- virði 200 milljóna króna. Ander- lecht var tilbúið að hækka boðið ef Standard vildi lækka sölu- verðið á móti en Standard var ófáanlegt til þess og féllu því samningaumleitanir niður. Síðan gerðist það að Petit, framkvæmdastjóri Standard, bauð Ásgeiri nýjan mjög hag- stæðan samning. „Þessi samn- ingur var ákaflega hagstæður fyrir mig og kjörin betri en Anderlecht bauð,“ sagði Ásgeir í samtali við Mbl. í gær. „Því sló ég til og skrifaði undir þriggja ára samning. Það hafði líka sitt að segja að ég var orðinn mjög leiöur og þreyttur vegna óviss- unnar, sem verið hefur yfir þessum málum að undanförnu og. ég vildi fá þetta alveg á hreint. Það hafa félög verið að tala við mig alveg síðan í janúar og alltaf einhverjir að hringja með ný og ný. tilboð. Pram- kvæmdastjóri Standard hefur anzað þessu litlu og haldið mér í svo háu verði að engin von var fyrir mig að fá samning við annað félag nema hann lækkaði sig. Það hefði kannski gerst einhverntíma seinna í sumar eftir að ég væri kominn á sölulista, en ég hef engan áhuga á því að bíða lengur í óvissu," sagði Ásgeir. Ásgeir sagði að mikill áhugi væri hjá forráðamönnum Standard að styrkja lið félags- ins með kaupum á nýjum mönnum. I gær keypti Standard t.d. belgíska landsliðsmanninn Willy Wellens frá Molenbeek og líklegt er að tveir nýir menn bætist í hópinn á næstunni, annar frá Uruguay og hinn Þjóðverji, frá liðinu Bayern Múnchen. Ásgeir kemur heim til íslands í frí í næstu viku en hann heldur síðan aftur til Belgíu til æfinga upp úr miðjum júní. Hann kvaðsL hafa mikinn áhuga á því að leika með íslenzka landslið- inu í sumar og sérstakan áhuga hefði hann á því að leika landsleikina gegn Dönum og Pólverjum hér heima. Þess skal getið að lokum, að Standard Liege skýrir ekki ópinberlega frá þeim kjörum, sem leikmenn félagsins njóta hjá því og Ásgeir hefur fylgt Ásgeir Sigurvinsson sömu reglu. Það liggur þó fyrir, að með nýja samningnum er Ásgeir hæstlaunaði leikmaður féiagsins og í hópi hæstlaunuðu leikmanna í belgísku knatt- spvrnunni. - SS. Er nú kominn í hóp hæstlaunuöu knattspyrnumanna Belgíu gegnHK ÞAÐ verða KR-ingar eftir allt I saman, sem Þurfa að leika tvo aukaleiki við HK um lausa sætiö í 1. deild karla. Fyrr í vikunní hafði KR sigrað Fram örugglega 24:18 og var fastlega búist við Því að Framarar Þyrftu að leika gegn HK. En í gærkvöldi gerðu Framarar sér lítíö fyrir og unnu KR-inga 20:13 og Þar með höfðu Þeir samanlagða markatölu 38:37. Fram heldur Því sæti sínu í 1. deild en KR-ingar leika tvo leiki við HK og fer sá fyrri fram í Laugardalshöllinni á sunnudags- kvöld klukkan 21. KR-ingar þurfa engum að kenna um nema sjálfum sér að svona fór í gærkvöldi. Það var greinilegt þegar leikurinn hófst að þeir litu aðeins á leikinn sem formsatriði. En fyrir það hefndist þeim grimmilega, því að Framararnir komu mjög ákveðnir til leiks og réðu KR-ingarnir ekkert við þá. Það voru fyrst og fremst þrír menn, sem skópu sigur Fram í! gærkvöldi, Gústaf Björnsson, Atli Hilmarsson og Guðjón Erlendsson markvörður. Hann varði allan tímann I mjög vel. Gústaf var mjög góður leikinn út í gegn og á lokamínútunum | skoraöi Atli mörkin, sem gerðu út um leikinn. KR-ingarnir voru slakir að þessu Framhald á bls. 26 .1 r f # ijpm 1 iiiiSl ¥1 ijSHH í s rmmr HT , íslandsmeistarar Fram í 1. deild kvenna ásamt Þjálfara sínum Guðjóni Jónssyni og Ólafi Jónssyni stjórnarmanni. FRAM ÍSLANDSMEISTARI FRAM varó Islandsmeistari í 1. deild kvenna í ár. Seinni aukaleik FH og Fram sem fram fór í gærkveldi í Laugardalshöll lauk meö jafntefli 9—9. Fram sigraði í fyrri leiknum 11—9 Þannig að jafntefli kom íslandstitlinum í höfn. Leikur liðanna í gær var bráð- skemmtilegur á að horfa, og mikil barátta var í honum allan tímann. Það var ekki fyrr en 20 sek. voru til leiksloka að Jóhanna braust laglega í gegn um vörn FH og jafnaði leikinn. FH-stúlkurnar mættu mjög ákveðnar til leiks og beittu því herbragði að elta Guöríði og Oddnýju, og í fyrstu virtist þetta ætla að heppnast vel, því sókn Fram var fálmkennd og lítil ógnun var í leik liösins, FH náði öruggri forystu og þegar 4 mínútur voru til loka fyrri hálfleiks var staðan 6—2 FH í hag, en á síðustu mínútum hálfleiksins bættu Jóhanna og Sigrún tveim mörkum við fyrir Fram og staöan í leikhléi var 6—4. I síðari hálfleik náðu Framstúlk-. urnar svo mun betri tökum á leiknum, jafnframt því sem FH-ing- unum mistókst hver sóknartilraun- in af annarri með slæmum send- ingum eða óyfirveguðum markskotum. FH hélt samt forystu fram á lokamínútu leiksins en eins og fyrr segir tókst Fram að jafna. Fram- stúlkurnar eru vel að sigrinum komnar og er þetta þriðja árið í röö Framhald á bls. 26 Aratunga Haukar Skemmta all svaöalega þetta kvöld. Sætaferðirnar eru frá B.S.Í., Laugarvatni, Selfossi, Þorlákshöfn. Muniö eftir brosi á vör, því þá verður fjör. Stebbi B. FH sigraði Þrótt Lokakeppni í 2.fl. karla í hand- knattleik hófst í gær og léku þá Þróttur og FH. Sigraði PH með 13 mörkum gegn 11. Bæði liðin eiga eftir að leika við Þór frá Akureyri. Fimleikasamband Islands Firmakeppni F.S.Í. veröur í Laugardalshöll sunnudaginn 30. apríl kl. 15. Forgjafakeppni besta fimleikafólk landsins keppir. Spennandi keppni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.