Morgunblaðið - 20.05.1978, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978
37
„Ekkert verður gefið frjálst
nema að vandlega athuguðu máli”
Núverandi verðlagsnefnd á fundi. Talið frá vinstri. Ásmundur Stefánsson. fulltrúi ASÍ, Snorri Jónsson
(ASI) Einar Ólafsson (BSRB), Jón Sigurðsson (ASÍ), Kristján Andrésson. ritari nefndarinnar, Björgvin
Guðmundsson, formaður, Georg ólafsson verðlagsstjóri, Einar Árnason (VSÍ), Stefán Jónsson (SÍS).
Þorvarður Elíasson (Verzlunarráð) og Haukur Björnsson (VSÍ).
SKÖMMU fyrir þing-
lausnir samþykkti Al-
þingi nýja löggjöf um
verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta
viðskiptahætti. Munu
hin nýju lög væntan-
lega taka gildi seintí
haust. Þar sem hin
nýja löggjöf hefur að
ýmsu leyti róttækar
breytingar í för með sér
í verðlagsmálum á
íslandi sneri Morgun-
blaðið sér til Georgs
Ólafssonar verðlags-
stjóra og spurði hann
um nýju lögin og helstu
nýmæli, sem þau hafa
að geyma, en Georg
vann m.a. að undir-
búningi lagafrum-
varpsins.
— Hver er aðdragandinn að
hinni nýju verðlags- og sam-
keppnislöggjöf, sem nú hefur verið
samþykkt?
„Það var fljótlega upp úr 1960
þegar innflutningur til landsins
var gefinn frjálsari að möKulrtkar
á sair.keppni milll fyrirtækja fór
áð ekapast. Þá komu fram hug-
myndir um að hverfa að einhverju
leyti frá því opinbera verðmynd-
unarkerfi, sem við höfum búið við
frá því fyrir stríð. í framhaldi af
því var farið að vinna að frum-
varpi að nýrri verðlagslöggjöf og
frumvarp þess efnis lagt fram á
Alþingi árið 1969 en það frumvarp
náði ekki fram að ganga. Frá þeim
tíma hefur engin tilraun verið
gerð til þess að koma slíku
frumvarpi gegnum þingið fyrr en
nú á þessu vori.“
— Hafa ekki allar nágranna-
þjóðir okkar fyrir löngu tekið upp
frjálsara verðmyndunarkerfi með
svipuðu sniði og verið var að
samþykkja hér?
„Jú, það gerðist yfirleitt um og
eftir 1950, þegar vöruframboð í
þeim löndum jókst á ný eftir
stríðið."
GÆTILEGA FARIÐ í
AÐ GEFA VERÐLAGNINGU
FRJÁLSA
— Við yfirlestur á frumvarpinu
má ætla að mjög gætilega eigi að
fara í að gefa verðlagningu frjálsa.
Er ekki svo?
„Jú, það er rétt. Hafa ber í huga,
að opinberar verðákvarðanir hafa
lengi verið viðhafðar hérlendis og
má því gera ráð fyrir, að þær séu
orðnar svo rótgrónar, að erfitt
verði að varpa þeim fyrir róða í
einum vetfangi. Ennfremur kveða
lögin á um, að skilyrði fyrir því að
frjáls verðmyndun verði leyfð sé
að samkeppni í viðkomandi grein
sé virk og það tekur að sjálfsögðu
tíma að meta samkeppnishætti í
fjölmörgum greinum og að þjálfa
starfsfólk til þeirra verka.“
— Nú kom það fram hjá
andstæðingum frumvarpsins á
þingi að þeir töldu að með
lögunum væri verið að gefa alla
verðlagningu í landinu frjálsa. Er
þetta rangt?
„Sá málflutningur er á misskiln-
ingi byggður. Ekkert verður gefið
frjálst nema að vandlega athuguðu
máli. Reynist árangur af frjálsri
verðmyndun í ákveðinni grein ekki
verða eins og að var stefnt eru í
lögunum heimildarákvæði til þess
að grípa til fyrri verðlagningar-
reglna á ný. Vert er að benda á,
að sú löggjöf, sem víð höfum búið
við, gefur sömu möguleika til
frjálsrar verðlagningar og sú, sem
nú hefur verið samþykkt."
