Morgunblaðið - 20.05.1978, Síða 34

Morgunblaðið - 20.05.1978, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978 Að þessu sinni eru boðnir fram tveir framboðsiistar af hálfu sjálfstæðismanna í Kópa* vogi, annar þeirra er S-listi, framboðslisti sjálfstæðisfólks, sem nú býður fram í fyrsta sinn í Kópavogi. Efsti maður á lista sjálfstæðisfólks er Guðni Stef- ánsson járnsmíðameistari. Morgunblaðið ræddi fyrir stuttu við hann um viðhorfin í bæjarmálunum, stefnumið og baráttumál S-listamanna. Fer samtalið hér á eftir. Byggingarframkvæmdir við hið nýja íþróttahús við Digranesskóla. og skuttogara, sem gætu þá landað afla sínum beint hér í hús. Þessum hafnarframkvæmdum er auðvitað ekki að ljúka á einu kjörtímabili, heldur er þetta langtímatakmark. — Við teljum einnig æskilegt að byggð verði smábátahöfn innar á Kársnesinu, sem myndi bæta aðstöðu siglingaklúbbanna hér í Kópavogi verulega. Segja má að allvel hafi verið staðið að félagsmálum hér í Kópavogi. Starfandi er Tóm- stundaráð, sem skipað er þremur pólitísktkjörnum fulltrúum og fjórum fulltrúum hinum svoköll- uðu frjálsu félagasamtaka, íþróttafélaga, skáta og fleiri. Tómstundaráð er síðan tengiliður milli bæjarstjórnar og félaganna. V Breyta þarf því ófremdarástandi, sem nú ríkir í gatnamálum Kópavogsfaæjar Langstærsta verkefnið fram- undan er að okkar mati að koma gatnakerfi bæjarins í viðunandi Á síðasta kjörtímabili var að vísu margt gott gert, en það er bara spurning um það hvort verkefnaröðin hafi verið rétt. Að okkar mati var það ekki. Ennþá eru götur eins og Lyngbrekka, Fagrabrekka, Auðbrekka, Hóf- gerði og allar Heiðarnar óundir- byggðar malargötur er eru jafn- framt með allra elztu götum bæjarins. Fólkinu sem þarna býr, er alls ekki bjóðandi upp á þetta lengur. Það er alveg furðulegt hversu mikið langlundargerð þetta fólk hefur sýnt bæjaryfirvöldum í gegnum árin. — Sú lausn sem ég sé á þessu máli er einfaldlega sú að fresta varanlegri gatnagerð, sem nú er í bígerð, og leggja olíumöl á þessar götur til bráða- birgða, þannig að blóm og annar gróður geti þrifist í görðum hjá íbúum þessara gatna. Eitt þeirra stórverkefna sem tengist gatnagerðarframkvæmd- unum beint er holræsagerð. Til stórvandræða horfir á svæðinu sem liggur að Kópavogsdalnum. Þar verður að hraða gerð nýs- holræsis. Síðan mætti setja upp svokaliaðar „grófsíur" og dæla skolpinu með sterkum dælum yfir ræsið í Fossvogi sem getur auð- veldlega tekið við meiru. Annars er öllum ófragengnum götum að meira eða minna leyti frárennsli í megnasta ólagi, sem verður að ráða bráða bót á á næsta kjörtíma- bili. Gatnagerðamálin þarf að líta á í víðu samhengi. Eins og ég sagði þarf að iáta alla undirbyggingu gatna bíða í a.m.k. tvö ár og lagfæra þær götur sem enga meðferð hafa fengið. Síðan þarf að horfa lengra fram á við og fara aö huga að gangstéttum og gatnalýs- ingu. Þess má geta, að lítillega er þegar byrjað á þessum þáttum. Eitt mesta ánægjuefni okkar Kópavogsbúa er hin mikla og góða uppbygging iðnaðarhverfisins í nágrenni við Smiðjuveginn. Við teljum það algera forsendu fyrir áframhaldandi uppbyggingu bæj- arins að hafa gróskumikinn at- vinnurekstur, því er nauðsynlegt að halda þessari uppbyggingu áfram. I því sambandi verður nauðsynlegt fyrir bæinn að kaupa mikið og dýrt land við Smára- hvamm sunnanmegin í bænum, þar sem byggingarsvæðið við Smiðjuveg er nánast á þrotum. Tilkoma þessa mikla atvinnu- reksturs hefur fækkað því fólki, sem sækja þarf vinnu út fyrir bæinn. Og þá er stutt í að Kópavogur verði orðinn einn mesti iðnaðarbær landsins. Það er því stefna okkar S-lista- manna að halda áfram og auka alla fyrirgreiðslu við atvinnu- rekstur hér í bænum. Hainarframkvæmdir Bygging nýrrar og góðrar hafn- ar við Kársnes hér í Kópavogi er eitt af stærstu baráttumálum okkar, þar á ég við bæði kaup- skipahöfn og fiskiskipahöfn. Kaupskipahöfnin yrði að vera það stór aö stærri flutningaskip gætu lagst þar að. Þá er og nægt landrými til að byggja þar aðstöðu fyrir móttöku, vöruskemmur og fleira. í því sambandi findist mér sjálfsagt að taka upp viðræður við íslenzku skipafélögin um hvort áhugi væri fyrir hendi hjá þeim að byggja upp aðstöðu fyrir vörumót- töku hér. — Yrði fiskiskipahöfn gerð hér myndi í fyrsta sinn skapast aöstaða til útgerðar frá Kópavogi að einhverju marki. I dag er að vísu eitt frystihús starfandi, en það er til húsa við Smárahvamm og fær allt sitt hráefni aðflutt. Eg tel hiklaust að stefna beri að útgerð stærri báta Segja má að þetta fyrirkomulag hafi reynst vel. Persónulega tel ég þó að ítök íþróttafélaganna mættu vera meiri, með tilliti til þess að þau eru langfjölmennust af hinum frjálsu félögum. Aðstaða til íþróttaiðkana er hér mjög misjöfn. — Kópavogsvöllur er án efa bezti grasknattspyrnu- völlur hérlendis, svo segja má að aðstaöa til knattspyrnuiðkana sé hér allgóð. Af framkvæmdum við völlinn á að vísu eftir að steypa nokkuð af áhorfendasvæðum og snyrta lítillega til. — Aðstaða til frjálsra íþrótta er ekki eins góð, hlaupabrautirnar við Kópavogs- völlinn eru ekki nógu góðar, en með lítilli fyrirhöfn er hægt að bæta úr því. Hvað varðar aðstöðu til innan- húsíþrótta, s.s. handbolta, blaks, fimleika og fleira er ástandið vægast sagt slæmt. Hér í bænum er ekki nema eitt hús sem hægt er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.