Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
121. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kúbanir senda
1000 til Angóla
London, 9. júní. — AP.
EITT þúsund Kúbumenn hafa
verið sendir til Angóla til hjálpar
5.000 Kúbumönnum sem hafa
byrjað nýjar árásir á yfirráða-
svæði skæruliðahreyfingarinnar
IATA
hótað
úrsögn
London, 9. júní. AP.
BREZKA flugfélagið British Air-
ways sem brezka stjórnin á,
hótaöi í dag að segja sig úr
Alþjóðasambandi flugfélaga
(IATA) ef pað tæki ekki upp
frjálslyndari stefnu í fargjalda-
málum og sætti sig ekki við
aðrar róttækar breytingar á
fyrirhuguðum fundi 30. júní.
Afleiðingin getur orðið nýtt
fargjaldastríð.
Flugfélagið vill fá aö lækka
fargjöld sín á öllum helztu flug-
leiðum. Aðstoðarframkvæmda-
stjóri félagsins Ross Stainton
sagði í dag í riti sem starfsmenn
flugfélagsins gefa út mánaöarlega
að lág fargjöld væru orðin stað-
reynd og flugfélögin yrðu að laga
sig að þeirri staðreynd.
Stainton átti áreiðanlega viö
flugfélag Sir Freddie Lakers og
hann bætti því viö aö flugfélög
ættu aö hafa rétt aö bjóöa eins
lág fargjöld og þeim væri framast
unnt.
Unita að sögn talsmanns skæru-
liða í London í dag.
Hann sagði að leyniþjónusta
skæruliðahreyfingarinnar hefði
varað við því að ýmsar aðgerðir
Kúbumanna í Angóla gætu verið
undanfari nýrrar innrásar Kúbu-
manna í Shaba-héraði í Kongó.
Kúbumenn hafa drepið milli 100
og 200 óbreytta borgara í loftárás-
um sem héldu áfram í dag að sögn
talsmannsins. Hann sagði að stór
svæði væru enn á valdi
Unita-hreyfingarinnar.
Hingað til hefur verið talið að
alls 25.000 Kúbumenn væru í
Angóla og ef nýi liðsaukinn er
talinn með eru þeir orðnir 26.000.
Skæruliðar hafa 8.000—10.000
menn undir vopnum í Suður-Ang-
óla og að sögn talsmanns þeirra
beita þeir skæruliðaaðferðum gegn
fullkomnum herbúnaði sem Kúbu-
menn hafa fengið frá Rússum.
Talsmaðurinn sagði að loftárás-
ir hefðu verið gerðar í Bie-héraði
í Pereira de Eca og Serpa Pinto í
Huila-héraði og Cuito-Cuanavale í
Cuando Cubango-héraði. Hann
segir að aðrar flugvélar hafi
eyðilagt uppskeru með eldsprengj-
um og efnavopnum.
Að sögn talsmannsins flytja
Kúbumenn nú herlið og hergögn
frá hafnarbæjunum við Atlants-
haf flugleiðis til Luso höfuðborgar
Moxico-héraðs og þaðan með
járnbraut til Teixeira de Sousa
sem Benguela járnbrautin liggur
um til Zaire og Zambíu.
2 andófsmenn
senn fyrir rétt
London. 9. júní. AP.
RÚSSNESKU andóísmennirnir
Anatoly Shcharansky og Alex-
ander Ginzburg verða leiddir
fyrir rétt í sumar að því er skýrt
var frá í Moskvu í dag.
Frétt þessi er komin frá blaða-
manninum Viktor Louis sem
skrifar fyrir Evening News og
talið er að sovézk yfirvöld noti til
að koma áleiðis upplýsingum til
Vesturlanda.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum
að undanförnu hefur staðið til að
láta Shcharansky lausan til að
draga úr spennunni í sambúð
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
En sérfræðingar hafa talið ólík-
legt að honum verði sleppt án
Framhald á bls. 26.
Tveir palestínskir skæruliðar í rústum húsanna sem ísraelsmenn gerðu árás á í
Aaqbiye, um 50 km suður af Beirút.
ísraelsmenn eyða
flotavigi skændiða
Aaqhiye. Lihanon. 9. júní. AP.
ISRAELSKIR „hermenn" eyðilögðu flotabækistöð Palestínumanna í
fiskiþorpinu Aaqbiye í Suður-Líbanon í skjóli myrkurs í nótt.
ísraelsmenn sögðu að árásin hefði verið gerð til að fyrirbyggja árásir
sem skæruliðar hygðust gera af sjó á Israel.
Abu Jihad. yfirmaður skæruliða A1 Fatah í Líbanon. sagði að
setuliðið hefði átt sér einskis ills von. Ilann sagði að 10 ísraelsmenn
og fimm Palestínumenn hefðu fallið.
