Morgunblaðið - 27.05.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1978
41
félk í
fréttum
+ Söngvarinn Donny Osmond gekk í það heilaga fyrr í þessum mánuði. Eiginkona hans
heitir Debra og athöfnin fór fram í Mormónakirkjunni í Salt Lake City. Upphaflega
átti brúðkaupið að fara fram í júní, en var flýtt vegna þess að Donny vildi að eiginkona
hans færi með honum til Las Vegas, þar sem hann kom fram fyrir skömmu.
+ Erik Nilsen í Álaborg í
Danmörku varð að henda 13
mánaða dóttur sinni út um
gluKga á annarri ha-ð til að
bjarga lífi hennar. Eldur hafði
komið upp í biokkinni þar sem
þau bjuggu og breiddist hratt
út. Erik og kona hans voru
iokuð inni í íbúð sinni og biðu
eftir hjálp. En smám saman
fylitist í'búðin af reyk og
logarnir læstu sig um íbúðina.
í fyrstu stóðu þau við opinn
glugga og reyndu að fá hreint
loft þannig. En svo kom að
hann varð að henda dóttur
sinni út til að bjarga henni frá
því að deyja úr reykeitrun.
Fyrir neðan gluggann stóð
maður sem iofaði að grípa
barnið. en skiljanlega var Erik
hikandi. Litla stúlkan lenti
heilu á höldnu í fangi
mannsins. Og skömmu síðar
var foreldrum hennar bjargað
út. Erik Niisen segist vilja
gleyma þessum degi sem fyrst,
því það sé hræðilegt að þurfa
að henda dóttur sinni út um
glugga og vona að einhver
ókunnugur grípi hana.
Aðalfundur
Þjóöræknifélags íslands veröur haldinn í
safnaðarheimili Bústaöakirkju miövikudaginn
31. maí og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Kaffiveit-
in9ar Stjórnin.
Báta-sjómenn
Ýsu- og Þorskanet: stærð S’A"—6'/4“—7“, garn. 0.48 og
0.50, dýpt 25 og 32 möskva. Japönsku INFI-netin sterku.
Færa- og teinatog: 6—14mm. CARLMAX (Svíþjóð).
Handfæra-girni: 1.1 — 1.8mm. DX HOPE (Japan) og BAYER
(W-þýsk).
Handfæra-sökkur: 1.5—2.4 kg. BLÝ, sérhannaðar (ísl.)
Handfæra-krókar: no. 6—12. BULL (Noregur).
Viö bjóöum beint frá lager, afgreiðsla samdægurs. Hringiö
og fáiö upplýsingar. Við sendum um allt land.
Jón Ásbjörnsson, heild.
Tryggvag. 10 Rvk.
Símar: 11747 og 11748. Heima 22838.
Utankjörstaðakosning
U tank jörstaöaskrif stof a
Sjálfstæðisflokksins er Valhöll,
Háaleitisbraut 1 - Símar 84751, 84302, 84037.
Sjálfstæðisfólk! Vinsamlega látið skrifstofuna vita
um alla kjósendur, sem verða ekki heima á kjördegi.
Utankjörstaðakosning fer fram í Miðbæjarskólanum
alla virka daga kl. 10—12,14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
Morgunblaðið óskar
i«ftir blaðburðarf ólki
Vesturbær
Tjarnargata I.
Tjarnargata II.
Upplýsingar í síma 35408
[óvgiiwMitííiíit
+ Það er ekki oft sem Muhammad Ali sést slappa svona
vel af. Venjulega er hann með opinn munninn, gasprandi
um það hve frábær hann sé. En eftir myndinni að dæma
virðist hann stundum geta þagað. Með honum á myndinni
er kona hans, Veronica.
+ Jaek Lemmon var nokkuð hætt
kominn fyrir skömmu. þegar
hann var að skemmta með Walter
Matthau. Stór brjóstsykursmoii
hrökk ofan í hann og hann náði
ekki andanum. Walter Matthau
hélt að Jack væri að látast og tók
lítið mark á honum. En loks
skildist honum að hér var alvara
á ferðum og sló hressilega í bakið
á Jaek. Við það hrökk molinn upp
úr Jack og lenti á sviðinu.
Áhorfendur hcldu allan tímann
að framkoma kappanna væri
hluti af skcmmtuninni og hlógu
dátt á meðan á þessu stóð.
Bifreiðar
á kjördag
D-listann vantar fjölda bifreiöa til aksturs frá
hinum ýmsu bifreiöastöövum D-listans á
kjördag.
Frambjóðendur heita á stuöningsmenn listans
aö breögast vel viö og leggja listanum lið m.a.
meö því aö skrá sig til aksturs á kjördag 28.
maí næstkomandi.
Vinsamlegast hringiö í síma: 86216—82900.
Skráning bifreiöa og sjálfboöaliða fer einnig
fram á skrifstofum hverfafélaganna.
11-listinn