Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978 7 14.4 milljaröar í hafnar- framkvæmdir Samgönguráðherra lagðí nýverið fram skýrslu á Alpingi um hafnarframkvæmdir í landinu á liðnu ári. Að sögn ráðherra var varið 2.178,1 m. kr. í pessar framkvæmdir samanlagt á pví ári, sem er tæplega 16% aukning frá árinu 1976. Á líðandi kjörtíma- bili, p.e. á árunum 1974—77, hefur hins vegar verið varið samtals til hafnarframkvæmda í landinu 14.4 milljörðum króna, séu fjárframlög færð til verðlags dagsins í dag. Heildarfjárveiting til hafnarframkvæmda skiptist pann veg, skv. skýrslu ráðherra: Suður- landskjördæmi 28.7%, Reykjaneskjördæmi 17.4% Austurlandskjör- dæmi 13.4%, Norðurland eystra 12.2%, Vesturland 12,0%, Vestfiröir 8,9% og Norðurland vestra 7,9%. Hornsteinar verömæta- sköpunar Útgerðar- og fisk- vinnsluhafnir, sem mynda keðju framieiðslu- eininga meðfram allri strandlengju landsins, eru tvímælalaust traustustu hornsteinar verðmætasköpunar og gjaldeyrisöflunar í pjóðarbúinu. Það kemur pví engum á óvart, að töluverðu fjármagni er varið til að byggja upp starfsaðstöðu útgerðar og fiskvinnslu. Það er hyggileg fjárfesting. Þjóðhagslegt gildi fiskihafna veldur pví að sameiginlegur sjóður landsmanna, ríkissjóður, fjármagnar drjúgan hluta stofnkostnaðar Þeirra. Þetta er ekkert sér- íslenzkt fyrirbrígði. Þann veg er einnig staðið aö málum í öðrum ríkjum, Þar sem fiskveiðar hafa umtalsvert Þjóðhagslegt gildi. Þessí Þátttaka ríkis- sjóðs í stofnkostnaði hafna styðst einnig við Þá staðreynd, aö viðkomandi hafnir Þjóna oftast fleiri byggðar- lögum, Þó eitt sveitar- félag standi undir rekstri Þeirra og hluta stofn- kostnaðar á móti ríkis- sjóði. sú að stofnkostnaðarhluti ríkissjóðs í höfnum sé 75%. í Þremur svonefnd- um landshöfnum er stofnkostnaöarÞátttak ríkissjóðs hins vegar 100%. Þær eru Keflavík, Njarðvík, Rif og Þorláks- höfn. Reykjavíkurhöfn ein verður að standa að fullu og öllu undir sínum stofnkostnaöi, án minnstu Þátttöku ríkis- sjóðs. Eðlilegt er að Reykvíkingar, sem greiða sinn hlut fullmældan í sameiginlegan sjóð landsmanna, og hafa Þurft aö horfa upp á samdrátt í frumatvinnu- greinum sínum, einkum varðandi sjávarútveg, spyrji: hvers vegna pennan mun á opinberri fyrirgreiðslu varðandi hafnarframkvæmdir og útgerðaraðstöðu? Spyrja mætti raunar hins sama um lánsfjárfyrirgreiðslu til atvinnuvega sjávarút- vegs úr opinberum fjár- fesTingarsjóðum. Aöstaöan fyrr og nú Sú var tíö að sá munur var á fjárhagsstöðu Reykjaví kurhafnar og annarra hafna í landinu að nokkur mismunun í Þessu efni var réttlætan- leg. En Þessar aðstæöur hafa breytzt í höfuð- dráttum. Reykjavíkur- höfn, sem var vagga togaraútgerðar í landinu, hefur mátt sæta veru- legum útgerðarsam- drætti, sem veikt hefur atvinnulíf borgarinnar, Þótt hún sé enn Þýöingarmikil útvegs- höfn. Hún hefur ekki haft hliðstæða fjárhagsfyrir- greiðslu og önnur sveitarfélög varðandi hafnarframkvæmdir. Reykjavíkurhöfn Þjónar ekki aðeins hafnlausum nágrannasveitarfélögum (Kópavogi, Garðabæ' og Seltjarnarnesi), heldur er hún uppskipunarhöfn fyrir landið allt. Reyk- víkingar greiöa, sem fyrr segir, sinn skerf í sameiginlegan sjóð landsmanna, og Þeim mun ríflegri sem Þeir eru fleiri en íbúar annarra byggðarlaga. Ekkert mælir með Því nú orðið, að Reykjavíkurhöfn njóti ekki hliöstæðrar fyrir- greiðslu varðandi stofn- kostnað og aðrar hafnir. Það er e.t.v. eðlilegt að Reykjavíkurhöfn fái jafn- rétti við aðrar hafnir í áföngum, til að aðlaga „kerfið“ breytingunni. En Það vekur hins vegar athygli, að forystumenn flokka, sem harðast deila á forystu borgarmála í Reykjavík, hafa sýnt hagsmunum Reykja- víkurhafnar algjört áhugaleysi í Þessu efni, sumir beínan fjandskap. Þeir biöla til atkvæða Reykvíkinga — en taka afstöðu gegn peim eða sýna algjört áhugaleysi, Þegar slík velferðarmál borgarinnar ber á góma. Hvers vegna mismunur á stofnkostnaðar- þátttöku? Hin almenna regla er * É r jfWeöáur f^ámorgun BÆNADAGlJli Ba'narofnii IIcIkí mann- leg.s lífs. w 1 LITUR DAGSINSi Ilvítur. Litur Kleðinnar. ípt 'WéMh Hinn almenni bænadagur DOMKIRKJAN: Messa kl. 11 árd. Séra Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Þórir Stephensen. Einsöngvarakórinn syngur við báöar messurnar. LAND AKOTSSPÍT ALINN: Messa kl. 10 árd. Séra Þórir Stephensen. