Morgunblaðið - 29.04.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978
Le Matin gagnrýnir
Marchais harðlega
SKÝRT hcfur verið
frá því að eitt fræg-
asta myndarit
heims. Life. verði
lífííað við. bað cr
handarískt og hóf
útkomu árið 1936
ok flutti þá frétta-
myndir o>? frásaRn-
ir sem vöktu mikla
athygli. Ekki hvað
sízt þótti stríðs-
myndaflutningur
tímaritsins merki-
leíjur á si'num tíma.
Upplag Life
komst mest í 8,5
fnilljónir á viku ár-
ið 1966. Síðan fór að
halla undan fæti og
^ ** ■■ ---M...
f Wlöl SflflWTWrHS
landrtg fcsw
Life Lífgad vid
var samkeppninni
við sjónvarp meðal
annars kennt um.
Altjent jukust mjög
efnahafísörðugleik-
ar ritsins og það
varð fyrir barðinu á
blaðadauðanum
1972 Life er í eigu
sama útgáfuhúss og
gefur út Time. Nú
hefur forysta Time
skýrt frá því að
stefnt sé að hefja
útgáfu Life á ný, og
verði það að þessu
sinni mánaðarrit,
120 blaðsíður og
verður upplagið til
að byrja með um
700 þúsud eintök.
Komið upp um hryðju
verkamenn í Kairó
Kairó, 28. apríl. Reuter.
NABAWI Ismail. innanríkisráð-
herra Egyptalands. skýrði frá því
í dag að egypska lögrcglan hefði
á undanförnum mánuðum komið
upp um fjölmarga hryðjuverka-
hópa. sem skipulagt hefðu
hermdarvcrk og skemmdarverk í
Egyptalandi.
Ismail á að hafa sagt að stjórnir
íraks, Sýrlands, Alsírs, Suð-
ur-Yemens og Líbýu, svo og PLO,
hafi stutt hermdarverkamennina,
sem börðust gegn stefnu Anwar
Sadats í Miðausturlöndum.
Öfgasinnuð hryðjuverkasamtök
hótuðu því að myrða Sadat
Egyptalandsforseta í kjölfar heim-
sóknar hans til Jerúsalem í
nóvember í fyrra.
París. 28. apríl. Reuter.
MÁLGAGN franskra sósíalista,
Le Matin. gagnrýndi harðlega i
dag fullyrðingar Georges Mar-
chais leiðtoga franskra kommún-
ista um að ósigur vinstri aflanna
í frönsku kosningunum í síðasta
mánuði hefði verið að kenna
sósialistum. Blaðið sagði að full-
yrðingarnar væru hroki og að
Marchais hefði með þcim endan-
lega hundið endi á bandalag
sósíalista, kommúnista og
vinstri-róttæklinga. sem þróast
hcfur frá 1972.
Viðbrögð Le Matin eru fram
komin vegna skýrslu Marchais
sem hann flutti á fundi miðstjórn-
ar franska kommúnistaflokksins
í gærkvöldi, en þar gerði Mar-
chais litið úr allri gagnrýni á
stefnu flokksins sem komið hefur
fram í kjölfar ósigurs vinstri
aflanna í þingkosningunum.
Le Monde sagði í dag að þó að
miðstjórn franskra kommúnista
Ekkert frekar hefur verið látið
uppi um hina handteknu hryðju-
verkamenn, en þó var skýrt frá því
í dag að þeir væru 24 og flestir
Palestínumenn.
Ríkissaksóknari skýrði einnig
frá því að hermdarverkamennirnir
hefðu verið í nánu sambandi við
Rauðu herdeildina á Italíu.
hefði öll lagt blessun sína á
skýrslu Marchais hefði hún alls
ekki sannfært hina gagnrýnni
flokksmenn um réttmæti stefn-
unnar, heldur væri hún einungis
frekara vopn í höndum þeirra.
Marchais sagði í skýrslunni að
stefna kommúnista hefði verið
rétt, en sósíalisar hefðu hins vegar
haldið til streitu stefnu sem
fyrirfram var dæmd til að bíða
ósigur.
