Morgunblaðið - 27.05.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1978
5
Jónína Þorfínnsdóttir, formaður Hvatar;
Að vera — eða vera ekki — í
meirihluta, það er spumingin
Fyrir þessar kosningar hafa
vinstri flokkarnir lagt sig sérstak-
lega fram um aö breiða sem mest
yfir höfuðatriði þeirra, en það er,
hvort Sjálfstæðisflokkurinn held-
ur meirihluta í Reykjavík eða ekki.
Framsóknarmenn hafa sagt, að
baráttan standi milli 9. manns
Sjálfstæðisflokksins og þriðja
manns Framsóknar, og Alþýðu-
bandalagsmenn hafa hamrað á
því, að baráttan standi milli
níunda manns Sjálfstæðisflokks-
ins og fjórða manns Alþýðubanda-
lagsins. Vitanlega væri það skaði,
ef sjálfstæðismenn misstu níunda
sætið, en hversu margfalt hrapal-
légra slys yrði það, ef áttunda
sætið glataðist og þar með meiri-
hlutinn.
Og það er vert að benda á, að
það sæti skipar Elín Pálmadóttir,
blaðamaður, og ætti jafnt konum
sem körlum að vera heiður að þvj
að stuðla að kjöri hennar og forða
um leið borginni frá því hrapal-
lega slysi, sem valdataka hinna
sundurleitu vinstri afla í borgar-
stjórn vissulega yrði.
Hamingja eða hamingjuleysi,
lán eða lánleysi, þetta tvennt vegst
á í lífi einstaklinga og samfélags.
Jónína borfinnsdóttir.
Vinstri menn geta ekki einu
sinni leynt sundrunginni fyrir
kosningar. Guðrún Helgadóttir
segir: Það er kosið um það, hvort
Marx eigi að verða næsti borgar-
stjóri, en samflokkskona hennar
mótmælir þessu, og Páll Bergþórs-
son segir í blaðagrein að Marx
borgarstjóri sé bara eins og ljóti
boli, sem börnin voru hrædd með.
Fráfarandi borgarfulltrúa Fram-
sóknar lízt ekkert á forystu
alþýðubandalagsmanna í borgar-
stjórnarmeirihluta.
Enginn veit, hvaða borgar-
stjóraefni þessir menn hafa fram
að færa, enda ekki eini sinni sami
skilningur á því eða samkomulag
innan neins hinna þriggja flokka.
Gætu þessir flokkar komið sér
saman um, þótt ekki væri nema
eitt stefnuskráratriði, hvað þá
fleiri, væri kannski hlustandi á þá.
En það geta þeir ekki, ekki einu
sinni fyrir kosningar, hvað þá
eftir þær. Þegar lánleysi þeirra er
svona mikið fyrir- kosningar,
hversu margfalt meira yrði það
ekki eftir kosningar?
Kunn er sagan af Samsoni
hinum sterka, en afl hans fólst í
hárinu. Með sviksamlegri blíð-
mælgi var hann lagður að velli,
eftir að hár hans hafði verið
skorið, aflgjafa hans svipt burtu
og hann smánaður og beygður í
duftið.
Um seinan skildist honum,
hvers virði uppspretta krafta hans
hafði verið.
Hafa Reykvíkingar gert sér
grein fyrir, hvaðan höfuðborginni
kemur sú farsæld og afl, sem hún
býr yfir?
Því miður eru of mörgum
áhrifamönnum vinstri manna
tamar blekkingar og óheilindi.
Eða hvað er það annað en
óheildindi að kalla borgarstjórann
„góðan borgarstjóra" í öðru orð-
inu, en níða niður allt starf hans
í hinu, eins og Guðrún Helgadóttir
gerði í sjónvarpinu?
Eða þá að þykjast sætta sig við
meirihluta sjálfstæðismanna og
ætla sér bara að klippa einn lokk
úr hári meirihlutans, en stefna í
raun að því að nema burtu á einum
kosningadegi þá uppsprettu, sem
farsæl stjórn borgarinnar sækir
afl sitt í?
Góðir kjósendur.
Að vera — eða vera ekki — í
meirihluta.
það er spurningin.