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma ( Safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 10:30 árd. Guösþjónusta í Safnaðarheimilinu kl. 2. Séra Guðmundur Þorsteins- son. BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 5, (athugið breyttan messutíma) organleikari Guðni Þ. Guðmunds- son. Séra Ólafur Skúlason, dómprófastur. FELLA- OG Hólaprestakall: Fermingarguðsþjonustur kl. 10:30 árd og 1:30 síðd. Séra Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 2, altarisganga. Organ- leikari Jón G. Þórarinsson. Séra Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Lesmessa n.k. þrlöjudag kl. 10:30 árd. Beölö fyrir sjúkum. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 11 árd. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Tómas Sveinsson. Síðdegisguösþjónusta og fyrirbænir kl. 5 síðd. Séra Arngrímur Jónsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 2. Barnasam- koma í Safnaðarheimilinu viö Bjarnhólastíg kl. 11. Séra Þor- bergur Kristjánsson. LANGHOLTSPREST AKALL: Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Séra Árelíus Níelsson. Guösþjónusta kl. 2. Ræðuefni: Helgi mannlegs lífs. Einsöngur: Elín Sigurvinsdóttir, viö orgelið: Jón Stefánsson. Safnaðarstjórnin. LAUGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2. Aðalfundur safnaöarins verður strax a lokinni messu. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10:30. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. Guösþjónusta kl. 2 e.h. Séra Frank M. Halldórsson. Bæna- guðsþjónusta kl. 5 síðd. Séra Guðm. Óskar Ólafsson. FÍLADELFÍUKIRK JAN: Almenn guösþjónusta kl. 8 síðd. Einar J. Gíslason. KFUM Sunnudagaskólinn Amt- mannsstíg 2 B, fyrir öll börn kl. 10.30 árd. Þetta er síðasti sunnu- dagaskólinn á vorinu. GRUND elli og hjúkrunarheimilið: Messa kl. 2 síðd. Séra Hjalti Guðmundsson dómkirkjuprestur prédikar. FRÍKIRKJAN Reykjavík Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2 síöd. Hjálp- ræðissamkoma kl. 8.30 síðd. Óskar Jónsson. DOMKIRKJA Krists konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síöd. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 síðd., nema á laugardögum þá kl. 2 síöd. FÆREYSKA sjómannaheimilið: Samkoma kl. 5 síðd. Johann Olsen. GARÐAKIRKJA: Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd. Skólakór Garöabæjar syngur. — Nemendur Heyrnleys- ingjaskólans taka þátt í afhöfninni. Séra Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra í Garöabæ: Hámessa kl. 2 síðd. HAFNARFJARDARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra Sigurður H. Guðmundsson. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Guðsþjonusta kl. 2 síðd. Séra Magnús Guðjónsson. MOSFELLSPRESTAKALL: Messað aö Mosfelli kl. 2 síðd. Sóknarprestur. NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Innri-Njarövíkur- kirkju kl. 2 síðd. Séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson prédikar. Kór Hrunakirkju syngur undir stjórn' Sigurðar Ágústssonar frá Birtinga- holti. KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. HVALSNESKIRKJA: Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30 árd. og kl. 2 síðd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA: Almenn guðsþjónusta kl. 2 síðd. Ferming. Sóknarprestur. REYNIVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. — Ferming. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. árd. Messa kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson. f---------------------------------------------\ Fáksfélagar Farin veröur hópferö á hestum aö Hlégaröi, sunnudaginn 30. apríl. Lagt veröur af staö frá Efri hesthúsum félagsins, aö Víöivöllum, kl. 14 stundvíslega. Nauösynlegt aö allir leggi af stað á sama tíma, vegna umferöar á fjölförnum bílavegum. Félagar fjölmenniö. Hestamannafélagið Fákur. 5 ára Verzlunarskólanemar útskrifaðir 1973 Mætum öll í Óðali kl. 4 á morgun sunnudag. Nefndin. ‘Þakkir’ „Öllum þeim, sem glöddun mig meö heillaskeytum, heimsóknum og gjöfum á áttræöisafmæli mínu 17. apríl s.l. þakka ég auðsýndan heiöur og vinarhug. Guö blessi ykkur öll.“ Benedikt Grímsson, Kirkjubóli. ^Snyrtistofan UTLIT Snyrtistofan veröur lokuð um óákveöinn tíma vegna veikinda Gunnhildur Gunnarsdóttir. Snyrtisérfræðingur. Píanótónleikar Rögnvaldur Sigurjónsson, píanóleikari heldur tónleika á vegum Tónlistarfélags Kópavogs, sunnudaginn 30. apríl kl. 5 e.h. í sal Tónlistarskól- ans að Hamraborg 11, 3. hæö. Á efnisskránni eru verk eftir Beethoven, Chopin og Liszt. Aögöngumiöar veröa seldir viö innganginn. Kynningar kvold Spánarkvöld — Benidorm kynning Hafnarfjörður Skiphóll Sunnudaginn 30. apríl kl. 19. Ljúffengur veizlumatur. Feröakynning — Benidorm. Feröabingó 3 umferöir. Skemmtiþáttur, Ómar Ragnarsson. Tískusýning Karon. Danssýning — Sæmi og Didda. Dans. Dominic. Borðapantanir í síma 52502. Ferðamióstööin hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.