Menntamenn meðal franskra
kommúnista hafa einkum gagn-
rýnt stefnu flokksins í kosninga-
baráttunni og ásamt mörgum
sósíalistum sagt að flokkurinn
hafi beinlínis hrakið atkvæði frá
vinstra bandalaginu með öfga-
kenndum málflutningi og fullyrð-
ingum.
Óánægja þessi kemur frá ýms-
um þekktuip flokksmönnum, en
áhrif þeirra eru lítil og skoðanir
þeirra ekki taldar endurspegla álit
stuðningsmanna flokksins, að sögn
fréttamanns Reuters.
Marchais sagði í skýrslu sinni að
ekki kæmi til greina að stokka upp
í flokksskipaninni, eins og andófs-
mennirnir innan flokksins hafa
farið fram á í gagnrýni sinni á
flokksstefnuna. Hann sagði að
ekki kæmi til greina að gera
flokkinn að málfundafélagi og
leyfa „stjórnleysi yfirstéttanna"
þannig að knýja að rótum flokks-
ins. Öll miðstjórn flokksins sam-
þykkti einróma skýrslu Marchais.
Stjórnmálafræðingar í Frakk-
landi telja að Marchais hafi af
ásettu ráði sleppt að minnast í
skýrslu sinni á veigamikil ágrein-
ingsmál úr herbúðum kommún-
ista. Þeir segja að mikil átök um
völd eigi sér nú stað innan
flokksins milli þeirra sem aðhyll-
ast Evrópukommúnismann annars
vegar og Moskvuharðlínumanna
hins vegar.
Á undanförnum þremur árum
hefur Marchais öðrum fremur átt
mestan þátt í því að tengsl
franskra kommúnista við Moskvu
hafa minnkað. Flokkurinn hefur
þó ekki fjarlægst Moskvu eins
mikið og spánskir kommúnistar til
að mynda.
Margir af núverandi valda-
mönnum franska kommúnista-
flokksins voru þegar háttsettir á
tímum kalda stríðsins, en þá voru
franskir kommúnistar dyggustu
stuðningsmenn Sovétríkjanna á
Vesturlöndum. Þessir sömu menn
eru sagðir áhyggjufullir vegna
þverrandi tengsla við Moskvu og
eru sagðir andvígir því að frjáls-
ræði aukist innan flokksins.
Ólíklegt er talið að átökin í efstu
röðum franskra kommúnista hafi
áhrif út frá sér á stuðningsmenn
flokksins, sem einkum eru starfs-
menn í verksmiðjum og fjölskyld-
ur þeirra.
Rússar veiða
við Marokkó
Rabat, 28. apríl. Reuter.
SKÝRT var frá því í Rabat í
Marokkó f dag að Sovétmenn
hefðu gert samkomulag við
Marokkó um að sovéski úthafs-
flotinn fái að veiða í fiskveiðilög-
sögu landsins.
1. Axel Jónsson
2. Richard Björgvinsson
Listi Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi
BIRTUR hefur verið listi Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi við
næstu bæjarstjórnarkosning-
ar.
Listann skipa: 1. Axel Jóns-
son alþm., 2. Richard Björg-
vinsson viðskiptafr., 3. Bragi
Michaelsson framkv.stj., 4.
Steinar Steinsson skólastjóri, 5.
Torfi B. Tómasson framkv.stj.,
6. Steinunn Sigurðardóttir hús-
móðir, 7. Stefnir Helgason
framkv.stj., 8. Árni Örnólfsson
skrifst.m., 9. Hilmar Björg-
vinsson hdl., 10. Skúli Sigurðs-
son vélstjóri, 11. Asthildur
Pétursdóttir fulltrúi, 12. Ingi-
mundur Ingimundarson bif-
reiðastjóri, 13. Ársæll Hauks-
son verkamaður, 14. Þórarinn
Þórarinsson handavinnukenn-
ari, -15. Jón Auðunsson pípul.m.,
16. Jóhanna Thorsteinsson for-
stöðumaður, 17. Ármann Sig-
urðsson járnsmiður, 18. Guðný
Berndsen húsmóðir, 19. Arnþór
Ingólfsson lögregluvarðstjóri,
201 Erlingur Hansson deild-
arstj., 21. Jósafat J. Líndal
sparisjóðsstjóri, 22. Guðmundur
Gíslason bókbindari.
11. Ásthildur Pétursdóttir
12. Ingimundur Ingimundarson