Morgunblaðið - 20.05.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978
27
Brzezinski í
Peking-ferð
Tokyo. 19. maí. AP.
ZBIGNIEW Brzezinski. ráðu-
nautur Carters forseta í þjóðar-
öryggismálum. kom til Tokyo í
dag til viðra'ðna við japanska
ráðamenn um alþjóðamál og
samskiptin við Kína og fer á
morgun til Peking.
Brezezinski ræddi ástandið í
Kína og samskipti Bandaríkj-
anna og Japans í kvöld við
handaríska sendiherrann í
Tokyo. Mike Mansfield. íyrr-
verandi leiðtoga demókrata í
Hátíð á
Taiwan
Taipei 19. maí. AP.
HÁTIÐARHÖLD eru hafin á
Taiwan í tilefni af því, að
Chiang Ching-Kuo, eldri sonur
Chiang Kai-Sheks, verður á
morgun settur inn í embætti
forseta þjóðernissinnastjórnar-
innar.
öldungadeildinni sem er sér-
fræðingur f málefnum Kína.
I fylgd með Brzezinski eru
Richard Holbrooks aðstoðar-
utanríkisráðherra sem fjallar
um málefni fjarlægari Austur-
landa og Kyrrahafs staðgengill
hans, William Gleysteen og
Morton Abramowitz varaað-
stoðarutanríkisráðherra.
Þegar Brzezinski kemur aftur
frá Peking 23. maí ræðir hann
við Takeo F'ukuda forsætisráð-
herra og Sunao Sonoda utan-
ríkisráðherra. Daginn eftir fer
hann til Seoul.
Brzezinski er fyrsti háttsetti
bandaríski embættismaðurinn
sem kemur til Kína síðan Cyrus
Vance utanríkisráðherra var
þar í ágúst í fyr.ra, en í
Washington hefur verið lögð
áherzla á að Brzezinski fari ekki
þangað til að semja heldur til að
eiga skoðanaskipti við Kínverja.
Kínverjar sögðu að heimsókn
Vance hefði fremur haft í för
með sér afturför en framför í
þeirri viðleitni að færa sambúð
Bandaríkjanna og Kína í full-
komlega eðlilegt horf.
VEÐUR
víða um heim
Amsterdam 19 sól
Apena 27 8ÓI
Berlín 22 SÓI
Briissel 16 skýjað
Chicaco 26 heiðskírt
Frankfurt 21 skýjað
Genf 15 skýjað
Helsinki 21 heiðskýrt
Jóh.borg 18 heiðskírt
Kaupm.höfn 17 skýjað
Lissabon 21 8ÓI
London 17 skýjað
Los Angeles 33 heiðskírt
Madrid 23 sól
Malaga 22 heíöskírt
Miami 27 rigning heiðskírt
Moskva 21
New York 20 heiðskírt
Ósló 12 skýjað
Palma, Mall. 25 heiðskírt
Parfs 19 rigning
Róm > 21 skýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Tal Aviv 25 heiöskírt
Tokýó 24 skýjað
Vancouver 18 bjart
Vinarborg 17
Brezkir
sjómenn
hóta með
„klippum”
FISKIMENN í Brighton í
Englandi hafa hótað að taka
dráttarbát á leigu og beita
víraklippum gegn skuttogurum
sem þeir segja að eyðileggi
vísvitandi net þeirra og veiðar-
færi.
Fiskimennirnir segja að það
tjón sem þeir hafi orðið fyrir
nemi mörgum þúsundum punda
og að sökudólgarnir séu togarar
frá Plymouth, Brixham og
Portsmouth.
Yfirvöld hafa hvatt fiskimenn
til að gæta stillingar og boðað
komu eftirlitsskips til
Newhaven til að koma í veg
fyrir frekara netatjón.
Þetta gerðist
1974 — Líbýumenn semja við
Rússa um aukin viðskipti og
hernaðaraðstoð.
1971 — Níu sovézkir Gyðingar
í Leníngrad fundnir sekir um
andsovézka starfsemi.
1967 — Bandaríkjamenn
granda fimm MIG-þotum í
loftorrustu yfir Norður-Víet-
nam.
1946 — Þjóðnýting brezka
kolaiönaðarins samþykkt í
Neðri málstofunni.
1929 — Japanir hörfa frá
Shantung.
1927 — Lindbergh leggur upp í
flug sitt yfir Atlantshaf einn
síns liðs. -
1920 — Carranza Mexíkóforseti
ráðinn af dögum.
1917 — Franskir hermenn í
Champagne gera uppreisn.
1882 — ítalir ganga í bandalag
Þjóðverja og Austurríkismanna
sem verður þríveldabandalagið.
1834 — Frakkinn Lafayette
iNórð-
hetja úr frelsisstríðinu
ur-Ameríku deyr.