Ólögmætur
aðalfundur
AÐALFUNDUR Félags áhuga-
manna um heimspeki, sem boðað var
til þann 7. maí s.l., var ólögmætur
sakir ónógrar þátttöku, að því er
segir í fréttatilkynningu frá félag-
inu. Samkvæmt lögum félagsins
verður því aðalfundurinn haldinn
sunnudaginn 28. maí í Lögbergi og
hefst kl. 14.
Að fundinum loknum flytur Vil-
hjálmur Árnason erindi, sem hann
nefnir „Siðfræði Jean-Paul Sartres".
184 kr. fyr-
ir kílóið af
stórri rækju
Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í fyrradag var ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á
rækju frá 1. júní til. 30. septem-
ber n.k.i
Rækja. óskelflett í vinnsluhæfu
ástandii
a) 18Q stk. og færri í kg. hvert kg.
kr. 184.00 b) 181 til 200 stk. i kg.
hvert kg. kr. 171.00, c) 201 til 220
stk. í kg. hvert kg. kr. 158.00, d) 221
til 240 stk. í kg. hvert kg. kr.
145.00, e) 241 til 260 stk. í kg. hvert
kg. kr. 132.00, f) 261 til 280 stk. í
kg. hvert kg. kr. 119.00, g) 281 til
310 stk. í kg. hvert kg. kr. 106.00.
Verðflokkun byggist á talningu
Framleiðslueftirlits sjávarafurða
eða trúnaðarmanns, sem tilnefnd-
ur er sameiginlega af kaupanda og
seljanda.
Verðið er miðað við, að seljandi
skili rækju á flutningstæki við hlið
veiðiskips.
Er hægt að hugsa sér lánlausari
söfnuð en vinstra tætingsliðið,
sem reynir nú að stinga borgarbúa
svefnþorni, svo að þeir vakni upp
við þann vonda draum, að vinstri
flokkarnir hafi laumast til meiri-
hluta í borgarstjórn, og segja á
eftir: við ætluðum aldrei að fella,
nema níunda manninn.
Lánleysi þessa vinstra liðs
stingur óþægilega í stúf við
farsæld núverandi meirihluta
sjálfstæðismanna undir öruggri og
styrkri forystu Birgis Isleifs
Gunnarssonar, borgarstjóra.
„Ix'iðrétting”
greinar um
kosningafund
sjálfstæðis-
manna í
Hafnarfirði
Þar sem ég undirritaður hefi
orðið þess var, að ýmsir hafa
„misskilið" það sem eftir mér er
haft í grein um fundinn (Morgun-
blaðið 26.05) þykir mér rétt að
taka fram:
a) I frásögn blaðamannsins vant-
ar, að á fundinum talaði ég um
nýtingu skólahúsnæðis utan þess
tíma er skóli starfaði þ.e. einstaka
kvöld og helgar auk sumartímans.
í því eina sambandi gat ég um
nýtingu skólahúsnæðis fyrir
félags- og æskulýðsmál í Hafnar-
firði.
b) Mér er það vel ljóst, að
skólahúsnæði það sem við Hafn-
firðingar höfum yfir að ráða í dag,
er meir en fullnýtt fyrir kennslu.
c) Þeir sem enn kunna að vera í
vafa um álit mitt varðandi nýtingu
skólahúsnæðis fyrir félags- og
æskulýðsmál hljóta að „misskilja"
minn málflutning með einhver
annarleg sjónarmið í huga.
Ellert Börgar Þorvaldsson,
kennari Harnarfirði.
tiULYSIMiASÍMINN EK:
22480
R >í' •- i
:
s . . wmmamm■ smm -m'- MK m ,■
_ u*
^Hlftauiii VII
valiö er auðvelt
□ Staölaöar innréttingar í allt húsiö í fjölbreyttu úrvali.
□ 30 mismunandi tegundir huröa í 12 verðflokkum er staðreynd.
□ Lítið við í sýningarhúsnæöi okkar í Skeifunni 8 þar sem viö sýnum
12 mismunandi geröir innréttinga.
Verzlunin verður opin í dag, verið
laugardag frá kl. 10.00 til kl. 15.00 velkomin.
kalmar
innréttingar hf.
SKEIFAN 8, REYKJAVÍK SÍMI 82645