Morgunblaðið - 20.05.1978, Side 30

Morgunblaðið - 20.05.1978, Side 30
30 M0RGUNBLAÐ1Ð, LAUGARDAGUR 20. MAj 1978 raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar tilboö — útboö Óskað er eftir tilboðum í bifreiöar sem skemmst hafa í i Limferðar- óhöppum. Datsun 220 C árgerö 1977 Rambler Classic 1964 Cortina »» 1970 Datsun 1200 »* 1977 Vega »* 1974 Citroén G.S. »» 1974 Marina »» 1974 Cirtoén G.S. »» 1978 Saab 96 »» 1967 Nova S.S. 1970 Datsun 200 L »» 1978 Toyota MK II »> 1972 Volga »» 1974 Landrover Dísil 5 dyra >» 1972 Blaxer S.S. í góöu lagi »» 1974 Blazer 6 str. B.S. »» 1974 Bifreiöarnar veröa til sýnis aö Skemmuvegi 26, Kóp., mánud. 22. maí ‘78 kl. 12—17. Tilboöum sé skilaö til Samvinnutrygginga Bifreiöadeild, fyrir kl. 17 þriðjud. 23. maí 1978. Gítarskólinn Laugavegi 178 Sumarnámskeiö er aö hefjast. Innritun nemenda í síma 31266 frá kl. 2—5 í dag og næstu daga. Jölster 6840 Vassenden, Noregi. Á námsbraut í fagurfræöi/ heimilisiönaöi eru eftirfarandi stööur lausar til umsóknar fyrir fagkennara/ kennara/ adjunkt/ lektor í þessum greinum: 1. Fullt starf viö ársnámskeiö í vefnaöi frá 1.8. 78. Veröur aö geta kennt bindifræöi. Kennsla í líkamsrækt æskileg. 2. Fullt starf viö 4 mánaöa vefnaöarnám- skeiö meö bindifræöi frá 1.9. 78 — 16.12. 78. Kennsla í líkamsrækt æskileg. 3. Fullt starf viö 4 mánaöa vefnaðarnám- skeið meö bindifræöi frá 1.9.—16.12. 78. Þetta námskeið verður haldiö í Borgund í Sogni. Kennsla í líkamsrækt æskileg. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum á hverjum tíma. Umsóknarfrestur hálfur mánuöur frá birt- ingu auglýsingar. Umsóknir sendist til skólans. Idar Grindhheim rektor. Gróðurmold Úrvals gróðurmold til sölu. Mokum einnig á bíla á kvöldin og um helgar. Pantanir í síma 44174. Körfubíll Til sölu er körfubíll Thames trader á nýjum dekkjum. Lyftihæö 10.5 m. Tilboö sendist til rafveitustjóra fyrir 23. maí n.k. Rafveita Hafnarfjarðar, sími 51335. Range Rover ‘73 til sölu. Vel meö farinn, í góöu standi. Upplýsingar í síma 37162. Innilegt þakklæti vil ég senda öllum, sem glöddu mig meö heillaóskum, góöum gjöfum og öörum hlýhug á áttræöisafmæli mínu 10. maí og geröu mér daginn ógleymanlegan. Guö blessi ykkur öll. Sigurbjörg Ólafsdóttir, frá Hundastapa. — Framk væmdaáætlun um umhverfi og útivist Framhald af bls. 25. nesbraut. Þessi áfangi áætluninn- ar er áætlaður 520 milljónir króna og þegar litið er til þess, að heildarfjárhæð framkvæmda- áætlunarinnar er tæplega 2.4 milljarðar króna má sjá, að framkvæmdir verða að meðaltali fyrir 422 milljónir á ári sagði borgarstjóri. Lífsvenjubreytingar og úrtölumenn____________ Birgir ísleifur Gunnarsson sagð- ist vilja leyfa sér að vona, að þessi framkvæmdaáætlun verði stjórn- endum borgarinnar og öðrum þeim sem áhuga hafi á umhverfi og útivist að gagni. Borgarstjóri sagði að ýmsir úrtölumenn hefðu talið áætlun um umhverfi og útivist marklaust plagg eitt. Hann sagðist hins vegar hyggja, að verkin töluðu og víðs vegar um borgina mætti sjá merki þess, að fram- kvæmdir samkvæmt áætlun þess- ari væru í fullum gangi. Lífsvenjur manna breyttust á skemmri tíma en fjórum árum. Sem dæmi mætti nefna hinn gífurlega áhuga, sem vaknað hefði á skíðaíþróttinni, en áætlunargerð umhverfis og úti- vístar hefur vissulega stuðlað að þeirri þróun. Annað dæmi nefndi borgarstjóri, en það væri sívax- andi áhugi Reykvíkinga á hesta- íþróttinni og vissulega hefði Reykjavíkurborg stuðlað að þess- ari íþrótt undir merki umhverfis og