Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. APRIL 1978
Minning — Sigur-
björg Magnús-
dóttir - Borgarnesi
Fædd fi. desember 1896.
Dáin 20. apríl 1978
A sumardatjinn fyrsta barst mér
andrátsfregn föðursystur minnar,
SifíurbjarKar Mafínúsdóttur. Ekki
kom andlát hennar á óvart, því
síðustu mánuði fór heilsu hennar
síhnijjnandi ojí síðustu dagana,
sem hún lá á sjúkrahúsinu á
Akranesi, var ljóst að hverju dró.
Sifjurbjört; fæddist 6. desember
1896 i Tíðarfíerði á Vatnsleysu-
strönd. Voru foreldrar hennar
hjónin Herdís Jónsdóttir, Þorkeis-
sonar frá Fiekkuvík og Magnúsar
Maftnússonar, Halljírímssonar,
prests í Görðum á Akranesi. Var
Sif;urbjör>; ynfjst sex barna þeirra
hjóna. Tvö syskini létust nýfædd
(tvíburar) áður en SifjurbjOrf;
fæddist, en tvær systur missti
hún, er hún var barn að aldri,
Guðrúnu, sem dó 1901, 19 ára of;
Soffíu, sem lézt 1904, 24 ára. Föður
sinn missti hún 1910, 13 ára
f;ömul.
Við andlát þeirra þrigfya var
þunf;ur harmur kveðinn að heimil-
inu í Tíðarj;erði en Herdís, amma
mín, var afar vel gerð Of; tók öilu
með stakri ró ok jafnaðarf;eði.
Hélt hún heimili með börnum
sínum, Erlendi (f. 1910) of; Sif;ur-
björj;u þar til Elrlendur giftist ok
fór að búa 1915. A unj;linf;sárun-
um fór hún á sumrum í kaupa-
vinnu upp í Borf;arfjörð og þar
kynntist hún eftirlifandi manni
sínum, Stefáni Olafssyni, skó-
smíðameistara í Borf;arnesi. Þau
voru bæði í kaupavinnu á Svarf-
hóli í Stafholtstun);um.
Foreldrar Stefáns voru Sif;ríður
Ólafsdóttir, ættuð af Álftanesi og
Ólafur Stefánsson ættaður úr
Borgarfirði, en ekki þekkti ég ætt
hans. Þau bjuggu á Bjargarsteini
í Stafholtstungum og víðar en
síðast á Akranesi.
Stefán settist að í Borgarnesi
1914 og hóf þar skóviðgerðir og
skósmíði eftir að hafa lokið námi
í þeirri iðn. Hann rak einnig um
skeið skóverzlun.
Sigurbjörg og Stefán giftust 19.
marz 1921 og reistu sér hús í
Borgarnesi, sem þau bjuggu í fram
til ársins 1976, að þau fóru á
Dvalarheimili aldraðra í Borgar-
nesi, þegar Sigurbjörg gat ekki
lengur annazt um heimiii sitt.
Stefán hefur til þessa unnið við iðn
sína stund úr degi á vinnustofu
sinni í gamla húsinu þeirra.
Fyrir mörgum árum hófust þau
handa um trjárækt í garðinum
bak við húsið, sem hallar mót
vestri og eru þar nú stór og falleg
tré.
Foreldrar Stefáns áttu heimili
hjá þeim síðustu æviár sín. Stefán
er mörgum að góðu kunnur fyrir
störf sín, ekki sízt langferðabíl-
stjórum fyrri ára, sem oft þurftu
að fá gert við hjólbarða með hraði.
Sigurbjörg og Stefán eignuðust
tvö börn, Sigríði og Magnús.
Sigríður er gift Guðmundi Sverris-
syni, Gíslasonar í Hvammi í
Norðurárdal. Þau bjuggu í
Hvammi í 35 ár, þar sem Guð-
mundur tók við búi eftir foreldra
sína, en flutti til Borgarness
haustið 1976 og var Sigurbjörgu
það óblandið ánægjuefni að hafa
þau í nágrenni við sig síðustu
misserin sem hún lifði og heilsa
hennar þvarr.
Sigríður og Guðmundur eiga 4
börn: Þau eru Sigurlaug, kennari
á Akranesi gift Indriða Valdi-
marssyni prentara; Sigríður, sem
vinnur á rjúkrahúsinu á Akranesi,
gift Sigurði Þórðarsvni bifreiða-
stjóra; Sverrir tók við búi í
Hvammi eftir að foreldrar hans
fluttust til Borgarness, en hann
hafði áður stundaö tónlistarnám í
Þýzkalandi í nokkur ár. Sverrir er
giftur Sigþrúði Þórðardóttur frá
Hraöavatni. Yngstur er Guðmund-
ur Stefán, sem dvelur hjá foreldr-
um sínum.
Magnús, sonur Sigurbjargar og
Stefáns, nam fyrst við háskóla í
Þýzkalandi í 2—3 ár en las síðan
sagnfræði við háskólann í Ósló.
