Morgunblaðið - 20.05.1978, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.05.1978, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978 Útgefandi Framkvæmdastjórí Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúí Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvín Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aóaistræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands. i iausasölu 100 kr. eintakiö. Á Karl Marx að verða næsti borgar- stjóri Reykjavíkur? Einn helzti talsmaöur kommúnista í borgarstjórn lýsti yfir því í sjónvarpsumræöum ekki alls fyrir löngu, aö þeir sósíalistar ætluöu aö leyfa einhverjum einkafyrirtækjum aö halda áfram starfsemi sinni í Reykjavík, ef þeir næöu völdum ásamt Framsóknarflokknum og Alþýðuflokknum. Þegar borgarfulltrúinn var nánar spurður um þetta, sagöi hann, að „viö hliö félagslegs reksturs yröi einnig rúm fyrir einkafyrir- tæki“, en þá spuröi Morgunblaðiö af því tilefni, hvort Alþýðubandalagið væri meö þessari yfirlýsingu falliö frá þeim grundvallarsjónarmiöum í kenningu Marx aö þjóönýta atvinnurekstur. Borgarfulltrúinn „kvaöst ekki vera svo kunnug kenningum Marx, aö hún gæti fullyrt, hvort hann tæki fyrir aö nokkur einkaatvinnurekstur gæti þrifizt í sósíalistísku kerfi...“! Nú sitja þeir Alþýðubandalagsmenn áreiöanlega kófsveittir yfir því aö leita í fræöum Marx frá miöri síðustu öld fyrirmæla um þaö, hvernig atvinnuuppbygging Reykjavíkur eigi aö vera háttaö á næstu árum eöa hvort Marx leyfir einkafyrirtæki í borginni eöur ei. Vonandi þurfa borgarbúar aldrei aö upplifa þaö, hver niðurstaöa „þeirra sósíalista“ veröur, en þeir mundu áreiöanlega finna fyrir kenningum hins gráskeggjaða 19. aldar manns, ef „þeir sósíalistar" kæmust til valda í Reykjavík eftir næstu borgarstjórnarkosningar. Framkvæmdaáætlun um umhverfí og útiv Hvetur til meii / — segir Birgir Isleifur Gunna Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu var sl. þriðjudag lögð fram í borgarráði framkvæmdaáætlun í umhverfis- og útivistarmálum fyrir árin 1978—1983. Heildaráætlun um umhverfi og útivist var samþykkt í borgarstjórn 2. maí 1974. Þá var jafnframt lögð fram framkvæmdaáætlun fyrir árin 1974 — 1977 og er þessari áætlun, sem frammi liggur ætlað að vera leiðarljós að framkvæmdum á árunum 1978—1983. _________Inngangur____________ I inngangi að áætluninni segir, að heildaráætlunin skiptist í tvo hluta; skýrzlu sem lýsi opnum svæðum í borginni, ástandi þeirra og notkun og í öðru lagi fram- kvæmdaáætlun 1974—1977. í henni varð eftirfarandi verkefnum gefinn forgangur: 1. Frágangur minni grænna svæða í íbúðarhverfum. 2. Gangstéttar og grænar reinar meðfram þeim, þar sem gatnagerð er lokið að öðru leyti. Sérstök áherzla skyldi lögð á íbúðarhverfi. 3. Gerð göngu- og hjólreiðastíga milli skóla, íþróttasvæða og ann- arra slíkra staða, sem draga að sér umferð innan einstakra hverfa. 4. Gerð göngu, hjólreiða- og reiðstíga frá Ægisíðu um Fossvogsdal og Elliðaársvæði. 5. Fullnaðargerð Artúnssvæðisins. Þá segir, að í áætlun sem þessari birtist ásetn- ingur borgaryfirvalda til lengri tíma séð. Framkvæmdaáætlanir, sem gerðar séu gjarnan til 4ra ára, séu verðmæt stjórntæki. Slíkar áætlanir þurfi þó ávallt að taka upp til endurskoðunar, enda var ráð fyrir því gert í upphafi, að áætlunin yrði tekin til endurskoð- unar eftir tímabil fyrri fram- kvæmdaáætlunar. Bæði gæti framkvæmdamagn tímabilsins breyzt verulega frá því, sem ætlað var, þegar framkvæmdaáætlanir eru gerðar og svo kunni mat manna á forgangsröð fram- kvæmda að breytast á skemmri tíma en fjórum árum. Fyrirferðarmeiri verkefni en aetlað var I hinni nýju framkvæmdaáætl- un kemur fram, að unnið hefur verið við framkvæmdir utan fram- kvæmdaáætlunarinnar, en aðrar hafi orðið út undan. Þar er minnt á, að nokkur verkefni hafi orðið fyrirferðarmeiri á árunum 1974—1977 en ætlað var og þar á meðal fólkvangur í Bláfjöllum, vegagerð, raflagnir, skíðalyftur og fleira. Ennfremur landverndar- verkefni í Hólmsheiði, en þar voru 440 ha lands alfriðaðir, rofabörð stungin niður og sáð í sárin; Lækurinn í Nauthólsvík þar sem skipulagning á umferð, snyrting og lagfæring hefur breytt staðnum til hins betra. I lokakafla inngangs segir, að markmið framkvæmda- áætlunar þessarar, sem hér liggi frammi sé að ljúka í stórum dráttum þeim verkefnum, sem