útivistar. Birgir Isleifur Gunnarsson sagði, að borgin okkar væri smám saman að verða meira aðlaðandi og hlýlegri. Það væri að verða meira skjól í henni og meiri gróður og allt þetta hvetti til þeirra lífsvenjubreytinga, að menn fari nú út í borgina, gangandi, hjólandi eða ríðandi þrátt fyrir óblíða veðráttu og þrátt fyrir rótgrónar venjur, sem hún hafi skapað. Birgir Isleifur sagði, að áætlun þessi væri fyrst og fremst lögð fram til viðmiðunar. Eðlilegt væri, að hún fengi meðferð í umhverfismálaráði, einkum varð- andi röð framkvæmda. Hann sagðist vona til að borgarfulltrúar væru sér sammála um það, að hér væri um raunhæfa áætlun að ræða, sem verði borgarstjórn og embættismönnum til mikils stuðn- ings í ákvörðunum um fram- kvæmdir í þessum mikilvæga málaflokki. ___________Grösin____________ Sigurjón Pétursson (Abl) sagði grösin í borginni vera ótrúlega seinsprottin, þau sem tilheyrðu grænu byltingunni. En hann sagð- ist vona, að meirihluta borgar- stjórnar tækist að finna einhver grös, sem yxu hraðar en þau sem sáð hefðu verið. Sigurjón var mjög stuttorður um þetta atriði. Björgvin Guðmundsson (A) sagði, að hann lrti ekki á fram- kvæmdaáætlun um umhverfi og útivist sem marktækt plagg þegar í ljós kæmi hve lítið hefði verið framkvæmt af því, sem átt hafi að gera. Kristján Benediktsson (F) sagði, að áætlunin bæri merki kosninga og væri kosningaplagg íhaldsins. Hann sagðist ekki efast um, að eitthvað hafi þokast í áttina með framkvæmdir við grænu svæðin í borginni en það væri þó öllu minna en til var ætlast. Þegar Sigurjón Pétursson sér rautt Elín Pálmadóttir (S) sagði, að það væri svo sem ekki skrýtið þó Sigurjón Pétursson sæi aðeins rautt þó svæðin væru græn. En ef Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins gerði sér ferð í Hólmsheiðina einhvern sunnu- daginn til að skoða hvað þar hefði verið framkvæmt kynni svo að fara, að hann færi að bleikjast. Elín Pálmadóttir ræddi síðan nokkuð um framkvæmdasvæðin, sem getið er fyrst í greininni. Hún sagði, að óraunhæft væri að gera lítið úr þessari áætlun. Að mestu leyti hefði tekist að fylgja henni eftir og aðrar fullyrðingar væru einungis útúrsnúningur. Framsókn tveim árum á eftir f umhverfismálum Elín Pálmadóttir sagðist undr- andi á málflutningi framsóknar- manna og þar með Kristjáns Benediktssonar í ræðunni hér á undan. Tíminn hefði 17. maí birt stefnuskrá framsóknarmanna í umhverfismálum og viti menn! Jú, framsóknarmenn hefðu á stefnu- skrá fyrir næsta kjörtímabil að framkvæma í umhverfismálum allt það sem búið væri, nú væri eða hefði þegar verið ákveöið að gera. Vegna þessa væri furðulegt hjá Kristjáni Benediktssyni borgar- fulltrúa Framsóknarflokksins að reyna að halda hér uppi gagnrýni, sem engan veginn væri sjálfri sér samkvæm. Elín Pálmadóttir nefndi síðan nokkur dæmi varðandi ósamræmi í stefnuskrá Pramsóknarflokksins og raunveruleikans. Væru þar m.a. rannsóknir á upplöndum borgarinnar, sem Framsókn vildi gera; þetta hefði þegar verið gert. Þá væru það holræsin. Nú þegar hefðu verið lagðar fram hugmyndir að lang- tímalausn holræsakerfisins og hafnar framkvæmdir við þær, hvað Framsókn virtist óljóst. Þetta væri furðulegt. Eitt væri gott við þetta. Augljóst væri, að Framsóknarflokkurinn vildi styðja þetta samkvæmt stefnu- skráíini, þó borgarfulltrúi Kristján Benediktsson hafi látið heldur ólíklega um það hér áðan: Þegar Alþýðubandalagið fer að sjá grænt Elín Pálmadóttir sagði það ósannindi og ekkert nema ósann- indi, að