Morgunblaðið - 29.04.1978, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. APRIL 1978 -
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
‘jfiwi/jÆPL-iz/M ii
held ég vissulega að þetta geti
auðveldað flest mál ef staðgreiðsl-
an verður að veruleika.
Mér finnst að sem allra flestir
ættu að tjá sig eitthvað um
skattamálin,^ þau snerta alla
landsmenn verulega og því er
öllum nauðsynlegt að fylgjast með
hvað er að gerast í þeim málum,
taka undir það sem rétt þykir í
frumvörpunum og andmæla hinu,
er gallað er. Vil ég hvetja menn til
að tjá sig í þessum efnum.
Skattborgari.“
• Tíundi hlutinn
erlendis?
„Eg sá það í blöðunum nýlega að
framboð ferðaskrifstofanna okkar
ætluðu á svonefndum sólarlanda-
og sumarleyfisferðum er nálega
þrjátíu þúsund sæti og líklegt
þykir að allt að tuttugu þúsund
þeirra verði notuð.
Hafa landsmenn gert sér grein
fyrir þessu? Hafa menn hugsað út
í það að nærri lætur að 10:
þjóðarinnar verði í útlöndum í svo
og svo langan tíma í sumar? Ekki
hafði ég gert mér grein fyrir því
að við værum orðin svona gífur-
lega ferðavön og veraldarvön að
við streymdum til sólarlanda í
þessum mæli. Auðvitað hef ég séð
að fólk streymir til útlanda í
sumarfríinu, en er þetta ekki
aðeins of mikið? Gaman væri að
spyrja fólk sem fer til útlanda
e.t.v. á ári hverju, hvað það hefur
ferðast mikið um sitt eigið land og
hvað það hefur séð af því. Ætli
margir hafi t.d. verið í blíðuveðri
upp á öræfum eða einhvers staðar
á fallegum og huggulegum stað, —
í Mallorkaveðri eins og stundum
kemur nú á okkar kalda landi? Ég
held nefnilega að flest eða í það
minnst mjög margt fólk hafi lítið
séð af landinu og sé þess vegna
ekki eins „forframað" og það vill
vera láta, eða ég tel það a.m.k. eins
mikla „forfrömum" í því fólgþa að
sjá sitt eigið land 'eins og að
flækjast út um heim.
Ekki hef ég á móti utanlands-
ferðum, en samt finnst mér hér
byrjað á öfugum enda, fólk á að
kynnast eigin landi sem bezt, enda
væri í því fólginn umtalsverður
sparnaður gjaldeyris og það gæti
veitt ferðamannaiðnaðinum ís-
lenzka eitthvað að gera.
Innlendur ferðamaður.“
• Tvær glyrnur?
H.K.A. hefur skotið fram eftir-
farandi hugmynd mönnum til
umfjöllunar og umhugsunar:
„Undirritaða hefur oft langað til
að fá skýringu á því hvers vegna
„skjaldarmerki" sjónvarpsins er
alltaf látið snúa öfugt þegar það er
notað. Ef merkið er látið snúa eins
og ég tel að það eigi að snúa, þá
má greinilega sjá tvær glápandi
glyrnur sem gefa merkinu tákn-
rænt gildi.
H.K.A. — glápari.“
Ekki þarf að hafa fleiri orð um
þessa hugmynd, en þeir sem vilja
geta fengið að tjá sig um málið. En
vera má einnig að til sé eitthvert
táknrænt gildi í merkinu eins og
það snýr í dag „öfugt“ eins og
bréfritari segir og ef svo er væri
ágætt að fá að vita hver sú
merking er.
Þessir hringdu . . .
• Fleiri stórver?
Verkamaðuri
— Mér finnst að við íslend-
ingar ættum bara að gera meira af
því að finna okkur nothæfa
atvinnuvegi, ef svo má segja, þ.e.
að reyna að setja á stofn verk-
smiðjur eða framleiðslufyrirtæki
af einhverju tagi og með einhverju
móti, bæði til að nota orku okkar,
sem víða liggur óbeizluð í jörðu.
Það má áreiðanlega finna einhvers
konar iðnað og þá meina ég ekki
endilega iðjuver sem þurfa að
valda stjórkostlegum deilum bæði
fyrr og síðar vegna mengunar eða
annars heldur aðeins einhver
fyrirtæki sem veitt geta fólki
okkar atvinnu um langa framtíð.
Ég held að við verðum að verða
útsjónarsamir og finna einhver
„atvinnutækifæri" til að geta boðið
fólki upp á að vinna eitthvað, því
það geta ekki allir veitt fisk eða
rekið verzlun. Við verðum að hafa
augun opin yfir öllum möguleikum
í þessu efni.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Leningrad í fyrra
kom þessi staða upp í skák þeirra
Mosionshiks. sem hafði hvítt og
átti leik ogTimofeevsi
26. Rh6+! - gxh6 27. De6+ - IH7
(Eða 27. ... Kh8 28. Dxh6+ - Kg8
29. Hg2+ - Kf7 30. Dg6 mát.) 28.
Hxf7 og svartur gafst upp.
HÖGNI HREKKVÍSI
. ©ms
4-’ MeNa«(ht Syad., I>c.
Á að stækka lukkutröllið?
Norræna félagiö í Norrbotten í Svíþjóö býöur 12
íslendingum á sænskunámskeiö í Framnáslýðhá-
skóla í Norrbotten dagana 31. júlí til 14. ágúst.
Á eftir veröur efnt til ferðar um Nordkalotten, sem
lýkur 20. ágúst.
Þátttakendur þurfa aö sækja fornámskeið hér
heima, en þaö veröur í Norræna húsinu 2.—4.
júní.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 1978.
Umsóknareyöublóö og nánari upplýsingar fást á
skrifstofu Norræna félagsins, sími 10165.
Norræna félagiö.