Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 21
21
■
hópnum það. Ekið var frá Grinda-
vík og komið við í laxeldisstöð
Sigurðar V. Helgasonar i Húsa-
tóftalandi. Jósep Borgarsson í
Höfnum tók á móti frambjóðend-
um við tilraunaverksmiðjuna á
Reykjanesi og flutti ásamt Finn-
boga Björnssyni úr Garðinum
nokkur ávarpsorð. Saltverksmiðj-
an á Reykjanesi getur veitt um 30
manns atvinnu og sparað mörg
hundruð milljónir í gjaldeyri og
orðið atvinnulífinu á svæðinu
mikil lyftistöng. Salóme þorkels-
dóttir þakkaði móttökurnar og
hvatti menn til dáða í komandi
kosningum. Ekið var að því loknu
um Hafnir og til Njarðvíkur.
Áð í Njarðvíkum
Áki Gránz og aðrir sjálfstæðis-
menn í Njarðvíkum tóku á móti
hópnum og snæddu með þeim í
Stapa. Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson þakkaði fyrir hönd fram-
bjóðenda móttökurnar og sagði, að
þeir hefðu orðið vitni að miklum
framkvæmdum á Suðurnesjum,
verkefnið væri að mati sjálfstæð-
ismanna að stækka þjóðarkökuna,
skapa þjóðarauð, en eyða ekki
öllum kröftunum í að skipta
kökunni aö geðþótta sósíalista.
Garðurinn, sem hlaðinn var á
þessu kjörtímabili við Njarðvíkur-
höfn, var skoðaður, en á þessu
kjörtímabili hefur verið veitt um
322 milljónum kr. í hann. Ekið var
þessu næst til Keflavíkur.
Sjómannadagur
í Keflavík
Ellert Eiríksson sagði
ferðamönnum frá framkvæmdum í
Keflavík, en í bænum var verið að
halda sjómannadag hátíðlegan.
Hópurinn ók að styttu Ólafs
Thors, hins látna foringja Sjálf-
stæðisflokksins, í Keflavík, en
hana mótaði Áki Gránz. Þar var
saman kominn fjöldi sjálfstæðis-
manna. Tómas Tómasson flutti
ræðu við styttuna, minntist Ólafs
og sagði, að samband fólksins og
foringjanna yrði að vera náið og
gott og hvatti sjálfstæðismenn til
að fylkja liði í komandi kosning-
um. Hópurinn fór síðan í sjó-
mannadagsgönguna að minnis-
merki sjómanna eftir Ásmund
Sveinsson, sem vígt var þennan
dag og tók þátt í hátíðarhöldum
dagsins.
Fariö um Sandgerði,
Garðinn og Vogana
Frá Keflavík var ekið til Sand-
gerðis. Þar tóku Jón Júlíusson og
fleiri sjálfstæðismenn á móti
frambjóðendum. í Sandgerði var
hlaðinn garður við höfnina og
bryggjan lengd á þessu kjörtíma-
bili. Skuttogarinn Dagstjarnan
sigldi inn á höfnina, á meðan
frambjóðendurnir voru þar, en
fyrir nokkrum árum hefði löndun
skuttogara í Sandgerði verið talin
óhugsandi. Ekið var að skólanum
í Sandgerði, og nýtt íþróttahús,
sem verið er að reisa, skoðað.
Ellert Eiríksson þakkaði Sand-
gerðingum móttökurnar, sagði, að
kosningar væru kjarabarátta og
að við ættum að berjast fyrir
bættum kjörum með því að efla
framkvæmdaaflið í íslenzkum
stjórnmálum, Sjálfstæðisflokkinn.
Hann sagði, að allt stefndi í óvissu
um varnarmálin, ef vinstri stjórn
tæki við í landinu. Ekið var frá
Sandgerði í Garðinn, og Oddur
Ólafsson sagði á leiðinni frá
íyrirhuguöum vegi á miili byggö-
anna, sem búið væri að veita
tugmilljónum í og eru fram-
kvæmdir þegar hafnar. I Garðin-
um tóku þeir Finnbogi Björnsson
og fleiri sjálfstæðismenn á móti
hópntim, og drukkið var sjó-
mannadagskaffi. Ekið var aö því
loknu i síðasta áfangastaðinn,
Vogana, þar sem sjálfstæðismenn
tóku á móti mönnum og sýnÖu
þeim höfnina. Sigurgeir Sigurðs-
son flutti Vogabúum þakkir og
hvatti alla til rösklegrar baráttu í
átökunum framundan. Feröinni
lauk með því, að ekið' var til
Hafnarfjarðar, en næsta sunnudag
fara frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins um aðrar byggðir
Re.vkjanesskjördæmis.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚR 10. JÚNÍ 1978
Sjálfstæðismenn í Njarðvíkum í hópi frambjóðenda við garðinn í landshöfninni í Njarðvík. Á þessu
kjörtímabili hefur verið veitt 322 millj. til hennar.