1799 — Napoleon hættir við
umsátrið um Tyrki í Acre.
1631 — Her Tillys fer ráns-
hendi um Magdeburg og nánast
gereyðir borginni.
1506 — Kólumbus deyr.
Afmæli dagsins. Honore de
Balzac, franskur höfundur
(1799-1850) - John Stuart Mill
brezkur heimspekingur
(1806-1875) - Sigrid Undset
norsk skáldkona (1882—1949) —
James Stewart, bandarískur
leikari (1908—).
Orð dagsins. Allir ættu að hafa
aðeins eina alvarlega sannfær-
ingu og hún er sú að það er
ekkert hægt að taka alvarlega
— Samuel Butler, enskur rithöf-
undur (1835-1902).
Annáll Zaire
HELZTU atburðir úr sögu Zaire
síðan hvítir menn komu þangað:
1879—84 — Stanley kannar
Kongó fyrir Leopold II Belga-
konung.
1885 — Leopold II stofnar
Fríríkið Kongó, sem hann
stjórnar sjálfur.
1908 — Fríríkið Kongó verður
Belgíska Kongó.
1960 — Kongó fær sjálfstæði
eftir 75 ára nýlendustjórn Belga
30. júní. — Kongóher gerir
uppreisn viku síðar og belgískt
herlið skerst í leikinn til að
vernda belgíska borgara —
Moise Tshombe lýsir yfir að-
skilnaði Katanga (Shaba) —
Einnig lýst yfir aðskilnaði Kasai
og Kiuu. SÞ sendir gæslulið að
beiðni stjórnarinnar í þæopold-
ville — Valdabarátta milli
þjóðhöfðingjans Josef Kasavubu
sem er hægrisinnaður og
Patrice Lumumba forsætisráð-
herra sem er róttækur — Josef
Mobutu ofursti yfirmaður
Kongóhers hrifsar völdin.
1961 — Mobutu kemur Kasa-
vubu aftur til valda — Lum-
umba myrtur með dularfullum
hætti og morðið veldur nýjum
væringum.
1962—63 — Harðir bardagar
milli gæsluliðs SÞ og aðskiln-
aðarsinna í Katanga sem njóta
stuðnings hvítra málaliða. Upp-
reisnin í Katanga endanlega
bæld niður um mitt ár 1963 —
Herlögreglumenn Katanga-
stjórnar flýja til Angola.
1964 — Tshombe boðið að
koma heim úr útlegð og verður
forsætisráðherra — Önnur upp-
reisn stuðningsmanna Lum-
umba, svokallaðra „Simba“
(Ljóna), brýzt út í Stanleyville
(Kisingani) — Uppreisnarmenn
bíða fljótt ósigur fyrir belgísk-
um hermönnum sem sendir eru
með bandarískum flugmönnum
— Hvítir málaliðar skráðir í her
Mobutu.
1965 — Tshombe aftur svipt-
ur völdum og hann íer aftur í
útlegð — Mobutu gerir aftur
herbyltingu og steypir stjórn
Kasavubus.
1967 — Tshombe boðar nýja
stjórnarskrá sem kveður á um
sambandsríki með valdamiklum
forseta og þingi í einni deild —
Sambandsstjórnin tekur eignar-
námi eignir Union Miniere,
belgíska námafélagsins í Kat-
anga.
1969 — Kasavubu deyr í marz
— Tshombe deyr í júní í útlegð
í Alsír þar sem hann var fangi.
1971—73 — Mobutu berst
fyrir þjóðlegri afrískri stefnu —
Landið og fljótið nafnkunna
skírð upp og fá nafnið Zaire —
Mobutu bannar kristin nöfn og
tekur sér nýtt nafn; á í útistöð-
um við kaþólsku kirkjuna.
1974 — Verðhrun á kopar
sem aflar Zaire 65% árlegra
tekna í erlendum gjaldeyri.
1975 — Mobutu veitir hægri-
sinnuðum hópum í borgarastríð-
inu í Angola hernaðarlega og
fjárhagslega aðstoð með stuðn-
ingi bandarísku leyniþjónust-
unnar CIA. Skuld Zaire við
erlend ríki fer upp í tæpa þrjá
milljarða dollara.
1977 — Fyrrverandi her-
lögreglumenn Katangastjórnar
ráðast inn í Shaba 7. marz og
taka nokkra smábæi. Innrásinni
hrundið sex vikum síðar eftir
gagnárás Marokkóhermanna
sem voru sendir á vettvang með
frönskum flugvélum og Zaire-
manna.
