Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JUNÍ 1978
F"rá ferdalagi frambjóóenda Sjálfstæóisflokksins um Suðurnes:
ÞinKmenn Sjálfstæðisflokksins á si'Aasta kjörtimabili frá v. Axel Jónsson, ólafur G. Einarsson, Oddur Ólafsson og Matthías Á. Mathiesen
fjármálaráóherra við hitaveitumannvirki í Svartsengi. Hitaveitan sparar Suðurnesjabúum 1800 milljónir kr. á árunum 1977—1980. Hita»
veita Suðurnesja hefur notið margvísleKrar fyrirgreiðslu stjórnvalda, ekki sízt fjármálaráðherra.
og sagði, að tvö öfl tækjust nú á
í íslenzkum stjórnmálum, Sjálf-
stæðisflokkurinn, afl til uppbygg-
ingar, og Alþýðubandalagið, afl til
niðurrifs.
Heimsókn í
Grindavík og Hafnir
Ekið var að þessu loknu til
Grindavíkur. Eiríkur Alexanders-
son bæjarstjóri sagði frá fram-
kvæmdum í Grindavík og Sævar
Óskarsson og aðnr sjálfstæðis-
menn í Grindavík buðu frambjóð-
endum til kaffidrykkjú í Festi.
Oddur Ólafsson ávarpaði menn að
henni lokinni og minnti á það, að
kommúnistar hefðu þá stefnu að
þjóðnýta alla útgerð í landinu,
Þjóðviljinn hefði skrifað um það
1974, þótt hann teldi hyggilegast
að þegja um það núna. Oddur sagði
frá hinni öru þróun síðustu ára í
sjávarútvegsmálum og lofaði
Suðurnesjabúa fyrir dugnað þeirra
og framkvæmdahug. Pikið var
niður að Grindavíkurhöfn, en nýtt
nótaskip Dagbjarts Einarssonar,
Grindvíkingur, lá við festar í
höfninni, og sýndi Dagbjartur
Hitaveitan sparar
hverri fjölskyldu á
Suðurnesjum um 250
þús. kr. 1977—1980
Hitaveituframkvæmdir
skoðaðar
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi í
næstu þingkosningum fóru í ferða-
lag um Suðurnesin sunnudaginn 4.
júní sl. til að skoða framkvæmdir
þar og heimsækja Suðurnesjabúa.
Lagt var af stað frá Hafnarfirði
um morguninn, og var Jóhann
Petersen fyrrv. form. kjördæmis-
ráðs, fararstjóri. I ferðina fóru
frambjóðendurnir Matthías A.
Mathiesen fjármálaráðherra, Odd-
ur Ólafsson læknir og alþingis-
maður, Ólafur G. Einarsson
alþingismaður, Eiríkur
Alexandersson bæjarstjóri í
Grindavík, Salóme Þorkelsdóttir
Matthías A Mathicsen lóðsar cina ferðakonuna i land úr hinu nýja
nótaskipi. sem frambjóðendur skoðuðu, Grfndvíkingi.
skrifstofumaður, Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson háskólanemi, Ellert
Eiríksson verkstjóri, Axel Jónsson
alþingismaður, makar flestra
frambjóðenda og nokkrir aðrir.
Jóhann Petersen sýndi frambjóð-
endum DAS-heimilið nýreista í
Hafnarfjarðarhrauni, en að því
loknu var ekið til Svartsengis, og
lýsti Eiríkur Alexandersson stað-
háttum, þegar kom í land Grinda-
víkur. í Svartsengi tóku Ingólfur
Aðalsteinsson hitaveitustjóri og
hópur sjálfstæðimanna úr Vogun-
um á móti hópnum, og sagði
Ingólfur frá Hitaveitu Suðurnesja.
Sú saga er mikil ævintýrasaga, svo
vel hefur allt gengið. Árið 1971
hófust fyrstu boranir, og félag var
stofnað um heitaveituna 1974.
Eiga sveitarfélögin 60% í henni og
ríkið 40%. Þegar hefur hitaveita
verið lögð í flest hús í Grindavík
og Ytri Njarðvík, og verið er að
leggja hana í hús í Keflavík og
hefja framkvæmdir við hitaveitu í
Sandgerði, Garðinum og Vogun-
um. Stefnter að því að tengja allar
byggöirnar saman fyrir mitt ár
1979. Ingólfur Aðalsteinsson sagði,
að hitaveitan sparaði (á núverandi
verðlagi) hvorki meira né minna
en 1800 milljónir kr. eða 1,8
milljarð kr. á árunum 1977—1980.
En innfiutt efni til hennar kostar
1,4 milljarð kr., svo að öll gjald-
eyrisútgjöld fást aftur á þessum
árum og meira en það. Þessar 1800
millj. kr. nema 250 þús. kr. á
hverja fjölskyldu á Suðurnesjum.
Með mikiili hugkvæmni tækni-
manna hefur einnig tekizt að nýta
varma til rafmagnsframleiðslu á
Svartsengissvæðinu og sparar það
10 milljónir á' þessu ári, og er
ætlunin að gera fleiri, tilraunir til
rafmagnsframleiðslu Ingólfur
sagði, að fyrirgreiðsla stjórnvalda
hefði verið mjög góð. Sigurgeir
Sigurðsson þakkaði Ingólfi og
félögum hans fyrir móttökurnar
: Mr
1 . WLA
f Garðinum drukku frambjóðendur sjómannadagskaffi i
samkomuhúsinu með sjálfstæðismönnum á staðnum, Birni
Finnbogasyni og fleirum, og kveðast þeir á þrepunum. En til
Garðskagavegarins hefur verið varið 111 milljónum kr. sl. 3 ár.
Jósep Borgarsson, hreppsstjóri í Höfnum, Eiríkur Alexandersson.
bæjarstjóri í Grindavík. og Finnbogi Björnsson við framkvæmdir
tilraunaverksmiðjunnar til saltvinnslu á Reykjanesi. Þessi verksmiðja
mun veita 30 mönnum atvinnu og spara nokkur hundruð milljónir
kr. í gjaldeyri, ef af hcnni verður. Eiríkur Alexandersson er fulltrúi
Suðurnesjabúa á framboðslista Sjálfstæðisflokksins.