ekki hafi verið unnið eftir framkvæmadáætlun um umhverfi og útivist frá 1974. Það yrði haldið áfram og þegar enn frekar grænk- aði kynni svo að fara, að borgar- fullrúar Alþýðubandalagsins færu að sjá grænt. — Atvinnumál skólafólks Framhald af bls. 25. umræddar ráðstafanir verður því ekki metinn með neinni nákvæmni fyrr en um mánaðamótin maí- júní“. Magnús L. Sveinsson sagðist vilja leggja áherzlu á, að öllu skólafólki verði tryggð vinna í sumar, slíkt sé mjög nauðsynlegt frá uppeldislegu og félagslegu sjónarhorni. Lokun fyrirtækja á sumrin hafi verið til hins verra hvað þetta snertir, en hann sagðist vona, að fyrirtæki gætu tekið sem mest af skólafólki í vinnu fyrst og fremst, en svo yrði 'borgin að taka við. Magnús sagði, að gera mætti ráð fyrir, að samþykkja þurfi fjárveitingu vegna vinnu fyrir skólafólk hjá borginni. Hann lagði síðan áherzlu á, að nauðsynlegt væri að tryggja öllu skólafólki atvinnu. Adda Bára Sigfúsdóttir (Abl) sagði, að í Vinnuskólanum væri stefnt að aukinni fræðslu og hún myndi meta kaupaukann meira en þessa tillögu Björgvins Guðmundssonar. Borgarstjóri Birgir ísleifur Gunnarsson sagði, að útgjöld Vinnuskólans hefði oft farið fram úr áætlun. Ekki væri hægt að loka augunum fyrir því að í kring væri verið að greiða unglingum hærra kaup. Hann legði því til, að máli þessu yrði vísað til borgarráðs. Björgvin Guðmundsson sagði Davíö Odds- son vera með útúrsnúninga, hann hefði aldreið orðað takmörkun inn í Vinnuskólann. Tillaga borgar- stjóra um málsmeðferð var sam- þykkt með 15 samhljóða atkvæð- um. — Danskan Framhald af bls. 20 æskunni til gagns. Það er líka sjálfsagt að leyfa nemendum að velja milli ensku, þýsku, frönsku og ef til vill annarra mála í 7., 8. og 9. bekk grunnskóla. Þetta mætti vel reyna í stærri skólum landsins. Heimurinn er ekki aðeins ísland, Danmörk, England og Bandaríkin. Islensk ungmenni geta í framtíð- inni fært heim hugmyndir frá ýmsum menningarsvæðum. Það hlýtur að verða þjóðinni til góðs að hafa „glugga" opna til sem flestra landa. — Ekkert verður Framhald af bls. 37. ráðs og veitir verðlagsstjóri henni forstöðu en viðskiptaráðherra skipar verðlagsstjóra." — Nú veltur mest á því, hvernig til tekst með hin nýju lög, hvernig þau verða haldin. Hver eru viður- lög ef útaf er brugðið? „í lögunum er tiltekið, að brot á lögunum, reglum og fyrirmælum settum samkvæmt þeim varði sektum. Ef miklar sakir eru eða brot ítrekuð má beita varðhaldi eða fangelsi allt að 4 árum. Ennfremur er heimilt að beita sektum jafnframt refsivist. Svipta má sökunaut rétti til þess að stunda starfsemi, þar sem opin- bert leyfi eða löggildingu þarf til um tiltekinn tíma, allt að 5 árum eða ævilangt." - SS. — Minnast 60 ára Framhald af bls. 18 Siglfirðingafélagið í Reykjavík og nágrenni hefur um árabil verið meðal öflugustu og fjölmennustu átthagafélaga á höfuðborgarsvæð- inu. Jón Kjartansson, forstjóri ÁTVR, hefur nú látið af for- mennsku í félaginu að eigin ósk, og var hann nýlega kosinn fyrsti heiðursfélagi þess. Núverandi for- maður Siglfirðingafélagsins, Olafur Ragnarsson, ritstjóri af- henti Jóni skrautskrifað heiðurs- skjal af þessu tilefni og þakkaði honum mikil og giftudrjúg störf í þágu Siglufjarðar og Siglfirðinga. Jón hafði gegnt formennsku í Siglfirðingafélaginu í 15 ár, en hann var í níu ár bæjarstjóri á Siglufirði. Samkoma Siglfirðinga á Loft- leiðahótelinu stendur frá klukkan 15 til 18 á laugardag, 20. maí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.