Hann er giftur norskri konu,
Gunnhild Sogne, sem stundaði
nám við sama háskóla og eiga þau
3 börn; Sigurð Ólaf, 16 ára
menntaskólanema; Ingunni Maríu,
14 ára og Erlend Stefán, 11 ára.
Magnús kenndi fyrst við háskól-
ann í Ósló en hefur verið lektor við
háskólann í Bergen síðan 1956 og
þar býr fjölskyldan.
Magnús hefur oft komið heim
með fjölskyldu sína, til mikilla
gleði foreldrum sínum, en þau fóru
einnig í heimsókn til þeirra í
Noregi.
Eftir að Sigurbjörg og Stefán
voru orðin ein í húsinu sínu,
dvöldu nokkra vetur hjá þeim
ungar stúlkur, er sóttu framhalds-
skóla í Borgarnesi. Eg held að
foreldrum þessara stúlkna hafi
þótt þeim vel borgið á þessu
heimili, þar sem reglusemi og
sk.vldurækni sátu í öndvegi, og
Sigurbjörg fróð og fróðleiksfús,
hafði áhuga á og ánægju af, að
fylgjast með námi og framförum
þeirra.
Sigurbjörg undi vel hag sínum í
Borgarnesi. Hún kunni vel að meta
hina rómuðu fegurð Borgarfjarðar
og njóta hennar, en oft dvaldi
hugurinn suður með sjó og þaðan
var spurt frétta.
Einstakur var vilji Sigurbjargar
að skrifa sendibréf og mörg voru
bréfin er hún skrifaði okkur
krökkunum, sem reyndum síðan að
svara hverju bréfi og lærðum
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er auösýndu okkur samúö og vináttu vegna
andláts og jarðarfarar
SIGURJÓNS JÓNSSONAR
skipstjóra frá Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
María Kristjánsdóttir,
Guðfinnur Sigurjónsson, Helga Bachmann,
Kristján Sigurjónsson, Margrét Olafsdottir,
Jón Ármann Sigurjónsson, Sigríður Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Tengdafaöir minn og afi okkar.
ÁRNI SIGFÚSSON,
lézt hinn 17. apríl s.l. aö Hrafnistu. Jaröarförin hefur fariö fram. Sóley Sveinsdóttir, Árni Rafnsson, Oddný Rafnsdóttir.
Norræna hússins
mikið á því. Þau skrifuðu bæði
fágætlega fagra rithönd, Sigur-
björg og Stefán, og eru jólakortin
þeirra hreinustu listaverk, bæði
vegna fagurrar rithandar og ósk-
anna þeirra, sem komu beint frá
hjartanu. Þá má heldur ekki
gleyma jólagjöfunum hennár, er
við vorum lítil og afmælisdagana
okkar allra mundi hún upp á hár.
Já, margs er að minnast og margt
er að þakka.
Eftir að síminn kom, hringdi
Sigurbjörg oft og ætíð 1. desem-
ber, á nýarsdag og sumardaginn
fyrsta, en sá dagur var henni
ávallt kær og sumarkoman
fagnaðarefni. Það er því táknrænt,
að einmitt þann dag skyldi hún
kveðja jarðlífið og heilsa hinu
eilífu sumri fyrir handan.
Eg bið Guð að styrkja og styðja
Stefán á dögum sorgarinnar og
blessa honum ógengin spor.
Blessuð sé minning kærrar
frænku minnar. „Far þú í fríi,
friður Guðs þig blessi, hafðu þökk
fyrir alit og allt.“
Ingibjiirg Erlendsdóttir.
DAGANA 29. apríl til 7. maí
verður ljósmyndasýning í anddyri
Norræna hússins um Christaníu-
hverfið í Kaupmannahöfn. Það er
Þróunarstofnun Álaborgarhá-
skóla, sem hefur undirbúið þessa
sýningu. Hún var fyrst sett upp
sem hluti af sýningunni Alternativ
Arkitektur í Louisiana-safninu á
Sjálandi í fyrrasumar og vakti
mikla athygli. Fyrirspurnir og
beiðnir um sýninguna bárust frá
stofnunum víða um heim og varð
það til þess að sýningin var gerð
að farandsýningu, sem ráðgert er
að setja upp víða, að því er segir
í frétt frá Norræna húsinu. Anne
Maríe Rubin prófessor í arkitektúr
við Álaborgarháskóla setur upp
sýninguna hér og kynnir hana.
Samtímis hyggst Alaborgarhá-
skóli kynna starfsemi sína og
menntunarmöguleika í hinum
ýmsu deildum. Rektor Álaborgar-
háskóla, Sven Casperse og J. Kier
Nielsen deildarforseti koma til
landsins um næstu helgi og
heimsækja meðal annars Tækni-
skóla íslands og Háskóla íslands í
því skyni, og dveljast þeir hér á
landi frá 29. apríl til 6. maí n.k.