1978 — Mobutu tekur af lífi
13 foringja úr hernum og
óbreytta borgara og varpar 67
öðrum í fangelsi í marz fyrir
samsæri gegn stjórn sinni, þar
af mörgum Lunda-ættflokka-
mönnum frá -Shaba. Mánuði
síðar ráðast Katangamenn aftur
inn í Shaba frá stöðvum í
Angola.
— Rannsóknin
beindist...
Kramhald af bls. 23
tékka, sem gengiö hafa milli
þeirra. Tékkar þessir hafa verið
Ijósritaðir, fundið hefur verið það
innlegg sem einstakur tékki er
talinn hafa farið í og hvort tveggja
verið Ijósritaö með reikningsyrirliti
þar sem bókun tékkans kemur
fram. Þannig má á einu blaði sjá
alla leið tékkans um bankakerfið.
Fram kemur útgáfa tékkans, fram-
sal hans, innlögn og bókun.
Tölvuskrár þær sem fyrir lágu hafa
verið lagfærðar, endurbættar og
nýjum bætt við.
Gögn þessi hafa öll veriö lögð
fram í tíu málum, fleiri kærðir eru
teknir saman í nokkrum málanna.
Síðasta mánuðinn hefur verið
unnið að því að sýna kærðum
þessi gögn og fá andsvör þeirra
við þeim. í heild hafa 56 menn
verið yfirheyrðir í sambandi við
rannsóknina, margir oftar en einu
sinni.
Af gögnunum og framburðunum
kemur fram að tékkavelta sumra
reikninganna er að miklum hluta til
komin vegna tékka sem gengu á
milli reikninga kærðra. Má sem
dæmi taka stærstu reikningana
sem í könnun eru. Heildarvelta
annars þeirra nemur kr.
557.532.468. Þar af fá aðrir kærðu
kr. 487.291.322. Heildartékkavelta
hins er kr. 659.944.555. Þar af fara
til annarra kæröra kr.
415.639.601. Þetta eru þær upp-
hæðir sem út af þessum reikning-
um fara, en inn á móti koma svo
líkar upphæðir frá öðrum kærðu.
Tilraun hefur verið gerð til að leiða
saman tékka sem reikningshafi
fær og sem hann gefur út á
nokkrum dögum eða ganga á milli
reikninga hans innan slíkra tíma-
marka. Gerð hefur verið tölvuskrá
yfir þessa tékka. í Ijós kemur aö
á móti miklum hluta þeirra tékka
sem kæröur reikningshafi lætur til
annars kærös reikningshafa kem-
ur tékki eða tékkar þannig aö áöur
en tékkinn kemur til bókunar eða
í sama mund hefur tilsvaröandi
upphæö verið lögð inn á móti.
Þessir tékkar gætu fallið undir
skilgreiningu Seölabankans um
keðjutékka. Reikningshafar hafa
gefiö ýmis svör við þessum
gögnum án þess aö vilja bera
birgður á þau. Vilja þeir sumir
halda sig viö áöur gefnar skýringar
um að hér sé um lán að ræða,
jafnvel þótt þeim sé bent á að
engin raunveruleg upphæð hafi
þurft aö fara á milli þeirra, væri
þessi háttur hafður á „láninu". Þeir
hafa haldið því fram, að þegar
tékkinn var framseldur í banka,
hafi þeir átt innstæðu fyrir honum
eða haft skriflega eða munnlega
heimildi til útgáfu hans veitta af
bankastarfsmönnum. Slíkur fram-
burður stangast á við það sem
bankastarfsmenn hafa borið og
bankarnir hafa fullyrt í bréfum
sínum til undirritaðs. Aðrir reikn-
ingshafar hafa gefið skýrari svör
og jafnframt hafa verið yfirheyrð
vitni sem hafa lýst því hvernig
þessi skipti á tékk um hafa birst
þeim.
Viðbrögö banka
torvelduðu rannsókn
Þáttur reikningshafanna, sem
Seölabankinn kæröi meö bréfi
sínu 9. ágúst 1976, er ákaflega
misjafn, og sumra sáralítill, í
þessari meintu keðjutékkastarf-
semi. Hins vegar blandast inn í
þessi mál viöbrögð reiknings-
banka við þeim tékkum þessara
manna, sem engin innistæða eða
skrifleg heimild reyndist fyrir,
þegar tékkinn barst reiknings-
banka. í þessu sambandi er ekki
endilega verið að ræða um keðju-
tékkastarfsemi sem sltka. Innlög
var oft komin fyrir slíkum tékkum
eða barst fljótlega. í Ijós hefur
komiö að sumir bankar a.m.k.
leyföu mönnum, á þeim tíma sem
rannsóknin tekur til, að fara yfir
innstæöu og skriflega heimild og
eru ýmsar ástæöur bornar fyrir
þessu. Hafa sérfræðingar við
skiptabankanna viljaö kalla þetta
„umliðna" stöðu og hafa viðskipta-
bankarnir í þessum tilfellum, eins
og þegar farið er yfir á reikningi í
leyfisleysi, tekiö dráttarvexti af
viöskiptavininum. Þessi vinnu-
brögð hafa mjög torveldað þessa
rannsókn enda hafa kærðir reikn-
ingshafar borið þetta fyrir sig.