Tómas Tómasson. forseti bæjarstjórnar Kefiavfkur, ávarpar ferðalangana við myndastyttu af ólafi Thors,
hinum látna foringja Sjálfstæðisflokksins og þingmanns Reyknesinga. en styttuna mótaði listamaðurinn
Áki Granz.
Dagstjarnan sigldi inn á höfnina, á meðan frambjóðendurnir voru þar í heimsókn, en fyrir fáeinum árum
var sagt, að skuttogari gæti ekki siglt inn í Sandgerðishöfn. En höfnin var cndurbætt á þessu kjörtímabili
fyrir 306 milljónir kr. í Sandgerði skoðuðu frambjóðendur einnig skóla- og íþróttamannvirki, en til
skólahúsa í Reykjaneskjördæmi var veitt 1488 milljónum kr. á þessu kjörtímabili og til íþróttahúsa 126
milljónir kr.
í Vogunum var höfnin skoðuð undir leiðsögn sjálfstæðismanna á staðnum, en á þessu kjörtímabili var
1018 milljón kr. varið alls til hafnarframkvæmda í Reykjaneskjördæmi.
Landssamband
veiðifélaga
20 ára
LANDSSAMBAND veiðifélaga er
20 ára um þessar mundir. en það
var stofnað þann 21. júní 1958 að
frumkvæði Veiðifélags Árnes-
inga. Stofnfélög voru 7 og fyrsti
íormaöur Þórir Steinþórsson,
skólastjóri í Reykholti.
Fram til 1970 náði sambandið
aðeins til þriggja landsfjórðunga,
en þá bættist Austurland í
hópinn. Stjórnarmenn eru 5, einn
úr hverjum landsfjórðungi, og
formaður, sem kosinn er óhlut-
bundinni kosningu. Aðildarfélög
eru 46 eða um 63% starfandi
laxveiðifélaga í landinu. Félagar
í þessum veiðifélögum eru 3993.
1 frétt frá Landssambandi veiði-
félaga segir, að hiutverk Lands-
sambandsins sé að gæta hagsmuna
veiðifélaga og veiðiréttareigenda á
allan hátt, stuðla að auknum
tengslum félaganna innbyrðis,
vinna að aukinni fiskrækt og
auknum rannsóknum á þessu sviði,
ásamt aukinni þekkingu á veiði-
málum.
Frá 1973 hefur Landssambandiö
starfrækt skrifstofu í Reykjavík
fyrir starfsemi sína, sem og
veiðileyfasölu. Það hefur marg-
sinnis tekið þátt í endurskoðun og
athugun laxveiðilaganna, á full-
trúa í Veiðimálanefnd og er nú
farið að styrkja Veiðimálastofn-
unina tii rannsókna á veiðivötn-
um. Þá aðstoðar Landssambandið,
eða lögmaður þess, aðildarfélögin
við útboð veiöiréttinda og samn-
ingagerð, sé þess óskaö.
Viðskiptakjör-
svið vinsæl-
ast í Lauga-
lækjarskóla
í vetur stunduöu 500 nemendur
nám í Laugalækjarskóla en hon-
um var slitið 31. maí s.l. AIls voru
210 í framhaldsdcildum skólans
en þar er viðskiptakjörsvið
vinsælast. Nú luku 55 almennu
verzlunarprófi eftir tveggja ára
nám að lóknum grunnskóía.
Nú í vor voru nemendur með
sérhæft verzlunarpróf útskrifaðir
í fyrsta skipti. Eru þeir með
þriggja ára nám að loknu grunn-
skólaprófi með aðaláherzlu á
bókfærslu, reikningshaldi og vél-
ritun auk fleiri verzlunargreina.
Þessir nemendur geta bætt við
sig eins árs námi til stúdentsprófs.
Þó er gert ráð fyrir að í framtíð-
inni fari margir út á vinnu-
markaðinn að loknu þessu þriggja
ára námi, þar sem það á að veita
nemendum góða sérmenntun á
sviði verzlunar- og skrifstofu-
starfa.
Kvenfélaginu
Bergþóru gefnar
250.000 krónur
Nýlega afhenti Gísli Sigur-
björnsson forstjóri Elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grundar Kvenfé-
laginu Bergþóru í Ölfusi kr.
250.000 að gjöf frá Stofnendasjóði.
Vo»» Knf+O í Ko1’Ko*'l'l'1'«í r>éo*>í
* Uí j'V L I ti I puivikui OIV \ lii X > 1 » 1 O IUI 1
félagskvenna að Ási/Ásbyrgi í
Hveragerði
Félagskonur í kvenfélaginu taka
þátt í sjálfboðavinnu og standa
fyrir menningar- og félagslífi í
fámennri sveit.