Rætt við
Georg
Olafsson
verðlagsstjóra
um nýja
verðlags-
frumvarpið
Georg Ólafsson
verðlagsstjóri
FYRSTU LÖGIN UM
SAMKEPPNI OG
SAMKEPPNISHÖMLUR
— En hvaða framför er þá í því
að fá þessa nýju löggjöf?
„Megin breytingin er sú, að nú
er í fyrsta skipti hérlendis sett lög
um samkeppni og samkeppnis-
hömlur. Með þeim lögum er
verðlagsyfirvöldum gert kleift að
fylgjast með og örva samkeppni í
hinum ýmsu greinum en virk
samkeppni er forsenda frjálsrar
verðmyndunar. Segja má að nýja
löggjöfin skapi möguleika á að
nýta kosti frjálsrar verðmyndunar
í þeim greinum sem það á við, en
jafnframt er búið svo um hnútana
í lögunum að litla eða enga áhættu
þarf að taka.“
VIRK SAMKEPPNI
FYRIR HENDI í
NOKKRUM GREINUM
Nú er vitað, að verðlagning er í
reynd frjáls í nokkrum greinum í
dag. Er ekki stefnt að því með
þessum lögum að taka upp frjálsa
verðlagningu í fleiri greinum?
„Það er tvímælalaust andi lag-
anna að reynt verði að gera frekari
tilraunir í þá átt. Það er stefna
ríkisstjórnarinnar að finna á
hlutlausan hátt og án nokkurra
fordóma. hvaða verðlagningar-
kerfi hentar Bezt hertendis. Tím-
inn og reynslan verða síðan að
skera úr um það. En hvernig til
tekst um frjálsa verðmyndun mun
velta mikið á þjóðhollustu og
^byrgðartilfinningu atvinnurek-
enda og virku aðhaldi neytenda. Á
það ber að leggja áherzlu."
— Því hefur verið haldið fram
af ýmsum aðilum að það muni
reynast erfiðara að koma á virkri
samkeppni hér en hjá nágranna-
þjóðunum. Hvert er þitt álit á því?
„Um þetta er erfitt að fullyrðw.
en gera má þó, ráð fyrir m.a. að
fáménni þjóðarinnar og dreifð
byggð torveldi að einhverju leyti
eðlilega samkeppni. Þess vegna
eru ýmsir fyrirvarar í nýju
löggjöfinni, sem heimila verðlags-
yfirvöldum að grípa inn í
verðmyndunina. Eg vil þó benda á
að virk samkeppni virðist nú þegar
vera fyrir hendi í nokkrum grein-
um, sem ég hygg að gefa mætti
fljótlega frjálsar. Nokkrar aðrar
greinar eru á mörkum þess að
samkeppni sé nægilega virk og enn
aðrar verður sýnilega ekki hægt að
gefa frjálsar eins og málum er nú
háttað. Þessu er einnig svona farið
hjá stærri og fjölmennari þjóðum
þótt í mismunandi mæli sé.“
— Hvaða greinar eru það sem
má fljótlega gefa frjálsar og
hverjar eru á mörkunum?
„Eg hef að sjálfsögðu ákveðnar
skoðanir á því en þar sem
ákvörðunarvaldið verður í höndum
væntanlegs Verðlagsráðs en ekki
mín tel ég óeðlilegt að ég fari á
þessu stigi að tjá mig um það.“
KALFINN UM ÓRÉTTMÆTA
VIÐSKIPTAHÆTTI NÝMÆLI
— í lögunum er sérstakur kafli
um óréttmæta viðskiptahætti. Er
þessi kafli ekki nýmæli í íslenzkri
verðlagslöggjöf?
„Það er rétt, enda heyrir þessi
málaflokkur ekki beinlínis undir
verðlagsmál, en er þeim þó alls
ekki óskyldur."
— Hver eru helstu ákvæði í
kaflanum um óréttmæta við-
skiptahætti?
„Og langt mál yrði aö gera þvi
öllu skil hér en sem dæmi má
nefna að bannað verður að gefa
villandi upplýsingar í auglýsing-
um, skylt verður að gefa leið-
beiningar um eiginleika vissra
vörutegunda og þjónustu og
bannað verður að lofa kaupbæti
eða viðhafa happdrætti til þess að
örva sölu vissra vörutegunda."
— Fjallar ekki þessi kafli
löggjafarinnar að nokkru um
neytendavernd?