Herstjórnin í Tel Aviv segir hins
vegar að aðeins tveir ísraelsmenn
hafi fallið og átta særzt og að
árásarmennirnir hafi séð átta
palestínsk lík og talið að fleiri
hefðu fallið. Heimildir í friðar-
gæzluliði SÞ hermdu að fjórir
Israelsmenn hefðu fallið en
sjúkrahússtarfsmenn kváðust
hafa séð lík fimm Palestínu-
manna.
Einn úr hópi um 40 skæruliða
sem voru við rústirnar í dag sagði
að allir hefðu verið sofandi þegar
árásin var gerð nema tveir verðir.
Hann sagði að fleiri hefðu fallið ef
þeir hefðu verið í aðalhúsinu þegar
árásin var gerð en þeir hefðu sofið
undir trjánum. Palestínumenn
segja að sex líbanskir verkamenn
hafi grafizt undir rústunum en það
er ekki hægt að fá staðfest strax.
Abu Aiman, 15 ára gamall
skæruliði, lýsti árásinni: „Hún var
gerð um kl. 2:20. Við heyrðum hróp
í öðrum verðinum seni varð var við
þrusk í fjörunni. Enginn svaraði
þegar hann hrópaði og hann hóf
skothríð. Síðan hófst árásin. Eg
fleygði mér niður og skaut á einn
óvininn fyrir framan mig. Ég er
viss um að ég hæfði hann en þá
skaut annar maður á mig og ég
missti meðvitund."
Jihad sagði að 19 skæruliðár
hefðu verið í víginu en ísraels-
menn segja að þeir hafi verið
Framhald á bls. 26.
Mobutu kemur á fót
emvalaliði i Shaba
Kinshasa, 9. júní. — Reuter.
MOBUTU Sese Seko forseti
skýrði frá því í dag að hann væri
að koma á fót einvalaliði sem gæti
varið Shaba-hérað og gert gagn-
árás ef ný innrásartilraun yrði
gerð.
Ilann sagði að þctta væri liður
í ráðstöfunum til að auka öryggi
í Shaba og sagði að gæzia yrði
aukin á landamærunum. Hann
sagði þetta í fyrsta viðtalinu við
erlenda fréttamenn síðan innrás-
in var gerð í sfðasta mánuði.
Öryggisgæzlulið Afríkuríkja
skipað um 2.700 mönnum frá sjö
löndum tekur við vörnum Shaba,
en Mobutu sagði að það gæti ekki
verið þar lengi. Þess vegna kvaðst
hann mundú koma á fót einvala-
liði og sagði að öryggi héraðsins
yrði tengt hæfni til að svara í
sömu mynt.
Mobutu forseti sagði að
kúbanskir liðsforingjar hefðu
þjálfað um 6.000 uppreisnarmenn
í Angóla í sex mánuði áður en
innrásin var gerð. Þar til einum
degi áður en uppreisnarmenn
réðust til atlögu segir hann að
vélvædd sveit Kúbumanna hafi
verið á Kolwezi-svæðinu um 160
km frá landamærum Angóla.
„Fyrir liggja fjölmargar
sannanir um íhlutun Rússa og
Kúbumanna,“ sagði forsetinn.
„Farið var eftir hernaðaráætlun
sem sérfræðingar sömdu og
Nathaniel Mbuma lögregíuforingi
(Ieiðtogi uppreisnarmanna) hefði
ekki getað samið.“
Framhald á bls. 27
Hringurinn um
fangelsi Moros
þrengist sifellt
Róm. 9. júní. AP.
LÖGREGLAN, sem leitar að morðingjum Aldo
Moros fyrrverandi forsætisráðherra, hefur þrengt
svæðið þar sem þeir leita að „alþýðufangelsinu“ og
aukið yfirheyrslur yfir fimm mönnum sem voru
fangelsaðir og ákærðir fyrir morð.
Lögreglan sagði að athugun á sandi, sem fannst
í skóm Moros, gæfi til kynna að hann hefði
sennilega verið hafður í haldi við ströndina nálægt
Róm milli Maccarese og baðstaðarins Fregene.
Svæðið er nálægt Fiumic-
ino-flugvelli og leitað var á
því án árangurs meðan Moro
var í gíslingu en nú vonast
lögreglan að ný leit verði til
þess að hún finni fangelsi
Rauðu herdeildanna.
Nýjar yfirheyrslur hófust
í dag yfir fimm mönnum sem
voru handteknir þegar fund-
izt hafði prentsmiðja sem
Rauðu herdeildirnar notuðu
og ákærðir voru fyrir rán
Moros, morðin á fimm líf-
vörðum hans og morðið á
Moro.
Fyrstur var tekinn til
yfirheyrslu Enrico Triaca
eigandi prentsmiðjunnar.
Meintur aðalforsprakki
Rauðu herdeildanna í Róm,
Mario Moretti, var einnig
ákærður fyrir ránið og morð-
ið á Moro en hann leikur enn
lausum hala.