Þegar um slíkt innstæðuleysi er aö
ræða, og hér er vikið að, vakna
óneitanlega spurningar um hvort
bankinn hafði nægar tryggingar
fyrir slíkum „umliðnum" yfirdrætti
og hvenær þær tryggingar voru
settar, hvort það var áður eða eftir
að yfirdrátturinn myndaðist, hvort
þessi „umliðni" yfirdráttur er
veittur fyrirfram eða látinn við-
gangast án alls leyfis. Þótt svona
sé í pottinn búið er þó ekki víst að
þetta skipti máli um keðjutékk-
starfsemi sem slíka, en þessi atriði
verða óneitanlega að skoðast. Þá
hefur einn kærðra haldið því fram
að tilgangur tékkaútgáfu hans hafi
að miklu leyti verið flutningur sama
fjármagns milli reikninga hans.
Reikninga hafði hann í a.m.k. í
fjórum bönkum. Þetta hafði hann
gert til þess að fá fyrirgreiðslu í
þessum bönkum og sé hann
sannfærður um að það hafi tekist.
xxx
Hér að framan hefur gangur og
núverandi staða þessara meintu
keðjutékkamála verið að nokkru
rakin. Stórar tölur hafa verið
nefndar um tékkaveltu ákveðinna
reikninga. Taka verður fram að
fjármagnið sem menn hafa til
umráða vegna keðjutékkastarf-
semi er auðvitað allt annað og
minna. Fjármagnið sem í raun var
á bak við tékkaveltu kærðra var
mjög mismunandi eftir mönnum
og tímum. Hafa kærðu tjáð sig
nokkuð um það, einnig má sjá það
á upphæð einstakra tékka og ef til
vill hámarkið á upphæð þeirra
tékka sem sumir þessara manna
misstu í skyndikönnun Seðlabank-
ans 7. nóvember 1975. Hámarks-
upphæö skiptir í öllum tilfellum
nokkrum milljónum króna.
Reykjavík 19. maí 1978.
Hrafn Bragason.
— Vill banna
með lögum . .
Framhald af bls. 48
Oddsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, að Guðrún
Helgadóttir, sem skipar 4. sæti
á lista Alþýðubandalagsins til
borgarstjórnar, hefði ljóstrað
því upp í Þjóðviljanum að
hálfsmánaðarlega kæmu 10
kommúnistar í borgarmálaráði
Alþýðubandalagsins saman til
lokaðs fundar í kaffi heima hjá
Öddu Báru Sigfúsdóttur. Kvaðst
Davíð Oddsson ekki hafa heyrt
eða séð, að þessir fundir hjá
Öddu Báru væru auglýstir eða
opnir almenningi. Hins vegar
sagði Davíð Oddsson, að hann
hefði ekkert á móti því að
fulltrúar Alþýðubandalagsins
gerðu sér gott af kaffi Öddu
Báru sem væri vel lagað og gott.
Það kom fram í máli Þor-
björns Broddasonar, að hann
taldi ekki ástæðu til að banna
lokaða fundi minnihlutaflokka,
þar sem þar væru ekki teknar
bindandi ákvarðanir. Nánar
verður sagt frá tillögum Þor-
björns Broddasonar og umræð-
um um þær síðar en frávísunar-
tillaga var samþykkt með 9
atkvæðum gegn 3. Allir borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins
greiddu atkvæði með tillögu
Þorbjörns en borgarfulltrúar
Alþýðuflokksins og Fram-
sóknarflokksins sátu hjá.
— Þrír myrtir
Framhald af bls. 1
heimsstyrjöldinni síðari lauk,
að Rauða krossmönnum væri
ráðinn bani við störf.
Að sögn rhódesísku lögregl-
unnar benda ummerki við
árásarstaðinn eindregið til þess
að árásarmennirnir hafi verið
sjö talsins og hafi vopn þeirra
verið frá ótilgreindum komm-
únistaríkjum. Hafi líkin verið
rænd áður en árásarmenn
hurfu af vettvangi.
Af hálfu Alþjóða Rauða
krossins hefur því verið lýst
yfir að í kjölfar þessa atburðar
sé nauðsynlegt að taka starf-
semi stofnunarinnar í Rhódesíu
til endurskoðunar, með tilliti til
öryggis þeirra 80 starfsmanna,
sem Rauði krossinn hafi þar á
sínum vegum.