„Jú, löggjöfin nær yfir nokkra
mikilvæga þætti neytendamála en
þó hvergi nærri alla. Þetta er
aðeins byrjun á neytendalöggjöf
en gera þarf heildarlöggjöf síðar.
Eg tel að með þessum lögum verði
neytendavernd nokkuð bætt þótt
ég geri mér fyllilega grein fyrir
því, að ýmislegt fleira þurfi að
koma til.“
— Af hverju er ekki gerð
heildarlöggjöf um neytendamál
nú?
„Þessi mál verða ekki leyst á
einum degi og ekki er alls kostar
sanngjarnt að benda á fyrir-
myndarskipan erlendis í þessum
efnum, þar sem unnið hefur verið
að þessum málum áratugum
saman og í sumum ríkjum starfa
mörg hundruð opinberir starfs-
menn auk öflugra neytendasam-
taka, að vernd neytenda."
KOSTIR SAMEININGARINNAR
MEIRI
— Getur ekki sameining svona
stórra málaflokka undir einn hatt
valdið erfiðleikum í framkvæmd?
„Vissulega má búast við því.
Stjórnvöld eru sér þess meðvitandi
en telja hins vegar kosti
sameiningarinnar veigameiri. Þau
telja að ef málaflokkunum væri
dreift myndi það leiða til ófarnað-
ar og offjölgunar stofnana. Vegna
smæðar samfélagsins verði að
nýta stofnanir sem fyrir hendi eru
sem bezt t.d. með því að fela sömu
stofnun meðferð þeirra mála-
flokka, sem víðast hvar erlendis
eru aðgreindir."
— Kalla þessar breytingar ekki
á allt önnur og flóknari vinnu-
brögð hjá verðlagsskrifstofunni og
fleiri starfsmenn?
„Það liggur alveg ljóst fyrir að
aukin og margþættari verkefni
verða lögð á verðlagsskrifstofuna
með tilkomu þessara laga. Nú þarf
skrifstofan auk þess að fylgjast
með vöruverði, að fylgjast með
samkeppnisháttum, óréttmætum
viðskiptaháttum og neytenda-
vernd að hluta.
Eg álít að leggja beri alla
áherzlu á, að sú stofnun, sem mun
fylgjast með framkvæmd þessara
laga verði byggð upp á mjög
einfaldan hátt og án of mikils
skrifstofubákns, sem virðist því
miður vera alltof mikið af í okkar
þjóðfélagi. Hjá því verður hins
vegar ekki komist að efla
verðlagsskrifstofuna frá því sem
nú er, ella er hætta á að fram-
kvæmd laganna dragist eða fari úr
böndum."
YFIRSTJÓRNIN VERÐUR í
HÖNDUM VERÐLAGSRÁÐS
— Samkvæmt núgildandi lögum
hefur verðlagsnefnd yfirstjórn
verðlagsmála með höndum.
Hvernig mun yfirstjórn verðlags-
málanna verða háttað þegar nýju
lögin hafa tekið gildi?
„Samkvæmt nýju lögunum á
framkvæmd laganna að vera í
höndum verðlagsráðs, sam-
keppnisnefndar og verðlags-
stofnunar. I verðlagsráði munu
eiga sæti níu menn Viðskiptaráð-
herra skipar formann verðlags-
ráðs án tilnefningar og auk þess
sex menn, þrjá eftir tilnefningu
samtaka atvinnurekenda og þrjá
eftir tilnefningu samtaka laun-
þega. Þá skipar Hæstiréttur tvo
menn í verðlagsráð. Skulu þeir
vera óháðir fyrirtækjum og sam-
tökum þeirra, sem lög þessi taka
til, og hafa þekkingu á viðskipta-
ög m-\ t, ...J..lkiinnáttu i
lögfræði eða hagfræði, eins og
segir orðrétt í lögunum. I sam-
keppnisnefnd eiga sæti formaður
verðlagsráðs og þeir tveir
verðlagsráðsmenn, sem Hæsti-
réttur skipar. Verðlagsstofnun
annast svo dagleg störf verðlags-
Framhald á bls. 30
^ <****0K*'
•ttio*18
mvi nv'V'S" ’r
k' s V"'
a "" ' „ „mVfl'V""';
neitSVoW'r '
, „ersV""3''-
a''.° Srre'"s'aV"ní é V'V '
rpVH' , „ct« "
' '' ,
."StSsss^
CT x