GUNNAR EINARS-
SON— KVEÐJA
Fæddur 18. júní 1960
I)áinn 23. apríl 1978.
Með fáum línum vil ég kveðja
elskulegan vin. Ég þakka honum
fyrir samfylgdina í þessu lífi. Þó
hún hafi verið stutt markaði hún
sinn þátt. Einnig vil ég þakka
honum fyrir þann dýrmæta tíma,
sem hann eyddi í leik og glens með
mér og Jóhönnu frænku hans.
Þessar stundir munum við geyma
í hjarta okkar sem minningar um
hann. Síðan vil ég biðja góðar
vættir að blessa minningu hans.
Ég votta eftirlifandi unnustu
hans, foreldrum, systkinum og
öðrum vandamönnum mína dýpstu
samúð og bið góðan guð að hjálpa
þeim að komast yfir þann mikla
missi.
Anna Þormóðsdóttir.
Þeir sem >?uðirnir elska deyja ungir
Hvílík harmafregn, hvílíkt
reiðarslag, er fréttin barst. Á
fögrum vordegi endaði hann sitt
æviskeið á leiðinni heim með
unnustu sinni. Þá greip Drottinn í
taumana.
Gunnar Einarsson var fæddur
18. júní 1960, sonur hjónanna
Einars Gunnarssonar, húsgagna-
smiðs, og Sigríðar Guðbrandsdótt-
ur. Var hann næst yngstur af
fimm systkinum.
Hann ólst upp á heimili foreldra
sinna, fyrst að Smáratúni 32 og
síðar að Háaleiti 38 í Keflavík.
Var ætíð ríkjandi mikill kær-
leikur og góð vinátta á heimilinu,
milli systkinanna, maka þeirra og
foreldra. Var þar oft glatt á hjalla
og málin rædd.
Gunnar var ætíð blíður í lund og
stutt í brosin, hann átti auðvelt
með að umgangast aðra og var
sannur vinur vina sinna.
Besti vinurinn var þó án efa
Valdís unnusta hans sém stóð ætíð
við hlið hans frá þeirra fyrstu
kynnum. Á milli þeirra var
órjúfandi samband vináttu og
ástar.
Manni finnst svo óréttlátt að svo
ungur piltur í blóma lífsins skuli
Ein af myndunum sem er á
sýningunni í anddyri Norræna
hússins.
hrifinn á brott svo skyndilega.
Framtíðin björt framundan, gleði
yfir nýstofnuðu heimili og hann
langt kominn með námið við
trésmíðina, þá iðn sem hann frá
fyrstu árum var svo ákveðinn í að
læra og undir handleiðslu föður
hans tók svo skjótum framförum
við. Hver er tilgangurinn? spyrj-
um við hin, sem eftir stöndum,
agndofa. Það grúfir nú þung sorg
yfir heimilum foreldra hans,
unnustu, systkina og annarra
ættingja. En minningin lifir, björt
og fögur um góðan dreng, sem eigi
mátti vamm sitt vita.
Ég bið góöan Guð sem öllu
ræður að styrkja þau í þessari
þungu raun. Við fjölskyldan á
Sunnubrautinni, amma og afi,
þökkum Gunnari innilega sam
fylgdina og vottum okkar dýpstu
samúð.
Far þú í (riði,
friöur KUÖs þiu hlessi.
Ilaföu þökk fyrir allt og allt
Gckkst þú með guði.
Guð þér nú fylgi.
Ilans dýrðar hnoss þú hljóta skalt.
Frænka.
Landsliðs-
æfingar að
hefjast
í skák
INNAN skamms er áformað að
landsliðsæfingar hefjist í skák
vegna væntanlegrar þátttöku
Islands í Olympíuskákmótinu í
Argentínu í haust. Stefnt er að
því að Island tefli fram sinni
sterkustu sveit og munu okkar
beztu menn taka þátt í æfing-
unura, þeirra á meðal stór-
meistararnir Friðrik Ólafsson
og Guðmundur Sigurjónsson,
alþjóðlegu meistararnir Ingi R.
Jóhannsson og Helgi Ólafsson,
Margeir Pétursson, Haukur
Angantýsson, Jón L. Árnason
og Ingvar Ásmúndsson.
Handvinnu-
sýning í
Flataskóla
FLATASKÓLI í Garðabæ er nú að
ljúka sínu 20. starfsári. í tilefni af
því verður afmælissýning á handa-
vinnu, teikningum og vinnubókum
og alls konar verkefnum nemenda
opin klukkan 14—-19 í dag, laugar-
dag, og á morgun. Ennfremur
verða sýndar Ijósmyndir af nem-
endum og myndir úr félagsstarfi
síðustu 20 árin. Kvenfélag Garðá-
bæjar selur kaffi báða dagana á
meðan á sýningu stendur til ágóða
fyrir dagheimiíin í bænum.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Ljósmyndasýning um
Christaníu í anddyri