talin séu upp í áætlun um umhverfi og útivist. Útivistarsvæði og græn svæði í íbúðarhverfura Nú á þessu ári eru eftirtaldar framkvæmdir áætlaðar: Lagfær- ing á Skólavörðuholti, gróðursetn- ing milli Seljabrautar og Breið- holtsbrautar, lagfæring svæðis milli Kvisthaga, Ægisíðu og Hofs- vallagötu, lagfæring á svæði við Múlaveg og umhverfis Þvotta- laugarnar, neðan við Sjómanna- Alþýdubandalagi rautt en ekki g Framsóknarflokkurir kvæmur sjáJfum sér í m Morgunblaðið hefur einnig bent á þaö, hvernig glundroðinn er hjá minnihlutaflokkunum. Afstaöa þeirra til atvinnumála í Reykjavík hefur veriö athyglisveröari en flest annaö: fulltrúi Framsóknarflokksins samþykkti tillögu Sjálfstæöisflokksins í atvinnumálum um stórfellda atvinnuuppbyggingu en síöan lýstu þeir framsóknarmenn því yfir, aö þetta væri „okkar mál“; fulltrúi Alþýöubandalagsins greiddi atkvæöi gegn atvinnutil- lögum sjálfstæöismanna, en fulltrúi Alþýðuflokksins sat hjá. Þetta er lítið dæmi í hnotskurn um þaö, hvernig borgarmálefnum yröi stjórnaö, ef fulltrúar minnihlutaflokkanna næöu völdum í Reykjavík í kosningunum. Borgarbúar ættu aö íhuga þessi mál vandlega og þeir skyldu ekki ganga aö því gruflandi, aö mikil hætta er á því, aö Sjálfstæðisflokkurinn missi meirihlutann í borginni, svo oft sem litlu hefur munaö. Minnihlutaflokkarnir hafa ekki einu sinni talaö saman um neina samstööu eftir borgarstjórnar- kosningarnar, hvaö þá aö þeir hafi látiö sér detta í hug aö kjósa um borgarstjóraefni, sem þeir hygöust láta stjórna borginni, ef þeir kæmust til valda. Karl Marx er látinn duga. Þannig ber allt aö sama brunni: ef borgarbúar sýndu þaö andvaraleysi aö láta höfuöPorgina falla í hendur minnihluta- flokkanna leiddi það áreiðanlega til þess, aö sams konar glundroöi yrði hér og á Vinstri-stjórnarárunum, en þau eru enn í minnum höfö vegna þess, hvernig vinstri flokkunum tókst aö eyðileggja grundvöll atvinnulífsins, tæma alla sjóöi og missa veröbólguna svo út úr höndunum á sér, aö enn veröur ekki viö neitt ráöiö. Reykvískir kjósendur hafa það nú í hendi sér, hvort gráskeggjaöur fræöimaður frá síöustu öld fái meö úreltum kenningum, — sem ýmist eru einskis viröi eöa hafa leitt til mesta einræöis sem sagan þekkir — aö skipa málum borgarbúa næstu 4 árin —■ eöa kannski miklu lengur. Viö skulum ekki kalla yfir okkur neinn Karl Marx til að segja okkur, hvort ástæöa sé til „aö slátra allri einkastarfsemi" í ifuöborginni okkar og gera líf einstaklingsins eins óbærilegt g efni standa til samkvæmt þeirri kenningu, sem þessi orö jiga rætur í. Pólitísk „guðstrú“ er íslendingum ekki að skapi. Elín Pálmadóttir Sigurjón Pétursson Björgvin Guðmundsson Frumkönnun á starfr skemmtigarðs í Reyl Björgvin Guðmundsson (A) lagði á fundi borgarstjórnar 18. maí fram tillögu, sem segir, að borgarráði skuli falið að athuga, hvort unnt sé að koma á fót skemmtigarði í Reykjavík. Tillög- unni var frestað á fundi borgar- stjórnar 27. apríl. Björgvin ræddi um möguleika á umsetningu skemmtigarðs og nefndi, að borgin gæti ef til vill reist leikræki, en síðan framleigt öðrum til rekstrar. Markús Örn Antonsson (S) sagði, að þessi mál hefðu oftsinnis verið rædd á liðnum árum. M.a. kæmi þetta fram í framkvæmda- áætlun um. umhverfi og útivist 1978—1983. Markús ræddi um mögulegar hugmyndir vegna þessa svo sem gerð leiksvæðis með góðum ieiktækjum fyrir börn, fullkomið Tívolí, hús (uppblásið svo sem tíðkast erlendis) með leiktækjum og svo aðstöðu svipaða og fyrir væri í Legolandi í Danmörku, en þar væru litlir bílar, sem börnin ækju og lærðu um leið umferðarreglurnar. Mark- ús Örn lagði síðan fram eftirfar- andi tillögu: „Borgarstjórn sam- þykkir að Reykjavíkurborg skuli hafa forgöngu um frumkönnun á möguleikum til starfrækslu skemmtigarðs í Reykjavík. Skal þetta gert í samráði við þá einstaklinga og félagssamtök, sem þegar hafa lýst áhuga sínum á að beita sér fyrir eða taka þátt í stofnun og rekstri skemmtigarðs í borginni. í þessu skyni felur borgarstjórn borgarráði að skipa sérstaka nefnd, sem kanni m.a. eftirfarandi: 1. Hverjir væru mögulegir þátt- takendur í stofnun skemmtigarðs, hvort sem um væri að ræða einstaklinga, fyrirtæki eða félaga- samtök. 2. Staðsetningu og hlut- verk slíks garðs, með tilliti til tækjakosts og skemmtanafram-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.